Morgunblaðið - 20.09.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1983
35
hann væri þess fullviss að unnt
yrði að byggja upp rekstur hússins
og reka það svo sómi yrði af. Hann
sagðist hafa hlustað á ráðamenn
fyrir sunnan tala um hraðfrysti-
húsið sem versta dæmið um lélega
fjárfestingu. Það hefðu þeir einnig
gert á sínum tíma um hraðfrysti-
húsið á Bíldudal, en í dag sendu
þeir menn þangað til að læra af
rekstrinum, en framlegðin þar
næmi nú 30%. Greip þá einn fund-
armanna fram í og sagðist undr-
andi á þessari yfirlýsingu forsæt-
isráðherra því hraðfrystihúsið á
Bíldudal ræki ekki útgerð eins og
gert væri á Patreksfirði og útgerð-
in væri fryst á kostnað fiskvinnsl-
unnar.
Þá var Steingrímur spurður,
hvort hann ætlaði að standa við
orð fyrirrennara síns í starfi um
að fullar bætur kæmu til Patreks-
firðinga vegna snjóflóðanna.
Steingrímur sagði unnið að því,
hann hefði beitt sér fyrir 340 þús.
kr. viðbótargreiðslu, en vandamál
væri varðandi brunabótamat og
þær tryggingar sem iðgjöld hefðu
verið greidd samkvæmt því mati.
Spurningu um húshitunarkostnað
á landsbyggðinni svaraði hann á
þá leið að niðurgreiðslur vegna
raforkuhitunar yrðu auknar á
næsta ári.
„Ekki kemur tii máia
að selja Kíkisskip"
Fundurinn á ísafirði fór fram
með svipuðum hætti og á Patreks-
firði. Fyrirspyrjendum þar lék
m.a. hugur á að vita hvort fyrir-
hugað væri að setja upp radar-
stöðvar og hernaðarmannvirki á
Vestfjörðum. Steingrímur sagði
að radarstöð á Vestfjörðum hefði
aldrei komið á borð ríkisstjórnar-
innar. Aftur á móti myndi ný rad-
arstöð t.d. á Höfn í Hornafirði
þýða fækkun á starfsliði úr 120 í
6—7 manns. Forsætisráðherra
sagði þessar nýju stöðvar mjög
fullkomnar og með þeim væri m.a.
unnt að fylgjast með skipaferðum,
sem yrði til mikilla hagsbóta fyrir
Landhelgisgæsluna. Hann kvað þó
engar tillögur um þetta liggja
fyrir hjá ríkisstjórninni. Þá kom
fram í máli Steingríms að hann
væri þeirrar skoðunar að Banda-
ríkjamenn hefðu átt að borga alla
flugstöðvarbygginguna nýju á
Keflavíkurflugvelli.
Spurningunni um af hverju Al-
þingi var ekki kallað saman eftir
kosningar svaraði Steingrímur á
þá lund að þarna hefði helst verið
um að ræða að kjósa í nefndir
þingsins, en hann treysti Kjartani
Jóhannssyni sem gegndi for-
mennsku í utanríkismálanefnd og
Geir Gunnarssyni formanni fjár-
veitinganefndar vel til að sinna
formennsku. Þá kom fram í svör-
um forsætisráðherra, að ekki
kæmi til mála að hans mati að
selja Ríkisskip, sú þjónusta sem
fyrirtækið ræki yrði ekki trygg í
höndum einkaaðila. Húshitunar-
kostnaður var mikið til umfjöllun-
ar og kom fram í máli manna að
þeir telja þá fjárhagsbyrði eitt af
aðalvandamálum við búsetu á
Vestfjörðum. pp
Drætti frestað
í Sumarbæti,
happdrætti
FEF til 5. okt.
