Morgunblaðið - 15.11.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
51
Aö heiman
— eftir Ronu Jaffe
Away from Home: Rona Jaffe.
Útg. Dell forl.
Tvenn bandarísk hjón búsett í
Brasilíu um hríð, kannski til
frambúðar, eru aðalpersónur bók-
arinnar. Þau eru efnuð og lifa
hátt, blanda lítt geði við inn-
fædda, en hafa samskipti við
landa sína sem flestir eru velstæð-
ir og mata krókinn vel á meðan
brasilískir meðbræður umhverfis
þá lifa við mismunandi mikla og
erfiða örbirgð.
Þetta eru sæt og fín hjón og af-
skaplega lukkuleg. Það bendir að
minnsta kosti allt til þess. En svo
fer að rifna fortjaldið og þá kemur
ýmislegt fram sem bendir til þess
að á sandi sé byggt, auk þess sem
álagið við búsetu í þessu framandi
og nokkuð erfiða landi er meira en
þau fá risið undir. Á meðan þau
höfðu búið í því umhverfi sem þau
þekktu og skildu var hægt að
Erlendar
bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
passa upp á framhliðina; nú upp-
götva þau að kannski er ekki allt
eins og það var haldið vera og allt
magnast upp í óhugnað. Þau höfðu
komið langa leið og setzt að í
landi, þar sem siðir og venjur og
loftslag verður þeim óbærilegt. Og
þá verður hver að fara að leita að
sjálfum sér, hjónaböndin kikna
undir þeirri leit og ekkert verður
eins og áður var.
Away from Home er ágætlega
skrifuð bók, nokkuð nístandi og
myndrænar eru lýsingar höfundar
á tryllingi og æði hins fræga
karnivals í Ríó.
Menn eru alltaf að látast vera
annað en þeir eru, það gengur mis-
jafnlega vel/illa. Fæstir koma til
dyranna eins og þeir eru klæddir.
Það kemur þeim í koll. Og menn
eru ekki allir færir um leysa sín
mál. Það eru ekki nein ný sannindi
í því, en þau eru sett fram á
áhrifaríkan hátt í þessari bók.
Seintekin, en
tímanum vel varið
Hljóm-
plotur
Sigurður Sverrisson
XTC
Mummer
Virgin/ Steinar hf.
en síðan er eins og hljómsveitin
vakni upp við vondan draum.
Yfirbragðið er léttara eftir það.
Tónlist XTC er um flest ákaf-
lega óhefðbundin. Hljóðfæra-
notkun og skipan þeirra í hljóð-
blöndun er öðru vísi en maður á
að venjast. Þegar svo við bætist
lagasmíðar, sem flestar eru
sprottnar af hinu óvenjulega
getur heildarútkoman ekki orðið
önnur en öðruvísi. Mummer er
plata, sem maður þarf að liggja
lengi yfir til þess að grípa. Tím-
anum er heidur ekki eytt til
einskis. Bestu lög: Beating Of
Hearts, Great Fire og In Loving
Memory of a Name.
Aftur í
gamla stílinn
Finnbogi Marinósson
J J. Cale
8
Fálkinn
Þrátt fyrir að J.J. Cale hafi
ekki sent frá sér sína fyrstu
plötu fyrr en 1972, hafði hann
dundað sér heilmikið í tónlist-
inni. Þeir Leon Russell spiluðu
saman á smástöðum í Banda-
ríkjunum og höfðu lítið uppúr.
Síðar reyndi J.J. fyrir sér sem
„kántrý“-söngvari en það gekk
ekki heldur. Hann flutti til Los
Angeles og hljóðritaði þar nokk-
ur lög en lítið varð úr þeim upp-
tökum. Það var ekki fyrr en Eric
Clapton kom lagi hans „After
Midnight" inn á vinsældalista
kringum 1970 sem örlítið fór að
rofa til.
Og fyrsta platan kom út 1972.
Hún heitir „Naturally" og er
tónlistin rólegt „blús-popp“ sem
er leitt áfram af kassagítarspili
og sérstæðum söng J.J. sjálfs. Og
þannig eru allar plötur piltsins.
Rólegar og þægilegar að hlusta
á. Lögin eru einföld, oft angur-
vær, en alltaf ákaflega heillandi.
