Tíminn - 17.08.1965, Side 16
20 MANNS SLOSUÐUST
ÍÁREKSTRIÍFYRRADAG
ÍSLAND MJÖG VEL FALLIÐ TIL RÆKTUNAR KARTÖFLUÚTSÆÐIS:
Getum ræktað útsæði /
stórum stíl til útflunings
MB-fieykjavik, mánudag.
íslendingar hafa mikla mögu-
leíka til Þess a3 rækta kartöfluút
sæði í stórum stíl fyrir þjóðir
sunnar í álfunni. Byggist þetta
í fyrsta lagi á því, að útsæði, sem
stofnræktað er á norðlægri breidd
argráðu gefur mun betri uppskeru
en útsæði sömu tegundar, sem
sunnar er ræktað, og í öðru lagi
Héraðsmót Framsókn-
armanna í Skagafirði
Ólafur
Karl
Björn
Framsóknar-
menn í Skaga-
firði halda hér-
aðsmót sitt að
Sauðárkróki,
sunnudaginn 22.
ágúst og hefst
það kl. 8.30
sfðdegis.
Ræðu flytur
Karl Kristjáns-
á því að hér á landi fyrirfinnast hériendis tilraunir á stofnræktun
ekki blaðlýs þær, sem bera veiru útsæðis fyrir Tékka. Voru þá sett
sjúkdóma milli kartöfluplantna. ir niður hér tveir pokar af Rajka-
Frá því var skýrt í Tímanum kartöflum, sem sendir voru híngað
síðastliðið haust, að hafnar væru Framhald á bls. 14
Kona féll af hús-
þaki ogbeið bana
MB—Reykjavík, mánudag.
Það slys varð um miðjan dag
á laugardag, að þrítug kona hrap-
aði af húsþaki á Grettisgötu 71
og belð bana. Mun konan hafa far
ið út um glugga á risi hússins,
sem er kjallari, tvær hæðir og
ris og ætlað intn um annan glugga
sem hún vissi, að var opinn.
Gleðskapur var i þessu húsi
á laugardaginn og voru nokkrir
þar gestkomandi, þar á meðal
kona þessi. Engir sjónarvottar
voru að slysinu, en talið er, að
konan hafi farið út um opinn
glugga á rishæðinni og hafi ætlað
inn um opinn glugga á öðru her-
bergi, en fallið fram af þakinu.
Það fyrsta, er menn vissu um slys
ið var, að konan fannst liggjandi
á gangstéttinni, og mun hún hafa
látizt við fallið. Allt fólkið, sem
var í gleðskapnum, var yfirheyrt
en lítið mun hafa komið fram í
þeim yfirheyrslum.
son, alþm. og ávarp flytja al-
Framhald á bls. 14
f
RIKIÐ
MERKIR
BÍLANA
JHM—Reykjavík, mánud.
Búizt er við því, að innan
árs verði allar bifreiðar,
sem eru í eigu ríkisins,
merktar með sérstöku ríkis-
merki. Blaðið hefur það
eftir áreiðanlegum heimild-
um, að búið sé að gera tvær
eða þrjár tillögur um merki.
Framhaio a Dis
14
Hákarl braut bryggju-
stólpa inni á Siglufirði
EJ-Reykjavík, mánudag.
í gærmorgun lagði stór beinhá-
karl leið sína inn til Siglufjarðar
og festi sig undir trébryggju Þrá-
ins Sigurðssonar útgerðarmanns.
Var í gær unnið að því að ná
honum undan bry -'junni og á
land, og gekk það allsögulega á
köflum, en síðan var siglt með
hann út fjörðinn og honum sökkt.
