Morgunblaðið - 25.11.1983, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
31
Minning:
Snorri Halldórs-
son byggingameistari
Fæddur 31. júlí 1911
Dáinn 18. nóvember 1983
Það var sem sól brigði sumri er
mér var tjáð lát vinar míns,
Snorra Halldórssonar, bygg-
ingameistara, þessa starfsglaða og
hugljúfa manns.
Eg hafði þó fylgst með baráttu
hans við þennan stórhögga sjúk-
dóm, en ailtaf er von að úr rætist.
Við sem hófum störf á seinnihluta
þrítugasta tugar aldarinnar og
fram hinn fertugasta með öllum
þeim fjár- og atvinnuskorti, sem
þá var ríkjandi hér i þjóðlífinu,
verðum óafvitandi eitthvað tengd-
ari hver öðrum, ekki sist er vorum
vaxnir af líkum meiði.
Ég kynntist Snorra fljótlega á
hans fyrstu lærlingsárum hér í
bænum hjá Einari heitnum Krist-
jánssyni, byggingameistara, er
hann kom úr sínum heimahögum
vestan úr Dalasýslu, með létta
pyngju en óþrjótandi áhuga og
orku til sjálfsbjargar. Starfshuga
hans og vinnusemi virtust lítil
takmörk sett.
Ég minnist hans allt frá því er
hann var að velja sín fyrstu hand-
verkfæri, allt gerði hann það að
mjög vel yfirlögðu ráði og einmitt
þann hátt hefur hann og á haft í
öllu sínu lífsstarfi. Aldrei kastað
höndunum til neins, en unnið öll
sín störf af lífi og sál. Árangurinn
hefur líka sýnt sig og á ég þar við
Húsasmiðjuna hf., Súðarvogi 5—7
hér í borg, sem er einn af stærstu
byggingaefnasölum og sumar-
húsaframleiðendum landsins, en
það fyrirtæki hefur Snorri byggt
upp frá grunni og var frumherji
hér á landi í fjöldaframleiðslu
sumarhúsa. Hin síðari ár með son-
um sínum tveim, Jóni og Sturlu,
og dótturinni Sigurbjörgu, en þau
vinna öll í þessu vinsæla og glæsi-
lega fjölskyldufyrirtæki. Þær eru
ekki fáar stórbyggingarnar hér í
borg, sem Snorri hefur staðið að
byggingu á, þó ekki sé minnst á
nema Háskóla íslands og Náttúru-
gripasafnið að ótöldum öllum
íbúðarhúsunum bæði hér og ann-
arsstaðar.
Snorri Halldórsson var gæfu-
maður í sínu einkalífi. Konu sinni,
Ingu Berg Jóhannsdóttur, giftist
hann ungur og hefur hún staðið
við hlið hans af nægjusemi, nýtni
og skilningi. Þau hafa eignast þrjú
mannvænleg börn, sem fyrr er
getið.
Ég kveð Snorra með söknuði og
virðingu fyrir allri hans ljúf-
mennsku. Konu hans, börnum og
barnabörnum sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur. Minning
um athafnamann sem skilur eftir
sig sterk spor í borginni.
Björn Guðmundsson
Við fráfall Snorra Halldórsson-
ar byggingameistara er margs að
minnast frá langri viðkynningu.
Okkar fundum bar fyrst saman á
vordögum 1942. Hann var þá far-
inn að starfa sjálfstætt hér í
Reykjavík að húsbyggingum. Mitt
erindi við hann þá var að falast
eftir húsnæði. Hann lofaði mér
litlu en efndi mikið.
Snorri nam húsasmíði hjá Ein-
ari Kristjánssyni byggingameist-
ara og við þá iðngrein var hans
ævistarf bundið. Hann fékk
snemma mikinn áhuga á að bæta
og breyta ýmsu í byggingariðnaði,
sem honum fannst betur mega
fara. Hann var brautryðjandi
hérlendis í framleiðslu eininga-
húsa. Sú grein byggingariðnaðar-
ins var hans hjartans mál, enda
lagði hann metnað sinn í að vinna
henni fullan þegnrétt, þótt þar
væri við ramman reip að draga.
