Morgunblaðið - 28.08.1983, Síða 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983
A DRömN&nra
UMSJÓN:
Séra Auður Eir Vilhjálmadóttir
Gunnar Haukur Ingimundarson
Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir
Safiiaðarvitund
okkar
I'egar Jesús kvaddi þetta jarðlíf,
bauð hann okkur að halda samfé-
lag okkar á meðal, safnast saman í
hans nafni. Hvar sem menn því
safnast saman um orð Guðs og
skírn og kvöldmáltíð — þar er
kirkjan. En spurningin vaknar þá:
Hver er meðvitund okkar íslend-
inga — og sérstaklega Reykvfk-
inga um söfnuð þann, sem við til-
heyrum. Kirkjan í söfnuðinum,
sem við eigum lögheimili í, er
kirkjan okkar — þeim söfnuði til-
heyrum við og mikilvægt er að við
finnum að þar eigum við heima.
Það er nauðsynlegt, að við finnum
að við erum hluti af því samfélagi,
sem Jesús Kristur boðaði að við
ættum að vera.
f kirkjum borgarinnar og víða
um land, fer fram fjölbreytt
safnaðarstarf — barnastarf,
æskulýðsstarf, bænasamfélag og
öldrunarstarf. Þar á að vera að
finna eitthvað fyrir alla hópa
þjóðfélagsins. Ef við finnum þar
eitthvað við okkar hæfi, þá finn-
um við hve ríkt samfélag kirkju-
samfélagið er, því það er samfé-
lag, sem Kristur sjálfur stofnaði
og trúin á hann er það sem við
eigum þar sameiginlegt. Há-
punktur þessa samfélags er svo
guðsþjónustan sjálf, þar sem
kristnir menn koma saman á
Drottins degi og lofa Drottin
sinn og frelsara. Þegar við erum
farin að finna þessa safnaðar-
kennd, getum við því verið ör-
uggari með að leita til kirkjunn-
ar okkar í vandamálum okkar
hversdagslífs — en það er vissu-
lega hlutverk kirkjunnar að
mæta þörf einstaklinga safnað-
arins, er erfiðleikar heimsins
virðast þeim ofviða. Vissulega er
hver söfnuður opin öllum —
kirkjan vísar engum frá — held-
ur er hún opin hverjum, sem þar
vill koma. Þess vegna skaltu
leita til kirkjunnar þinnar og
kynna þér hvað hún hefur að
Þjónustan
12. sunnudagur eftir trinitatis
Matt. 20:20—28
Hvert er hlutverk hins kristna manns?
Hver er tilgangur hans í lífinu? Hver er tilgangurinn í lífi
þínu? Þessar spurningar vakna við lestur guðspjalls dagsins í
dag — og í ljós kemur að hlutverk þeirra, sem vilja feta veg
Krists, og hafa hann að leiðarljósi í lífi sínu — er þjónustan.
Þjónustan við Guð og menn. En er hún auðveld og létt? Erum
við tilbúin til að drekka þann kaleik, sem Kristur býður okkur
að drekka? Og ef svo er vitum við þá í hverju sá kaleikur felst?
Með orðum sínum er Jesús að segja okkur að lægja hroka okkar
og oflæti — ekki hugsa um eigin metorð og standa vörð um
stolt okkar og eigingirni, því það er hún sem sundrar og veldur
einmanaleika, hún brýtur niður samfélagskennd þá, sem hann
vildi að líf hins kristna manns yrði gagntekið af. Þjónustan við
náungann getur kostað okkur mikið af tíma okkar og vinnu, en
er hún ekki þess virði? Er það ekki einmitt þá, sem við finnum
að Guð, skapari okkar og frelsari leggur hönd á höfuð okkar og
segir: „Þakka þér fyrir barnið mitt." Því þjónustan við náung-
ann, þegar hann þarf á okkur að halda, — hún er hið kristna líf.
Reynum því að slá af metorðagirndinni, því það er ekki okkar
að dæma, „það veitist þeim sem það er fyrirbúið af föður
mínurn". Guð einn dæmir um hvort þú þjónar honum af heilu
hjarta. Það er ekki okkar hlutverk að ákveða það sjálf hvern
sess við hljótum hjá honum. En að lifa í anda Krists er okkur
boðið af honum og náð hans og fyrirheitum getum við treyst.
