Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 71 Aðkomumennirnir níu hnigu allir niður, þar sem þeir stóðu. Heimamanni þeim, sem í skúrdyr- unum stóð, fannst sem sér væri greitt rokna högg á aðra hliðina, og yfir hann lagðist slíkur þungi, að með naumindum var, að hann gat varizt því að hníga niður. Fólkið í baðstofunni var lostið höggum á hendur, fætur, andlit og brjóst, einkum það, sem var í norðurendanum. Allt lauslegt, sem inni var, sópaðist til þess end- ans. Sá, sem stóð við gluggann á austasta húsinu, skall á gólfið. C nur konan í eldhúsinu var í pann veginn að skara í eldinn, og var sem skörungurinn væri sleg- inn úr hendi hennar. „Lágu þeir þar í einni kös“ Tvennum sögum fer af því, hvort aðkomumennirnir misstu allir meðvitund. Að minnsta kosti bröltu sumir á fætur að lítilli stundu liðinni. Þórður Torfason í Vigfúsarkoti mun fyrstur hafa staðið upp, en ekki er að fullu Ijóst, hvort einhverjir heima- manna voru þá komnir að. Þórður renndi í ofboði augum yfir valinn og sá félaga sina liggja hvern um annan þveran — suma í kös undir gaflinum, aðra á víð og dreif um hlaðið. Við þessa sjón færðist á hann berserksgangur. Hann hljóp þar til, er Jóhannes Ólsen lá, nokkuð austar á hlaðinu en hinir, og þreif hann í fang sér. Fannst honum hann þá vera fis upp að taka. Hljóp Þórður með hann í bæinn og allt til baðstofu, þar sem hann lagði hann upp í rúm. Jón bóndi á Rauðará og Stefán Þorleifsson höfðu staðið vestast undir gafli timburhússins. Þeir köstuðust báðir austur á móts við hitt hornið og lentu þar ofan á Jóhanni litla Árnasyni, er staðið hafði undir miðjum gaflinum. Lágu þeir þar í kös, er svælunni svifaði frá. Jóhann hafði þó ekki sakað, og var hann meðal þeirra, er fyrst komu til sjálfs sín. Bylti hann félögum sínum fljótlega ofan af sér eða var dreginn undan þeim. En þeir Jón og Stefán voru báðir örendir. Höfðu þeir hlotið áverka mikla og brunasár, en Stefán þó miklu meiri. Var hann nálega nak- inn, þar sem hann lá, því að skinnklæði og föt öll höfðu tætzt af honum. Jón Einarsson, vinnumaður Jó- hannesar Ólsens, hafði einnig hlotið mikil brunasár, og voru öll klæði af honum flett upp að mitti. Hinir hlutu allir nokkrar ákomur, og voru skinnklæði þeirra og föt skemmd, en samt hafði þá ekki sakað til muna nema Vigfús Guðnason. Lófastórt stykki hafði tekið gersamlega úr skinnstakk og fötum Þórðar Jónssonar að fram- an, svo að skein i bert hörundið, er þó var óskaddaö. Á stakki Jóhann- esar Ólsens voru þrjár raufar, og höfðu lengjurnar úr þeim harð- snúizt saman, svo að líkast var tappa eða bátsneglu, og stóðu þessir tappar í gegnum peysuna og nærfötin, svo að allt var sem neglt eða njörvað saman. Mikil spjöll á húsum Löng stund leið þar til sumir mannanna, er þó voru lífs, rökn- uðu úr rotinu. Jóhannes kom ekki til sjálfs sín fyrr en um dagmál, og var þá full klukkustund liðin frá því að eldingunni laust niður. Hann var með brunasár á vinstra auga og annarri hendi. Heimilisfólk sakaði ekki, nema aðra konuna, sem var í eldhúsinu. Á henni bólgnaði önnur höndin, og