Morgunblaðið - 25.11.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
Samræmt próf
fyrir Sighvat Björgvinsson, Harald
Blöndal og leiðarahöfund Mbl. 15. nóv.
— eftir Hauk
Viggósson
Ég var að velta því fyrir mér
hvort ég ætti að stinga niður
penna til varnar samfélagsfræð-
inni vegna þeirra, mér liggur við
að segja fávíslegu skrifa sem birt-
ust í leiðara Morgunblaðsins 15.
nóvember sl. og í DV 18. nóvember
sl. Eiginlega fannst mér ég ekki
geta setið hjá. En hvernig á að
svara skrifum sem þessum? Það er
ætíð spurning. Ég veit að nógu
margir eru til þess færir að bera
fram fræðileg rök í þeirri umræðu
sem vafalaust fylgir á eftir, því
þungt hefur verið höggvið og
ómaklega. Jafnframt verða marg-
ir til þess að uppræta rangfærsl-
urnar.
Þar sem ég fékk mig ekki til að
sitja hjá og var ekki fullviss um að
ástæða væri til að ég blandaði mér
í hina fræðilegu umræðu ákvað ég
að halda mig við þá iðju sem
íhaldsmenn vilja helst að kennar-
ar stundi með reglulegu millibili,
þ.e. að semja próf.
Próf það sem hér birtist skal
skoðast samræmt því það er aðeins
ætlað þrem einstaklingum, þeim
Sighvati Björgvinssyni, Haraldi
Blöndal og ónafngreindum höf-
undi leiðara Morgunblaðsins 15.
nóvember. Einkunn verður í sam-
ræmi við önnur samræmd próf,
þ.e. fellur undir normalkúrfu.
Þannig getur aðeins einn próftaka
fengið einkunn A, næsti B og sá
slakasti E og skoðast það fallein-
kunn án tillits til greindar viðkom-
andi.
Prófið er gegn aðsteðjandi
vitsmunaþembu.
Prófsreglur og námsefni
Próftakar: SB, HB, leiðarah.
Mbl. Þeir mega hafa með sér les-
efni og brjóstvit í prófið. Samræð-
ur í prófi bannaðar og bannað er
að hafa með sér samráð á próf-
tíma í formi bréfaskrifta. Einnig
er bannað að hugsa upphátt (það
getur dregið úr gildi úrlausnar).
Brot á prófreglum varðar brott-
rekstri úr prófinu.
Prófið er í þrem köflum.
Námsefni fyrir fyrsta kafla:
Brjóstvit, fordómar og ófram-
kvæmdar rannsóknir (ekki sakar að
beita agnar ögn af illkvittni, það
gerir úrlausnir áhrifameiri og
skemmtilegri aflestrar).
Námsefni fyrir annan kafla eru
greinar próftaka. Óþarfi er að lesa
þær með gagnrýnu hugarfari, þær
eru svo gagnrýnar sjálfar. (Sakar
ekki að kunna þær utan að.)
Námsefni fyrir þriðja kafla:
Pínu-obbo-lítil eining í samfélags-
fræði (sic) Jón Steingrímsson og
móðuharðindin. Ýtarefni: Islands-
sagan utan að.
Þar sem þörf krefur verða upp-
lýsingar undan prófköflum.
I. kafli
Við fyrstu og aðra spurningu er
hyggilegast að beita brjóstviti í
bland við fordóma og ekki sakar
að vitna í óframkvæmdar rann-
sóknir.
1. sp. Hvernig fer kennsla fram í
skólum landsins (stutt ritgerð)?
2. sp. Hve margir skólar á íslandi
eru búnir að henda gömlu íslands-
sögubókunum (nefndið nokkrar
þekktar tölur)?
Þriðja spurning er s.k. krossa-
spurning. Brjóstvitið er hér
gríðarlega mikilvægt enda óskeik-
ulasti mælikvarði sem þjóðin hef-
ur beitt síðan landnám hófst á ís-
landi (Njáll á Bergþórshvoli var
þekktur fyrir ágætt brjóstvit,
sömuleiðis Snorri goði og Einar
Þveræingur).
3. sp. Hvað ber mestan og bestan
vott um ódrepandi (sic) þjóðernis-
kennd íslendinga nú á dögum
(krossið við réttasta svarið)? Haf-
ið í huga J)jóðarsjálf“.
□ Allir lslendingar kunna ís-
landssöguna utanbókar.
□ Fjöldi í skrúðgöngu á 17. júní.
