Morgunblaðið - 01.02.1984, Page 21

Morgunblaðið - 01.02.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS uMmn^uHi-U If arnafólky friöarfólk og drir áhorfendur sjónvarps vfiir Kristinu //. Sn-tran ir Kfíinn !<*•« Kk krt-fsl \rss fyrir hon4 Imrnii 1 in v»r kynnt Að hvrrs minnn. »A slih ktriAi <-A» álik» ' |wtt» vskilrKur svn vcrAi fkki framar sjnrf á (wssum Kácin stok dn-mi Sýnt i»r rr inKartimi* Þurfti »A koma hrnm tima ■ÉlMÍÉÍÉÍHfeMhHMðttÉ Atriöi um ofbeldi og hernaö í kvikmynd sjónvarpsins um Dóná: Stuðla þau að öruggu sálarlífi barna? skáldsnillingar voru, sem að dómi Jóhanns stóðu Davíð framar sem skáld meðan hann var ofar moldu. Að öðrum skáldum ólöstuðum hygg ég vandfundin þau skáld, sem voru honum fremri á sviði orðsins iistar, þó að lengi megi að sjálfsögðu deila um slíkan virð- ingarsess og sitt sýnist hverjum um ágæti okkar snjöllustu skálda. Þau skáld af yngri kynslóðinni, sem tóku upp nýtt ljóðform og mest kvað að eftir 1950, voru að stíga sín fyrstu skref á skálda- brautinni um það leyti sem starfsdegi Davíðs var tekið að halla og þess raunar skammt að bíða að hann legði frá sér skáld- hörpuna. Það er því ekki sann- gjarnt að ætlast til þess, að hann tæki upp svipaðar nýjungar og þeir eða bera saman skáldskap hans og þeirra, þegar verk þessara ólíku skálda eru metin. Þó að Davíð væri fyrst og fremst Ijódskáld og skáldgáfa hans nyti sín án efa best í því formi, fékkst hann einnig við aðrar greinar skáldskapar með ágætum árangri. Skáldsagan Sólon Island- us var, eins og greinarhöfundur telur réttilega, merkt framlag til epískrar sagnagerðar. Þá má og minna á leikrit Davíðs, en þau skipa veglegan sess í leikbók- menntum okkar. Fá íslensk leikrit hafa hlotið eins góðar viðtökur leikhúsgesta og Gullna hliðið, og þó að hin tvö leikritin, sem hann samdi seinna, yrðu ekki jafn vin- sæl og Gullna hliðið, eru þau bæði djúphugsuð skáldverk og Landið gleymda meðal bestu íslensku leik- rita sem samin hafa verið. í upphafi greinar sinnar lætur Jóhann Hjálmarsson að því liggja, að hann muni síðar fjalla ítarlega um Ritsafn Davíðs. Er það vel og vonandi að sú umsögn verði sanngjörn og samboðin þessu ástsæla þjóðskáldi okkar. Það er trúa mín, að svo lengi sem „þjóðin metur dýran óð“ og man og virðir verk fremstu skálda sinna, muni nafn Davíðs Stefánssonar bera hátt í þeim hópi og framlag hans til íslenskra bókmennta jafnan verða metið að verðleikum." Birna Jónsdóttir skrifar: „Kæri Velvakandi! Mig langar til að taka undir orð Kristínar H. Sætran í Morgunblað- inu í dag (11. janúar). Grein hennar „Barnafólk/friðarfólk og aðrir áhorfendur sjónvarps“ fjallar um sýningu sjónvarpsins á kvikmynd um Dóná sem sýnd var sunnudag- inn 8. janúar á eftir „Húsinu á sléttunni", svo að búast má við að börn hafi setið við sjónvarpið þegar sýning myndarinnar hófst. í áður- Nói Bergmann skrifar frá Tacoma i Bandaríkjunum: „Skrítnir eru draumar manns og undarlegir. Hvað það er, sem stjórnar þessari makalausu undir- meðvitund sem vaknar er við sof- um, fæst víst seint ráðning á, þó mikið hafi verið reynt að leysa þá gátu. Einn morgun, er ég vaknaði eftir að hafa dreýmt heilmikið, fór ég eins og oft áður að velta fyrir mér þessum ólíkindum. Þá datt mér í hug hvort öll tilveran eða það sem við köllum tilveru væri ekki bara eitt draumarugl, sem við vöknum af er við deyjum. Margt hefur maður heyrt fráleitara sem spámenn pg aðrir spekingar hafa sett fram. Ég gæti best trúað að þetta væri ekki ný hugmynd um drauma, en ég man nefndri kvikmynd voru sýnd atriði um ofbeldi, hernað og fleira í þeim dúr og vil ég taka undir orð Kristín- ar „eru ofangreind atriði talin hafa mikilvægt fræðslugildi fyrir börn? Eru þau talin stuðla að öruggu sái- arlífi barna?