Morgunblaðið - 25.01.1984, Page 16

Morgunblaðið - 25.01.1984, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984 TREHOLT-NJÓSNAMÁLIÐ í NOREGI Undirsáta Andropov heil- inn á bak við njósnirnar Gennadyj Titov, „huldumaðurinn“, sem flýði frá Noregi 1977 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið. Útsendari í áhrifastöðu Arne Treholt, útsendari KGB í norska stjórn- kerfinu, hafði í senn aðgang að mikilvægum upplýsingum og var í einstakri aðstöðu til að hafa áhrif á þróun mála og töku ákvarðana. Hann var í hópi róttækra háskólastúd- enta þegar talið er að hann hafi gerst sovéskur njósnari. Hvort heldur það óheillaspor má rekja til sendiráðs- veislna, fégræðgi, spilafíkn- ar, kvennafars eða hugsjóna- elds er niðurstaðan sú, að Arne Treholt hefur að líkind- um stundað landráð í meira en áratug. Treholt var ekki óbreyttur skriffinnur í norska stjórnkerfinu, hann var stjórnmálamaður og stjórnarerindreki sem hefði hæglega getað orðið ráðherra í næstu ríkisstjórn norska Verkamannaflokksins. Þeir sem fylgjast náið með norskum stjórnmálum vita að án stuðnings og pólitískra áhrifa Arne Treholt hefði Jens Evensen, þjóðréttar- fræðingur, ekki hafist til jafn mikilla pólitískra áhrifa innan Verkamannaflokksins og raun ber vitni. Um þessa hlið málsins sagði norska stórblaðið Aftenposten í for- ystugrein á mánudag: „í sambandi við þetta mál hljóta menn einnig að íhuga hvernig stjórnmálamaðurinn og KGB-útsendarinn Arne Treholt hefur nýtt einstætt samband sitt við Jens Even- sen bæði í samningum um hafréttarmál og einnig þegar Evensen hóf að tala um „kjarnorkuvopnalaus svæði". Vegna síðara málsins hefur myndast ný miðja í Verka- mannaflokknum og það varð að verulegu leyti til þess að flokkurinn breytti um svip og stefnu í öryggismálum." Verdens Gang, útbreidd- asta blað Noregs, tekur í sama streng og Aftenposten í forystugrein um þessa hlið Treholt-málsins og í norsk- um fjölmiðlum er talað um þá Treholt og Evensen sem pólitíska síamstvíbura. Jafn- framt beinist athyglin að því að þeir Jens Evensen og Arne Treholt sömdu um það tveir og saman í Moskvu 1977 að deila Norðmanna og Sovét- manna um markalínu í Bar- entshafi yrði leyst með því að mynda svokallað grátt svæði, þar sem báðir aðilar eiga óljósan rétt. Evensen fór út fyrir umboð sitt þegar hann undirritaði samninginn en Treholt var sendur frá Moskvu til Oslóar til að „selja" ríkisstjórn Odvar Nordli samkomulagið — sem KGB-útsendaranum tókst. Síðan hefur þessi samningur jafnan sætt mikilli gagnrýni og er af mörgum talinn hættulegur fyrir þá sök að með honum fái Kremlverjar tækifæri til íhlutunar og þrýstings gagnvart norskum stjórnvöldum. Þegar störf útsendara KGB á Vesturlöndum eru metin staldra menn venju- lega fyrst við njósnir í hefð- bundnum skilningi, skjala- stuld eða því um líkt, hitt gleymist að útsendarar í áhrifastöðum eru jafnvel enn gagnlegri fyrir Sovétstjórn- ina þegar til lengri tíma er litið með það markmið henn- ar í huga að færa út veldi sitt eftir öllum tiltækum leiðum. Einn slíkur útsendari í æðstu stöðu hefur nú verið afhjúp- aður í Noregi. Afnám grænmetis- einokunar Almennur fundur um verslun með grænmeti ályktaði á þann veg um síð- ustu helgi, að verslun með nýtt grænmeti yrði gefin frjáls og innflutningur á grænmeti yrði frjáls á þeim tíma sem innlend gæðafram- leiðsla annar ekki eftirspurn, eins og það var orðað. Hér er varpað fram tillögu sem á fullan rétt á sér og ætti hún að geta náð fram að ganga á alþingi, en þingmenn Banda- lags jafnaðarmanna og Al- þýðuflokks hafa hreyft þessu máli á því þíngi sem nú situr og sjálfstæðismenn hafa gert það áður. Enginn vafi er