□ Fjöldi þátttakenda í Keflavík-
urgöngu.
□ Fjöldi þeirra sem kjósa heldur
íslenskt brennivín en vodka eða
viskí.
□ Að vera fylgjandi Z í íslensku
ritmáli.
□ Að skera niður fjárlög til náms-
efnisgerðar t.d. í íslensku og sögu
(samfélagsfræði).
II. kafli
Hér verður vitnað til greina
þeirra sem fyrr er getið og nokkur
gullkorn tekin og út af þeim lagt.
Astæða þess að greinararnar voru
valdar sem námsefni fyrir þennan
hluta prófsins var að þær þóttu
með eindæmum góður texti,
skrifaður af slíkri snilld sem best
sést í fornritum vorum. Þar mátti
sjá að greinahöfundar höfðu allt
lært og engu gleymt.
Ný, jæja. Fyrst er vitnað, síðan
spurt.
1. Drög að námskrá í samfélags-
fræðum var tilbúin 1976. Morg-
unblaðið segir: „Það kemur á
óvart að í kyrrþey skuli hafa
verið ákveðið að hætta að
kenna íslandssögu í grunnskól-
um og hefja í hennar stað
kennslu í samfélagsfræði... “
Nú er árið 1983 og Morgun-
blaðsleiðarahöfundur fyrst að
heyra um málið.
Sp. Hvað lærði leiðarah. Mbl. þegar
hann gekk í skóla (krossið við allt
sem við á)?
□ Lærði að lesa □ lærði að
skrifa.
□ Lærði að afla sér upplýsinga.
□ Lærði að vera hlutlægur í
málflutningi.
□ Lærði siálfstæð vinnubrögð.
□ Lærði Islandssöguna utanbók-
ar.
2. Orðsnilld Sighvats Björgvins-
sonar á sér ekkert við að jafna.
Hann segir á einum stað í grein
sinni: „Væntanlega gætir ekki
heldur neinnar hlutlægni í
frásögn Námsgagnastofnunar
af bavíönum. Enginn bavían
öðrum meiri. Allir sömu aparn-
ir.“
Sp. Er samfélag bavíana jafnaðar-
samfélag (rökstyddu svar þitt)?
3. Ég vil helst ekki gera upp á
milli Sighvats og Haraldar
Blöndal. En því meiri sem orð-
snilld Sighvats verður eykst
speki Haraldar, en hann kemst
svo að orði: „Hvernig geta
menn lært án þess að læra utan
að. Ég veit ekki til þess að
nokkur fróðleikur verði til af
sjálfu sér — en kannski heldur
fólkið í skólarannsóknadeild-
Haukur V'iggósson
„Þar sem ég fékk mig
ekki til að sitja hjá og var
ekki fullviss um að ástæða
væri til að ég blandaði
mér í hina fræðilegu um-
ræðu ákvað ég að halda
mig við þá iðju sem
íhaldsmenn vilja helst að
kennarar stundi með
reglulegu millibili, þ.e. að
semja próf.“
inni, að menn geti skilið hluti
án þess að læra þá fyrst.“ Hag-
nýttu þér þessi spekingslegu
orð til að finna lausn á næsta
„vandamáli" (sic).
Sp. Hversu marga hæfa alþingis-
menn eiga íslendingar ef þeir þurfa
allir að læra og skilja öll íslensk lög
(krossaðu við besta svarið)?
□ 0 □ 1 □ 10 □ 20 □ 30
□ 60
4. Ekki er hér beinlínis vitnað til
greina fyrrnefndra manna en
þangað er hugmyndin samt
sótt.
Sp. Eyrir hvað voru eftirtaldir þrír
menn frægir: Séra Jón þumall
Magnússon, séra Páll Björnsson í
Selárdal, Þorleifur Kortson (krossið
við rétta svarið)?
□ Leiðaraskrif.
□ Hlutlægni í málflutningi.
□ Trúa því að samfélagsfræði
gangi að Islandssögu dauðri.
□ Galdraofsóknir.
III. kafli
Þessi kafli er sérstaklega gerður
til þess að kanna kunnáttu i ís-
landssögu. Það er aldrei að vita
nema þessir ágætu menn bregði
sér seinna í það starf að uppfræða
íslenska æsku um leyndardóma
sögunnar. Þá er mikilvægt að
kanna hversu frjóir þeir eru, í hve
vítt samhengi þeim tekst að setja
einstaka þætti sögunnar. Heimild-
irnar eru sem fyrr segir pínu-
obbo-lítil eining í samfélagsfræði,
þ.e. Jón Steingrímsson og móðu-
harðindin. Stuðst er við einstaka
kafla grunnbókarinnar sem sögð
er spanna örfá ár í sögu íslensku
þjóðarinnar.
