Morgunblaðið - 06.04.1984, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.04.1984, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984 Bankastjórar Landsbankans á blaóamannafundinum í gær. Frá vinstri: Jónas Haralz, Helgi Bergs og Björgvin Vilmundarson. Lengst til hægri er Tryggvi Pálsson, hagfræðingur bankans. MorminblaM/ Emilía. Nýjung frá Landsbankanum: 6 mánaða skírteini með 21% ársvöxtum „Fer héðan alfarinn á sunnudag“ „ÉG FER héðan alfarinn á sunnu- dag, en hef að undanförnu verið hér á landi til þess að ganga frá mínurn málum og selja húsið," sagði Steinar Berg ísleifsson, for- stjóri Steina hf., í spjalli við blm. Mbl. í gær. Steinar flutti til Englands í maí í fyrra í kjölfar frama hljómsveitarinnar Mezzoforte á erlendri grund. Hann ætlaði sér upphaflega að dvelja erlendis í sex mánuði til reynslu. „Þegar ég fór út í fyrra taldi ég mig vera nokkuð vel inn í því, sem þar var að gerast á sviði hljómplötuútgáfu," sagði Stein- ar. „Það reyndist á misskilningi byggt. Ég tel mig núna hins veg- ar mun betur inn í því, sem þar er að gerast, en á þó enn mikið ólært. Mér finnst fyrirtæki mitt eiga framtíð fyrir sér í Lundún- um og hef undanfarna mánuði unnið að því að undirbúa plötu- samninga við erlendar hljóm- sveitir. Ég geri mér vonir um að þau mál skýrist áður en langt um líður.“ Karnabær seldi í fyrradag hlutafé sitt í Steinum hf. Átti fyrirtækið helming hlutafjár. Þrír starfsmenn Steina hf., Jón- atan Garðarsson, Pétur Krist- jánsson og Örn Baldursson, hafa hver um sig keypt 10% hluta- fjár. Steinar Berg mun því eiga 70% hlutafjár eftir breyting- una, en stjórn fyrirtækisins hér á landi verður alfarið í höndum þremenninganna. Morpinbliðló/ Gunnlaugur Kögnvalds. Steinar Berg kveður heimili sitt að Vogalandi 13 í gær. Gæzluvarð- hald framlengt GÆSLUVARÐHALD yfir 36 ára gömlum manni, sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 1. febrúar síð- astliðinn, var framlengt í gær í Saka- dómi Reykjavíkur til 30. maí næst- komandi. Maðurinn hefur viðurkennt að hafa orðið 39 ára gamalli konu að bana í íbúð hússins Njálsgata 48a þann 31. janúar síðastliðinn. LANDSBANKI íslands mun frá og með næsta mánudegi bjóða sparifjár- eigendum nýjan kost til að ávaxta fé sitt. Með svokölluðum „Landsbanka- skírteinum" verður hægt að fá 6% hærri vexti en almennar sparisjóðs- bækur bera nú, eða samtals 21% árs- vexti. Skírteinin verða að lágmarki 10 þúsund krónur og eru til sex mánaða. Breytist vextir á tímabilinu heldur 6% vaxtaálagið sér, að því er bankastjórar og fleiri starfsmenn Landshankans sögðu á fundi með fréttamönnum í gær. Kaupandi getur innleyst skírtein- ið hvenær sem er að sex mánuðum liðnum. Kaupi hann þá nýtt skír- teini til annarra sex mánaða verður ársávöxtunin 22,1% (miðað við 15% vexti eins og þeir eru í dag af al- mennum sparisjóðsbókum). Leysi kaupandi ekki skírteinið inn á gjald- daga sér bankinn um að leggja FJÁRLAGAGATIÐ svokallaða var enn til umræðu á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun án þess að til sérstakra tíðinda drægi. Fjármálaráðherra lagði fram frekari útreikninga um hugsan- leg áhrif þeirra ráðstafana, sem hann hefur lagt til, en engar nýjar tillögur, skv. upplýsingum Mbl. „Ég lagði fram útreikninga um ýmsar hugmyndir, sem fram hafa komið frá ráðherrum og embættis- mönnum. Menn eru að reikna þetta út og sjá hvað hver og ein tillaga kostar út af fyrir sig í beinum töl- um,“ sagði Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöldi. „Það er verið að kanna ýmsar leiðir, allir stefna að sama marki og það þarf að ræða þetta rækilega ef menn ætla að ná samkomulagi." Enn er mikill ágreiningur í stjórninni um tillögur fjármála- ráðherra. Er talið næsta víst, að ekki náist samkomulag á grundvelli — eða 6% hærri