Auðnaðist honum að sjá mikinn
og góðan árangur verka sinna þar.
Snorri þekkti af eigin raun
margvíslegan vanda þeirra, sem
fást við húsbyggingar, ekki hvað
síst í efnisútvegun og daglegri
þjónustu bæði stórri og smárri.
Hann kom því snemma á fót fyrir-
tæki í því augnamiði að aðstoða
iðnaðarmenn og allan almenning í
þessu skyni. Hann nefndi þetta
fyrirtæki Húsasmiðjuna og hefur
hún notið velvildar fjölmargra
viðskiptavina um land allt undir
handleiðslu Snorra.
Snorri hóf ekki sinn atvinnu-
rekstur með digra sjóði, en hann
átti hugsjón, sem hann hvarflaði
aldrei frá og tókst með atorku og
dugnaði að breyta í veruleika.
Skarð er fyrir skildi við fráfall
Snorra Halldórssonar. Mun mörg-
un þykja það vandfyllt. Hann vildi
allra götu greiða, var glaður og
reifur hversdags og góður félagi
starfsfólks síns. Hans elskulegu
konu, Ingu Jóhannsdóttur, börn-
um og tengdabörnum, sendum við
hjónin innilegar samúðarkveðjur.
Björn Helgason
Fallinn er frá fyrrverandi for-
maður okkar, Snorri Halldórsson.
f hverfafélagi sjálfstæðismanna
í Austurbæ og Norðurmýri, hefur
hann með óbilandi dugnaði leitt
félaga sína í starfi fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn. Félagar hans og vinir
sem þar störfuðu með honum og
kynntust orku hans og dugnaði
eru þakklátir fyrir þann tíma sem
leiðir þeirra lágu saman. Við sem
á eftir komum og göngum í skörð-
in sem myndast fyllumst virðingu
fyrir störfum þessa manns sem á
svo einstakan hátt sameinaði fé-
lagsstörf og vináttu. Störf hans
hljóta að verða að leiðarljósi fyrir
okkur sem á eftir koma. Við hljót-
um að feta í fótspor Snorra, því
hann hefur á sinn hátt markað
leiðina.
Við sendum öll innilegustu sam-
úðarkveðjur til fjölskyldu hans.
F.h. stjórnar Félags sjálfstæð-
ismanna í Austurbæ og Norður-
mýri,
Atli Eyjólfsson
Snorri Halldórsson, bygginga-
meistari, forstjóri Húsasmiðjunn-
ar hf., lézt aðfaranótt föstudags-
ins 18. nóvember sl. á Landa-
kotsspítala. Hann veiktist fyrri-
hluta þessa árs og náði, því miður,
ekki fullri heilsu eftir það.
Hann var fæddur 31. júlí 1911 í
Magnússkógum í Hvammssveit,
Dalasýslu. Sonur Halldórs Guð-
mundssonar, bónda þar og konu
hans, Ingibjargar Sigr. Jensdótt-
ur.
Húsasmíði nam hann hjá Einari
heitnum Kristjánssyni, bygg-
ingameistara. Lauk sveinsprófi í
þeirri iðn árið 1932 og hlaut meist-
araréttindi í húsasmíði ári 1936.
Snorri Halldórsson kvæntist
þann 4. maí 1934 eftirlifandi konu
sinni, Ingu B. Jóhannsdóttur,
trésmiðs, Bjarnasonar á Patreks-
firði. Börn þeirra hjóna, Jón, Sig-
urbjörg og Sturla, starfa öll við
fyrirtæki föður síns, Húsasmiðj-
una hf.
Það kom fljótt í ljós að Snorri
var maður framkvæmda. Kreppu-
árin eftir 1930, voru mörgum þung
í skauti, harður en góður skóli.
Það var einmitt á þessum árum að
hann, rétt rúmlega tvítugur, reisti
hótel í Búðardal árið 1933 og
starfrækti það til ársins 1937. Eft-
ir að hann fluttist til Reykjavíkur
stóð hann, sem byggingameistari,
fyrir ýmsum meiriháttar bygging-
um, eins og íþróttahúsi háskólans,
Þjóðminjasafninu og Háskólabíói.