DRÆTTI í sumarbæti, skyndi-
happdrætti Félags einstæðra for-
eldra hefur verið frestað til 5.
október, en ætlunin hafði verið að
draga í happdrættinu í dag, 20.
sept. Margir góðir og nýstárlegir
vinningar eru í boði, svo sem
heilsuvikudvöl, líkamsræktar-
námskeið o.fl., o.fl. Félagar eru
hvattir til að nota tímann fram til
5. október til að selja upp og gera
snarlega skil til skrifstofu FEF í
Traðarkotssundi.
(Fréttatilkynning frí FEF.)
INNLENT
í tilefni þess að við afhendum þúsundasta
Suzuki-bílinn þessa dagana, seljum við nokkra
Suzuki Alto árgerð 1983 með 95.000,- króna útborgun.
Missið ekki af upplögðu tækifæri til að eignast nýjan bíl á góðum kjörum.
Suzuki Alto — Sterkur — Sparneytinn
Eyðsla: minna en 5 I. pr. 100 km.
Verd kr. 185.000,-
Útborgun 95.000,-
35—40 nýir
blikksmidir í ár
ÞRETTÁN nýir blikksmíðasveinar
fengu sveinsbréf sín og félagsskír-
teini í Blikksmiðafélaginu afhent við
hátíðlega athöfn á dögunum. Síðar í
haust munu 25—30 menn fara í
sveinspróf í faginu, að sögn Krist-
jáns Ottóssonar, formanns félagsins.
Myndin hér að ofan var tekin við
það tilefni í hófi, sem félög meistara
og sveina í greininni héldu, en það
var samkvæmt sérstöku samkomu-
lagi félaganna frá fyrra hausti.
Þrír nýbakaðir sveinar fengu sér-
staka viðurkenningu: Skúli Guð-
mundsson fyrir hæsta meðalein-
kunn og þeir Gunnar Valdimars-
son og Björgvin Ormarsson fyrir
ágætiseinkunn í verklegu prófi.
Viðurkenningin var skrautrituð
Blikksmíðasaga Íslands, sem þeir
fengu frá stéttinni.
„Aðaláherslan er lögð á hand-
verkið," sagði Kristján Ottósson í
stuttu spjalli við Mbl. „Það hefur
að undanförnu verið mikið starf
unnið í fræðslumálum stéttarinn-
ar, og blikksmíðin er eina fagið,
þar sem haldið hefur verið sér-
stakt námskeið fyrir prófnefnd-
armenn."
Kristján sagði að á undanförn-
um árum hefði samstarf meistara
og sveina í stéttinni verið mikið.
Mætti benda á samvinnu um út-
gáfu Blikksmiðatals og baráttuna
fyrir réttindum fagsins í bygg-
ingarreglugerð, þótt þar væri enn
mikið starf óunnið. Alls munu um
240 menn hafa lokið sveinsprófi í
blikksmíði. Um miðjan fjórða ára-
tuginn voru starfandi í landinu
fimm blikksmiðjur og starfsmenn
innan við 30. Nú eru smiðjurnar 34
og starfsmenn um eða yfir 300. í
blikksmiðjunum hafa jafnan unn-
ið allmargir aðstoðarmenn en nú
er stefnt að því að láta þá, sem
unnið hafa lengi í faginu, gangast
undir sveinspróf skv. lagaheimild
eða koma þeim á námssamning.
Nýútskrifaöir blikksmiðir með félagsskírteini sín.
SUZUKI
kr. 95.000,-
útborgun
Mjólkuidagar’83
/' íþróttahöllinni á Akureyri 23, 24. og 25. september.
KYNNING verður á nýjustu fram-
leiðsluvörum mjólkursamlaganna og
boðnar bragðprufur.
MARKAÐUR Fjölbreytt úrval af
mjólkurvörum á kynningarverði.
VEITINGAR ástaðnum og myndbönd
í gangi.
ÞAÐ VERÐURKÁTTíHÖLLINNI
Eitthvað um að vera allan tímann.
ÓKEYPIS AÐGANGUR Opið
föstudag kl. 17-21, laugardag og sunnu-
dag kl. 13 - 21.
Verið velkomin.
Mjólkmriagsnefhd
8 18