Morgunblaðið - 25.11.1983, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983
Akranes:
Uppskeruhátíð
knattspyrnumanna
Uppskeruhátíö knatt-
spyrnumanna á Akranesi og
stuöningsmanna þeirra verður
haldin á Hótel Akranesi á
morgun, laugardag, og hefst
meö borðhaldi kl. 20. Húsiö
veröur opnað kl. 19.30.
Auk boröhaldsins fara fram
ýmis skemmtiatriöi og verö-
launaafhendingar. Síöan veröur
stiginn dans fram eftir nóttu.
Meistaramót
í sundi
Unglingameistaramótiö {
sundi hefst í kvöld kl. 20 í
Sundhöll Reykjavíkur. Því
verður fram haldiö kl. 17 á
morgun og kl. 15 á sunnudag.
Þarna keppir allt besta sund-
fólk landsins, 17 ára og yngra,
utan örfáir sem eru erlendis
viö æfíngar. Þetta mót er síö-
asta tækifæri keppenda til aö
lá lágmarki fyrir Noröurland-
ameistaramót unglinga sem
verður 10. til 11. desember í
Linköping í Svíþjóö.
Vetrarsýning
Gerplu
ÍÞróttafélagiö Gerpla heldur
sína árlegu vetrarsýningu á
morgun, laugardaginn 26.
nóvember, í íþróttahúsi fé-
lagsins aö Skemmuvegi 6, og
hefst sýningin kl. 13.00.
Fram koma mörg glæsileg
sýningaratriði frá öllum ald-
urshópum, þar á meöal lands-
liösfólk í fimleikum, judo og
karate, en Gerpla hefur átt
keppendur í öllum þessum
íþróttagreinum á Norð-
urlandamótum á þessu ári.
Þetta verður fjölbreytt og
góö sýning fyrir alla fjölskyld-
una og er aögangur ókeypis.
Ársþing FSÍ
ÁRSÞING Fimleikasambands
íslands verður haldiö á morg-
un í félagsheímilinu í Kópa-
vogi og hefst kl. 2.
• Frá leik Ipswich og Liverpool á Portman Road í fyrra. George Burley eltir Kenny Dalglish (rigningunni.
Ipswich sigraöi í leiknum meö einu marki gegn engu. Morgunbiaöiö/Skapti Haiigrímsson.
Fyrsti deildarleikurinn sýndur beint hér á landi:
Hefna meistararnir
tapsins frá í fyrra?
FYRIR aðeins tveimur árum var
Ipswich það lið í ensku knatt-
spyrnunni sem mótherjarnir
hræddust hvaö mest, og ekki
bara í Englandi heldur einnig í
Evrópukeppninni. Undir stjórn
Bobby Robson vann liöiö UEFA-
keppnina og varö tvisvar í ööru
sæti 1. deildarinnar ensku.
En tímarnir breytast. Stjóri
Ipswich nú er Bobby Ferguson, og
undir hans stjórn hafnaöi Ipswich í
niunda sæti í deildinni á síöasta
keppnistímabili, en nokkur ár þar á
undan haföi liöiö ekki endaö neðar
en í sjötta sæti. Nú er liöiö í 12.
sæti en 22 lið eru í deildinni.
Á morgun fær Ipswich meistara
Liverpool í heimsókn eins og
knattsyrnuunnendur hérlendis vita
sennilega allir, vegna þess aó þeim
leik veröur sjónvarpaö beint
hingaö til lands. Fyrsti deildarleik-
urinn sem viö fáum að sjá beint. í
leiknum fá leikmenn Ipswich gullió
tækifæri tii aö sína hvaö í þeim
býr, því þaö er meira en þeir hafa
sýnt í vetur. Þeir geta enn leikiö þá
knattspyrnu sem olli andstæöing-
um þeirra áhyggjum fyrir ekki
löngu.
Árangur Ipswich á heimavelli
gegn Liverpool er góöur undanfar-
iö: tveir sigrar og eitt jafntefli í síö-
ustu þremur leikjum. Búist er viö
mesta áhorfendafjölda vetrarins á
Portman Road, og vist er aö
stemmningin veröur góö eins og
hjá knattspyrnuáhugamönnum
heima í stofu hér á islandi. Liv-
erpool hefur ekki gengið vel í
Anglia undanfariö; liðiö tapaöi
bæöi gegn Norwich og Ipswich í
fyrra.
Michael Robinson leikur ekki
meö Liverpool á morgun: hann
meiddist í mjólkurbikarleiknum
gegn Fulham á þriöjudaginn. Ekki
hefur enn veriö ákveöiö hver leikur
í hans staó. Ein breyting gæti
hugsnlega verið gerö í Ipswich-
liöinu frá tveimur síöustu leikjum.
Russel Osman hefur veriö í tveggja
leikja banni og Bobby Ferguson
hefur ekki ákveöiö hvort hann eigi
aö setja hann aftur i liöiö, eöa
hvort hinn 22 ára Kevin Steggles
leikur áfram í stööu miövaröar
ásamt Terry Butcher.
Þaö kemur í Ijós á morgun, bein
útsending frá Portman Road hefst
laust fyrir kl. 15.00 — en kl. 14.30
hefst enska knattspyrnan — þá
veröur upphitun meö sýningum frá
gömlum leikjum. — SH.
Úrslitaliðin
mætast í
1. umferð
DREGIÐ var í bikarkeppni Körfu-
knattleikssambandsins í fyrra-
kvöld. í fyrstu umferö drógust
saman úrslitaliöin frá því í vor,
Valur og ÍR, en aðrir leikir eru
þessir: Reynir — ÍBK, KR — ÍS, ÍA
— UMFG, Haukar — UBK, UMFN
— HK, UMFS — KRb, Fram —
Snæfell, Þór Ak. — Reynir/ÍBK,
UMFL — KR/ÍS. f meistaraflokki
kvenna verða þessir leikir: ÍR —
UMFN, ÍS — KR, ÍRb — ÍA. Hauk-
ar sitja hjé.