Fréttaritari TÍMANS á Siglu-
firði tjáði blaðinu í dag, að um
kl. 7,30 í gærmorgun hafi tveir
menn, sem stóðu á umræddri
bryggju, orðið varir við einhverja
skepnu í sjónum fyrir framan
bryggjuna, sem er á innanverðri
Siglufjarðareyri. Þegar þeir fóru
að gá betur að, kom í ljós, að hér
var um beinhákarl að ræða. Há-
karlinn synti þarna frarn og aftur,
en lenti að lokum undir bryggj-
unni og festi sig þar, en vatnið er
mjög grunnt á þessum stað, rúm-
lega metri á dýpt. Hér er um að
ræða trébryggju með tréstólpum,
og þegar hákarlinn tók að brjót-
ast um undir bryggjunni, lék hún
öll á reiðiskjálfi, og bægslagangur
inn var óskaplegur.
Fréttin um hákarlinn barst
Framhald á bls. 14
MB-Reykjavík, mánndag.
Mikið bifreiðarslys varð í
Reykjavík á sjöunda tímanum á
sunnudag. Strætisvagn og lang-
ferðabifreið rákust á á gatnamót-
um Öldugötu og Ægisgötu og varð
að flytja 20 manns á Slysavarð
stofuna tll aðgerSar og aShlynning
ar og tvær konur voru síðar flutt
ar á sjúkrahús.
Bifreiðar þær, sem lentu í
árekstrinum, voru langferðabifreið
frá Guðmundi Jónassyni, sem
var með erlenda ferðamenn í
í skoðunarferð um borgina, og
strætisvagn á Sólvallaleiðinni. Var
margt fólk í langferðabifreiðinni,
en fremur fátt í strætisvagnínum.
Á gatnamótum Öldugötu og
Ægisgötu er ekki biðskylda, held
ur gildir þar reglan um „varúð
til vinstri1. Langferðabifreiðinni
var ekið suður Ægisgötu, en
strætisvagninn kom austur Öldu
götuna, og átti því að víkja fyrir
langferðabifreiðinni. Bífreiðar-
stjóri strætisvagnsins hefur mætt
hjá lögreglunni við rannsókn máls
ins, og telur hann sig eícki hafa
ekið á miklum hraða, er hann
nálgaðist gatnamótin. Hann
kveðst hafa verið á um 35 km.
hraða og hafa skipt niður í
þriðja „gír“ af fimm, er hann
kom að gatnamótunum. Hann
kveðst hafa stigið á hemilinn, þeg
ar hann sá til langferðabifreiðar
innar, en telur að hann hafi þá
gengið að gólfi, án þess að heml
un hafi átt sér stað. Hann kveðst
Þá hafa gefið hemilinn upp aftur
og hafi sig þá furðað á því hve
hann hafi fylgt seinlega eftir. Þá
kveðst hann hafa sveigt til hægri,
í von um að geta komizt hjá
árekstri, og um leíð hafa stigið
að nýju á hemilinn. Þá hafi hem
ildnn verkað eðiilega, en allt orð
ið um seinan og vagnarnir verið
að skella saman. Hann kvaðst hafa
stöðvað vagninn á biðstöð rétt
vestan gatnamótanna og þá hafi
allt verkað eðlílega. Þegar bif-
reiðaeftirlitsmaður prófaði heml
ana eftir slysið, fann hann ekk-
ert athugavert við þá.
Áre'ksturinn sjálfur varð þann
ig að framendi strætisvagnsins
skall á framanverðri hægri hiið
áætlunarbílsins. Við það snerist
Framhald á bls. 14
Dregin upp úr Nautbólsvík
MB—Reykjavík, máhudag.
! Klukkan rúmlega sjö á sunnu-
| dagskvöld fékk lögreglan hér
j tilkynningp um, að alklætt fólk
! væri að svamla í sjónum í Naut-
i hólsvík, og myndi það vera ölvað.
Lögreglan fór þegar á staðiiun og
haft var samband við flugmála-
stjóra, sem hafði bát þarna á
nœstu grösum. Fóru starfsmenri
flugumferðarstjórnarinnar af stað
með lögreglunni og voru ölvuð
hjú hirt þarna upp úr sjónum og
farið mcð þau itnn í Síðumúla, þar
sem þau voru „þurrkuð". Ljós-
myndara Tímans, Guðjón Einars-
son, bar að þar sem verið var að
drasla hjúunum í land og tók
meðfylgjandi mynd.