Morgunblaðið - 25.11.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
Morgunblaðií/ Ólafur K. Magnússon
Kistu skáldsin.s báru úr kirkju: Davíð Oddsson borgarstjóri, Sigurður Arnalds útgefandi, Eiríkur Hreinn
Finnbogason ritstjóri, Matthías Johannessen skáld, Baldvin Tryggvason, formaður Almenna bókafélagsins,
Kristján Karlsson skáld, Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri og Markús Örn Antonsson forseti borgarstjórnar.
Næst þeim ganga ekkja Tómasar, Bertha J. Guðmundsson, og fjölskylda.
Útfór Tómasar Guðmundssonar
ÚTFÖR Tómasar Guðmundssonar
skálds fór fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í gær.
Séra Karl Sigurbjörnsson
jarðsöng. Hörður Askelsson lék
á orgel, Pétur Þorvaldsson á
selló og Ljóðakórinn söng. Við
útförina var sunginn sálmur eft-
ir Tómas við lag Páls ísólfsson-
ar; Syng Guði dýrð, syng Drottni
þökk vor þjóð. Hörður Askelsson
og Pétur Þorvaldsson léku verk
eftir Vivaldi og Sigvalda Kalda-
lóns og sungin voru versin: Nú
legg ég augun aftur og Oss héðan
klukkur kalla. Þá var sunginn
sálmurinn Allt eins og blómstrið
eina.
Viðstödd athöfnina voru m.a.
Ragnhildur Helgadóttir mennta-
málaráðherra og maður hennar,
Þór Vilhjálmsson, forseti
Hæstaréttar, Auður og Halldór
Laxness og sex bekkjarbræður
Tómasar úr menntaskóla: Einar
Olgeirsson fyrrum alþingismað-
ur, Jakob Gíslason fyrrum raf-
orkumálastjóri, Karl Þorsteins-
son heildsali, séra Gunnar Árna-
son, Gunnar Bjarnason fyrrver-
andi skólastjóri og Torfi Bjarna-
son læknir. Auk þeirra eru
Magnús Ágústsson, Hveragerði,
og Pétur Gislason, Eyrarbakka,
enn á lífi af nítján bekkjar-
bræðrum Tómasar.
Tómas Guðmundsson var
jarðsettur í Gufuneskirkjugarði.
Otför hans fór fram á vegum
Reykjavíkurborgar og að henni
lokinni hélt Almenna bókafélag-
ið erfidrykkju á Kjarvalsstöðum.
Frá athöfninni í Dómkirkjunni, þar sem sr. Karl Sigurbjörnsson jarð-
söng.
Dálítiö kvíðin
þangað til ljós-
móðirin kom
- segir ung kona, sem ól frumburð sinn á dekki vélbáts
NeskaupsUður, 24. nóvember.
„EG VAR dálítid kvíðin, þangad til Ijósmóðirin kom um borð. Mér leið
annars ekkert illa og fæðingin gekk bara vel,“ sagði Marsibil Erlendsdóttir
í viðtali við fréttaritara Mbl. í sjúkrahúsinu á Neskaupstað, en hún ól sitt
fyrsta barn, ellefu marka sveinbarn, á dekki v/b Anný frá Mjóafirði í gær,
rétt fyrir utan höfnina hér á Neskaupstað.
Það var klukkan sjö í gærmorg-
un, að hringt var frá Dalatanga í
Hildi B. Halldórsdóttur ljósmóður
í Neskaupstað og henni sagt að
Marsibil væri þar að því komin að
ala barn. Marsibil og eiginmaður
hennar Heiðar W. Jones lögðu um
það leyti af stað akandi til Mjóa-
fjarðar, ásamt systur Marsibil,
Helgu.
f Mjóafirði bættist Jóhanna frá
Brekku í fylgdarlið sængurkon-
unnar og haldið var þaðan áleiðis
til Neskaupstaðar á vélbátnum
Anný. Ljósmóðirin fór á móti
Anný í gúmmíbáti sem Dráttar-
brautin hf. lagði til, og um borð í
Anný komst hún við fjallið Nýpu.
Það var svo rétt áður en bátur-
inn lagðist við bryggju á Neskaup-
stað að Marsibil ól barn sitt á
dekkinu og gekk fæðingin vel og
fljótt fyrir sig. Það hjálpaði til, að
veður og sjólag var gott og gat
móðirin verið á dekki alla leiðina
frá Mjóafirði til Neskaupstaðar.
Mæðginin dveljast á sjúkrahús-
inu á Neskaupstað og heilsast báð-
um vel. Bað Marsibil í viðtali við
fréttaritara fyrir þakklæti til
ljósmóður og allra þeirra sem að-
stoðuðu við þessa óvenjulegu fæð-
ingu.
