Morgunblaðið - 25.11.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
19
Stærsta farþegaskip heims, Norway, sést hér í samanburði við hið nýja skip.
Nýtt farþegaskip fyrir 4000 manns á teikniborðinu:
Þrisvar sinnum stærra en
stærsta farþegaskip heims
NORSKA útgerðarfyrirtækið
Kloster er þessa dagana að láta
hanna farþegaskip, sem gæti brot-
ið blað í sögu slíkra skipa.
Forráðamenn fyrirtækisins eru
bjartsýnir, en enn hefur engin end-
anleg ákvörðun um smíði skipsins
verið tekin.
Þetta nýja farþegaskip verður
þannig úr garði gert, að allar
vistarverur verða í yfirbyggingu
skipsins, sem verður miklum
mun hærri en hingað til hefur
tíðkast. Með því móti fá öll her-
bergin notið sólar einhvern
hluta dagsins og svo auðvitað
frísks lofts. 1 sjálfum skips-
skrokknum verða síðan veitinga-
hús, dans- og skemmtistaðir svo
eitthvað sé nefnt.
Skipið, sem verið er að hanna
fyrir Kloster, verður 360 metra
langt og 80 metra breitt, alls um
200.000 rúmlestir að stærð. Gert
er ráð fyrir 4.000 farþegum um
borð. Kostnaður við smíði þess
er áætlaður tæplega 10 milljarð-
ar íslenskra króna.
Til þess að hægt sé að átta sig
sérstaklega á hinni gífurlegu
breidd skipsins má til saman-
burðar má geta þess, að vel
þekkt norskt farþegaskip —
reyndar það stærsta í heimi —
sem ber nafnið Norway, er 33
metra breitt og 315 metra langt,
alls um 70.000 rúmlestir. Það
tekur mest 2.000 farþega. Nýja
skipið verður því meira en tvö-
falt breiðara, enda mun ekki af
veita þegar mið er tekið af hæð
yfirbyggingar skipsins.
Að sögn forráðamanna Klost-
er-fyrirtækisins hefur rekstur
þess sennilega aldrei gengið bet-
ur en á þessu ári. Undir nafninu
„Norwegian Caribbean Lines“
gerir út fyrirtækið fimm far-
þegaskip á karabíska hafinu.
Rekstur þeirra hefur gengið afar
vel og eru forráðamenn Kloster
bjartsýnir á framtíð farþega-
skipa.
Það er danskur skipaverk-
fræðingur, Tage Wandborg, hjá
verktakafyritækinu Knut E.
Hansen, sem hefur teiknað þetta
nýja risaskip, sem og reyndar
önnur farþegaskip Kloster.
Kona dæmd í 16 ára fang-
elsi fyrir kókaínsmygl
BUIach, Svísh. 24. nóvember. AP.
HÖFUÐPAUR s-amerísks eitur-
lyfjasmyglhrings var í dag dæmdur
til 16 ára fangelsisvistar í Sviss. Er
þetta þyngsti dómur í slíku máli þar
í landi í 7 ár. Hámarksrefsing fyrir
eiturlyfjasmygl er 20 ár í Sviss í
kjölfar lagabreytingar, sem gerð var
1976
Það hefur vakið mikla athygli,
að höfuðpaurinn er kona frá Chile,
Maria Nelda Santana Valdez að
nafni. Var hún sek fundin um að
hafa smyglað a.m.k. 180 kílóum
kókaíns til sölumanna í Frakk-
landi, Ítalíu, Hollandi og Sviss,
auk annarra landa.
Valdez er 47 ára gömul og hefur
ekki áður orðið uppvís að eitur-
lyfjasmygli. Andvirði þeirra eitur-
lyfja sem hún smyglaði er talið
nema 46 milljónum dollara á
svörtum markaði, eða sem svarar
1,3 milljarði íslenskra króna.
Talið er að Valdez hafi haft
a.m.k. 20 samstarfsmenn beggja
vegna Atlantshafsins. Níu þeirra
voru handteknir ásamt henni í
mars í fyrra, eftir kókaínfund
skammt utan við Zúrich. Þeir fá
2'k —llVá árs fangelsi.
Þá var í dag einnig kveðinn upp
dómur í Sviss í máli annarrar
konu, Ruth Burgos de Rey, frá
Bólivíu. Hún hafði einnig gerst
sek um eiturlyfjasmygl. Mál henn-
ar þótti helst athyglisvert fyrir þá
sök, að kona þessi ér barnabarn
bróður forseta Bólivíu. Hún var
gripin með 4,5 kíló kókaíns á
flugvellinum í Zúrich í ágúst.
Skipuleggja leit að
skrímslinu „Haggis“
Feröamálayfirvöld í Aberdeen hyggjast skáka Loch Ness-skrímslinu fræga
Alxrdft n. 24. nóvembvr. AP.
