Tíminn - 17.08.1965, Side 13
Hér er mynd af sigurvegurunum í 2. deild ásamt þjálfaranum, Jóni Magnussyni, t. h. og formanni Knatt-
ÞRIÐJUDAGUR 17. ágúst 1965
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
StOTTUR uppí
Vestmanna
ungir proTTarar nveT|a sma menn meo íuoramæsTri
Þróttur sigraði Vestmannaeyinga með 7 : 3 eftir framlengdan ieik
eyingar
mín. frá 1. deildinni
Alf-Reykjavík. — Aldrei hafa Vestmannaeyingar komizt eins nálægt 1.
deildinni og s. 1. laugardag, þegar þeir léku við Þrótt um sæti í 1.
deidl, því þeir voru aðeins 5 mínútur frá hirou langþráða marki sínu.
Fimm mínútum fyrir leikslok höfðu Vestmannaeyingar yfir, 3:2, og
flestir áhorfenda á Laugardalsvellinum reiknuðu með sigri þeirra.
Og þó ekki allir, því Þró'ttur átti nokkra trúverðuga fulltrúa af
yngri kynslóðinni í stúkunni, sem hvöttu félag sitt áfram með lúðra-
blæstri. Og Þegar rúmlega 4 mín. voru eftir, tókst Jens Karlssyni að
jafna fyrir Þrótt, 3:3. í framlengingu máttu Eyjamenn svo bítá í það
súra epli að horfa 4 sinnum á eftir knettinum í netið, án þess að
geta svarað fyrir sig.
Það er fyrir „taktisk“ mistök,
að Vestmannaeyingar leika ekki
í 1. deild næsta ár, því þegar þeir
höfðu náð 3:2 áttu þeir sigurinn
vísan. f staðinn fyrir að draga
innherjana aftur og styrkja vörn
ina síðustu 5 min. leiksins, héldu
Vestmannaeyingar áfram að
sækja og tefldu þar með í mikla
tvísýnu, því vöm þeirra var greini
lega veikari hluti liðsins. Hefðu
þeir styrkt vömina Þessar síð
ustu mínútur leiksins, væru lík-
lega Vestmannaeyingar nú í fyrsta
skipti í sögunni í 1. deild.
3 mörk á 4 mínútum!
Það var óþekkjanlegt Þróttar-
líð, sem lék á vellinum í fram-
lengingunni (2x15 mín.). Bar-
áttuhugurinn ljómaði af hverj
um einasta leikmanni, en hins
vegar var deyfð yfir Eyjamönnum,
sem greinilega voru miður sín
vegna þess hve klaufalega þeir
glopruðu sigrinum úr höndum sér.
Þróttarar byrjuðu af miklum
krafti og á 7. mín. skoraði Axel
Axelsson 4. mark Þróttar, eftir
að hafa náð knettinum frá hinum
seinheppnu varnarmönnum Vest
mannaeyja. Þremur mínútum síð
ar gaf Axel stuttan ,,stungubolta“
fram til Guðmundar, bróður síns,
sem lék upp áfram og skoraði 5:3.
Aðeins mínútu síðar skoraði Hauk
ur Þorvaldsson svo 6:3. Hann
skaut þrumuskoti frá vítateigslínu,
og hafnaði knötturinn í Vestm.eyja
markinu. Þrjú mörk höfðu verið
skoruð á 4 mínútum — og með
þessu var gert út um leikinn. Sjö
unda markinu bætti Þróttur við
í síðari hluta framlengingunnar
og var Axel að verki.
Góð byrjun Eyjamanna
Það var hálfleiðinlegt veður,
þegar leikurinn á laugardaginn
hófst, rigning, sem smám saman
jókst. Völlurinn var því rennandi
blautur og erfitt fyrir leikmenn
beggja liða að fóta sig, sérstak
lega, þegar líða tók á leikinn.
Fyrstu mín. leiksins var stanz
laus sókn Eyjamanna á dagskrá
og oft komst Þróttar-markið í
mikla hættu. Það var ekkí fyrr
en á 18. mín., að Eyjamenn skor
uðu. Guðmundur Þórarinsson
sendi ,,langbolta“ fram miðjuna
til Aðalsteins Sigurjónssonar, hins
hættulega miðherja ÍBV, og hann
brunaði upp og skoraði framhjá
Guttormi markverði Þróttar.
Vestmannaeyíngar héldu for
ystunni ekki lengi, því á 20. min.
jafnaði Haukur Þorvaldsson fyr
ir Þrótt, 1:1. Hann fékk knöttinn
úr þvögu, sem myndaðist fyrir
framan mark ÍBV og skoraði af
stuttu færi. Fyrir hlé bætti Hauk
ur öðru marki vlð. Hann skaut
Þrumuskoti frá v. kanti efst í
Vestmannaeyja-markið. Þannig
var staðan í hálfleik 2:1 fyrir
Þrótt.
Eyjamenn ná forystu aftur
Á 21. mínútu í síðari hálfleik
jöfnuðu Vestmannaeyingar. Mark
ið var mjög keimlíkt fyrra mark
ínu. Guðmundur sendi bolta fram
miðjuna, og Aðalsteinn elti og
komst inn fyrir með. Fimm mín.
síðar fékk Sigmar Pálmason, h.