“ Gaman væri að fá svar frá sjón- varpinu svo og öðrum foreldrum um þetta efni. Ég vil þakka Velvakanda fyrir oft mjög gott efni í pistlunum, fróðlegt og skemmtilegt. Og nú síðast kvæð- ið Duke Donnum! Bestu þakkir." þó ekki eftir að hafa heyrt þetta áður. Gaman væri að rabba meira um þessi skringilegheit í lífi mannsins, en ég læt þetta duga að sinni. Við höfum búið hér í Tacoma í 15 ár og ég get varla hugsað mér betri stað til búsetu. Hér er veðrið milt allan ársins kring og fallegt, bæði til sjós og lands. Við vorum í fjögur ár í Vancouver BC í Kanada, þar er einnig gott að vera. f átta ár bjugg- um við í Los Angeles, en þar er of heitt og mikill reykur, of mikil sól og of mikið af fólki, samt var gam- an að kynnast þessu öllu. Ég var í 40 ár á okkar kæra Fróni og hefði ég síst viljað hafa misst af því. Nú búum við hér í vellystingum á eftir- launum. Sé ykkur vonandi í vor. Kveðja til lands og lýðs.“ Er tilveran eitt draumarugl? Þessir hringdu . . . Reagan og Andropov lesi Biblíuna Haraldur Öm Haraldsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég tel að hvorki Reagan né Andropov hafi nokkurt vit á þeim hlutum sem þeir eru að fást við. Þeir ættu að lesa Biblí- una í svona tvo mánuði í ein- angrunarklefa. Ég held að það yrði þeim til góðs og ef þeir taka ekki við sér eftir Biblíulesturinn á bara að hengja þá upp í gálga, svona uppá gamla móðinn. Það mætti gera það hérna á Klambratúni og einnig ætti að hengja Arne Treholt með þeim. Þetta væri hægt að gera á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Síðan ætti að setja silfurskilti fýrir ofan þá, þar sem letrað væri: „Hér hanga guðleysingj- arnir Reagan og Andropov ásamt Norðmanninum Arne Treholt," en ég held að Treholt hafi komið illindunum af stað á milli stórveldanna. Ég spái því að Mondale verði kjörinn forseti á þessu ári og þá muni sambúðin milli stórveld- anna batna. Mér finnst að útvarpið ætti ekki að flytja fréttir frá sovésku fréttastofunni TASS og ég vona að ef rás 2 fer út í fréttaflutning verði þeir með fjölbreyttari fréttir en rás 1, til dæmis mætti flytja fréttir af nýjustu tækni og vísindum og eina og eina létta og skemmtilega frétt til að lífga að- eins uppá þetta alltsaman. Ekki beint glæsi- legar kjarabætur Fáll Elíasson hringdi og hafði eftirfarandi að segja. — Mig langar til að gera að umtalsefni frétt sem birtist í Mbl. fyrir skömmu, þar sem fjallað er um kjarabætur sjó- manna á stórum skuttogurum, en þeir munu vera lægst laun- uðu togarasjómennirnir. Það sem mér sárnaði við lest- ur þessarar fréttar var að eina leiðin til kjarabóta er sögð vera fækkun manna á skipunum. Nú vil ég spyrja: A hvaða vinnu- stað eða hjá hvaða stéttum öðr- um en sjómannastéttinni væri það talin kjarabót að laun hækkuðu lítillega við það að vinnuálag ykist í nákvæmlega sama hlutfalli? Ætli það þætti t.d. stór kjarabót í sjávarút- vegsráðuneytinu, ef starfs- mönnum yrði fækkað um einn þriðja, heildarlaunagreiðslur til ráðuneytisins yrðu hinar sömu og laun á hvern einstakan starfsmann hækkuðu um einn þriðja, en vinnuálag ykist um einn þriðja um leið. Ég er hræddur um að þetta þættu ekki beint glæsilegar kjarabætur á þeim bæ, enda býður mér í grun að enginn myndi orða svona aðgerðir við kjarabætur hjá nokkurri hinna vinnandi stétta, nema þá helst hjá sjómannastéttinni. Ég er sjálfur sjómaður, stýrimaður á skuttogara af minni gerð, þannig að ég hef ekki beinna hagsmuna að gæta í þessu máli. Engu að síður svíður sú lítils- virðing sem mér finnst sjó- mönnum sýnd með því að orða þetta við kjarabætur. Fyrir heimilið Öll tæki á einu bretti frá Blomber Dlomperq Heimilistækin eru glæsileg. bæði frístandandi og til inn- byggingar. Littu við og skoðaðu BLOMBERG heimilistækin eða hringdu eftir bæklingi EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaöastræti 10 A — Sími 16995. HUGSAÐU þig tvisvar um áður en þú kaupir gufugleypi. Flestir gufugleypar eru eins, en Blomberg E 601 gufugleypirinn getur sparað þér mikla orku á köldum vetrarmánuðum Með einu handtaki er hægt að breyta loftblæs- trinum frá útblæstri í hringrás um kolasíu. Hafðu þetta hugfast, þegar þú kaupir gufugleypi. Og það er 2ja ára / C ábyrgð á Blomberg, taktu eftir því. Blomberq “ Stílhrein hágæða heimilistæki. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A Sími 16995

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.