Morgunblaðið - 25.01.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.01.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984 19 Spænsk kvikmynd í Norræna húsinu SPÁNSKA sendiráðið og spænsku- deild Háskóla íslands gangast fyrir sýningu á kvikmyndinni „Pascual Du- arte“ sem byggð er á skáldsögunni „La familia de Pascual Duarte" eftir C. José Cela, í Norræna húsinu, flmmtudaginn 26. janúar kl. 20.30. Leikstjóri er Ricardo Franco og með aðalhlutverk fer José Luis Gómez, en hann hlaut fyrstu verðlaun á kvik- myndahátíð í Cannes árið 1976 fyrir leik sinn í myndinni. Þetta er önnur myndin sem gerð er eftir skáldsögu hins þekkta spánska rithöfundar C. José Cela, en hann er fæddur árið 1916. Sagan er frumverk höfundarins, en hana skrifaði Cela árið 1942. Myndin hefst á því að fátækur bóndi er hnepptur í varðhald en hann hefur orðið mönnum að bana og á yfir höfði sér líflátsdóm. Með- an hann bíður aftökunnar reikar hugur hans aftur í tímann, en myndin fjallar um líf hans og þá atburði sem leiddu til þess að hann framdi ódæðisverkin. Myndin er 105 mínútna löng, hún er í lit og með spænsku tali. Að- gangur að sýningunni er ókeypis. flr rréttalilkynningu. Listvinafélag Hallgrímskirkju: Náttsöngur með Gunnari Kvaran sellóleikara GUNNAR Kvaran, sellóleikari, er gestur Náttsöngs í Hallgríms- kirkju í kvöld. Hann leikur ásamt Herði Áskelssyni, organista, áður en kirkjugestir syngja tíðagjörð- ina. Gunnar hefur áður auðgað Náttsöng í Hallgrímskirkju með leik sínum. Listvinafélag Hall- grímskirkju stendur fyrir þessari helgistund á síðkvöldi í miðri viku, en hún hefst að venju kl. 22.00 og tekur rúma hálfa klukkustund. Úr fréttatilkynningu. Gunnar Kvaran Árangurslaus fundur með bókagerðarmönnum FUNDUR samninganefnda Félags prentiðnaðarins og Félags bóka- gerðarmanna sem haldinn var i gær hjá rikissáttasemjara varð árangurslaus. Boðað hefur verið til nýs fundar að viku liðinni, þriðjudaginn 31. janúar klukkan 14.00. Þessi niðurstaða hlýt- ur að leiða til aðgerða — segir formaður Hlífar „Þessar niðurstöður koma ekki neinum á óvart. Lokun kerjanna hef- ur ekki skilað árangri, en það hlýtur að vera hægt að finna út réttu leiðina í baráttunni við mengunina. Þeir sem vinna þarna hafa kvartað og hefur svo verið lengi," sagði Hallgrímur Pétursson, formaður verkamannafé- lagsins Hlífar, í samtali við Morgun- blaðið um niðurstöðu mengunar- rannsókna í kerskálum í álverinu í Straumsvík, en þar keraur fram að lokun kerja hefur ekki komið að til- ætluðum notum hvað mengunarvarn- ir snertir. „Það er talað um launin í álver- inu, en þegar tekið er mið af þeim óþrifum og mengun sem menn þurfa að sætta sig við og þess að um mengunina í álverinu þarna kemur vaktaálag inní þá eru launin síst of mikil. Ur því þessi niðurstaða er fengin hlýtur hún að leiða til einhverra aðgerða," sagði Hallgrímur. Hallgrímur sagði að allt of lítið væri um það, að tekið væri mark á þeim mönnum sem ynnu við þessar aðstæður dags daglega, þegar úr- bætur væru ræddar. Það hefði ver- ið bent á ákveðnar úrbætur en á því hefði ekki verið tekið mark. „Við leggjum það til að íslenska álfélagið geri sérstaka áætlun um úrbætur svo ná megi því markmiði sem að var stefnt með því að loka kerjunum," sagði Pétur Reimars- son hjá Vinnueftirlitinu, en hann hafði yfirumsjón með mengunar- mælingum í álverinu. Pétur sagði að það sem helst virtist valda því að árangur af lokun kerjanna væri jafn