á því að ein- okun á grænmetisverslun, sem stofnað var til fyrir mörgum áratugum, stangast á við nútímahugmyndir ís- lendinga um verslunarhætti. Ástæðulaust er fyrir stjórn- endur þessa einokunarfyrir- tækis eða starfsmenn að líta á umræður um frjálsræði á þessu sviði sem aðför að starfi þeirra eða atvinnu, þvert á móti ætti þekking þeirra og reynsla að nýtast þessu gamalgróna fyrirtæki til góða í samkeppni við nýgræðinga. Þegar Arne Treholt var handtek- inn á Fornebu-flugvelli á föstudag var hann á leid til fundar við einn af hæstsettu mönnunum innan KGB, Gennady Totov, í Vínarborg. Þessi sami Titov var sjálfur yfirmaður KGB við norska sendiráðið á árun- um 1971—1977, en varð af fara úr landi þegar njósnamál Gunnvor Galtung komst upp. Titov er talinn einn valdamesti maður innan KGB. Hann hefur verið mjög athafnasamur og hefur komið sér upp góðum tengiliðum í fjölmörgum löndum. Þessar upp- lýsingar komu fram í fréttatil- kynningu frá ríkissaksóknara, og þar er því haldið fram, að Treholt hafi njósnað fyrir KGB a.m.k. frá árinu 1977. Líklegast er þó, að hann hafi verið í þjónustu sovésku leyniþjónustunnar allt frá lokum sjöunda áratugarins. Þegar flett var ofan af Gunnvor Galtung árið 1977 hafði sést til nokkurra sovéskra sendiráðs- starfsmanna á fundum með henni. Titov yfirgaf Noreg skömmu eftir afhjúpunina. Honum hefði hvort sem er verið vísað úr landi í kjöl- far hennar, en kaus að taka pjönk- ur sínar áður en honum var form- lega vísað úr landi. Sex sovéskum sendiráðsstarfsmönnum var vísað úr landi skömmu síðar. Það er ljóst, að jafnt fyrir sem eftir dvöl sína í Noregi hefur Titov verið heilinn á bak við njósna- starfsemi Treholt. Það hefur allt- af verið Titov, sem hefur lagt fyrir Treholt hvað gera skuli. Norska öryggislögreglan hefur nú í fórum sínum ljósmyndir af fundum Tre- holts og Titovs bæði í Vínarborg og Helsinki. Þegar Galtung-málið var á sín- um tíma upplýst var norska ör- yggislögreglan sannfærð um að „moldvarpa" leyndist einhvers staðar í röðum æðstu embætt- ismanna norska ríkisins. Mörg blöð halda því fram, að fylgst hafi verið með Treholt allt frá því Galtung-málið var upplýst, jafnt í starfi sem einkalífi. Undanfarnar vikur var sími hans hleraður og allur póstur til hans gaumgæfi- lega rannsakaður. í síðasta hluta aðgerðanna vann 20 manna norskt lögreglulið að lausn málsins. Margir hafa lýst yfir undrun sinni á því hversu langan tíma það tók að afhjúpa Treholt í ljósi þeirrar staðreyndar, að fylgst hef- ur verið með honum frá 1977. Káre Willoch, forsætisráðherra, hefur engu að síður sagt frammistöðu norsku öryggislögreglunnar í máli þessu vera rós í hnappagat henn- ar. Heimildarmenn innan örygg- islögreglunnar segja, að áður en þeir handtaki mann verði þeir að vera fullvissir í sinni sök. Sú full- vissa fékkst ekki fyrr en nú fyrir skemmstu. Þá segja sömu heim- ildir innan öryggislögreglunnar, að ekki megi ganga svo vasklega fram i leitinni að sönnunum, að hinn grunaði verði þess var. Ljóst er að Arne Treholt hefur verið einn allra mikilvægasti njósnari KGB í Evrópu á síðari árum. Þegar Yuri Andropov, nú- verandi leiðtogi Sovétríkjanna, var yfirmaður KGB fékk hann nákvæmar upplýsingar um störf Treholt með jöfnu millibili. Sá, sem veitti Andropov þessar uplýs- ingar, var enginn annar en Titov sjálfur, að sögn norska blaðsins Verdens Gang. Titov er jafnan nefndur „huldumaðurinn". Enginn nothæf mynd af honum er til hjá norsku dagblöðunum þrátt fyrir 6 ára veru hans í landinu. Skilaboð á skrifborði Treholt daginn sem hann var handtekinn: „Er á fundi, sjáumst á mánudaginn. Arne“ Klukkan rétt rúmlega 7.30 að morgni flmmtudagsins 