1. Skúli Magnússon fógeti kemur
við sögu. Nýttu þennan kafla til að
fjalla um embættismenn þjóðarinn-
ar. Rektu sögu embættanna. Hvaða
heimildir myndir þú nota?
2. Einokunarverslunin: Rektu sögu
einokunarverslunar á íslandi.
Hvaða heimildir myndir þú nota?
3. Jón Steingn'msson var prestur:
Gerðu verkefni um trú íslendinga
frá kristnitöku. Hvaða heimildir
myndir þú nota?
4. Jón Steingrímsson nam í llóla-
skóla: Gerðu grein fyrir sambandi
trúar og skóla á íslandi. Hvaða
heimildir myndir þú nota?
5. Kötluhlaup og Skaftáreldar: Búðu
til verkefni sem ber heitið „Kötlu-
hlaup og Skaftáreldar voru ekki
einsdæmi um náttúruhamfarir á ís-
landi“. Hvaða heimildir myndir þú
nota?
6. Ef þú vinnur þessi verkefni sam-
viskusamlega og til væru aðgengi-
legar heimildir, hve langan tíma í
sögu landsins hefðir þú spannað?
Hve margir mikilvægir þættir yrðu
útundan og hvernig myndir þú
bregðast við að fylla í þær eyður?
7. Er hugsanlegt að gömlu kennslu-
bækurnar myndu duga sem heimild-
ir um ofangreind atriði?
8. Lokaverkefni: Gerðu grein fyrir
því hve dásamlegt samræmi er í því
að höfðingjarnir skamma „undirtyll-
urnar" fyrir að framleiða ekki nógu
mikið námsefni á meðan þeir skera
það niður sjáifir.
Gangi ykkur vel á prófinu.
Lokaorð: Ef þið þurfið nánari
upplýsingar eða ykkur er ljós fá-
fræði ykkar í vinnubrögðum
samfélagsfræðinnar, verið þá
velkomnir í tíma til mín eftir ára-
mótin, því þá mun ég taka fyrir
Jón Sigurðsson. Ef þið viljið fleiri
próf verið þá velkomnir — mín er
ánægjan.
Haukur Yiggósson er kennari í
Snælandsskóla og kennir þar ís-
lensku og samfélagsfræói.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
VERPBRÉ FAMARKAOUR
HUSI VERSLUNARINNAR SIMI 8 33 20
KAUPOGSAIA VEÐSKULDABRfFA
Arinhleðsla
Upplýsingar í síma 84736
Ljós á leiði
Simi 23944.
I.O.O.F. 1 = 16511258V4 =
E.T.II. SPK.
I.O.O.F. 12 = 16512258’/i E.T.
II *
Frá Guöspeki-
fólaginu
Áskriftarsími
Ganglera er
39573.
Fundur veröur í kvöld föstudag,
25. nóvember. Gísli Þór Gunn-
arsson, flytur erindi sem hann
nefnir „Vegir alsælunnar.“
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferð sunnudaginn
27. nóvember
Kl. 13. Helgafell — Valahnjúkar
— Valabol Ekiö aö Kaldárseli,
en þar hefst gönguferöin. Létt
og skemmtileg gönguleiö Hæfi-
leg útivera í skammdeginu lifgar
upp á tilveruna. Allir velkomnir.
Brottför frá Umferöarmiöstöö-
inni. austanmegin Farmiöar viö
bíl. Frítt fyrir börn i fylgd fullorö-
inna.
Feröafélag Islands.
Kökubasar og kaffisala
veröur i Fíladelfíu, Hátúni 2. kl.
14.00 á morgun, laugardag.
Systrafélag Fíladelfíu.
ÍR-skíðadeild
12 ára og yngri
Æfing í ÍR-húsinu viö Túngötu,
laugardaginn 26.11. kl. 13.00.
Æft veröur bæöi úti og inni.
Stjórnin.
Aukatónleikar
í Austurbæjarbíói laugardaginn 26. nóv. 1983
kl. 14.30.
Dorrie’t Kavanna, sópran
Kristján Jóhannsson, tenor
Maurizio Barbacini, píanó
Fjölbreytt efnisskrá.
Miöasala í ístóni, hjá Sigfúsi Eymundssyn og Lárusi Blöndal.
Tónlistarfólagið