Árið 1947 stofnsetti hann Húsa-
smiðjuna í þeim tilgangi að smíða
einingahús. Mun hann vera meðal
þeirra fyrstu, sem hófu smíði á
tilbúnum húsum. Það er svo árið
1957 að hann víkkar út verksviðið
og byrjar sölu á byggingarefni,
einkum timbri, þilplötum o.þ.h.
Nú er fyrirtækið meðal þeirra
stærstu hér á landi, á þessu sviði.
Fyrstu kynni mín af Snorra
voru í byrjun fjórða áratugarins.
Það var í sambandi við byggingu
útihúsa og lagfæringa á gamla
íbúðarhúsinu að Móum á Kjalar-
nesi. Guðmundur heitinn Guð-
mundsson, skipstjóri, faðir Teits,
sem þar býr nú, var að hefja bú-
skap.
Mér féll strax mjög vel við
Snorra og svo hefur jafnan verið
þaðan í frá. Hann var látlaus í
framkomu, þægilegur í viðmóti,
velviljaður og sterkur persónu-
leiki. Harðduglegur var hann og
skjótráður, ef því var að skipta.
Minnist ég t.d. eins atviks er skeði
að Móum. Hestur með vagn,
hlöðnum drasli, fældist. Snorri,
sem var staddur skammt frá, brá
skjótt við, tókst að handsama
hestinn og róa hann. Þetta þótti
hættuspil og vel af sér vikið.
Hann var einn af þessum elju-
mönnum, maður einkaframtaks og
mikill sjálfstæðismaður. Þótt hug-
ur hans víferi bundinn við fyrir-
tækið, sem hann stjórnaði af
stórhug var hann góður heimilis-
faðir og sinnti því af alhug. Snorri
starfaði mikið fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og gegndi þar mörgum
trúnaðarstörfum og átti sæti á
framboðslistum flokksins í
Reykjavík. Munu margir, sem
stóðu í byggingarframkvæmdum,
hafa leitað til hans með fyrir-
greiðslu. Mun jafnan hafa verið
reynt að leysa úr hvers manns
vanda, eftir því sem hægt var, en
orð hans mætti taka, sem skrifuð
væru.
Hákon Jóhannsson
Frásöguþættir eftir
Óskar Þórðarson frá Haga
HÖRPUÍITGÁFAN á Akranesi hefur
sent frá sér fvrstu bók Óskars Magn-
ússonar frá Haga í Skorradal og nefn-
ist hún Frá Heimabyggð og hernáms-
árum. Óskar hefur skrifað fjölmargar
frásagnir í blöð og tímarit og Ijóð og
lausavísur eftir hann hafa birzt víða.
Þessi bók hefur að geyma ýmis
æviatriði höfundar. M.a. er sagt frá
rjúpnaveiðum, slarksömum ferða-
lögum og dulrænum fyrirbærum.
Ýmsir samferðamenn öskars eru
leiddir fram á sjónarsviðið, m.a.
Steindór Einarsson, en óskar starf-
aði um skeið á bifreiðastöð hans í
Reykjavík. Þá segir Óskar frá starfi
sínu hjá hernámsliðinu í Hvalfirði
og hermönnunum sem þar dvöldust.
Bókin er 175 bls., prentuð og
bundin í Prentverki Akraness hf.
Káputeikningu gerði Kristján Jó-
hannsson.
FRÁ HEIMABYGGÐ
OG HERNÁMSARUM
Frasögoiþeett ir eftir
Öskar Þóröarson frá Haga
VERDflLBODA
VORUM
Geriö verösamanburö og spariö
Kakó 200 gr kr. 23.65
Rúsínur 500 gr kr. 36.15
Kúrennur 225 gr kr. 24.20
Tertuhjúpur 500 gr kr. 58.40
Blönduð ávaxtasulta 800 gr kr. 63.95
Möndlur 100gr kr. 17.50
Verslið tímanlega fyrir jól
KREOtTKOftT
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarðvík