Tíminn - 17.08.1965, Page 8
ÞRIÐJUDAGUR 17. ágúst 1965
8
TÍMINN
Emelía Biering:
Heimsóknir og heilabrot
Fyrir skömmu las ég athyglis-
verða grein eftir frú Sigríði Thorl
acíus, sem hún nefndi: „Hvar á
aldrað fólk að búa?“ og vonandi
hafa orð hennar snert fleiri en
mig — og alveg sérstaklega þá,
sem öðlazt hafa áhrif og þekkingu,
sem nægja mætti til að koma hreyf
ingu á þetta þarfa mál — sem
mér finnst ótrúlega lítill áhugi
sýndur. Gleymum við því ekki allt
of oft, meðan við njótum fullra
starfskrafta, og lífið lokkar með
óteljandi áhugaefnum, að ef við
fáum að lifa lengi — eins og flest
ir munu kjósa, að minnsta kosti
meðan allt leikur í lyndi — þá eig-
um við þá vísa heimsókn E!li kerl
ingar, og þó að hún sé mislynd
og mishittin á margan hátt, þá
tekur hún þó völdin í sínar hend-
ur og flestum mun reynast hún
óþarflega harðhent — að þeim
finnst.
Úr þvi mætti þó mikið bæta,
ef við væru vel undir það búin að
taka á móti henni. En — erum
við það? Mér finnst óhætt að
segja ákveðið: „Nei“. Það er svo
margt í okkar ört gróandi þjóð
lífi, sem truflar og tekið er fram
yfir þetta mál — sem hver bar
áttufær maður telur svo langt
framundan hjá sjálfum sér. Ein-
staklingshyggj an er alltaf mikils
ráðandi hjá flestum, og einnig er
það óþrjótandi, sem þjóðin og
landið þarfnast, af alls konar um
bótum og „nýsköpun“ og víst er
það flest nytsamt og nauðsynlegt,
en þó hvarflar það oft í huga
minn, hvort hismið sé ekki stund-
um hirt“— en kjarnanum kastað.
Um flest má deila — og deilur
eru mér fjarri skapi, það var
eingöngu hagur elztu kynslóðar
innar sem mig langaði til að minn
ast á. — Eða finnst ekki fleiri
en mér það furðulegt, að meðan
hver áratugurinn af öðrum á þess
ari öld, hefur fært fólki bættan
fjárhag yfirleitt, meiri munað, og
svo mikla vaxandi velsæld, að nú
er jafnvel talað um vinnuþrælk
un, ef unglingum er ætlað að
snerta á verki! — (Gamla fólkið
man aftur þá tíð, að iðjuleysið var
talið rót alls ills! — ætli meðal
vegurinn væri ekki þarna, sem
víðar, beztur?) þá leyfi ég mér
að segja, að hagur gamla fólks
ins hafi tiltölulega versnað —
þrátt fyrir ellilífeyri, sem enginn
getur auðvitað lifað á eingöngu.
Ég ætla ekki að lasta þau lög,
sem léttu þeirri skyldu af yngra
fólki, að ala önn fyrir foreldrum
sínum, og hvernig sem sá bók-
stafur hljóðar, þá tel ég það þó
alltaf siðferðilega skyldu hvers
manns, að hlúa að þeim í ellinni,
sem auðsýndu þeim kærleika og
umönnun í bernsku — hvort sem
þeir voru skyldir eða vandalausir,
já, öllu frekar, ef Það voru nú
vandalausir, sem ekki báru
ábyrgð á tilveru þeirra. Almenn
ingsálitið er sterkt afl, og á mín
um bernskuárum, þótti það illur
ljóður á ráði hvers manns, sem
ýtti öldruðum foreldrum útaf
heimili sí-u, ætti hann sjálfur „til
hnífs og skeiðar" sem kallað var.
En þá voru nú heldur ekki gerðar
kröfur til, minnst 30—40 ferm.
stofu — aðallega til að raða í
rándýrum húsgögnum! Þá voru
líka til aldraðir einstæðingar, sem
sveitin varð að sjá fyrir, og marg
ur bóndinn mátti nauðugur skjóta
skjólshúsi yfir — jafnvel þótt
hann fengi þóknun fyrir! Slíkir
vesalinga. lágu stundum rúmfast-
ir, jafnvel árum saman — t. d.
man ég vel eina slíka konu á
mínu heimili, en þótt hjúkrunar
tækin væru færri þá en nú, fékk
hún aldrei legusár — og slíkt mun
líka hafa verið ótrúlega fátítt þá.
