Morgunblaðið - 25.01.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984
15
London, 24. janúar. AP.
FIMMTÁN sjómenn drukknuðu er
Dutningaskipið Radiant, sem var í
eigu Grikkja en skráð í Líberíu og
3.000 lestir að sta*rð, fórst í fárviðri á
Ermarsundi í dag. Einn þeirra fannst
örendur í austursvatni í björgunar-
bát, að því er virtist nýlátinn er björg-
unarmenn komust á vettvang.
Tveggja skipverja er saknað.
Hið versta veður hefur herjað á
Bretlandseyjar 13 daga í röð og olli
gífurleg ofankoma miklu öngþveiti
í Skotiandi í dag. í óveðrunum hafa
49 manns týnt lífi af völdum veð-
ursins frá 11. janúar, þar af 24 frá
því á laugardag, og er mannskað-
inn í dag sá mesti á einum degi.
Fimm indverskum sjómönnum
og þremur filippínskum var bjarg-
að snemma í morgun en skipinu
hvolfdi upp úr miðnætti. Skipstjóri
skipsins er í hópi hinna drukknuðu.
Sendi skipstjórinn út neyðarkall
um miðnætti er kornfarmur kast-
aðist til með þeim afleiðingum að
skipið lagðist á hliðina og sjór foss-
Samkomulag
um Hong Kong?
Peking, 24. janúar AP.
Háttsettur, kínverskur embættis-
maður sagði í dag, að nú hillti undir
sanngjarnt samkomulag milli Breta og
Kfnverja um Hong Kong en árið 1997
verða Bretar samkvæmt samningi að
láta krúnunýlenduna af hendi við
Kínverja.
Xinhua-fréttastofan kínverska
hafði þettá eftir Hu Yaobang, aðal-
ritara kínverska kommúnistaflokks-
ins, að loknum þeim samningavið-
ræðum um framtíð Hong Kong, sem
að undanförnu hafa farið fram í
Peking. Sagði hann, að hvorir
tveggja deiluaðila hefðu sýnt sann-
girni og framsýni í viðraeðunum og
að þess vegna hillti nú undir rétt-
láta lausn. Hann tók þó fram, að
enn ætti eftir að ræða nokkur atriði.
Times of London sagði frá því í
vikunni, að breska ríkisstjórnin
hefði fallist á að afsala sér yfirráð-
um yfir Hong Kong á tilsettum tíma
og krefðist þess ekki lengur að fá að
hafa hönd í bagga með stjórn ný-
lendunnar eftir 1997. Kínverjar
hafa aftur á móti heitið að láta
Hong Kong-búa sjálfráða að mestu
um stjórnina og virða þjóðfélagslegt
og efnahagslegt fyrirkomulag í ný-
lendunni í hálfa öld eftir yfirtökuna.
Falklandseyjadeilan:
Lögreglumenn með unglinga, sem handteknir voru eftir uppþot í Hong Kong. Stór hópur ungmenna fór með báli og
brandi í borginni og rændi og ruplaði verzlanir áður en lögreglu tókst að skakka leikinn.
15 sjómenn farast í
fárviðri á Ermarsundi
Samkomulagstii-
boð frá Argentínu?
aði inn.
Mikið óveður með gífurlegri
ofankomu gekk yfir Skotland og
Norður-England í dag, fjórða dag-
inn í röð. Samgöngur hafa raskast
það mikið að heita má að Skotland
sé einangrað frá öðru hlutum
Bretlandseyja. Hafa níu manns
týnt lífi í Skotlandi vegna veðurs-
ins frá því á laugardag. Um 60 þús-
und fjölskyldur eru án rafmag'ns
þar sem raflínur hafa slitnað í
veðrinu.
London, 24. janúar. AP.
BRESKA, ríkisútvarpið BBC, greindi
frá því í gærkvöldi og hafði eftir heim-
ildum sínum í utanríkisráðuneyti Arg-
entínu, að Argentínumenn væru að
semja tillögur er miða að því að ná
samkomulagi við Breta um Falklands-
eyjar, og yrðu þær kynntar bresku rík-
isstjórninni innan fárra vikna.
í fréttinni sagði að samkomu-
lagstillögur Argentínumanna fælu í
sér að því yrði lýst yfir að styrjald-
arástandi væri aflétt og tekið upp á
ný eðlilegt stjórnmála- og við-
skiptasamband milli landanna.
I staðinn vilja Argentínumenn að
Bretar falli frá siglingabanni við
Falklandseyjar, að fækkað verði
verulega í herliði Breta á eyjunum
og að breska ríkisstjórnin gefi
fyrirheit um samningaviðræður um
framtíðarsamband Falklandseyja
og Argentínu.
Talið er að Argentínumenn stefni
að því að stjórn eyjanna verði í
þeirra höndum, en á móti ábyrgist
þeir öryggi eyjaskeggja, sem eru
1800 að tölu og af breskum upp-
runa.
Margrét Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, hefur fram að
þessu hafnað öllum samningavið-
ræðum við Argentínumenn um
framtíð eyjanna.
Fulltrúar Atlantshafsbandalagsins í Stokkhólmi:
Nýjar tillögur til að efla
traust austurs og vesturs
Stokkhólmi, 24. janúar. AP.
AÐILDARRÍKI Atlantshafsbanda-
lagsins hafa í sameiningu lagt fram
tillögur í sex liðum á öryggismálaráö-
stefnunni í Stokkhólmi er miða að
því að efla traust ríkja austurs og
vesturs.
Fyrstu viðbrögð í austurvegi
einkennast af varfærni. Talsmenn
Sovétríkjanna segja að nokkrum
tillagnanna verði hafnað, en
talsmenn Austur-Þýskalands segj-
ast reiðubúnir til að íhuga og ræða
allar markverðar hugmyndir er
varða tengsl austurs og vesturs.
Fulltrúi í bandarísku sendi-
nefndinni í Stokkhólmi sagði í við-
tali við AP að tillögurnar væru
lagðar fram til umræðu. Búist
væri við mikiili gagnrýni á þær, en
ekki að þeim yrði alvég hafnað.
Tillögur Atlantshafsríkjanna
fela m.a. í sér verulega aukin
skipti á upplýsingum um skipulag
og staðsetningu herafla, gagn-
kvæmar upplýsingar um heræf-
ingar og herflutninga, aukinn
hraða á upplýsingastreymi milli
ríkisstjórna, og að sérstakar ráð-
stafanir verði gerðar til að ganga
úr skugga um að þær upplýsingar
sem skipst verði á séu á rökum
reistar.
Austur-þýskir
flóttamenn:
Frelsi ekki
keypt með
peningum
Berlín, 24. janúar. AP.
Málaflutningsmaðurinn, sem
kom því í kring að sex Austur-
hjóðverjar fengu að fara til
Vestur-Berlínar eftir að hafa sest
að í bandaríska sendiráðinu í
Austur-Berlín, neitaði því í dag
að greitt hefði verið fyrir frelsi
sexmenninganna í reiðufé.
Wolfgang Vogel sagði i við-
tali við útvarpsstöð Vestur-
Berlínar að hvorki hefðu yfir-
völd t alþýðulýðveldinu gert
kröfu um peningagreiðslur né
yfirvöld í sambandslýðveld-
ingu boðið þær.
Vogei, sem er tengiliður
stjórnarinnar í Austur-Berlín í
flóttamannamálum og náinn
samstarfsmaður Erich Hon-
eckers flokksleiðtoga, sagði
mál sexmenninganna hafa ver-
ið leyst með þeim hætti að
bæði ríkin gætu vel við unað.