útherji ÍBV, sendingu frá Guð-
mundi, lék upp kantinn og inn í
vítateig, þar sem hann skaut —
og knötturínn hafnaði í netinu,
3:2 fyrir Eyjamenn.
spyrnudeildar Þróttar, Steinþóri
* '£-‘ *Í -k »'< • - -• e -- v,v > *Jv* r
Jöfnunarmarkið
Þegar hér var komið, hafði
spennan náð hámarki. Mínútumar
liðu og allt útlít virtist fyr-
ir sigur Eyjamanna. En þegar rúm
ar 4 mín. voru eftir, náðí Jens
Karlsson að skora fyrir Þrótt, hið
þýðingarmikla jöfnunarmark.
Vörnin hjá Vestmannaeyjum var
opin eins og flóðgátt og knöttur
inn sigldi í netið. Við Þetta mark
var eins og Vestmannaeyja-liðið
hryndi samana.
Þróttur í 1. deíld
Vestmannaeyjal-iðið var sterk-
Ingvarssyni.
I #
ari aðilinn í aðalleiknum og hefði
ekki verið ósanngjarnt, að það
hefði unnið 3:2. En í framlenging
unni réðu Þróttarar lögum og lof
um og sjaldan hef ég séð þá leika
betur. Beztu menn Þróttar voru
tvímælalaust Axel og Haukur, en
báðir framverðirnir, Ómar og
Halldór, áttu einnig góðan leik.
Þróttarliðið er mjög leikandí, en
hefur skort baráttuvilja og trú
á sjálft sig. í framlengingunni var
því þó ekki til að dreifa — og
árangurinn lét ekki á sér standa.
Það væri óskandí, að þessi bar
Framhald á bls. 14
Golfmót Suð-
urnesja hafið
Golfmót Suðurnesja hófst s. 1.
laugardag og voru þá leiknar 27
holur. Á sunnudaginn hélt keppn-
in áfram og voru þá leiknar aðrar
27 holur. Staðan eftir 54 holur er
þessi:
1. flokkur:
1. Þorbjörn Karbo 219 högg
2. —3. Páll Jónsson og
Jón Þorsteinsson 243 högg
4. Þorgeir Þorsteinsson 249 högg
5. Hólmgeir Guðmundss. 253 högg
2. flokkur:
1. Þórir Sæmundsaon 268 högg
2. Ásgrímur Ragnars 270 högg
3. Guðm. Guðmundsson 282 högg
Mótinu lýkur um næstu helgi.
Fram fallið niður í 2. deiid
Alf-Reykjavík. — Dagurinn í
fyrradag, sunnudagurinn 15. ágúst
er dökkur dagur í sögu Knatt-
spyrnufélagsins Fram, því þcnnan
dag slokknaði síðasti vonarneisti
Fram um áframhaldandi setu í 1.
deild. Fram tapaði leiknum gegn
Akureyringum, 1:2, og getur ekki
lengur náð næsta liði fyrir ofan,
Val. Fyrir suma er erfitt að hugsa
sér þetta gamla Reykjavíkurfélag
í 2. deild, en það er staðreynd, að
Fram-liðið var veikasta liðið í 1.
deild á þessu keppnistímabili og
þess vegna liggur leiðin niður.
í leiknum í fyrradag náði Fram
aldrei að ógna Akureyrarmarkinu
verulega og eina markið, sem lið-
ið gerði, var skorað úr vítaspyrnu
rétt fyrir leikslok,
Akureyrar-liðið náði að sýna
dágóða knattspyrnu á köflum og
verðskuldaði vel að sigra. Kári
Árnason skoraði bæði mörk liðs-
ins, hið fyrra á 25. mín. í fyrri
hálfleik og síðara markið á 24.
mín. síðari hálfleiks. — Helgi
Númason skoraði eina mark Fram
úr vítaspyrnu rétt fyrir ieikslok.
í heild var leikurinn daufur og
aldrei um neina verulega keppni
að ræða. Hafði maður þó haldið,
að leikmenn Fram myndu berj-
ast af krafti og notfæra sér vel
síðasta möguleikann til að halda
sér uppi í deildinni.
Skýringin á því, hvers vegna
Fram fellur nú niður í 2. deild,
felst líklega i því, að liðið er orð-
ið of ungt. Það er sjálfsagt að not-
ast við yngri menn, en það er
stórhættulegt að yngja eitt lið
svo upp, að nieðalaldur leikmanna
sé innan við 20 ára.
Baldur Þórðarson dæmdi lei'k-
inn vel.
.(Tímamyndir GE).
...
Jafntefli
hjá M. Utd.
og Liverpool
Ilinn árlegi leikur ensku
deilda- og bikarmeistaranna
í knattspyrnu var háður á
laugardaginn og að þessu
sinni léku Manch. Utd. og
Liverpool. Áhorfendur v»ru
um 50 þúsun^ á Old Traff-
ord í Manchester og liðin
skildu jöfn í ágætum leik
2:2. Bæði lið voru með sína
beztu menn nema hvað
Thompson lék ekki með
Liverpool, og Foulkes og
Conolly hjá United — og
lék Noel Cantwell sem mið
vörður og 18 ára piltur,
John Aston, sonur hins
fræga lamdsliðsmanns
Manch. áður fyrr, á vinstra
kanti. Dennis Law varð
að yfirgefa völlinn fljót-
lega vegna meiðsla og kom
Anderson, 18 ára, í hans
stað. Best skoraði fyrsta
mark leiksins á 29. mín
— en nokkrum mín sfðar
jafnaði framvörðurinn Stev-
enson fyrir Liverpool, eft-
ir að hafa leikið skemmti-
lega á fjóra varnarleik-
menn. Þannig stóðu leikar
þar til 10 mín. voru eftir
að Best splundraði vörn
Liverpool og gaf knöttinn
til Herd, sem skoraði, en
Yeats, hinn 1.90 m hái fyr
Framhald á bls. 14.