lítill og mælingarnar nú bentu til, væri að þekjurnar sem notaðar væru til að loka kerjunum vildu safna á sig ryki, sem þyrlaðist auð- veldlega upp. í skýrslu Vinnueftirlitsins kem- ur fram að ekki sé mjög kostnað- arsamt að gera úrbætur, sem myndu minnka mengunina til muna, þannig að lokun kerjana komi að notum. Einar Guðmundsson, yfirmaður í steypuskálum álversins, sagði að skýrslan hefði borist þeim á fimmtudaginn var og ekki hefði gefist nægur tími til að kynna sér innihald hennar. til uppgjör ferðar fer fram 30 dögum fyrir brottför. Útvegs- bankinn veitir þá lán, sem nemur allt að 125% þeirrar upphæðar, sem spöruð hefur verið, ásamt áunnum vöxtum. Þann mánuð, sem lánið er veitt á engin greiðsla sér stað inn á sparireikning auk þess að næsti mánuður á eftir sumarfríinu verður afborgunar- laus. En jafnframt að hjálpa fólki til þess að komast yfir hina fjár- hagslegu hlið sumarleyfisins vilj- um við stuðla að því að gera ferð- ina árangursríkari og skemmti- legri fyrir farþega okkar. Sér- hæft starfsfólk mun veita leið- Ingólfur Guðbrandsson stjórnaði fjöldasöng og hafði til liðs við sig meðlimi úr Pólýfónkórnum. Dixieband Svansins þrammaði um meðal gesta í Broadway og vakti óskipta athygli. Morgnni>i»íié. rax. sögn og hafa forgöngu um lík- ams- og heilsurækt með æfingum og iðkun ýmissa útiíþrótta við hæfi hvers og eins við ákjósanleg skilyrði í bezta loftslagi suður- landa, eða annars staðar þar sem klúbbfélagar verða á ferð. Þá verður einnig gengist fyrir ýms- um uppákomum og skipulagðar heimsóknir á góða veitingastaði og skemmtistaði, þar sem samið verður um sérstaka afslætti handa klúbbfélögum," sagði Ing- ólfur. Hann gat þess jafnframt, að haldið yrði uppi félagsstarfi, svo sem myndasýningum frá ferðum, fræðslu um ferðalög almennt, tungumálanámskeiðum, heilsu- ræktarstarfi, skemmtunum og útgáfu félagsblaðs. Þátttökugjald í FRÍ-klúbbinn verður 100 krónur og mun listi um afslátt hjá fyrirtækjum, bæði hérlendis og erlendis, liggja fyrir í lok ferðalags. En þegar hefur verið samið um afslátt í Líkams- og heilsuræktarstöðina Borgar- túni 29, í skíðalyftur KR og kvikmyndahúsið Regnbogann. FRÍ-klúbbur w Utsýnar stofnað- ur í Broadway A nýarsfagnaði Ferðaskrifstof- unnar Útsýnar í veitingahúsinu Broadway síðastliðið föstudags- kvöld var FRÍ-klúbbur, sem starf- ræktur er á vegum Útsýnar, stofn- settur. Markmið klúbbsins er að auðvelda Útsýnarfarþegum sumar- leyfisferðir með hagstæðum lánum hérlendis og afslætti hjá ýmsum fyrirtækjum, bæði hérlendis og er- lendis og gera farþegum sumarleyf- ið sem ánægjulegast. Ingólfur Guðbrandsson, for- stjóri Útsýnar, kynnti hugmynd- ina að baki FRl-klúbbsins fyrir troðfullu húsi gesta á Broadway. „Markmiðið er að gera sumar- leyfið ánægjulegra og ódýrara. Tilgangurinn er að gefa ferðalag- inu og sumarleyfinu nýtt inni- hald með virkri þátttöku farþeg- anna í fjölbreyttu félagsstarfi, hollri hreyfingu og skemmtun við hæfi fólks á öllum aldri,“ sagði Ingólfur Guðbrandsson. „FRÍ-klúbburinn veitir fría að- ild að margs konar skemmtun og hlunnindum. Með þetta fyrir aug- um höfum við gert samninga við aðila bæði hérlendis og erlendis. 1 samvinnu við Útvegsbanka Is- lands býður Ferðaskrifstofan Út- sýn farþegum sínum í öllum ferð- um svokölluð FRl-lán á árinu 1984. Farþegi gerir samning við Útsýn um sparnað, sem nemur ákveðinni upphæð á mánuði, þar l

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.