en almennir spari- sjóðsreikningar áfallna vexti við upphæð skírteinis- ins og ávaxtast inneignin eftir það á kjörum almennra sparisjóðsbóka. í janúar, þegar Seðlabankinn heimilaði bönkum og sparisjóðum að ákveða vexti af innlánum, sem bundin eru i sex mánuði eða lengur, var hafist handa í Landsbankanum um að kanna hvaða möguleikar væru fyrir hendi. Skírteinin urðu fyrir valinu vegna þess að þau eru einföld, handhæg og framseljanleg, að sögn bankastjóranna. Sala þeirra, framsal og innlausn bera engin gjöld, hægt verður að láta geyma skírteinin í bankanum eða útibúum hans, og sömu reglur gilda þeirra hugmynda, sem m.a. lutu að því að dregið skyldi úr niðurgreiðsl- um landbúnaðarafurða og útflutn- ingsbóta um 500 milljónir auk þess sem söluskattur yrði „útvíkkaður". Sverrir Hermannsson, iðnaðar- ráðherra, spáði því í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöldi, að „HKIÐLOAN sést stundum síðustu dagana í mars og fyrstu dagana í apríl, en fólk sem telur sig hafa heyrt í lóunni nú hefur líklegast heyrt í star- anum. Það er fugl sem á mjög auðvelt með að líkja eftir hljóðum annarra fugla og hefur mjög breytileg hljóð" sagði Ævar Pedersen, fuglafræðingur í um skattfrelsi eins og um annað sparifé. „Á þennan hátt er unnt að bjóða ávöxtun, sem er mun betri en á öðru sparifé í bönkum og sparisjóðum," sögðu bankastjórarnir á frétta- mannafundinum. „Á þennan hátt er hægt að ávaxta fé sitt á mun betri hátt en nú er hægt með t.d. verð- tryggðum reikningum, enda hafa sparifjáreigendur á undanförnum mánuðum verið að flytja fé sitt af verðtryggðu reikningunum yfir á óverðtryggða reikninga. Sex pró- sentin, sem bætast ofan á aimenna sparisjóðsvexti, eru því hrein ávöxt- un,“ sögðu þeir. Upphæð hvers „Landsbankaskír- teinis“ fer eftir óskum kaupenda en verður lægst 10 þúsund krónur. Skírteinin verða seld á afgreiðslu- stöðum bankans um allt land frá og með næsta mánudegi, 9. apríl. skammt væri í samkomulag innan stjórnarinnar um lausn á fjárhags- vanda ríkissjóðs. „Það er ekkert langt í ágæta niðurstöðu í þessu máli,“ sagði Sverrir. „Við leysum þessa smágátu — þessi stjórn hefur nú leyst annað eins. Við látum þetta ekkert vefjast fyrir okkur.“ samtali við blm. Mbl. Ævar var inntur eftir því hvort lóan, vorboðinn sem menn eru nú farnir að svipast eftir, væri hingað kominn, en margir hafa talið sig heyra angurværa biðilskvakið hennar nú í nokkurn tíma. Að sögn Ævars ætti sílamávurinn að vera kominn, en til hans sést jafnvel í janúarlok. Þá er stelkurinn farinn að sjást í fjörum og tjaldur- inn er kominn. Frá Austfjörðum berast síðan fregnir af skógarþröst- um í stórum hópum og grágæsir ættu að birtast bráðlega. „Annar vorboði er krían,“ sagði Ævar, „en menn hafa stundum talið sig sjá krí- una þar sem hettumávurinn er ann- ars vegar. Krían sést yfirleitt ekki í apríl, nema í einstaka tilfellum, og þá á síðustu dögum mánaðarins". Gæslan sem- ur við kafara SAMKOMULAG hefur náðst við kafara Landhelgisgæslunnar um launagreiðslur eftir rúmlega eins árs samningaþref á milli aðila. Mun Landhelgisgæslan á næstu dögum fara að veita kafaraþjónustu á hafi úti eins og áður var. Kannar hvort „bjórkolla“ brýtur í bága við lögin LÖGREGLAN í Reykjavík hefur yfirheyrt forráðamenn sjö veit- ingastaða, sem hafa styrktan pilsner á boðstólum. Rannsóknin er að frumkvæði embættis lög- reglustjórans í Reykjavík og bein- ist að því að skera úr um, hvort sala á styrktum pilsner — eða „bjórbollu" eins og mjöðurinn er ncfndur manna á meðal, brjóti í bága við áfengislöggjöfina. Sýni hafa verið tekin á veitingastöðun- um og send til rannsóknar og veitingamenn beðnir að skýra hvernig að blöndun sé staðið. Rannsóknin hófst á því, að eigandi Pubb-Inn á Hverfisgötu 46 var kallaður til yfirheyrslu og hann