Morgunblaðið - 25.11.1983, Side 1
64 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
271. tbl. 70. árg. FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fangaskiptin eru
algjört kraftaverk
Frelsinu
fagnað
Palestínumenn, sem verið höfðu
fangar ísraelsmanna, gefa sig-
urmerki úr stiga flugvélarinnar,
sem flutti þá frá Ben Gurion-
flugvelli í ísrael til Alsír í gær.
- segir Arafat leidtogi PLO
Tel Atít og Trípolí, 24. nóvember. AP.
ÍSRAELSMENN skiptu í dag á 4.600 palestínskum longum fyrir 6 ísraelska
hermenn. Þessi fangaskipti, sem áttu sér stað fyrir atbeina margra þjóða, hafa
vakið mikinn fógnuð í Israel, Líbanon og Alsír. Hófust skiptin með mikilli
leynd á miðvikudagskvöld og þegar þeim var lokið, höfðu ísraelsmenn látið
lausa fleiri fanga frá fjandmönnum sínum, Palestínumönnum, en átt hefur sér
stað nokkru sinni áður í samskiptum þjóðanna. Fangaskiptum þessum var
komið á fyrir atbeina Alþjóða Rauða krossins og frönsku stjórnarinnar.
Andropov, forseti Sovétríkjanna:
Frekari eldflauga-
viðræður útilokaðar
Palestínsku fangarnir voru flutt-
ir frá Suður-Líbanon og ísrael til
Alsír. Þannig lentu þrjár risaþotur
í Algeirsborg síðdegis í dag og út úr
þeim stigu um 1000 fangar, sem
fögnuðu frelsinu óspart. Um 3600
fangar til viðbótar voru sendir til
borganna Sidon og Tyros. ísraelsk
herþyrla flutti hins vegar sex ísra-
elska hermenn, sem Palestínumenn
höfu haft á valdi sínu, til herflug-
vallar í grennd við Tel Aviv. Þeir
höfðu verið fangar í 15 mánuði og
við komuna heim var hellt yfir þá
kampavíni. Var sjónvarpað beint
frá komu þeirra og er talið, að nær
öll ísraelska þjóðin hafi fylgzt með
atburðinum.
Á fundi með fréttamönnum í
Trípolí sagði Arafat í dag, að þeir
Palestínumenn, sem ísraelsmenn
hefðu látið lausa, yrðu „gestir" Als-
írstjórnar að sinni eða „unz hægt
er að taka ákvörðun um, hvar
þeirra verður þörf“. Lýsti Arafat
þessum fangaskiptum sem „krafta-
verki“, sem gerzt hefði samtímis
því, sem menn hans mættu hafa sig
alla við til þess að standast árásir
uppreisnarmannna innan PLO, er
sæktu fram til Trípolí i skjóli sýr-
lenzkra skriðdreka. Arafat tók það
fram, að þessi fangaskipti stæðu í
engum tengslum við þær tilraunir,
sem nú fara fram á mörgum stöð-
um í von um að koma á vopnahléi
innan PLO og til að binda enda á
umsátrið um hann og lið hans f
Trípolí.
Ahmed Jibril, einn helzti foringi
uppreisnarmanna, sagði í dag, að
óvíst væri, hvað gert yrði við tvo
ísraelsmenn, sem menn hans hefðu
á valdi sínu. Sagði Jibril, að 300 af
stuðningsmönnum hans væru í
fangabúðum ísraelsmanna í Suð-
ur-Líbanon og ekkert væri vitað
um, hvort nokkur af þeim hefði
verið í hópi þeirra fanga, sem fsra-
elsmenn hafa nú látið lausa.
Ribli vann
ZOLTAN Ribli sigraöi f annarri ein-
vígisskák þeirra Vassily Smyslovs. Sá
síöarnefndi beitti afbrigöi af ind-
verskri vörn og var staöan jöfn og tvf-
sýn lengi framan af, unz Ungverjanum
tókst að opna stööuna í 27. leik Smysl-
ov í óhag. Geröi þessi leikur í rauninni
út um skákina og tókst Smyslov ekki
aö finna neina haldbæra vörn, en gafst
upp í 42. leik.
Moskvu og London, 24. nóvember. AP.