Geta Elliheimilin nú sagt slíkt hið
sama? — Ætla ég þó ekki að fara
að hnýta í þau — eða þá sem
þeim stjórna — því tilgangur
þeirra er mannúðlegur, og til
heilla, sé hægt að reka þau heim
ili í réttum anda, en það mun hár
rétt vera, að ekki henti þar bezt
stórar stofnanir, sem ekki geta
hjá því komizt að allt verður of
vélrænt, svo gamalmennið fær þá
tilfinningu að það sé bara ofur
lítið einskisnýtt hjól — en varla
lifandi vera með líkama og sál.
Og þarna finnst mér vera einn
sterkasti þátturinn í hinni virð
ingaverðu baráttu hr. Gísia Sig-
urbjörnssonar, fyrir tilveru hins
aldraða fólks. Hann skilur hvers
virði það er, fyrir gamalmenni
sem alið hefur allan sinn aldur í
sömu sveit, umvafið kyrrð og
friði, og á þar allar sínar minn
ingar frá heilla og harma stund
um, að mega vera þar kyrr, ef
hann kýs það, í stað þess að
vera fluttur — oft þvert á móti
vilja sínum, inn í ys og þys höf
uðborgarinnar, og holað þar nið
ur í litlum klefa, með engu
útsýni, og oft með ruglaðan fé-
laga í. næsta rúmi, sem engan
gerir mun dags eða nætur, og
svifta því aðra svefni og ró. Og
ef svo skyldi bætast við, léleg um
hirða og lítil nærgætni starfs-
fólks, sem nú á tímum er svo
vandfengið, að engu er úr að
velja, en það vita allir sem reynt
hafa, að ekkert starf mun krefj
ast jafn óþrjótandi þolinmæði og
fórnfúsrar kærleikslundar, eins
og hjúkrun gamalmenna. Þess er
því ekki að vænta að óþroskaðar
unglingsstúlkur geti unnið það af
nægum skilningi.
Þess er heldur engin von að
þetta vandamál sé nú strax komið
í viðunanlegt horf, en þó finnst
mér að fleiri gætu sýnt því áhuga,
en gera, og í upphafi er þó alltaf
„orðið”. Það er líka margt sem
verður að athuga af fyllstu ná-
kvæmni áður en slíkar byggingar
eru reistar — og meira virði að
þær séu hagkvæmar, en úr hófi
skreyttar. Þessi smágrein mín er
ekki rituð neinum til hnjóðs —
miklu frekar er markmiðið að
vekja athygli þeirra sem um þessi
mál fjaila, á því sem í fljótu
bragði virðast smámunir, en valda
þeim vandræðum sem við það eiga
að búa — bæði vistfólki og starfs
kröftum, og ætti ekki að endur-
taka sig, hvar sem elliheimili eru
reist. Ég vil taka dæmi á dreif —
og aðeins það sem ég hef verið
sjónarvottur að: Ég átti erindi á
elliheimili og kom þar inn í fagr
an forsal, en mér hálfbrá við og
hugsaði hvort ég hitti svo iila á,
að eitthvað væri um að vera, því
þarna var samankominn mikill
fjöldi af vistfólki, sæti voru þar
auðvitað ekki fyrir svo marga, og
sá ég þarna fatlað fólk, sem hafði
„skorðað sig af‘ þar sem slíkt var
mögulegt, en átti þó auðsjáanlega
erfitt með að halda sér uppi —
aðrir voru hressir og hvikir, og
gátu gengið um og rabbað saman.
Orsök þess að fólkið stóð þarna,
kom svo í ljós: ég hafði einmitt hitt
á kaffitímann, og brátt hvarf allur
hópurinn inn í borðsalinn.