Eða eins og einhver sagði: góð
gamaldags tónlist.
Nýlega gaf drengurinn út sína
áttundu plötu og nefnir hann
hana einfaldlega „8“. Nafnið er
einfalt, svona rétt eins og tón-
listin. En það skemmtilega við
þetta er að hann nefndi fimmtu
plötuna líka einfaldlega „5“ og
þegar hlustað er á „8“ þá svipar
þessum plötum nokkuð saman.
Plöturnar nr. 6 og 7, „Shades" og
„Grásshopper" eru nefnilega
mun nútímalegri en „5“ og „8“.
Öll hljóðblöndun er miklu hrárri
á 5 og 8 og að auki svipar lögun-
um sem slíkum mikið saman. Og
þannig mætti halda áfram, en
hjá því verður ekki komist að
dæma J.J. Cale af fyrri afrekum
hans. Hann á sér engan líka í
poppinu í dag. Auðvelt væri að
útskúfa hann og bera fyrir sig að
allt þetta hefði verið gert áður
en þá um leið væri verið að út-
skúfa snjallan lagasmið,
skemmtilegan söngvara og sér-
stakan gítarleikara.
Ekki verður annað séð en „8“
komi út sem ágætis plata. Hún
er ekki eins góð og „Shades“ eða
„Grasshopper" en langt frá að
vera slæm. Hún líkist gömlu
plötunum og fær veglegan sess á
milli þeirra.
FM/AM
XTC er ein þessara feikigóðu
bresku sveita, sem að mestu leyti
fara fyrir ofan garð og neðan hjá
okkur uppi á íslandi. I fyrra varð
þó einhver breyting á, að ég held,
með útgáfu plötunnar English
Settlement. Þar voru reyndar
tvær plötur á ferðinni í einföldu
umslagi. Lagið „Senses Working
Overtime" náði einhverjum vin-
sældum, en hvort það hefur dug-
að til þess að greypa nafn þess-
ara frísku fjórmenninga í huga
landans er ég efins um.
Þeir félagar í XTC eru nú
mættir tl leiks með nýja plötu,
sem ber einfaldlega nafnið
Mummer. Það verður að segjast
eins og er, að hún er ekki eins
sterk og meistarastykkið frá í
fyrra, en tónlistin er enn þess
eðlis að nær ógjörningur er að fá
leið á henni. Guðsþakkarverður
kostur á þessum síðustu og
verstu tímum þegar tónlistin
stefnir öll meira og minna í
sama formið.
Undirtónninn á Mummer er
mun þyngri en t.d. á English
Settlement, sem er mín eina við-
miðun, þar sem tónlist XTC var
mér hulinn heimur áður en þær
plötur komu út. Þyngstur verður
hann í laginu „Deliver Us from
the Elements". Þar er eitthvað
djöfullegt á seyði eins og nafn
lagsins gefur reyndar til kynna.
Þessi þungi undirtónn heldur
áfram í laginu „Human Al-
chemy" — fyrsta lagi á B-hlið,
XJöföar til
X X fólks í öllum
starfsgreinum!
„PRINSESS-
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
TÉKK-'KKISTIIL
Laugaveg 15 sími 14320
FULL BÚÐ AF FALLEGUM GJAFAVÖRUM
VERÐSÝNISHORN ■ ■
18/8 24 karata
6 manna sett 24 hlutir stál: gullhúö:
— í gjafakassa 6 manna sett 30 hlutir 2.650.- 3.610.-
— í gjafakassa 3.070.- 4.150.-
hnífur, gaffall, skeið (3 stk.) 330.- 470.-
teskeið 70.- 90.-
kökugaffall 70.- 90.-
desertskeið 105.- 145.-
sósuskeið 232.- 305.-
saliatsett (2 stk.) 325.- 427.-
tertuspaði (með sög) 232.- 305.-
súpuausa 520.- 695.-
— allt í gjafakössum
Spyrjiö um munsturheitin:
Blóm — Flétta — Múrsteinn — Venus — Perla
— Rokkokó og nýja munstriö Prinsess.
Kynnið ykkur gæði og útlit.
H1 /fmeffa
HOLLAND
„BLÓM“
HNÍFAPÖR
18/8 gæðastál og spegilslípað
— með og án 24 karata gullhúð