YURI Andropov, forseti Sovétríkj-
anna, sagöi í dag, aö frekari þátttaka
Sovétmanna í Genfarviðræöunum um
fækkun meöaldrægra kjarnorkueld-
flauga væri „útilokuö" og aö þeir
myndu hætta við aö fresta uppsetn-
ingu á nýjum eldflaugum af gerðinni
SS-20. Kemur þessi yfirlýsing í kjöl-
far þeirrar ákvöröunar Bretlands,
Ítalíu og Vestur-Þýzkalands að láta
koma fyrir nýjum bandarískum eld-
flaugum í þessum löndum.
í leiðurum margra blaða i
Vestur-Evrópu kom hins vegar sú
skoðun fram i dag, að Sovétmenn
ættu eftir að setjast að samninga-
borðinu að nýju i Genf. Þannig
sagði Le Matin, blað jafnaðar-
manna í París, að nú væri nóg kom-
ið af „leiksýningum. Sovétmenn
eru búnir að fylgja eftir hótunum
sínum. Friðarsinnar hafa látið í
ljós áhyggjur sínar og stjórnir
Vesturlanda lýst yfir „harmi“ sín-
um, en virðast ekki hafa látið hót-
anir Rússa koma sér úr jafnvægi".
Blaðið Daily Telegraph í London
sagði í dag i leiðara, að „hvorki
væri ástæða til þess að undrast né
hafa of miklar áhyggjur út af því,
að Rússar skyldu slíta viðræðun-
um. Þeir hafa alltaf sagt, að þeir
myndu ganga út, er fyrsta Persh-
ing-eldflaugin kæmi til Vestur-
Þýzkalands". Telur blaðið horfur á
því, að Rússar muni hefja samn-
ingaviðræður á ný í byrjun næsta
árs. Neil Kinnock, leiðtogi brezka
verkamannaflokksins, sagði hins
vegar í dag, að Bandaríkin bæru
jafn mikla ábyrgð á því og Sovét-
ríkin, að slitnað hefði upp úr þess-
um viðræðum og að Bandaríkja-
mönnum hefði borið skylda til þess
að hafa meira samráð við banda-
menn sína í Evrópu.
XINHUA, hin opinbera frétta-
stofa í Kína sagði í dag: „Sovétríkin
hafa misst yfirburðastöðu sína og
Bandaríkin eru í betri aðstöðu nú
til þess að semja við þau í kjarn-
orkuvopnaviðræðunum. Uppsetn-
ing nýju eldflauganna gefur einnig
til kynna, að Bandaríkin og banda-
lagsríki þeirra í NATO hafi staðið
af sér hernaðarhótanir Rússa og
tilraunir þeirra til þess að kljúfa
samstöðu Vesturlanda".
Skiptar skoðanir
gagnvart Grenada
- á brezku samveldisráðstefnunni
Nýju Delhi, 24. nóvember. AP.
„FORDÆMIÐ okkur ekki, því að við áttum ein.skis annars úrkosti,“ sagði
John Comton, forsætisráöherra smáríkisins St. Lucia í dag á ráöstefnu
brezku samveldisríkjanna, er hann varði hernaöaríhlutunina á Grenada, sem
Bandaríkin stóöu aö ásamt sex smáríkjum á Karíbahafi. Og frú Eugenia
Charles, forsætisráðherra Dómeníku tók í sama streng og sagði: „Þetta voru
björgunaraögerðir, en ekki innrás'*.
Mikils skoðanaágreinings gætti
samt á samveldisráðstefnunni 1
afstöðunni til Grenada. Mörg Afr-
íkuríki héldu því fram, að það ætti
eftir að bjóða heim hernaðaríhlut-
un Suður-Afríku í þeim nágranna-
ríkjum, þar sem marxismi ríkti
eins og í Angola, ef ráðstefnan
samþykkti yfirlýsingu, þar sem
blessun væri lögð á aðgerðirnar í
Grenada. „Slíkt væri hið sama og
kasta okkur fyrir ljónin," sagði
Kenneth Kaunda, forseti Zambíu.
Brúða handa forsœtisráðherranum
Frú Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, tekur hér á móti brúðu
aö gjöf á ráöstefnu brezku samveldisrfkjanna í Nýju Delhi. Fyrir miðri
myndinni stendur Sheu Shagari, forseti Nígeríu og til hægri Bekhinpi Dlam-
ini, forsætisráðherra Zwasilands.