beðinn að skýra frá hvernig hann blandi ölið, sem hann hefur á boðstólum. f fram- haldi hafa forráðamenn veit- ingastaða, sem hafa styrktan pilsner um 5% að áfengis- styrkleika á boðstólum, verið kallaðir til yfirheyrslna — það eru forráðamenn Gauks á Stöng, Zorba, Gullna hanans, Óðals, Hótel Borgar og Hótel Sögu. „Málið verður sent ríkissak- sóknara til ákvörðunar að rann- sókn lokinni, væntanlega eftir helgi,“ sagði Arngrímur fsberg, fulltrúi lögreglustjóra, í samtali við Mbl. í gær. 19 ára piltur í 60 daga sí- brotagæzlu NÍTJÁN ára gamall piltur var úr- skurðaður í síbrotagæsluvarðhald til 30. maí næstkomandi í Saka- dómi Reykjavíkur í gær. Hann hefur margoft komið við sögu Rannsóknalögreglu ríkisins, fyrst fyrir sex árum. RLR hefur tekist að upplýsa tíu mál á hcndur hon- um — þar með þjófnað í Bíla- naust. Hann stal þar tékkum vegna launagreiðslna að andvirði liðlega 400 þúsund krónur og um 16 þúsund krónum í reiðufé. Ávís- anirnar komust til skila, en piltur hafði eitt fénu. Þá hefur pilturinn iðkað þann ljóta leik að fara inn í fyrirtæki að degi til að stela veskjum starfsfólks. Þannig hefur hann viðurkennt að hafa stolið níu veskjum og hafa sjö þeirra kom- ist til skila. Pilturinn stal reiðu- fé, en skildi eftir skilríki, kred- itkort og annað sem hann taldi ekki verða sér að gagni. Eigend- ur hafa ekki allir tilkynnt þjófn- aði, sjálfsagt talið að þeir hefðu týnt veskjum sínum. Full ástæða er til að vara fólk við ókunnugu fólki á rápi um skrifstofur, því þessa leikjar pörupilta hefur orðið vart í vax- andi mæli. Beiöni um söluskatts- rannsókn Rannsóknadeild ríkisskattsjóra hefur sent Rannsóknalögreglu ríksins beiðni um rannsókn á meintum söluskattssvikum fyrir- tækis í Reykjavík. Grunur lcikur á að ekki hafi verið staðið í skilum á söluskatti fyrir tæpa hálfa milljón króna. Rannsókn hefur staðið yfir að undanförnu og er RLR ætlað að rannsaka refsihlið málsins. Meint brot fyrirtækisins þyk- ir varða við söluskattslögin, lög um tekjuskatt og brot á bók- haldslögunum — það er meint skjalafals og lög um hlutafélög. Að sögn Garðars Valdimarsson- ar, skattrannsóknastjóra, er í athugun að senda fimm mál til Rannsóknalögreglu ríkisins til rannsóknar. Skattrannsókna- deildin hefur haft mál fimm fyrirtækja til athugunar og munu meint brot þessara fyrir- tækja þykja alvarlegri. Samkomulag um frið arvikuna í sjónmáli í RÁÐI er að þriggja manna starfshópur sjái um sex fræðsluefni sem Varðberg hefur lagt til að fjall- að verði um á Friðarviku í Norræna húsinu 14. til 23. apríl. í samtali við blm. Mbl. sagði Sveinn Grétar Jónsson, formaður Varðbergs, að hann væri persónulega hlynntur þessar tilhögun og teldi málið nán- ast komið í höfn. Sveinn sagði að stjórn Varð- bergs kæmi saman í hádeginu í dag til að taka formlega afstöðu til málsins. Að sögn séra Bernharðs Guð- mundssonar, sem sæti á í friðar- hópi kirkjunnar, eru auk fulltrúa sem stjórn Varðbergs mun til- nefna, í fyrrnefndum þriggja manna starfshópi Högni Óskarsson, tilnefndur af frið- arhreyfingu lækna, og Margrét S. Bjömsdóttir, frá friðarhreyfingu kvenna. Starfshópur þessi mun starfa næstu daga til undirbúnings þeim þætti Friðarvikunnar sem lýtur að aukinni fræðslu í dagskrá og finna má stað seinni hluta dags flesta dagana. Þetta er gert til að koma til móts við tillögur Varð- bergs sem sagt var frá í Mbl. í gær. Auk Varðbergs höfðu að sögn séra Bernharðs nokkur félög óskað eftir aðild að Friðarvik- unni, þar á meðal Samhygð, Æskulýðsfylking Alþýðubanda- lagsins, og Menningar og friðar- samtök íslenskra kvenna, sem einnig eiga aðild að Friðarhópi kvenna. Stutt í samkomulag — segir iðnaðarráðherra um fjárhagsvanda ríkissjóðs Lóukvakið kom- ið frá staranum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.