Ágúst fer ekki
fram gegn Erni
ÁGÚST Ásgeirsson hefur ókveðiö
aö bíöa meö framboö sitt til for-
mennsku í Frjólsíþróttasambandi
fslands og fer þv( ekki fram gegn
Erni Eiðssyni, sem ófram gefur
kost ó sér til formennsku.
f samtali viö blm. Mbl. kvaöst
Ágúst hafa tekiö þessa ákvöröun í
framhaldi af samkomulagi þeirra
Arnar þar aö lútandi. Ný stjórn FRÍ
veröur kosin á þingi sambandsins í
Hafnarfiröi á morgun og fyrir liggja
talsveróar breytingar frá því sem
nú er.
ÞR
Frábær árangur
GR-sveitarinnar
SVEIT Golfklúbbs Reykjavíkur
stóö sig fróbærlega vel í Klúbba-
keppni Evrópu sem lauk um
helgina í Marbella ó Spóni, þar
sem hún lék fyrir hönd íslands,
en hún hafnaöi í 6. til 8. sæti.
í sveitinni voru Siguröur Pét-
ursson, Óskar Sæmundsson og
Ragnar Ólafsson. Siguröur lék á
76 höggum, Óskar á 79 höggum
og Ragnar á 82 — en árangur
tveggja bestu taldi. Sveitin fór því
samanlagt á 155 höggum, eins og
sveitirnar frá Sþáni og Svíþjóö.
Jafnar í 1. til 3. sæti uröu sveitir
Þýskalands, Englands og Austur-
ríkis, Danmörk varö í 4. sæti á 153
höggum og Skotland í 5. sæti á
154 höggum.
Nítján þjóöir tóku þátt í keppn-
inni þannig aö árangur íslensku
sveitarinnar er mjög góöur.
Marvin Frazier:
„Eg er reiðubúinn“
— einvígi hans og Larry Holmes í kvöld
• Larry Holmes er hvorki skemmtilegur mótherji né órennilegur ef
marka mó þessa mynd. Frazier fær örugglega að finna fyrir því í kvöld.
LARRY HOLMES, heimsmeistari í
þungavigt í hnefaleíkum, sagöi
Marvis Frazier ó blaöamanna-
fundi ó miövikudaginn, aö hann
myndi færa honum heim beltiö
sem titlinum fylgir ef Frazier ynni
viöureign þeirra í kvöld. En hinn
34 óra Holmes sagöi Frazier einn-
ig aö „væri ég þú myndi ég ekki
taka viö beltinu, því Alþjóöa-
hnefaleikasambandiö viöurkenn-
ir þíg ekki.“
Holmes sendi forráöamönnum
hnefaleikasambandsins „sneiö"
meö þessum oröum, en þeir segja
Frazier ekki í hópi tíu bestu boxara
í heimi og því geti þessi viöureign
þeirra félaga ekki talist keppni um
heimsmeistaratitilinn. „Ef Frazier
vinnur mun ég líta á hann sem
meistara," sagöi Holmes.
Holmes hefur keppt fjörutíu og
fjórum sinnum í þungavigt og sigr-
aö í öllum þeim keppnum. Frazier,
sem er sonur Joe Frazier, fyrrum
heimsmeistara, hefur keppt tíu
sinnum síöan hann geróist
atvinnumaöur og sigraó í öll skipt-
in.
„Ég hef æft mig mjög vel fyrir
keppnina," sagði Frazier á fundin-
um á miövikudag, en faöir hans
þjálfar hann. Deilt hefur veriö á
Marvin aö undanförnu fyrir aö
mæta Holmes - sérfræöingar vilja
meina aö hann sé ekki oröinn
nógu góöur til þess. En hann er
ekki á sama máli: „Ég er reiöubú-
inn,“ segir hann einfaldlega.
„Ég vil segja Marvis Frazier aö
ég er einnig reiöubúinn," sagöi
Holmes. „Ég heföi ekki komist eins
langt og raun ber vitni ef ég væri
ekki ætíö reiðubúinn og enginn
skyldi halda aö ég tæki þessa
keppni létt." En Holmes telur engu
aö síöur aó Frazier ætti ekki aö
mæta sér strax. „Þú getur ekki
gert mér neitt sem ekki hefur veriö
gert áöur," sagöi hann. „Ég hef
veriö sleginn niður og kýldur undir
beltisstaö. En ég mun sýna þér
hluti sem þú hefur aldrei séö áöur.
Þú munt fá ýmislegt frá mór sem
þú hefur aldrei fengiö áöur." Báóir
voru kapparnir sigurvissir og víst
er aö hart veröur barist í Ceasar-
íþróttahöllinni í Las Vegas í kvöld.
Cram í æfinga-
ferð til Colorado?
ENSKI hlauparinn Steve Cram,
heims-, Evrópu- og Samveldis-
meistari í 1.500 metra hlaupi,
íhugar nú aö fara til Bandaríkj-
anna í æfingabúðir fyrir Ólympíu-
leikana næsta sumar.
Cram, sem þegar hefur skipu-
lagt fimm vikna æfingaferö til
Ástralíu og Nýja Sjálands sagöi í
samtali viö AP: „Ekkert hefur veriö
endanlega ákveöiö varöandi
Bandaríkjaferö, en ég er alvarlega
aö hugsa um aö fara þangaö. Eg
hef tvívegis æft um páska í Bould-
er í Colorado, og þaö hefur geflst
mjög vel."