Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
BMW 635 CSi
reynsluekið
Ótrúlega snöggur - Frá-
gangur til fyrirmyndar —
Liggur mjög vel á vegi
NIÐURSTAÐA
Niðurstaðan af þessum liðlega
4.000 km reynsluakstri er einfald-
lega sú, að það er ótrúlega ánægju-
iegt að aka bílnum við ólíkustu að-
stæður. Hann er snöggur, liggur
vel á vegi, er lipur innanbæjar.
Frágangur er allur til fyrirmyndar
og það fer mjög vel um ökumann
og farþega. Það fer ekki milli mála,
að BMW 635 CSi er skemmtilegasti
bíll, sem ég hef ekið til þessa.
SKIPTING, VÉL
OG PEDALAR
BMW 635 CSi er knúinn 6
strokka, 218 hestafla benzínvél,
sem er 3.430 rúmsentimetrar.
Kraftinn vantar því ekki í gripinn.
Bíllinn, sem ég reynsluók var
sjálfskiptur og var hreint ótrúlegt
hversu snöggur hann var upp.
Manni varð ósjálfrátt hugsað til
þess hversu gríðarlega snarpur
hann hlýtur að vera beinskiptur.
AKSTURSEIGINLEIKAR
Um aksturseiginleikana þarf í
sjálfu sér ekki að fjölyrða mikið.
Þeir eru í einu orði frábærir.
Fjörðunin er stíf og bfllinn liggur
eins og límdur við hraðbrautirnar
þegar honum er ekið á miklum
hraða. Það var til dæmis ekkert
tiltökumál, að aka honum vel yfir
230 km á klukkustund. Einu vand-
ræðin voru aðrir ökumenn, sem
fóru hægar. Bíllinn er furðulega
lipur með tiliiti til þess hversu stór
hann í raun er. Mjög auðvelt var að
skjótast á honum í mikilli stór-
borgarumferðinni, enda er beygju-
radíusinn góður. Bíllinn leggst
ekkert niður í hornin, þegar hon-
um er ekið inn í krappar beygjur
og svarar á allan hátt ótrúlega vel.
Sighvatur Blöndahl
BMW-verksmiðjurnar vestur-
þýzku hafa löngum verið þekktar
fyrir framleiðslu á hraðskreiðum og
vönduðum bílum. Ég fylltist því
óneitanlega nokkurri eftirvæntingu
á dögunum, þegar mér bauðst að
reynsluaka flaggskipi flotans,
sporthílnum BMW 635 CSi.
Reynsluaksturinn fór fram á vegum
og hraðbrautum meginlands Evrópu
og þegar upp var staðið hafði ég ekið
liðlega 4.000 km. Bíllinn brást í engu
þeim hugmyndum, sem ég hafði gert
mér fyrirfram um hann. Hann er
mjög snöggur, liggur ótrúlega vel á
vegi og allur frágangur er til fyrir-
myndar.
ÚTLIT
BMW 635 CSi er mjög sportlegur
í útliti, en það sem kannski vekur
helzt athygli, er hversu stór hann
er. Hann er óvenjulega stór af
sportbíl að vera, reyndar stærri en
flestir þeirra. Bíllinn er straum-
línulaga og samsvarar sér mjög vel
fyrir minn smekk. Hann er niður-
byggður að framan, en undir stuð-
aranum er síðan fyrirkomið mikilli
vindskeið. Afturbygging bílsins er
ávðl, en á loki farangursgeymsl-
unnar er komið fyrir vindskeið til
að auka enn á stöðugleika bílsins,
þegar hratt er ekið. BMW 635 CSi
kemur á sérstökum álfelgum, sem
eru mjög sportlegar og gefa bíln-
um skemmtilegt yfirbragð. Billinn
er framleiddur með hinum hefð-
bundnu BMW aðalljósum, þ.e.
tvisvar sinnum tveimur aðallömp-
um. í vindskeiðinni er fyrirkomið
þokuljósum og fannst mér ein-
hvern veginn, að þar hefði höndun-
um verið kastað eilítið til. Ljósin
eru ekki látin falla inn í vindskeið-
ina, sem hefði óneitanlega komið
betur út. Ef litið er aftan á bílinn
eru ljósin af hefðbundinni stærð og
koma vel út.
DYR OG RÝMI
BMW 635 CSi er „að sjálfsögðu"
tveggja dyra, enda í „Coupé-út-
færslu". Dyr bílsins eru tiltölulega
stórar og er mjög haganlegt fyrir
ökumann og farþega frammi að
ganga um þær. Hins vegar er frek-
ar óhönduglegt að koma sér aftur í
bílinn, eins og reyndar vill vera al-
mennt í sportbílum. Þess verður
strax vart, að rými fyrir ökumann
og farþega frammi er með ágæt-
um. Á það við um fótarými, loft-
rými og hliðarrými. Það hcfur
greinilega allt kapp verið lagt á, að
láta þá sem frammi sitja hafa það
sem bezt. Leggjalengstu menn geta
hreinlega teygt úr fótunum og
hæstu menn eru ekki með höfuðið
uppi í þaki bílsins. Hvað varðar
rýmið aftur í, þá er það frekar af
kynna ef eitthvað er að. Ef kviknar
á því lítur maður á sérstakan að-
vörunarljósa-panel á vinstri væng
borðsins, sem sýnir nánar hvað
hefur farið úrskeiðis. Sá panell er
jafnframt þannig úr garði gerður,
að ökumaðurinn getur tékkað á
honum áður en haldið er af stað
hvort allt sé með felldu. Aðalljósa-
rofinn er við hlið öryggisljósa-
panelsins á heldur óhönduglegum
stað. Stjómtæki miðstöðvarinnar,
sem virkar mjög vel eru síðan á
hefðbundnum stað á hægri væng
borðsins. Hún er að því leyti frá-
brugðin venjulegum miðstöðvum,
að styrkurinn er ekki i þrepum,
heldur er hægt að auka og minnka
hann jafnt og þétt. I kringum
miðstöðina eru síðan rofar vegna
afturrúðuupphitunar, upphitunar
á hliðarrúöum, neyðarljósa og
fleira. Undir stjórntækjum mið-
stöðvarinnar er síðan steríótæki,
sem fylgir bílnum, en tengt því eru
fjórir hátalarar í bilnum, tveir
frammi og tveir aftur í. Við hlið
steríótækisins er síðan tölva, sem
hægt er að nota til ýmissa verka.