19. janúar fór Arne Treholt að heiman áleið- is í vinnuna eins og hann var van- ur. Það var kalt og hann hneppti frakkanum að sér er hann kom út. Enga hreyflngu var að sjá við Oscarsgötu, þar sem Treholt bjó í 200 fermetra íbúð á 2. hæð stórs, gamals og virðulegs húss. Ibúðina hafði hann keypt fyrir tveimur árum er hann flutti heim frá New York. Á bílastæðinu fyrir utan húsið stóð bifreið hans, Saab 900 Turbo. Það var þó ekki löng leið frá heimili hans að utanríkis- ráðuneytinu, nánast steinsnar. Þennan dag reyndi í fyrsta sinni verulega á hæfni hans sem blaðafulltrúa ráðuneytisins því Geofge Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og Svenn Stray, utanríkisráðherra Noregs, voru báðir væntanlegir til Fornebu-flugvallar kl. 9.30. Treholt var mættur út á flugvöll í tæka tíð til þess að taka á móti ráðherrunum. Hann slóst síðan í för með föruneyti þeirra á leiðinni inn í borgina, þar sem fyrsti ákvörðunarstað- urinn var gestabústaður stjórn- arinnar í Parkveijen. Þar átti Shultz að eiga viðræður við norska ráðherra. Langur og flókinn undirbúningur er að baki slíkum fundum, en allt stóð eins og stafur á bók. Fundurinn hófst um kl. 10.30. Þar ræddi Shultz við Stray og ýmsa aðra frammámenn í norskum stjórnmálum áður en hann hélt aftur að gestahúsi norsku stjórnarinnar um há- degisbilið. Þar snæddi hann há- degisverð, en að málsverðinum loknum héldu viðræðurnar áfram. Treholt hélt á SAS- hótelið til þess að yfirfara öll undirbúningsatriði varðandi fréttamannafundinn með íbúðarhúsið, þar sem Treholt býr. Horngluggi á annarri hæð hússins er einn glugganna á 200 fermetra íbúð hans. Shultz og Stray, sem hefjast átti kl. 15. Fundurinn hófst á tilsettum tíma undir stjórn Geir Grungs og talsmanns bandaríska utan- ríkisráðuneytisins, John Hugh- es. Fundinum lauk laust fyrir kl. 16. Bílalestin lagði af stað frá SAS-hótelinu kl. 16.15 áleið- is út á Fornebu, þar sem cinka- þota ráðherrans beið hans. Loks þegar flugvélin hafði hafið sig til lofts gat Treholt leyft sér að slaka eilítið á eftir annasaman dag. Hann hélt aft- ur á skrifstofu sína í ráðuneyt- inu, en hélt síðan heim á leið upp úr kl. 17.30. Föstudagur, 20. janúar. Eins og daginn áður var Tre- holt snemma á fótum. Hann var mættur til vinnu 15 mínútum áður en hinn eiginlegi vinnu- dagur hófst kl. 8. Það vakti at- hygli starfsmanna ráðuneytis- ins, að Treholt, sem alla jafna var óaðfinnanlega klæddur, var í snjáðum lítt ásjálegum fötum þennan dag. Upp úr klukkan 9 fór hann á fund með öðrum yfirmönnum utanríkisráðuneytisins og skömmu eftir að fundinum lauk fékk hann upphringingu frá að- ila í bandaríska sendiráðinu í Ósló, sem lýsti ánægju sinni með vel heppnaðan frétta- mannafund daginn áður. Heimsókn Shultz var á allan hátt mjög vel heppnuð og Tre- holt ræddi við Steinar Sitten, fyrrum blaðafulltrúa ráðuneyt- isins, um fyrirhugaða heimsókn Diönu prinsessu um mánaða- mótin. Þeir Sitten ræddu saman allan morguninn og það var helst, að Treholt væri eitthvað óstyrkari en venja bar til. Eftir hádegið var vitað til þess, að skrifstofustúlka lagði nokkur skjöl inn á borð til Tre- holts. Á borðið hafði hann lagt stóran miða, þar sem á var letr- að: „Er á fundi, sjáumst á mánudag. Arne.“ Ekki varð úr því, að Arne Treholt mætti til vinnu eins og venjulega næsta mánudags- morgun. Hann var handtekinn á Fornebu-flugvelli um kl. 17 um daginn, þar sem hann beið eftir áætlunarvél til Kaupmannahafnar. Þaðan ætl- aði hann að halda til Vínar- borgar til móts við úsendara KGB. Á þann fund komst hann aldrei eins og kunnugt er orðið. (Heimild norska Dagbladet.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.