Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKT0BER 1983 Sir Ralph Richardson hafði mikið gaman af því að feroasi á stórum mótorhjólum og hér er hann i nýju hjóli árið 1975. Með Laurence Olivier í Hamburg í stríðslok. Sir Ralph Richardson fyrr en þremur árum seinna sem hann kom fyrst fram í leikhúsi í London og hlaut ekki góða dóma. Ýmsir vinir hans reyndu að telja hann ofan af því að halda áfram að leika. „Þér tekst það aldrei. Hættu áður en þú hefur eytt bestu árum þínum í það, sem þú nærð ekki árangri í. En nú var Rich- ardson orðinn þrjóskur og einbeit- inguna, sem hann eitt sinn vantaði þegar hann var að sýsla við list- nám og blaðamennsku, hafði hann nú í ríkum mæli og hann var stað- ráðinn í að verða leikari. Seinna meir sagði hann að hann liti svo á að „hver leikari verði að skilja að tíu fyrstu árin eru námsár". Þegar hann var 28 ára að aldri komst hann að hjá Old Vic og hann leit bjartari augum til fram- tíðarinnar. Þar hitti hann fyrst Gielgud, og urðu þeir lífstíðarvinir þó að þeir hafi á margan hátt ver- ið algerar andstæður. „Ég var alltaf heldur undrandi á honum (Gielgud) sem var rétt eins og fiðrildi þegar ég var niðurdreg- inn, eiginlega strákur." En Gielgud hvarf frá Old Vic eftir aðeins eitt Ieikár og skildi Richardson eftir með aðalhlut- verkin á sínum herðum. Hann gerðist nú æ vinsælli meðal áhorf- enda. Hann lék í óhemjufjölda leiksýninga. Sumar hverjar gengu stutt, aðrar lengur eins og t.d. The Amazing Dr. Clitterhouse eftir Barré Lyndon en Richardson lék í öllum 492 sýningum þess. Sorg Samstarf hans við Olivier hófst 1938 við Old Vic, en árið áður höfðu þeir báðir hafið þar störf, Richardson eftir nokkurt hlé frá því ieikhúsi. Þeir léku saman í Othello þar sem Olivier þótti stela senunni sem Iago. Richardson giftist fyrri konu sinni, leikkonunni Kit Hewitt, árið 1924 þegar hann var næstum 22 ára en hún aðeins 17. Nokkrum árum seinna veiktist Hewitt af hræðilegum ólæknandi sjúkdómi sem veldur lömun og um síðir dauða. Hún neyddist til að hætta að leika, þó hún lifði fram til árs- ins 1942. Veikindi hennar og sorg- legur endir þeirra sátu í Richard- son til dauðadags og dýpkaði inn- sýn þá sem hann í auknum mæli hafði í list sinni, þegar hann árið 1944, eftir herþjónustu, snéri aft- ur til leiklistarinnar á fyrsta af fjórum stórkostlegum leikárum Old Vic-félagsins þar sem tengsl milli hans og bresku áhorfend- anna urðu endanleg og órjúfanleg. Hann giftist aftur leikkonunni Merial Forbes og átti með henni einn son, Charles. Hápunktur þessara leikára Richardsons hjá OÞ’ Vic var þegar hann lék Falstaff. En það var ekki aðeins sem Falstaff heldur líka sem Pétur Gautur og í fleiri hlut- verkum á þessum árum að hann fann sín eigin og einstöku gæði. Árið 1952 lék hann hjá Stratford-on-Avon Prospero, Volpone og Macbeth en gerði litla lukku. Hann gerði sér svosem grein fyrir því og sagði: „Hefur einhver séð hæfileika, ekkert svo mikinn, en ég virðist hafa týnt honum?“ Hvert hlutverk er nýtt upphaf Eftir því sem fullorðinsárin nálguðust urðu breytingarnar í lífi hans minni og hægfara. Hann hélt þó áfram að leika og afköst hans voru mikil og eins kraftur hans. Hann lifði fábrotnu lífi svo hann hefði nægan tíma til að fullkomna hæfileika sinn, slípa, bræða og ummynda í hin ólíku form einsog tilefni gáfu til. Eða einsog hann lýsti því eitt sinn á þessum árum í BBC-viðtali: „Eftir hundrað leik- sýningar lýkurðu litlu verki, eins og gimsteinaslípari eða gullsmið- ur hafa mótað gimstein eða bikar eða jafnvel litla kórónu; hún er fullkomin og passar ágætlega. Og þú gætir sagt að þú ættir hana til að róa þig, auðvitað veitir hún þér tryggingu, en hún gerir það ein- hvern veginn ekki, ég veit ekki hvers vegna, við búum yfir vissu magni hæfileika en þeir eru ónothæfir þangað til þeir hafa verið endurmótaðir ... Við verð- um að draga þá út og bræða og móta þá aftur ... Hvert hlutverk er nýtt upphaf." Hann var að því spurður einu sinni hvort leiklistin væri slæmt starf fyrir ungan mann og hann svaraði: „Það er betra en að vera böðull, sérstaklega núna þegar dauðarefsingar hafa verið af- numdar, og það er mjög ódýrt," sagði hann. „Allt sem þú þarft er baukur af farða. Ætli það finnist starf þar sem þú þarft á eins litlu að halda?" Þær voru ófáar sögurnar sem spruttu upp í breska leikhúslífinu af sir Ralph Richardson. Einu sinni hafði hann, að eigin sögn, fengið sjálfan sig í rétt skap til að leika með því að þykjast vera bý- fluga. Leikritaskáldið David Story fór einn daginn til hans að ræða við hann um handrit og hitti hann við útidyrnar sínar umbreyttan í hræðilega hávaðasaman geltandi hund. „Hann var að öllu leyti, nema bókstaflega," sagði Storey, „hundur." Áhyggjur af minninu í ævisögu hans segir á einum stað frá því að menn hafi mikið reynt að fá hann til að leika aðal- hlutverkið í leikriti David Storeys, Early Days, um stjórnmálamann- inn Kitchen á efri árum. Richard- son sem var þá orðinn 77 ára (þetta var eitt af síðustu leikritun- um sem hann lék í) streittist á móti langa hríð og hélt því fram að hann myndi bresta minnið þeg- ar hæst léti. Á endanum tókst að fá hann til verksins en hann vildi að í samningnum væri grein sem hljóðaði á þá leið að ef honum hefði ekki auðnast að læra text- ann á þessu og þessu stigi æf- inganna, ætti hann færi á að Falstaff eitt af þekktustu hlutverkum Richardson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.