Hans orðum getum við treyst, því „himinn og jörð munu líða
undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða“.
Biblíulestur
vikuna 28. ágúst — 3. september
Söfnuðurinn
Sunnudagur 28. ágúst: Hebr. 10.25 — Sækjum kirkjustarfið
Mánudagur 29. ágúst: I. Kor. 12.12—13 — Við þörfnumst hvers
annars
Þriðjudagur 30. ágúst: Ef. 5.23—24 — Friður og náð í söfnuðin-
um
Miðvikudagur 31. ágúst: Hebr. 13.15—17 — Lofgjörðarfórn
Fimmtudagur 1. sept.: Post. 2.47 — Lofgjörð
Föstudagur 2. sept.: I. Pét. 2.11—17 — Tillitssemi safnaðarins
Laugardagur 3. sept.: Post. 4.8—12 — Jesús er eina hjálpræðið
bjóða þér. Þar finnur þú samfé-
lag. Þar finnur þú tilgang með
því sem þú ert að gera. Þar finn-
ur þú þörf fyrir þig. Þar finnur
þú að það að þjóna Kristi er að
þjóna náunga þínum, „því
hungraður var ég, og þér gáfuð
mér að eta, þyrstur var ég og þér
gáfuð mér að drekka, gestur var
ég og þér hýstuð mig, nakinn og
þér klædduð mig, sjúkur og þér
vitjuðuð mín, í fangelsi var ég,
og þér komuð til mín. Sannlega
segi ég yður, það allt, sem þér
gjörðuð einum minna minnstu
bræðra, það hafið þið gjört mér.“
Fermingarstörfín
rædd í Skálholti
„Fermingarstörfin" verða tekin
til umræðu á leiðtoganámskeiði
æskulýðsstarfs þjóðkirkjunnar í
september. Námskeiðið verður
haldið í Skálholti dagana 1.—4.
september og verður hið fjölbreyti-
legasta að venju. Þar verður rætt
um markmið og stefnu fermingar-
undirbúningsins og fermingarinn-
ar, þátt æskulýðsfélaganna í ferm-
ingarfræðslunni, uppeldissjónar-
mið starfsins og þroska þessa ald-
urshóps. Fulltrúi frá fíkniefnalög-
reglu mun ræða um leiðir til að
fræða ungmenni um skaðsemi
fíkniefna og um þetta allt verða
umræður í smáum hópum og stór-
um.
Samhliða þessari dagskrá
verður barnadagskrá, þar sem
ýmislegt verður á döfinni. Allt
áhugafólk um kirkjumál er hvatt
til að mæta, fræðast, kynnast og
njóta góðrar samveru. Leiðtoga-
námskeið æskulýðsstarfsins
hafa unnið sér fastan sess í hinu
árlega kirkjustarfi, þar hittast
þau, sem standa fyrir starfi
barna og unglinga í söfnuðunum
og uppörvast í sameiningu fyrir
vetrarstarfið, læra nýja söngva,
fá nýjar hugmyndir og blessun í
trú sinni.
Innritun á leiðtoganámskeiðið
fer fram á skrifstofu ÆÞ, hjá
æskulýðsfulltrúunum, séra Agn-
esi M. Sigurðardóttur og Bjarna
Karlssyni. Þau hafa síma 12445.
Frá Lútherska
heimssambandinu
með ákalli um
bæn fyrir friði
„Hið kristna samfélag, sem
Guð hefur kallað til frá öllum
þjóðum og sent heiminum, nær
út yfir öll mörk þjóðernis, hug-
myndafræði og stjórnmála og er
þannig orðið tákn sátta og jafn-
framt mikilvægt til skilnings
milli þjóða, sem búa við ólík
þjóðfélagskerfi.“
„Kristnir menn hafa ólíkar
skoðanir á því með hverju móti
verði bezt unnið að friði. Gagn-
kvæm virðing, skoðanaskipti og
samvinna kirkjufólks, sem
greinir á, verða að vera í háveg-
um höfð.“