Morgunblaðið - 15.11.1983, Qupperneq 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
SiðfræðOeg vandamál við upphaf lffs:
Viltu verða
mamma systur
þinnar?
— eftir Pétur
Þorsteinsson
í kvæðinu um Jón og mig, sem
vorum eins og bræður, var sagt, að
ekki hefði þá skort mæður, því ei
þær reyndust færri vera en tvær.
Ef kvæðið hefi verið ort nú á dög-
um, þá væri eflaust unnt að segja,
að þær hafi ekki reynzt vera færri
en fjórar, án þess að menn þurfi að
reka upp stór augu. Tækninni hef-
ur fleygt það mikið fram, að við
upphaf nýs lífs er það vel gerlegt. í
föstudagsblaði Morgunblaðsins
hafa birzt greinar að undanförnu
um ófrjósemi og leiðir til að bæta
úr henni. Ætlunin er hér að greina
aðeins frá umræðum í Svíþjóð,
sem hafa fylgt í kjölfarið á marg-
víslegum tilraunum við upphaf nýs
lífs og þar bent á, að við getnað hjá
manninum, þá er ekki verið að fást
við hvítar tilraunamýs í búrum.
Þær tæknilegu framfarir, sem
hafa átt sér stað í þessum fræð-
um undanfarið hafa verið afar
hraðar og því menn staðið fyrir
framan ýmis vandamál, sem
voru ekki til staðar áður. Þótt
þetta eina tæknilega vndamál sé
leyst, að kona, sem ekki getur átt
barn, getur átt barn, þá koma
önnur vandamál í staðinn. Eru
þau bæði mannleg, lagaleg, sið-
fræðileg og líffræðileg. Þær
auknu rannsóknir í þessum
fræðum hafa gert mönnum
kleift að fara inn á vettvang sem
var allsendis óþekktur áður.
Foreldrar hafa oft haft í
frammi óskir um það, að eignast
örugglega strák eða stelpu. Nú
hillir undir þann veruleika.
Dágott kaup í
9 mánuði það
Vísindamönnum hefur tekizt á
sl. ári í Colorado í Bandaríkjun-
um að meðhöndla egg þannig, að
eftir að þau hafa verið frjóvguð,
þá má sjá út, hvort um er að
ræða karlkynsegg eða ekki. Er
konunni gefið inn hormónalyf til
þess að hún losni við mörg egg í
einu og þannig unnt að plokka út
strák, ef það er óskin og setja
inn aftur. Áður höfðu vísinda-
menn látið frjóvguð egg synda í
albuminlausn til að ákvarða kyn,
þar sem karlkynsegg syndir
heldur hraðar í lausninni. En
með þeim ákvörðunum var ekki
unnt að ná meiri vissu en sem
nam um 80%.
Fyrir þær konur, sem ekki
geta átt börn með neinu móti, þá
eru til konur, sem eru bara til
þess að ganga með barnið og
selja það síðan. í Bandaríkjun-
um eru þessar „meðgöngumæð-
ur“ auglýstar upp fyrir þá, sem
hafa áhuga á að kaupa barn. En
„meðgöngumóðirin" frjóvguð
með sæði eiginmanns viðkom-
andi konu, sem ekki getur átt
barn með sæði annars manns
eða þá að egg einhverrar konu,
sem hefur selt það til eggja-
banka, er frjóvgað með sæði úr
sæðisbanka. En hvaðan svo sem
hið frjóvgaða egg er tilkomið,
gengur „meðgöngumóðirin" með
viðkomandi barn og taka for-
eldrarnir við því strax á fæð-
ingarheimilinu, þar sem í flest-
um tilvikum vill „meðgöngumóð-
irin" ekki líta barnið augum til
þess að mynda ekki tengsl við
það.
Greiðsla fyrir svona pöntun-
arbarn er f sumum tilvikum um
10 þúsund dollarar. Ef fleira en
eitt frjóvgað egg er sett inn í
„meðgöngumóðurina" þá koma
að einhverjum líkindum álíka
mörg börn út. Því er því ekkert
til fyrirstöðu, að „meðgöngu-
móðirin" geti selt tvö börn í einu,
úr því að hún er að ganga með á
annað borð.
