Morgunblaðið - 20.09.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.09.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1983 3 Þriggja daga gaddur gæti vald- ið vatnsleysi „EF þAÐ gerir 10—14 stiga frost í meira en þrjá daga á komandi vetri er hætt við að vissir bæjarhlutar lendi úti í kuldanum, það er að segja að þeir verði heitavatnslausir," sagði Gunnar Kristinsson, yfirverkfræðing- ur hjá Hitaveitu Reykjavíkur, í sam- tali við fréttamann Mbl. í gær. „Þrátt fyrir gjaldskrárhækkun- ina, sem við fengum, tæp 48%, hef- ur nánast ekkert breyst hjá okkur síðan í fyrravetur," sagði Gunnar. „Hækkunin kom það seint, að pen- ingarnir eru lítið sem ekkert farnir að skila sér inn og því verður litlu sem engu komið í gagnið í vetur. Á vissan hátt erum við jafnvel verr staddir en í fyrra, því talsvert hefur bæst við af húsum á veitusvæðinu í sumar. Við sluppum með skrekkinn í fyrra, því þótt veturinn hafi verið kaldur þá voru ekki langvarandi frosthörkur og það eru þær, sem við þurfum að hafa áhyggjur af.“ Gunnar sagði að kæmi til frosta, sem stæðu í meira en þrjá daga eða svo, þá væri hætt við að nokkur hverfi myndu missa vatn. Það væri t.d. Skólavörðuholtið, ásar Kópa- vogs og ef til vill Breiðholt II, þ.e. Seljahverfi. Um frekari vatnsöflun í haust og vetur sagði Gunnar að fyrirhugað væri að bora eina holu á Nesjavöllum í Grafningi og koma því af fyrir veturinn. „Svo er ætlun- in að bora tvær holur í borginni og þá á svæðum þar sem við erum með holur fyrir, þannig að auðveldara verði að koma því vatni inn á kerfið með því að ekki þurfi að leggja í miklar nýjar lagnir. En þetta tekur allt tíma, það tekur alltaf mánuð að bora og annan að tengja, miðað við að vel gangi, þannig að ástandið í vetur verður engu betra en í fyrra. En eftir það ætti að fara að rofa til í þessum málum hjá okkur,“ sagði Gunnar Kristinsson. Keflavíkurflugvöllur: Yfirdýralæknir hefur mót- mælt flutningi matvæla „ÉG HEF oft kvartað yfir þessum fiutningi matvæla út af Kefiavíkur- flugvelli enda er smithættan sú sama hvort sem í hlut á einhver tiltekinn hópur Bandaríkjamanna eða íslend- ingar," sagði Páll A. Pálsson, yfirdýra- læknir, í samtali við Mbl., er hann var að spurður álits á heimild 50 tiltekinna Bandaríkjamanna tii að fiytja matvæii út af Keflavíkurfiugvelli. Yfirdýralæknir sagði að smithætt- an væri þó ekki mjög mikil þar sem þessi matvæli væru öll i neytenda- umbúðum og tilbúin til matseldar, ekkert væri um kjöt í heilum skrokk- um til dæmis, auk þess sem sorpeyð- ing á þessu svæði væri orðin til mik- illar fyrirmyndar; allt sorp brennt. Varðandi innflutning Flugleiða á eggjum til flugeldhúss félagsins á Keflavíkurflugvelli sagði yfirdýra- læknir að þau mál væru ekki innan hans valdsviðs og heyrðu undir varnarmáladeild utanrfkisráðu- neytisins. ÞriAr NVIAR UNKfflÖUfUR SE0IMARKA TIMAMOr Rainbow Professional 325 Professional 350 KRISTJÁN Ó SKAGFJÖRÐ HE Tölvudeild, Hólmaslóð4,101 Reykjavlks.24120 Gunnar I v* jeocAViDmy .!> FRUMSÝNING NÆSTKOMANDI FÖSTUDAGSKVÖLD KL. 19.00 STUNDVISLEGA Við höldum nú áfram að rifja upp skemmtilegt tímabil í tónlistinni og nú er það Bítlatímabilið. Hljómar A n menn létu háriö vaxa svo aö eldra fólki PCVaMn þótti nóg um. ÞEGAR stúlkur féllu í yfirlið á tónleikum af hrifningu. kcp A D allir héldu aö unga kynslóðin væri nú “c****l* endanlega að ganga af göflunum. kpp * D blómatímabiliö gekk yfir og unglingarnir PCUMn sungu um friö á jörö. Já, þaö er margs aö minnast og nú verður þaö rifjað upp undir stjórn þess manns sem hvaö mest var í sviðsljósinu á Islandi á þessum tíma, Gunnars Þóröar- sonar. Gunnar hefur nú sett saman 12 manna hljómsveit sem leikur undir hjá stjörnunum sem eru: Sigursteinn Hákonarson, Steini í Dúmbó, Ólafur Þórarinsson, Mánum, Pálmi Gunnarsson, Jónas R. Jónsson Flowers Þuríöur Siguröardóttir Jóhann G. Jóhannsson Þorgeir Ástvaldsson Halldór Kristinsson Tempo Pétur Kristjánsson Magnús og Jóhann Björgvin Halldórsson Rúnar Júlíusson Þau flytja yfir 50 lög Þá verða og flutt lög úr söng- leiknum Háriö sem sló í gegn alls staöar í heiminum. Auðvitað koma svo fram Go Go stúlkur sem einmítt voru vins- ælar á dansleikjunum og ómissandi á öllum stærri upp- ákomum. Páll Þorsteinsson, hinn eldhressi kynnir, rifjar svo upp skemmti- legt atvik á sinn skemmtilega hátt og diskótekararnir leika létt lög frá þessum árum. Matseöill: Hörpuskelfiskkokteill a la Kinks Kryddlegiö lambalæri Bordela- ise a la Beatles Verö kr. 450 Aögangseyrir kr. 300 Boröhald hefst kl. 19.00 stund- víslega. Boröapantanir í síma 77500 kl. 9—7 í dag. Tryggið ykkur miða strax.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.