Morgunblaðið - 15.11.1983, Side 8
Húsið að Merkurgötu 3. Dæmi um gott viðhald í gömlu húsi, en það var byggt árið 1903 og
hefur í áratugi sett svip á miðbæinn. Reyndar var byggt við húsið fyrir mörgum árum, en það
heldur vel sínum upprunalega stfl og hefur alla tíð verið til sóma hvað viðhald snertir. Eigendur
Merkurgötu 3 eru Guðlaug Karlsdóttir og Sæmundur Þórðarson.
Kaffistofan Kænan stendur rétt fyrir ofan smábátabryggjuna í suður-höfninni í Hafnarfirði.
Þetta er snotur kaffistofa sem opnuð var fyrir nokkrum árum. Eigendur eru hjónin Elsa
Aðalsteinsdóttir og Ingvar Arnason. Þeim var veitt viðurkenning fyrir snyrtimennsku innan dyra
Og utan. Ljómumdir Gunnar G. Vigfúnnon.
Fegrunarnefnd Hafnarfjarðar:
Eigendum fímm húsa
veitt riðurkenning
FEGRUNARNEFND Hafnarfjarðar efndi til kaffisamsætis á
Gaflinum 9. september sl., þar sem fram fór afhending viður-
kenninga nefndarinnar fyrir árið 1983.
í ræðu formanns
nefndarinnar kom
fram að afhending
færi nú fram í seinna
lagi, sökum þess að
verið var að bíða eftir
betri tíð, veðrið í
sumar hafi verið
óvenju óhagstætt öll-
um sumargróðri og
m.a. vegna þess, hafi
nefndin farið inn á
nýjar brautir. Til
dæmis hafi aldrei áður
verið veitt viðurkenn-
ing fyrir góða um-
gengni við nýbygg-
ingu, en þar komi inn
þáttur sem vissulega
sé þess verður að huga
að í framtíðinni.
Flestir bæjarbúar
hafa tekið eftir sér-
stakri snyrtimennsku
við nýbygginguna að
Hjallahrauni 15. Eig-
andi er Helgi Vil-
hjálmsson, en bygg-
ingarmeistari Stefán
Vilhjálmsson.
Aðrir sem hlutu við-
urkenningu nefndar-
innar voru: Helga
Stefánsdóttir og
Gunnar Hjaltalín,
fyrir fegrun og um-
hverfisvernd við hús
þeirra að Sævangi 44.
Guðlaug Karlsdóttir
og Sæmundur Þórð-
arson, Merkurgötu 3,
fyrir snyrtimennsku
og viðhald á eldra
húsi.
Þorvaldur Guð-
mundsson, forstjóri,
fyrir fegrun og snyrti-
mennsku við iðnað-
arhúsnæði.
Elsa Aðalsteins-
dóttir og Ingvar Árna-
son v/Kaffistofuna
Kænan, fyrir snyrti-
mennsku innan dyra
og utan.
Auk þeirra sem hér
er getið, færði nefndin
bæj aryfirvöldum
þakkir fyrir framlag
þeirra til fegrunar-
mála og garðyrkju-
manni bæjarins,
Steinþóri Einarssyni,
alveg sérstaklega fyrir
dugnað að fegrun
Hafnarfjarðar, og
færðu honum smágjöf
frá nefndarkonum.
í Fegrunarnefnd
Hafnarfjarðar eru
Sjöfn Magnúsdóttir,
Helga Guðmundsdótt-
ir og Sigríður Magn-
úsdóttir.
Viöurkenningu fyrir umhverfisvernd og sérstaklega smekklegar fram-
kvæmdir hlutu hjónin Helga Stefánsdóttir og Gunnar Hjaltalín, fyrir lóð
sína aö Sævangi 44. Hús þeirra stendur í Norðurbænum, sem er eitt af
nýjum hverfum bæjarins. Hefur því fijótt verið tekið til að lagfæra lóðina,
sem er sérkennileg og fijgur frá náttúrunnar hendi, en eftirtektarvert er
hvar þar spilar vel saman, upprunalegt umhverfi og framkvæmdir af
mannavöldum.
Viðurkenningu fyrir snyrtimennsku við iðnaðarhús fékk Ali-húsið að Dalshrauni 9B. Eigandi er
Þorvaldur Guðmundsson, forstjóri. Eins og mörgum er kunnugt er þar á neðri hæðinni matvæla-
framleiðsla en á efri hæð hússins er listmunasalurinn „Háholt“.
Nú var í sumar veitt í fyrsta skipti viðurkenning fyrir eftirtektarverða snyrtimennsku við hús í
byggingu. Húsið er við Hjallahraun 15. Eigandi er Helgi Vilhjálmsson, en byggingarmeistari
Stefán Vilhjálmsson.
OPIÐ TIL SJÖ (KVÖLD g Yörumarkaðurinnhf. eiðistorgih o
mánudaga — þriðjudaga — - midvikudaga