„Varan“ verður að
vera gallalaus
Þegar tekizt hefur að ákvarða
kyn frjóvgaðs eggs með vissu, þá
er unnt að selja það til móður
eða þá „meðgöngumóður". Eitt
vandamál, sem hefur komið upp
varðandi pöntunarbarn, var að
það fæddist vanskapað, með
fósturskaða. Þá vildi enginn eiga
barnið. Líkt og þegar farið er út
í kaupfélagið. Fólk vill geta skil-
að gölluðum hlut eða þá það
kaupir ekki augljóslega gallaðan
hlut.
Jafnhliða hafa vísindamenn
gert tilraunir á dýrum þar sem
reynt er að hafa áhrif á erfðaeig-
inleika viðkomandi. Með kynbót-
um, þá hefur þeim tekizt að fá
fram afurðameiri afkvæmi. En
með tilraun á músum, þá var
unnt að búa til risamús með því
að setja inn í frjóvgað egg nýtt
gen, sem breytir erfðaeiginleik-
unum. En þessir nýju erfðaeig-
inleikar koma til með að erfast.
Væri unnt að setja vaxtarhorm-
ón í frjóvgað egg til að gera
menn t.a.m. hæfari til afreks-
íþrótta. Þá væru núverandi
heimsmet ekki lengi að fjúka,
sem sett hafa verið af mennsk-
um mönnum. Þessi nýja risamús
tvöfaldaði þyngd sína miðað við
venjulegar mýs.
Tilraunir af þessu tagi með
frjóvgað mannsegg gætu þvi átt
sér stað, ef ekkert er að gert. Því
er viðbúið, að það verði að setja
lög um „réttinn til eigin erfða".
Að það geti ekki komið til til-
rauna af þessu tagi undir nein-
um kringumstæðum. Erfðaleg
þrýstihöndlun (genetic manipul-
ation) getur ekki verið samboðin
mennsku mannsins. Erfðaleg
stjórnun er réttlætanleg, þegar
verið er að framleiða aukinn mat
handa hungruðum heimi. Þar er
verið að gera tilraunir, sem auka
von þeirra, er svelta.
Er blóðskömmin
brátt engin?
Það hefur verið lengi óskrifuð
regla innan kjarnafjölskyldunn-
ar, að þar hefur verið um algert
bann við kynlífi að ræða, og ver-
ið talin blóðskömm, ef af hefur
orðið. Ekki tóku menn það sem
guðdómlega vizku, boð eða bönn.
Þar er líklegt, að liggi mannleg
reynsla að baki, sem forskrift
fyrir mannleg samskipti innan
kjarnafjölskyldunnar. En með
tilkomu sæðis- og eggjabanka,
þá getur sú staða komið upp, að
um óafvitandi blóðskömm sé að
ræða.
Sæðisgjafinn er ævinlega
óþekktur og eins er um egggjaf-
ann líka. Þannig vex úr grasi
kynslóð, sem ekki veit um kyn-
föður sinn né móður. Það hefur
hingað til þótt vera sjálfsagt, að
menn fengju að vita, hver væri
raunverulegur faðir, ef um ætt-
leiðingu hefur verið að ræða.
Hvatt til þess að draga það ekki
úr hömlu að láta barnið vita um
það sem fyrst. Því á barn, sem
getið er á þann hátt, að óþekktur
sæðisgjafi eða egggjafi kemur
til, heimtingu á því að vita, hver
faðir þess er eða móðir. Væri það
ekki nema til þess m.a. að ekki
kæmi til að hálfsystkin ættu
barn saman.
Með því að nú er unnt að
geyma frjóvgað egg í frysti ára-
Frá Áfengisvamarráði:
Staðreyndir um áfengt öl
1. Sala milliöls var leyfð í Sví-
þjóð 1965. Þeir sem fengu því
til leiðar komið héldu því fram
að ölneysla drægi úr neyslu
sterkra drykkja. Reynslan
varð þveröfug. Unglinga- og
barnadrykkja jókst gífurlega
og sænska þingið bannaði
framleiðslu og sölu milliöls frá
1. júlí 1977.
