Morgunblaðið - 16.10.1983, Side 29

Morgunblaðið - 16.10.1983, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 77 Knud H. Thomsen. Enginn þeirra dó Knud H. Thomsen er danskur rithölundur sem hefur sent frá sér tvær vinsælar skáldsögur til þessa, en hin þriðja er nú nýkomin á markað. Allar styðjast sögurnar að einhverju leyti við heimildir og ger- ast í fortíðinni. Þriðja sérkenni þeirra er svo það, að engin þeirra gerist í Danmörku. Virðast Danir sólgnir í að lesa eitthvað annað en samtímalýsingar á sér og sínu sam- félagi, ef marka má vinsældir þess- ara sagna. Kannski eru þær lýs- ingar ekki nógu skemmtilegar. Fyrsta saga Thomsens heitir „Klokken i Madedonien" og gerist þar suðurfrá árið 1944, er Make- dónía var hernumin af Þjóðverj- um. Hún kom út árið 1981. Árið eftir kom svo „Roverne i Skot- Iand“ sem gerist, eins og nafnið bendir til, í Skotlandi. En það er Skotland á síðari hluta átjándu aldar. Hér er einnig hernám á ferðinni. Það er hernám Englend- inga í Skotlandi á árunum eftir 1746. í báðum þessum sögum er lýst ýmsum skráveifum sem hinir undirokuðu gera útlensku yfir- völdunum, en gleðskapur og húm- or er í fyrirrúmi. í nýjustu sögunni kveður við alvarlegri tón. Hún nefnist „Den irske præst“ og gerist á írlandi á árunum 1919 og 1920, en þá var býsna heitt í kolunum þar og breska herraþjóðin í vanda stödd, enda var Irska lýðveldið stofnað 1921. Aðalpersónan er fimmtugur prestur í verkamannahverfi í Dublin, reyndar bara aðstoðar- prestur. Hann hefur meiri áhuga á Tullamore-vískíi og vindlum en guðfræði, en er þó samviskusam- ur í starfi sínu. Hann er lítið inni í pólitík og finnst rangt af nunn- um í nærliggjandi klaustri að leyfa eftirlýstum mönnum að leynast hjá sér og geyma þar vopn. Á hinn bóginn býður samviska- hans honum að hjálpa meðbræðr- um sínum og að lokum fer svo að hann tekur virkan þátt í and- spyrnunni gegn Bretum með því að aðstoða sína menn og konur í að komast undan og i lokin verð- ur hann meira að segja einum Breta að bana. Eðli málsins samkvæmt er ekki jafn mikið fjör hjá sögupersón- unum í þessari bók og í hinum, enda um að ræða kaþólskan prest og sjö nunnur, en á flótta gegnum sveitir írlands gefst þó tækifæri til að koma við á nokkrum ang- andi gömlum krám. Knud H. Thomsen þykir hér hafa færst mun meira í fang en í fyrri bókum sínum, enda um að ræða nokkurs konar þroskasögu prestsins. En jafnframt þvi virð- ist mönnum sem honum hafi tek- ist alveg bærilega upp þrátt fyrir hina auknu alvöru. Sagan endar líka vel, að minnsta kosti í þeim skilningi að engin aðalpersóna deyr, svo ekki verður sagt að Thomsen hafi söðlað alveg um. — Byggt á Weekendavisen. Umsjón: Sveinbjörn I. Baldvinsson Fyrsta sfldin til Akraness Akranesi, 12. október. FYRSTA síldin á þessari ve'rtíð barst til Akraness í gær þegar Skírnir AK- 16 landaði 73 tonnum. Sfldin var söltuð hjá söltunarstöð HB & Co. Auk Skírnis munu fjögur skip frá Akranesi stunda sfldveiðar í haust. Það eru Sigurborg, Grótta, Höfrung- ur og Bjarni Olafsson. Öll eru byrjuð veiðar. Afli togaranna hefur verið sæmilegur að undanförnu. I gær landaði Krossvík 100 tonnum en hinir togararnir landa á næstu dögum. Uppistaðan í afla þeirra er karfi. Tveir bátar eru byrjaðir línu- veiðar, Haraldur og Sólfari. Har- aldur rær með beitingavél og er á útilegu. Afli hefur verið tregur það sem af er. Mikil aukning hefur orðið í smá- bátaútgerð frá Akranesi og stunda flestir eigendur smábátanna nú línuveiðar. Hefur ýsuveiði verið að glæðast að undanförnu. — Fréttaritari. Gamlir sem nýir... allir þurfa ljósastillingu Verið tilbúin vetrarakstri með vel stillt Ijós, það getur gert gæfumuninn. Sjáum einnig um allar viðgerðir ó Ijósum. Höfum til luktargler, spegla, samlokur o.fl. i flestar gerðir bifreiða. BRÆÐURNIR ORMSSON h/f LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 Þú svalar lestrarþörf dagsins Hirslur Hirslur eru til margra hluta nauðsynlegar og hjá okkur eru til hirslur í hvert einasta herbergi í húsinu þínu. Veggskápar í einingum og samstæöum í stofur með geymslurými fyrir dúka, matarstell, hnífapör, uppáhalds- glösin þin og verðmætustu bækurnar undir gleri, og margar hillur sem þú getur sett á styttur, skálar og fleiri hluti sem þú vilt hafa fyrir augunum hvern dag vegna þess að þeir eru þér kærir. Skápar í sjónvarpsherbergiö, útvarps- videó- og plötuspiiaraskápar, plötuskápar og raunar skápar fyrir hverskonar tæki og „græjur“ sem þú átt. Bókaskápar sem allsstaðar eru til prýöi. Skápar í herbergi barnanna, unglinganna og í herbergi húsbóndans og húsfreyjunnar. Allt þetta fæst hjá okkur í ótal stærðum, gerðum og viðartegundum á hagstæöu verði með góðum greiðslukjörum. Gefðu þér góðan tíma HDSGAGNAHÖILIN BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK ® 91-81199 og 81410 SD8020 Tilboð “is EFTIRSTÖDVAR Á6 MANUÐUM Tölvustýrt segulband SD-8020 Compudeck tm Tveggja hraða Metal og snertitakkar — Wow and fluiter (WRMS) 0,05% á 4,75 cm/s — Tíðnisvörun (Metal): 25 HZ — 18500 Hz á 4,75 cm/s eru 20 Hz — 23.500 Hz á 9,5 cm/s Einfaldlega æðislegt tæki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.