Morgunblaðið - 20.09.1983, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.09.1983, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1983 Ingi Björn Albertsson skorar hér fyrsta markið. Eftir aö Magni hafði skallað á markið og Aðalsteinn hálfvarið, var Ingi sekúndubroti á undan Aðalsteini aö boltanum og potaði honum yfir línuna. Ráttur maður ó ráttum stað. Morgunbia«iö/Friðþi<bfur Eins og hleypt — manni létti svo mikió, sagði Ingi Björn Albertsson efftir sigurinn á IBV „MÖRKIN tvö voru mjög ónægju- leg, jú, en það var enn ánægju- legra aö vinna leikinn. Það er eins og nú hafi verið hleypt úr blöðru — manni léttir svo mikið eftir þennan sigur,“ sagöi Ingi Björn Albertsson, eftir aö Valur hafði sigrað ÍBV 3:0 á Valsvellinum á laugardaginn og þar með tryggt sæti sitt í 1. deild. Gott betur en það reyndar, liðið er nú í fjóröa sæti deildarinnar. „Viö höfum sýnt það í undan- förnum leikjum aö viö erum meö allt of gott liö til aö falla,“ sagöi Ingi Björn. Þaö eru orð aö sönnu, því eins og Valsmenn léku á laug- ardag, eiga þeir frekar heima á toppi deildarinnar en á botni. Þeir hafa nú sigrað í síöustu fjórum leikjum sínum — en staöan var verulega slæm hjá liöinu fyrir fjórar síöustu umferöirnar. Liðiö var þá í neösta sæti meö aöeins tíu stig, en frábær endasprettur bjargaöi liö- inu. Valur er því enn eina félagiö sem aldrei hefur falliö úr 1. deild. Sigurinn yfir ÍBV var mjög sann- gjarn, og í seinni hálfleiknum, er Valur skoraöi öll mörk sín, lék liöið frábæra knattspyrnu. Nokkuö jafn- ræöi haföi veriö meö liöunum i fyrri hálfleik. Valsarar byrjuöu betur, en Eyjamenn hresstust fljótlega eftir að þeir fengu fyrsta færiö. Sveinn átti þá hörkuskot frá teig sem Brynjar varöi naumlega í horn meö öðrum fætinum. Valsmenn spiluöu betur úti á vellinum, oft mjög lag- lega, en þeim gekk erfiölega aö skapa sér færi. Þaö besta fékk Valur Valsson eftir hálftíma leik, en Aöalsteinn varði mjög vel frá hon- um af stuttu færi. Seinni hlutann Valur— ÍBV pressuöu Valsmenn stíft en ekkert gekk upp viö markið. Ekki var liöin löng stund frá því Guömundur dómari Haraldsson flautaöi til síöari hálfleiks er Eyja- menn máttu hiröa knöttinn úr net- inu hiö fyrsta sinn. Guömundur tók horn frá vinstri, Magni skallaöi aö marki, Aöalsteinn varöi en hélt ekki boltanum. Ingi Björn var þar réttur maöur á réttum staö eins og svo oft áöur og spyrnti í netið af marklínunni. Eftir þetta var eins og sú mikla pressa sem var á Valsmönnum minnkaöi og fljótlega höföu þeir skoraö aftur. Grímur sendi þá fyrir markiö og aftur var Ingi Björn á réttum staö. Nú skallaöi hann fyrir- gjöfina í netiö — alveg óáreittur. Enn skemmri tími leiö svo milli þessa marks og þess þriöja en á milli þeirra fyrri. Valsmenn press- uöu stíft aö marki: Þórarinn Þór- hallsson, skemmtilegur bakvörður i liöi Eyjamanna, bjargaöi á línu skalla Þorgríms og eftir mikinn barning upp við markið fékk Valur Valsson boltann á markteigshorn- inu og sendi hann með þrumufleyg í netið. Aðalsteinn hefur vafalaust ekki séð knöttinn fyrr en of seint vegna mannmergöar í teignum. Stuttu síöar fékk Ingi Björn mjög gott færi, en hann mokaöi boltanum yfir er auðveldara virtist aö skora. Tómas fékk einnig mjög gott fæn hinum megin en Brynjar kom a móti og varöi vel í horn. Aftur voru þeir Brynjar og Tóm- as á ferðinni stuttu seinna: Brynjar varöi þá enn betur en áöur, þrumuskot Tomma af markteign- um. Úlfar bjargaöi svo skalla frá Sigurjóni varamanni á línu skömmu fyrir leikslok. Á þessu sést aö Eyjamenn vöknuöu aöeins til lífsins undir lokin en mest allan hálfleikinn höföu Valsmenn haft yf- irburöi. Þeir sýndu i þessum leik að liöiö er allt of gott til aö falla. Gott ef nýtt Valsstórveldi er ekki í sjón- máli. Bestu menn liösins nú voru Ingi Björn og Guðni Bergsson. Ingi sívinnandi og ógnandi og Guöni frábærlega öruggur í stööu „sweepers". Sannarlega maöur framtiöarlnnar, Guöni. Þaö veikti Vestmannaeyjavörn- ina mikiö að Þórður Hallgrímsson var ekki meö. Snorri lék í hans staö á miöju varnarinnar og Þórar- inn Þórhallsson var bakvörður. Snorri fann sig einhvern veginn ekki en Þórarinn kom aftur á móti vel út úr bakvaröarstööunni. í stuttu máli: Valsvöllur 1. deild. Valur—ÍBV 3:0(0:0) Mörk Vals: Ingi Björn Albertsson 2 (48. og 56. mín.) og Valur Valsson (60. mín.) Dómari: Guömundur Haraldsson, og dœmdi hann auödæmdan leik vel. Áhorfendur: rúmlega 1.700 Einkunnagjöfin. Valur: Ðrynjar Guömundsson 7, Ulfar Hróarsson 7, Grímur Sæmundsen 7, Guóni Ðergsson 8, Magni Blöndal Pétursson 7, Þorgrímur Þráinsson 7, Ingi Björn Alberts- son 8, Hilmar Sighvatsson 7, Valur Valsson 7, Guömundur Þorbjörnsson 7, Bergþór Magn- ússon 7. Höröur Hilmarsson (vm) lék of stutt. ÍBV: Aöalsteinn Jóhannsson 6, Tómas Pálsson 6. Viöar Elíasson 6, Þórarinn Þórhallsson 7, Valþór Sigþórsson 6, Snorri Rútsson 5, Sveinn Sveinsson 6, Jóhann Georgsson 6, Hlynur Stefánsson 6, Bergur Ágústsson 6, Ómar Jó- hannsson 6, Sigurjón Kristinsson (vm) lék of úr blöðru Þriðja mark Vala, og „Valalegra" gat það varla varið. Valur Valaaon fákk boltann rátt utan við markteiga horniö ... ... og þrátt fyrir aö Þórarinn Þórhallsson og fleiri varnarmenn (sem ekki sjáat á myndinni) þjörmuðu að honum náði hann föatu skoti á markið. Boltinn fór undir Aðalstein og í netið. Morgunbia«i«/FriöþjAfur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.