2. Á fyrsta árinu eftir milliöls-
bannið minnkaði áfengis-
neysla Svía um 10% miðað við
hreinan vínanda. Neysla öls
(allra tegunda) minnkaði um
24% miðað við áfengismagn.
3. Á milliölsáratugnum í Svíþjóð
jókst áfengisneysla um 39,5%.
Á sama árabili jókst neyslan á
fslandi um 26,1%.
4. Félagsmálaráðherra Svía seg-
ir m.a. um það mál: „Ég er ein-
dregið þeirrar skoðunar að á
nýliðnu tíu ára tímabili milli-
öls í Svíþjóð hafi grunnur ver-
ið lagður að drykkjusýki sem
brátt muni valda miklum
vanda."
5. f Finnlandi var sala áfengs öls
leyfð 1968. Þá var áfengis-
neysla Finna minni en ann-
arra norrænna þjóða, að ís-
lendingum undanskildum. Eft-
ir að sala áfengs öls hófst hef-
ur keyrt um þverbak hvað
drykkju snertir þar í landi. Nú
drekka Danir einir Norður-
landaþjóða meira áfengi en
Finnar. Margir telja drykkju-
venjum Finna svipa að ýmsu
leyti til drykkjusiða fslend-
inga.
6. Á tímabilinu frá 1969—1974
jókst áfengisneysla Finna um
52,4%. Á sama tíma jókst
neyslan hérlendis um 35% og
þótti mörgum nóg.
7. Þegar sala áfengs öls hafði
verið leyfð í rúm tvö ár í
Finnlandi, hafði ofbeldisglæp-
um og árásum fjölgað um 51%
og hinum alvarlegustu þeirra
glæpa, morðum, um 61,1%.
8. Danir eru mestir bjórdrykkju-
menn meðal norrænna þjóða.
Þar eykst og neysla sterkra
drykkja jafnt og þétt. Þeir
drekka allt að þrisvar sinnum
meira en fslendingar enda
drykkjusjúklingar þar hlut-
fallslega miklu fleiri. Þar er
öldrykkja ekki einungis
vandamál á fjölmörgum
vinnustöðum heldur einnig í
skólum. Ofneysla bjórs er al-
geng meðal barna þar í landi
og ofdrykkja skólabarna stór-
fellt vandamál. Meðalaldur við
upphaf áfengisneyslu mun
u.þ.b. 4 árum lægri en hérlend-
is.
9. Vestur-Þjóðverjar, ásamt
Tékkum, neyta meiri bjórs en
aðrar þjóðir Evrópu. Þar jókst
heildarneysla áfengis á árun-
um 1950-1967 um 196% - Á
sama tíma jókst neyslan hér-
lendis um 70% og þótti flestum
meira en nóg.
10. Þýska blaðið Der Spiegel, sem
vart verður vænt um bindind-
isáróður, helgar nýlega
drykkjusýki unglinga (Jugend
Alkoholismus) forsíðu og
verulegan hluta eins tölublaðs.
11. Háskólarnir í Hamborg,
Frankfurt og Mainz rannsök-
uðu fyrir nokkrum árum
áfengisneyslu ökumanna og
ölvun við akstur í Þýskalandi.
Rannsóknin leiddi í ljós að að-
alskaðvaldurinn er bjórinn en
um helming allra óhappa á
vegunum mátti rekja til hans.
Ef við bætast þau tilfelli, þar
sem bjór var drukkinn með
víni eða sterkari drykkjum,
hækkar hlutfallið í 75%.
12. f Belgíu er yfir 70% alis
áfengis, sem neytt er, sterkt
öl. Þar eru um það bil 95%
allra drykkjusjúklinga öl-
drykkjumenn, þ.e. menn sem
drekka ekki aðra áfenga
drykki en öl.
