Morgunblaðið - 25.01.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984
3
Skátar moka
snjó fyriir
gamla fó
MINNUGIR þess að góðverk á
dag kemur skapinu í lag hafa
reykvískir skátar farið um
borgina í snjóþyngslunum og
boðið samborgurum sínum
hjálp við að moka snjó frá hús-
um.
„Við auglýstum í útvarpinu á
mánudaginn og hvöttum skáta
og aðra hressa krakka til að
moka tröppur og gangstéttar
hjá fullorðnu fólki. Þann sama
dag mokuðum við á einum
hundrað stöðum og eitthvað
færri á þriðjudag," sagði Benja-
mín Axel Árnason, fram-
kvæmdastjóri Bandalags ís-
lenskra skáta, í spjalli við
blaðamann Mbl. í gær. „Það
hefur ekki stoppað hjá okkur
síminn og alls hafa verið í þessu
hjá ökkur 40—50 krakkar og
unglingar. Við höfum lánað
skóflur þegar það hefur þurft,
en margir hafa komið með
skóflur að heiman. Þau hafa
verið um allan bæ, allt frá
Breiðholti og vestur á Seltjarn-
arnes."
Benjamín sagði að miðstöð
snjómoksturssveitanna væri í
skátahúsinu við Snorrabraut og
þar mætti hafa samband ef að-
stoðar væri óskað — en vita-
skuld væri hugmyndin sú, að
aðstoða fyrst og fremst þá, sem
ekki gætu mokað sjálfir.
Arnarflug:
Flutningar hafa
aukist verulega
„FLUTNINGAR félagsins það sem af
er árinu hafa verið meiri, en gert
hafði verið ráð fyrir,“ sagði Stefán
Halldórsson í markaðsdeild Arnar-
flugs, í samtali við Morgunblaðið.
„í innanlandsfluginu höfðum við
flutt samtals 1.533 farþega í gær-
dag, en allan mánuðinn í fyrra
flutti Arnarflugs samtals 1.432 far-
þega. Ef fram fer sem horfir mun-
um við flytja í nágrenni við 2.000
farþega í janúarmánuði, sem er um
40% aukning frá síðasta ári,“ sagði
Stefán ennfremur.
Þá kom fram í samtalinu við
Stefán Halldórsson, að farþegar og
bókanir í millilandaflugi félagsins í
janúar væru 918, en í janúar á síð-
asta ári flutti Arnarflug samtals
641 farþega milli landa. Aukningin
milli ára er liðlega 43%. „Það er
hins vegar ljóst að við munum
flytja eitthvað fleiri farþega en
bókanir segja til um þannig að
aukningin milli ára verður vel yfir
45%.“
Vestmannaeyjaflug Flugleiða:
Fjölga ferðum
úr átta
„VIÐ ERUM fyrst og fremst að
hugsa um að auka þjónustuna við þá
farþega, sem fljúga á þessari flug-
leið,“ sagöi Sæmundur Guðvinsson,
fréttafulltrúi Flugleiða, í tilefni þess
að félagið hefur nú ákveðið að fjölga
ferðum milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja úr átta í tólf frá og með
13. febrúar nk.
„Flognar verða tvær ferðir á dag
alla virka daga vikunnar, annars
vegar morgunflug klukkan 8.35 og
hins vegar síðdegisflug klukkan
17.00. Á laugardagsmorgnum verð-
ur farin ein ferð klukkan 9.30 og á
sunnudögum verður flogið klukkan
13.00 frá Reykjavík," sagði Sæ-
mundur ennfremur.
Sæmundur sagði að með þessu
í tólf
fyrirkomulagi skapaðist möguleiki
fyrir þá sem vegna starfa sinna
þyrftu að fara milli Reykjavíkur og
Vestmannaeyja að nýta daginn á
öðrum hvorum staðnum, þ.e. fljúga
frá Reykjavík eða Vestmannaeyj-
um að morgni og koma heim að
kvöldi. Þessi nýja áætlun verður í
gildi til 20. maí nk.
Eins og áður sagði er brottför frá
Reykjavík á laugardagsmorgnum
klukkan 9.30. „I Eyjum verður höfð
viðdvöl í rúma klukkustund og er
þetta gert fyrir farþega, sem vilja
skreppa í stuttar skoðunarferðir
um Vestmannaeyjar, sem í boði
eru. Þá eru ennfremur boðnar helg-
arferðir milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja," sagði Sæmundur Guð-
vinsson, fréttafulltrúi Flugleiða.
Akureyri:
Símahler-
un í fjöl-
býlishúsi
Akureyri, 24. janúar.
SÍMVIRKJAR, sem voru við vinnu
sína að tengja síma í fjölbýlishúsi í
Lundahverfinu á Akureyri, fundu þar
í inntakinu tengt segulband við einn
síma hússins. Rannsóknarlögreglunni
var þegar gert viðvart og hefur hún
unnið að rannsókn málsins í gaer og
dag.
Handhafi símans, sem er kona
um fertugt, kann engar skýringar á
þessu fyrirbrigði og telur allsendis
fráleitt að nokkur kunni að hafa
haft vilja eða ábata af því að hlera
síma sinn.
Lögreglan tjáði Mbl. í dag, að
mjög kunnáttusamlega hafi verið
gengið frá þessu hlerunartæki, sem
er lltið segulband og ekki mörg slík
hafa selst hér í bæ.
Málið er enn í rannsókn.
GBerg.
„Fjöltefli“
— tónleikar íslensku
hljómsveitarinnar
ÞRIÐJU tónleikar íslensku hljóm-
sveitarinnar á þessu starfsári verða f
Bústaðakirkju á morgun, fimmtudag
og hefjast kl. 20.30.
Á tónleikunum, sem bera yfir-
skriftina „Fjöltefli“ leika m.a. þau
Ásgeir H. Steingrímsson, Martial
Nardeau, Sigurður I. Snorrason,
Björn Árnason og Anna Guðný
Guðmundsdóttir.
Leikið verður tríó Beethovens
fyrir flautu, fagott og píanó og
svíta í ellefu þáttum eftir Paul
Hundemith sem ber nafnið Tiitti-
fántcnen. Sérstakur gestur hljóm-
sveitarinnar verður Páll P. Páls-
son, sem stjórnar henni í fyrsta
sinn á þessum tónleikum.
Segðu EUB0S (Jú-boss)
i staðinn fyrir sápu!
Sennilega er Eubos eitthvaö þaö besta,
sem komið hefur á markaðinn fyrir þá
sem eru með viðkvæma húð.
Eubos kemur nefnilega í stað sápu,
sem oft getur verið ertandi fyrir húðina.
Tilvalið fyrir þá sem vegna vinnu
sinnar, íþróttaiðkana og annarra
aðstæðna þurfa oft á tíðum að nota
mildari sápu en aðrir. Sumir þola jafnvel
ekki að nota sápu. Það eru einmitt þeir,
sem eiga að nota Euþos í stað sápu.
Euþos fæst þæði í hörðu og fljótandi
formi.
EUB0S
Umboð á íslandi:
G. Ólafsson,
Grensásvegi 8, Reykjavík.