var það þó ekki sú, er á skörungn- um hélt. Mikil spjöll höfðu orðið á húsum á Auðnum. Stafn timburstofunnar rifnaði frá burst og niður í grunn og sjálft húsið gliðnaði um mæn- inn og tók úr því alla skammbita nema einn. Þilsperran tættist frá, ásamt tveim borðum, og þeyttust brotin fjörutíu eða fimmtíu faðma undan veðri. Úr þilbitanum tók tveggja eða þriggja kvartila langt stykki, og var sárið kolsvart og sviðið. Stykki sprakk úr steininum við dyrnar á timburgöngunum. Skinnbrókin eirlitaða, sem hékk á stafninum, hvarf gersamlega, svo að ekki sást eftir tangur né tetur af henni. Gluggar allir sundruð- ust, og sprengdust þeir út, er voru á hinum eystri þiljum. Verst var þó allt leikið, þar sem málmur var nálægt. Koparhúnar voru á sum- um hurðum, og lömuðust þær all- ar og lemstruðust. Var þá ýmist, að þær sprungu sjálfar eða dyra- umbúnaðurinn rifnaði. Ein hurð var læst, og kastaðist hún með lömunum og læsingu inn í her- bergið. öll eirlituð skinnklæði tættust sundur, svo að varla fannst eftir skæðisstærð heil, þótt ólituð skinnföt, er geymd voru rétt hjá honum, skemmdust lítt eða ekki. Varð þrem að fjörtjóni Þeir Jóhannes Ólsen og menn hans voru allir fluttir inn í Reykjavík, þegar veður batnaði, ásamt líkum þeirra, er látizt höfðu. Voru þeir þá allir sæmilega haldnir, nema Jón Einarsson. Þó virtist sem sár hans hefðust vel við og ætluðu að gróa furðufljótt. En seint í marzmánuði fékk hann allt i einu ákafan blóðspýting, og þótti mönnum það benda til þess, að hann hefði kostazt innvortis. Andaðist Jón hinn 30. marzmán- aðar. Eldingin, sem reið yfir skipshöfnina undir gafli timbur- stofunnar á Auðnum, varð því þrem mönnum að fjörtjóni. Hinir munu allir hafa orðið nokkurn veginn jafngóðir eftir þennan at- burð, nema Jóhannes Ólsen, er gekk haltur æ síðan." Samantekt: — bó. Bladburöarfólk óskast! Austurbær Laugavegur frá 101 — 171 í Kaupmannahöfn FÆST Í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI Þú svalar lestrarþörf dagsins á sídum Moggans! Húseigendur — Húsbyggjendur Smíðum innveggi, einangrun, klæðum úti- veggi og setjum timburloft. Seljum í miklu úrvali grindarefni, viðarþiljur og spónaplötur á afar hagstæðu veröi. Góöir greiðsluskilmálar. Ath.: Við erum við símann alla helgina. Leit- ið tilboða og upplýsinga ykkur að kostnað- arlausu. VERKVALSF Simar 41529-79132 Velsmiðjury járniðnaðarmenn Stórkostleg verðlækkun á stálþrælum Ef pöntun berst okkur fyrir 31. okt. útvegum viö vélarnar á mjög skömmum tíma frá V.-Þýskalandi. HPS 250 vökvadrifin. BFLH 400 vökvadrifin Verd ádur án sölusk. 75.200.- Verd nú án sölusk. 55.500.- Verð ádur án sölusk. 286.700.- Verd nú án sölusk. 211.400.- Gengi 12. okt. 1983. HPS 250 Þrýstikraftur 250 kN. Lokkar göt uppí 30 mm. Klippir: Flatjárn, vinkla, rúnjárn og ferkantjárn. BFLH 400 Þrýstikraftur 400 kN. Lokkar göt uppí 100 mm. Klippir: Flatjárn, vinkla, rúnjárn, fer- kantjárn, U og I bita. Leitid nánari upplýsinga. G. J. Fossberg, vélaverzlun hf. SKOLAGÖTU 63 - REYKJAVlK SlMI: 18560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.