En þetta andartaks yfirlit, færði
mér þó heim sanninn um það,
hver óhæfa það er að ætla slíkum
hópi öllum það sama í aðbúnaði.
f annað skipti kom ég á slíkan
stað, og sá að eitthvað óþægilegt
hafði skeð, hitti ég þar gamla
konu sem ég þekkti.á ganginum,
og spurði hana hvort nokkuð hefði
komið fyrir, hún fór hjá sér og
svaraði fáu, en orsökina fékk
ég að vita: í þessari dýru og list
skreyttu byggingu, var aðeins eitt
snyrtiherbergi fyrir hvort kynið í
þessari álmu, og myndaðist því
alltof óþægileg biðröð fyrir veikl
að fólk. Heldur mikill sparnaður
það.
Svo gat ég ekki látið hjá líða,
að minnast gamals og góðs kunn-
ingja míns, sem ég hafði þekkt síð
an ég var á unglings aldri, en
hann þá orðinn þroskaður og vel
metinn maður. Eg fylgdist með
ferli hans gegnum áratugi, hann
kvæntist ekkí, en einstæðingur gat
hann aldrei orðið — til þess
varði hann lífi sínu á svo .fórn
fúsan hátt, auk þess sem hann
átti skyldfólk, sem mat hann mik
ils, eins og reyndar allir sem
kynntust honum. Árin liðu, kraft
ar hans eyddust — jafnvel fyrr
en algengt er, sökum fádæma
ósérhlífni. Heilsa hans bilaði, en
með veikum burðum dróst hann
til vinnu um langan tíma, eftir
að sjúkrahúsvist virtist hans sjálf
sagða hlustkipti. Hvað miklar
þjáningar hann leið — andlega og
líkamlega — vissi enginn, því
hann var einn af þeim, sem
ekki kunni að kvarta, og svaraði
ávallt með bros á vör, þótt þján
ingin markaði hvern andlitsdrátt,
og óvissan um framtíðina hlyti
að spenna hjarta hans með járn-
klóm. Hann sem ávallt hafði
verið veitandi, en ekkí þiggjandi
um ævina. En það er víst al-
gengt meðal beztu hugsjónamanna,
að þeir virða lítils veraldlega fjár
muni — andi Þeirra er upptek-
inn af öðru háleitara, og fórn-
fýsi þessa manns var svo rík, að
oft hafði hann víst hlotið lítil
laun, fyrir lúa og strit. Ungur
hafði hann líka tileinkað sér
ákveðna skoðun í stjórnmálum, og
unnið þeim flokki af sömu trú
mennsku og allt annað — stutt
hann bæði með fé og framtaki,
enda pennafær í bezta lagi, rök
viss og fróður, eins og hann var.
Bækur og listir voru honum ó-
tæmandi unaður, eins og ferðalög
og hvers konar fegurð. Slíkur
maður gat ekki safnað fé. Enda
kom að því, að ég frétti til hans
á elliheimili, og gladdist yfir
því, að á þeim stað hlyti honum
að líða vel, ogð framkvæmdi það
fljótlega að heimsækja hann þang
að; jú, ég fann hann — uppi und
ir þaki. Víst gat maður staðið þar
uppréttur, og bjart var í klef
anum, Því hann var ljósmálaður,
en — með þakglugga!
Það þýddi sem sé, að þessi aldni
sveita- og sjómaður, sem lengst
af hafði stöðvað augu sín við
yztu hafsbrún, eða hamraeggjar
hárra fjalla og ótæmandi fegurð
okkar fagra lands, sem bann tign
aði og tilbað — hafði nú ekki ann
að fyrir auga en þrönga veggi
klefans, og örsmáan blett af heið
um himni — eða skýjuðum.
Kunningi minn sá víst undrun
mína — og ef til vill meira í
svip mínum, því hann tók að lofa
þessa vistarveru, vel væri um
hann hirt, og herbergið bjart —
gott að líta i bók, já, bók, —
en hvar var megnið af bókunum
hans? Eg vissi að hann átti gott
bókasafn, jú, þarna var reyndar
meira af bókum en plássið raun
verulega leyfði, og ég gat vel
Hinar miklu kynþáttaóeirðir í Los Angeles hafa verið eitt helzta fréfta-
efnið undanfarna daga — enda hafa óeirðirnar haft alvarlegar afieiðingar
í för meö sér og margir látizt í átökunum. Myndin sýnir lögreglumann
draga ungan svertingja frá búðarglugga og ýmsir munir úr verzluninni
liggja á vjð og dreif.