13. Formaður samtaka æskulýðs-
heimilaforstjóra í Stokkhólmi
segir: „Öldrykkja er mesta og
alvarlegasta vandamál æsku-
lýðsheimilanna. Auðveldara
hefur verið að fást við vanda-
mál af völdum ólöglegra fíkni-
efna.“
14. Vitað er að unglingar og börn
hefja áfengisneyslu oft og tíð-
um með öldrykkju. Hún veldur
m.a. því hversu margir ungl-
ingar og jafnvel börn þjást af
drykkjusýki í ölneyslulöndum.
15. Félagsmálaráðherra Breta
gerði í ræðu á árinu 1977
harða hríð að ofdrykkjusiðum
þar í landi og bjórkrám. Kvað
hann krárnar oft sveipaðar
rómantískum ljóma fyrir sjón-
um þeirra sem lítt þekktu til.
Hann benti á að á síðastliðn-
um 20 árum hefði ölneysla
aukist um 50%. Neysla sterkra
drykkja hefði hins vegar þre-
faldast á sama tíma og neysla
léttra vína fjórfaldast. — Á
sama tíma og neysla sterkra
drykkja eykst um 54% á ís-
landi eykst hún um 300%, eða
tæplega 6 sinnum meira en
hér, í Englandi og búa þeir þó
síður en svo við skort á bjór-
krám eða áfengu öli.
16. Nýjar rannsóknir sýna að því
fleiri áfengistegundir sem eru
á boðstólum og því víðar þeim
mun meira er drukkið.
Drykkjusjúklingum fer fjölg-
andi er drykkja eykst.
17. Jafnslæmt er fyrir drykkju-
sjúkling að drekka eina ölkrús
og viskístaup. Á þennan sann-
leika ber að leggja megin-
áherslu. En það er líka jafn-
hættulegt fyrir barnið eða
unglinginn. Og börn eiga
áreiðanlega greiðari aðgang
að öli en viskíi eða sú er a.m.k.
raunin meðal nágrannaþjóða
okkar.
18. Eina raunhæfa leiðin til að
koma í veg fyrir fjölgun
drykkjusjúkra er að draga úr
neyslunni. Til þess eru ýmis
ráð. Og þótt góðra gjalda sé
vert að lækna drykkjusjúka og
gefa þeim að nýju þrek og
sjálfstraust — er hitt þó mik-
ilvægara að leitast við að
koma í veg fyrir að menn verði
19. Addiction Research Founda-
tion of Ontario er þekktasta
rannsóknastofnun í heimi á
sviði áfengis- og fíkniefna-
mála. Stofnunin varð á sl. ári
samstarfsaðili Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar
(WHO) um þessi efni. Álits
ARF var leitað varðandi öl-
málið íslenska og var mat
þeirra að ástand þessara mála
versnaði stórum ef leyfð yrði
hér bruggun og sala áfengs
öls.
20. óheft frelsi áfengisauðmagns-
ins til framleiðslu, dreifingar
og sölu þessa fíkniefnis mun
óþekkt nú á dögum þó að ýms-
ir gerist til þess að halda slíkri
stefnu fram. — Meira að segja
Frakkar hafa komið á ýmsum
hömlum og hefur tekist með
þeim (en ekki fræðslunni
einni) að minnka drykkju
verulega. Og nú boðar Frakk-
landsforseti 10 ára herferð
gegn drykkjuskap.
21. Olgerðir eyða hundruðum
milljóna króna í áróður, bein-
an og óbeinan. óafvitandi ger-
ast ýmsir sakleysingjar áróð-
ursmenn þeirra afla sem hafa
hag af því að sem flestir verði
háðir því fíkniefni sem lög-
ieyft er á Vesturlöndum,
áfengi.
Því má bæta við að samtök
bruggara greiða hinum lakari
blöðum stórfé fyrir að birta
staðleysur um áfengismál, oft
undir yfirskini vísinda-
mennsku. Slæðast slíkar rit-
smíðar stundum í blöð hér-
lendis.
22. Ef enginn hefði fjárhagslegan
ábata af drykkju annarra og
þar með þeim hörmungum,
sem af henni hljótast, væri
áfengismálastefna þjóðarinn-
ar raunsærri og heiðarlegri,
sbr. baráttu gegn öðrum vá-
gestum svo sem holdsveiki og
berklum.
Áfengisvarnaráð