Reyndar er ég þeirrar skoðunar, að
sportbílar eigi að vera beinskiptir.
Þannig njóta eiginleikarnir sin
bezt. Enda kom það i ljós, þegar ég
innti BMW-menn eftir því, að
langflestir kaupa bilinn með 5 gira
beinskiptum kassa. Þvi verður hins
vegar ekki á móti mælt, að ansi var
nú þægilegt að skjótast um í stór-
borgarumferðinni með sjálfskipt-
inguna. Úti á hraðbrautunum kom
bíllinn ótrúlega vel út, jók ennþá
hraðann án fyrirhafnar vel yfir
200 km á klukkustund. Hvað pedal-
ana áhrærir, þá eru þeir vel stað-
settir og ástig á þá er gott. Bíllinn
er að sjálfsögðu með powerbrems-
um, sem virka mjög vel. Það var
furðulegt hversu vel hann brems-
aði á gríðarlegum hraða.
Mælaborðið er klassískt, en jafnframt sportlegt f aðra röndina.
ins verður þess strax vart, að þar
hefur í engu verið til sparað, eins
og oft vill verða í sambandi við
aftursæti. Um er að ræða tvö mjög
vönduð aðskilin sæti, sem farþegar
eru algerlega skorðaðir í. Sætin
eins og reyndar sæti almennt í
BMW bílum eru frekar stíf, sem
mér finnst vera kostur. Það verður
hins vegar að hafa hefðbundinn
fyrirvara á ágætum sæta, því þar
ræður persónulegt mat og þá
kannski með hliðsjón af vaxtarlagi
hvers og eins mikið ferðinni. Þó
held ég að mér sé óhætt að full-
yrða, að fólki gæti hreinlega ekki
annað en liðið vel í sætum BMW
635 CSi. Almennt um innrétting-
una er það að segja, að frágangur
er allur til fyrirmyndar og bíllinn
er ríkulega búinn. Rúður eru allar
rafdrifnar og eru stjórntæki fyrir
þær bæði milli sætanna í bílnum
og í hliðunum aftur í fyrir farþega,
sem þar eru.
MÆLABORÐ
Mælaborðið í BMW 635 CSi hef-
ur klassískt yfirbragð jafnframt
því, að vera sportlegt í aðra rönd-
ina. 1 því er að finna tiltölulega
stóran hraðamæli með ferðamæli,
sem gott er að lesa af. Þá er stór
snúningshraðamælir og undir hon-
gm er bráðsniðugur mælir, sem
sýnir benzíneyðslu bílsins hverju
sinni. Milli stóru mælanna eru sið-
an benzínmælir og hitamælir, auk
aðvörunarljóss, sem gefur til
skornum skammti. Fyrir stóra
menn er nær ógerningpir að koma
sér vel fyrir, sérstaklega hvað fóta-
rými varðar. Loftrými og hliðar-
rými er í lagi. Ef fjórir meðalstórir
menn væru á ferð, gætu þeir komið
sér skikkanlega fyrir, með því að
hafa framsætin í millistöðu. Far-
angursrými bílsins er ósköp venju-
legt, en mætti að ósekju vera held-
ur meira.
SÆTI OG INNRÉTTING
Sætin í BMW 635 CSi eru mjög
vönduð og á það bæði við um fram-
og aftursæti bílsins. Þau eru klædd
sérstaklega ofnu plussáklæði, sem
fnjög gott er að sitja á, þótt eknar
séu langar vegalengdir. Það fór
hreint ótrúlega vel um mann í
framsætum bílsins. Hliðar- og
bakstuðningur er mjög góður, en á
sætunum eru hefðbundnir stilli-
möguleikar, þ.e. hægt er að færa
þau fram og aftur, auk þess að
breyta stellingu baksins. Þá er
möguleiki á því að breyta hæð sæt-
isins, sem er mjög til hagræöis.
Það vakti undrun mina hversu lítið
þreyttur ég var einn daginn, þegar
ég ók linnulítið milli 1.200 og 1.300
km. Þegar sezt er í aftursæti bíls-
BMW 635 CSi.
BMW
Gerd: BMW 635 (Si
Framleidandi: BMW
Framleiðslulaiid: Vestur-Þýzkaland
InnflyljaDdi: Kristinn GuAnasou hf.
Afgreióshifrestnr: 3 mánuAir
Þyngd: 1.430 kg
Lengd: 4.755 mm
HcA: 1.365 mm
Hjólhaf: 2.630 mm
Farangursgeymsla: 480 lítrar
Benzíntankur 70 Iftrar
Véh 6 strokka, 218 hesUfla, 3.430
m3 benzínvél
Skipting: sjilfskiptur
Bremsur: Power-bremsur, diskar að
framan og aftan
Fjöðrun: Sjálfstæð fjöðrun á hverju
hjóli
SÍýri: Vökvastýri
HjólbarAan 205/70 VR 14
HámarkshraAi 245 km/klst
BenzíneyAsla: 9,5 Htrar aA meðaltali
Bílar