Morgunblaðið - 25.01.1984, Page 32

Morgunblaðið - 25.01.1984, Page 32
E EURQCARD T1L DAGLEGRA NOTA ffgtHlÞlafrtfe Þettalestuídag: „ Unnið Skálholti friðar með bóka- safn sitt.“ Sjá bls. 5 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984 VERÐ I LAUSASOLU 20 KR. Læknir fór á snjósleða frá Olafsvík í Breiðuvík ÓljiÍHVÍk, 24. janúar. SÍÐDEGIS í gær kotnu til héraðslæknisins í Ólafsvík, Kristófers Þorleifssonar, boð frá Gröf í Breiðuvík, um að þar væri veikt barn, sem þyrfti læknis við. Var jafnvel óttast, að veikin stafaði af botnlangabólgu. Fróðárheiði var með öllu ófær og eftir að hafa haft samband við verk- stjóra Vegagerðarinnar hér ákvað læknirinn að ráðast í þessa ferð á snjósleðum. Fór hann við þriðja mann á tveim sleðum og var á öðrum sleð- anum allur búnaður til að taka sjúklinginn til Ólafsvík- ur ef á þyrfti að halda. Ferðin gekk áfallalaust og tók rúmar fimm klukkustundir. Ekki kom til þess að flytja þyrfti sjúkl- inginn en það hefði, að sögn Kristófers, getað orðið erfitt en í bráðu tilviki hefði raunar verið kallað eftir þyrlu. Þeir ferðalang- ar sögðu afar mikinn snjó hafa verið á þeirra leið og byggðin sunnanfjalls sem ein hjarnhella. Ekki má því mikið út af bera þar í sveitum, því símasamband þangað er oft slæmt og úrlausnir í sam- göngum í algjöru lágmarki. - Helgi. Sóttu fé frá Lokinhömrum í Svalvoga Skipverjar á varðskipinu Tý fóru nýlega að Svalvogum, sem eru yst á skaganum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, til að sækja fé sem þar var teppt. Var féð, sem er frá bænum Lokinhömrum, orðið matarlaust í vetrarhörkunum, og því talið nauðsynlegt að sækja það, ætti það ekki að falla úr hor. Fóru varðskipsmenn á gúmbáti og náðu í ærnar og tókst leiðangurinn vel, en myndin sýnir hvar verið er að koma einni ánni, sem hulin er snjó og klakakleprum, fyrir í bátnum. „Gætum að hvar börnin byggjau BygginK^nieistarar framtíðar- innar fá ómælda útrás fyrir at- hafnaþrá sína, þegar snjórinn hleðst upp. Snjóruðningar og skafl- ar breytast á skömmum tíma í snjóhús með tilheyrandi göngum. Meistaraverkin eru oft kórónuð með því að hafa inngangana vel varða og lítt sjáanlega, þó húsa- kynni rúmi nokkra húsbyggjendur. Það er ekki að ófyrirsynju að stjórnendur snjóruðningstækja og foreldrar barna eru minntir á þá hættu sem þessu getur verið samfara, því skipulagsmál snjó- húsabyggða gleymast oft í hita verkframkvæmda. Má minna á að sl. vetur sá veghefilsstjóri allt í einu barnshöfuð birtast í snjó- ruðningi rétt fyrir framan farar- tæki sitt. Hann var á nokkurri ferð, en tókst að stansa í tíma og forða stórslysi, því í ljós kom að í ruðningnum voru fleiri en eitt barn við búsýslu í snjóhúsi. Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gærkyöldi: Æskilegt að álver rísi við Eyjafjörð Meirihluti bæjarstjórnar klofnaði í málinu Akureyri, 24. janúar. MIKLAR UMRÆÐUR urðu í bæjarstjórn Akureyrar í dag um tillögu frá atvinnumála- nefnd varðandi álver við Eyjafjörð. Meiri- hluti bæjarstjórnar, sem samanstendur af þremur fulltrúum Framsóknarflokks, tveim- ur frá Kvennaframboði og einum frá Alþýðu- f umræðum um tillöguna sagði Gunnar Ragnars (S) m.a., að hann vænti þess að þessi afgreiðsla yrði til þess í framtíðinni, að þau frjálslyndu og jákvæðu öfl, sem vissulega væru til í meirihlutan- um tækju nú höndum saman við sjálfstæðismenn í bæjarstjórn um lausn þeirra atvinnuvandamála, sem óneitanlega væru fyrir hendi í byggðarlaginu og hættu þjónkun sinni við Kvennaframboð og kommúnista. Tillaga atvinnumálanefndar, sem samþykkt var með 8 atkvæð- um gegn þremur, er svohljóðandi: „Vegna frétta frá stóriðjunefnd þess efnis að hafnar séu viðræður við erlend fyrirtæki um hugsan- lega byggingu álvers við Eyja- fjörð, ályktar bæjarstjórn Akur- eyrar eftirfarandi: Bæjarstjórn Akureyrar telur æskilegt að næsta stóriðjuveri, sem byggt verður á íslandi verði valinn staður við bandalagi, klofnaði í afstöðu sinni til málsins og þegar tillaga sem meirihluti atvinnumála- nefndar bæjarins iagði fyrir bæjarstjórn til umfjöllunar kom til atkvæða greiddu allir bæjarfulltrúar henni atkvæði sitt nema full- trúar Kvennaframboðs og Alþýðubandalags. sem svo mannmargt fyrirtæki gæti hugsanlega valdið. Einnig er því haldið fram að álver stefni í hættu því mannlífi sem byggst hefur upp á frumgreinunum, sjáv- arútvegi og landbúnaði. Ekki minnast samtökin á iðnað í því sambandi. Þó vilja konurnar að í stað þess að reisa álver verði hafn- ar rannsóknir og undirbúningur að fiskirækt á Eyjafjarðar- svæðinu, t.d. þorskahafbeit og botnkvíaeldi með þorsk og lúðu. Eftir þessa afgreiðslu er ljóst, að myndast hefur sterkur meiri- hluti í bæjarstjórn Akureyrar varðandi atvinnumálin og gerir atvinnumálanefnd bæjarins létt- ara að vinna að hinum ýmsu fram- faramálum á því sviði, sem lengi hafa verið í deiglunni. Óvenjulega margir bæjarbúar voru viðstaddir fundinn eða milli 70 og 80 manns. — G.Berg. Eyjafjörð, enda verði talið tryggt að rekstur versins stefni lifríki fjarðarins ekki í hættu. Bæjar- stjórn Akureyrar leggur áherslu á að umhverfisrannsóknum og öðr- um undirbúningi vegna byggingar álvers við Eyjafjörð verði hraðað svo sem kostur er og lýsir ánægju sinni með aðgerðir iðnaðarins, ráðherra og stóriðjunefndar í mál- inu. Bæjarstjórn Akureyrar felur atvinnumálanefnd að fylgjast sem nánast með þróun þessa máls og að hafa forystu um viðræður við nágrannasveitirnar um framgang þessa mikla hagsmunamáls". Fulltrúar Kvennaframboðs gerðu sérbókanir, þar sem m.a. kemur fram að samtökin eru al- farið á móti byggingu slíkrar verksmiðju og benda þar m.a. á að hvert starf sé afar dýrt í byggingu og skapi fá framtíðarstörf en benda þó einnig á að lítið hafi ver- ið rætt um þá félagslegu röskun,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.