LOCH Ness-skrímslið
má nú heldur betur fara
að vara sig, að því er
ferðamálayfirvöld í Ab-
erdeen tilkynntu í dag.
Til þessa hefur skrímsl-
ið laðað þúsundir ferða-
manna að vatninu ár
hvert, en ferðamálayf-
irvöld í Aberdeen hyggj-'
ast hefja skipulega leit
að öðru frægu fyrirbæri,
sem sveipað hefur verið
dulúð. Haggis er það
nefnt í Skotlandi.
Hinn kunni grasa-
fræðingur David Bell-
amy tjáði frétta-
mönnum á fundi í dag,
að ekki léki vafi á að
fyrirbrigði með þessu
nafni, Haggis, hefði á
sínum tíma verið til,
en nær útrýmt vegna
ofveiði fyrir um 200
árum. „Ég er þess full-
viss, að einhver dýr
kunna að leynast í af-
skekktum héruðum
Skotlands," sagði Bell-
amy ennfremur.
Spendýr þetta var
alsett hárum, með
sundfit á fótum og
iangt og mjótt trýni,
sem breikkaði fremst.
Lögun trýnisins ekki
talin ólík trompeti. Að
sögn Bellamy virðist
Haggis um margt líkj-
ast spendýri, sem
fannst í Rússlandi og
var gefið nafnið Des-
man.
Rétturinn Haggis
dregur einmitt nafn
sitt af þessu dýri, þótt
ekki hafi hann verið
búinn til úr kjöti þess
eða innyflum. Haggis
er annars einskonar
skoskt slátur, þ.e. inn-
yfli úr lömbum eru
uppistaðan í réttinum.
Hann þykir ýmist lost-
æti eða hinn mesti
viðbjóður, allt eftir því
á hvaða heimilum er
borið niður.
Þótt Bellamy segist
þess fuilviss, að enn
megi finna eitthvert
þessara dýra á lífi er
yfirmaður dýragarðs-
ins í Glasgow ekki
sömu skoðunar. Hann
sagði í dag: „Ég held
að allir ódrukknir
grasafræðingar lands-
ins séu sammála um
að menn komi ekki
auga á Haggis í sínu
eðiilega umhverfi
nema í gegnum botn-
inn á hálffullu viský-
glasi.“
Nú í
DÝRTIÐINNI
biðja allir um
ÓDÝRU
STJÖRNU
JÓLAKORTIN
FAST í FLESTUM
BÓKA- GJAFA- OG
RITFANGAVERSLUNUM
LITBRÁ HF.
SÍMAR 22930 - 22865
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ájsídum Moggans!
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
City of Hartlepool 6. des.
Ðakkafoss 16. des.
City of Hartlepool 27. des.
Bakkafoss 6. jan.
NEWYORK
City of Hartlepool 5. des.
Bakkafoss 15. des.
City ot Hartlepool 26 des
Bakkafoss 5. jan.
HALIFAX
City of Hartlepool 30. des
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Álafoss 27. nóv.
Eyrarfoss 4. des.
Alafoss 11. des.
Eyrarfoss 18. des.
FELIXSTOWE
Álafoss 28. nóv.
Eyrarfoss 5. des.
Álafoss 12. des.
Eyrarfoss 19. des.
ANTWERP
Alafoss 29. nóv.
Eyrarfoss 6. des.
Álafoss 13. des.
Eyrarfoss 20. des.
ROTTERDAM
Alafoss 30. nóv.
Eyrarfoss 7. des.
Álafoss 14. des.
Eyrarfoss 21. des.
HAMBORG
Álafoss 1. des.
Eyrarfoss 8. des.
Alafoss 15. des.
Eyrarfoss 22. des.
WESTON POINT
Helgey 28. nóv.
Helgey 12. des.
LISSABON
Grundarfoss 12. des.
LEIXOES
Grundarfoss 13. des.
BILBAO
Grundarfoss 14. des.
NORDURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
KRISTIANSAND
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
MOSS
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
HORSENS
Dettifoss
Dettifoss
GAUTABORG
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
KAUPMANNAHOFN
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
HELSINGJABORG
Dettifoss
Mánafoss
Dettifoss
Mánafoss
HELSINKI
írafoss
irafoss
GDYNIA
irafoss
írafoss
ÞÓRSHÓFN
25. nóv.
2. des.
9. des.
16. des.
28. nóv.
5. des
12. des.
19. des.
25. nóv.
6. des.
9. des.
20. des
30. nóv.
14. des.
30. nóv.
7. des.
14 des.
21. des.
1. des
8. des.
15. des.
22. des.
2. des.
9. des.
16. des.
23. des.
29. nóv.
28. des.
2. des
30. des.
Mánafoss 17. des.
-fram ogtilbaka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
*