skilið, að takmörk yrðu að vera á
því hvað hver einstaklingur gæti
flutt með sér á slíkan stað, en
þarna var heldur alls ekkert ann
að, nema dívaninn sem hann svaf
á, ofurlítið náttborð, og einn
eða tveir stólar, gólfrými mjög
svo takmarkað. Og Þá hrökk út
úr mér: ,,En skrifborðið þitt?“
Nú hefði hann þó haft andlega
þörf fyrir að nota sinn góða
hæfileíka til ritstarfa — ætli
honum hefði veitt af þeirri dægra
dvöl, fyrst andlegir kraftar hans
voru óskertir. En — hann leit
vandræðalega í kringum sig —
nei, auðvitað var ekkert pláss fyr
ir það. Eg spurði, hvort hann
hefði ekki getað fengið betra
herbergi en þetta? Nei, óhugsandi
.— nema kannske með öðrum, og
hann vildi allt til vinna að fá að
vera einn, ég skildi það vel. Eg
sá svitann hnappast á enni gamla
mannsins, og tók þá eftir því, að
svækjuhíti var í herberginu, en
hann afsakaði Það með því: að
sumir þyrftu svo mikinn hita, og
sama yrði yfir alla að ganga! þá
fór ég að reyna að opna þak-
gluggann, en sá fljótt, að hann
gat fatlaður maður ek'ki hreyft,
svo ég hafði orð á því að hann
gæti þá hringt, til að fá honum
lokað, þegar hann þyrfti. En
það kom þá á daginn að ekkert
bjöllukerfi var Þarna uppi. —
Og þetta var öldruðu fólki ætlað!
sem alltaf gat þurft á hjálp að
halda. Það fylgdi mér á leið, þeg
ar ég fór, bjarta brosið gamla
mannsins, sem aleinn sat nú,
þarna uppi undir þaki, ósjálf-
bjarga og öllu horfinn, sem áður
hafði tekið tíma hans og heilan
huga — hvílík viðbrigði fyrir
mann með annan eíns félags-
þroska og starfsvilja.
En svona fer lífið með margan
manninn. Og ég er nú svo vond
manneskja, að á þeirri stundu
hefði ég vel getao unnt arkitekt
inum, sem skapaði þessa bygg
ingu, og ætlaði öldruðu fólki
þessar vistaverur — eða Þá sam
býli með „einhverjum“ öðrum, að
hann hefði sjálfur fengið að
reyna slíka ævi.
Seinna lifði ég þó sárari stund
ir undir þaki þessa húss. Þá var
vinur minn kominn á sjúkradeild
ina, og nú dró að því síðasta fyr
ir honum. Hann komst ekki leng
ur leíðar sinnar í matsalinn eða
annað, og var fluttur inn á stóra
og bjarta stofu, þar sem átta
manns lágu í rúmum svo þétt,
að ekki var fólki í heimsókn ætl
að pláss fyrir stól. En sjúkling
amir á ýmsum stigum, andlegrar
og líkamlgrar hrörnunar, og
áttu því illa saman. Þrautimar og
vonleysið, sem þarna lá í loft-
inu, lagðist eins og farg á huga
minn. EnnÞá reyndi vínur minn að
brosa; en nú fann ég að hans
helzta þrá beindist að þakkomp
unni uppi, þar sem hann hafði
þó fengið að vera einn.
En nú dró að þvi síðasta hjá
honum, og enn leit ég þar inn.
Það var um kvöld. ég gekk upp
stigann að sjúkradeildinni og furð
aði mig- á óþefnum, sem bar að
vitum manns þar, en fékk skýring
una, er ég leit niður með stigan-
um, og sá þar liggja dyngju af
veiðarærum sem vistmenn höfðu
sjálfsagt verið að vinna við. En
voru þá þrengslin á vinnustað
einnig svo mikil, að þetta þyrfti
þyrfti að geyma þama? Því að í
hvert skipti, sem hurðin að sjúkra
deildinni var opnuo gaus þess-
óþefjan inn —einnig slíkt getur
bæði ergt og þjakað sjúklinga. Hé
vaðinn inni á deildinni snerti mi?
illa — á slíkum stað. Tónagarg
frá hátt stilltu útvarpstæki. hlát-
ursköll starfsstúlku og diska-
glamur. Ekki þurfti ég að hafa
fyrir því að opna hurðina að
sjúkrastofunni — hún stóð upp á
Framhald á bls. 7