Sigurbjörg
Sambandið innkallar
20—25 Citation-bíla
YFIR 20 bflar af gerðinni Chevrolet
Citation hafa verið innkallaðir af
umboðinu hér, Bifreiðadeild Sam-
bandsins, vegna galla, sem fram
hafa komið í bflunum. Þessa dag-
ana er verið að vinna að viðgerðum
á þremur síðustu bflunum, að sögn
Tómasar Óla Jónssonar, deildar-
stjóra.
„Fimmtán bílanna hafa verið
innkallaðir vegna bilana í stýr-
ismaskínum," sagði Tómas óli í
samtali við blm. Morgunblaðsins
í gær. „Framleiðandinn í Banda-
ríkjunum, General Motors, hefur
borgað efnið en eigendur bílanna
hafa borgað ísetninguna, sem er
um 2.500 krónur. Áður en
ákvörðun um innköllun kom frá
verksmiðjunum lentu einhverjir
eigendur Citation í þvi að þurfa
að borga bæði efni og ísetningu
en því er ekki til að dreifa leng-
ur.“
Nokkrir bílar voru innkallaðir
hérlendis skv. tölvulista frá GM í
Bandaríkjunum vegna bilunar í
INNLENTV
hosum á kæliröri fyrir sjálfskipt-
ingu. „Það munu hafa verið bílar,
sem voru framleiddir í ákveðnum
verksmiðjum á ákveðnum dög-
um,“ sagði Tómas. „Þá voru kall-
aðir inn bílar vegna bilunar í
bremsuventli í höfuðdælu,
nokkrir vegna bremsugalla og
svo loks þessir sem höfðu gallað-
ar stýrismaskínur. Flestir bíl-
anna voru af gerðinni 1980,
nokkrir árinu yngri. Þessar við-
gerðir hafa tekið hálfan dag eða
heilan."
Liðlega 150 bílar af gerðinni
Chevrolet Citation hafa verið
seldir hérlendis.
Útför Kristmanns
Guðmundssonar
gerö frá Hafnar-
fjarðarkirkju í dag
ÚTFÖR Kristmanns Guð-
mundssonar rithöfundar verð-
ur gerð frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag kl. 10.30. Sr. Sig-
urður Helgi Guðmundsson,
sóknarprestur í Víðistaðasókn,
Hafnarfirði, jarðsyngur.
Kristmann verður jarðsettur
í Fossvogskirkjugarði.
Forsætisráðherra:
Farinn til afmælis
Koivisto í Finnlandi
Forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, fór áleiðis til Finn-
Nafn konunnar
sem beið bana
KONAN sem lést í umferðarslysi
á Laugavegi gegnt Mjólkurstöð-
inni síðdegis á miðvikudag hét
Friðborg Guðjónsdóttir, til heim-
ilis að Stangarholti 22 í Reykjavík.
Hún var 73 ára gömul, fædd 1.
september 1910.
lands í gærmorgun, en þar mun
hann flytja Mauno Koivisto for-
seta Finnlands árnaðaróskir ríkis-
stjórnar íslands og íslensku þjóð-
arinnar í tilefni af sextugsafmæli
hans.
Frá Finnlandi fer forsætis-
ráðherra til Stokkhólms, þar
sem hann mun sitja fund forsæt-
isráðherra Norðurlanda og sam-
eiginlega fundi með samstarfs-
ráðherrum Norðurlanda og for-
sætisnefnd Norðurlandaráðs.
1984 - skáldsaga George
Orwell endurútgefin
1984, skáldsaga George Orwells,
er komin út að nýju í íslenskri
þýðingu, en hún kom út á frum-
málinu 1949 og var fyrst gefin út
á íslandi 1951.
Á baksíðu bókarinnar segir
meðal annars: „Skáldsaga
George Orwells, 1984, er sígilt
bókmenntaverk um ömurlegt
framtíðarríki — ekki spásögn
um hvernig líf manna kann að
verða ..„.heldur martröð sem
kunngerir hvernig það er að
verða.
í heimi 1984 er sífelldur
ófriður það gjald sem greiða
verður fyrir ömurlega velsæld,
þar sem Flokkurinn viðheldur
völdum sínum með því að
stjórna með harðri hendi öllum
orðum og gjörðum manna.
Sagan 1984 er meira en kald-
hæðin skáldsaga um villi-
mennsku í alræðisríki. Þetta er
ekki aðeins pólitísk skáldsaga
heldur einnig gagnrýnin athug-
un á algjörri firringu stjórn-
valda."
Þess má geta að teikning af
George Orwell prýðir forsíðu
nýjasta tölublaðs tímaritsins
Time og ítarleg grein er um
hann í blaðinu.