Morgunblaðið - 06.04.1984, Page 14

Morgunblaðið - 06.04.1984, Page 14
14 r~ MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984 Umboðsmaður á fslandi: BYGGESTEN Viljum stofna til samvinnu við duglegan umboðsmann/ innflytjanda, sem vill taka að sér sölu og dreifingu á Lefra raðeiningum á íslandi. Hér er um að ræða mjög söluhæfa vöru, sem hefur ótrúlega notkunar- möguleika. Því leggjum við áherslu á stöðuga kynningu og auglýsinga- starfsemi. Þess er vænst að umboð okkar á fslandi ráði yfir fjármagni sem svarar til 250.000 dkr. Tækifæri gefst til ábatasamrar samvinnu á sviði norrænnar framleiðni, sölu, auglýsinga o.fl. Skipu- lag þessara þátta verður á hendi umboðsins í Danmörku. Lefra-raðeiningar eru framleiddar úr sérstöku polystyren-efni. Unnt er að velja um kornótta áferð eða áklæði í sex mismunandi litum. Lefra er hita- og hljóðeinangrandi, fislétt og níðsterkt. Fljótlegt að setja einingarnar saman, eða skilja þær að, og krefst að engrar verkkunnáttu eða verkfæra. Þær má nota úti sem inni. Einingarnar má t.d. nota í sýningarbása, palla, afgreiðsluborð, húsgögn og bókahillur. Þær má nota í eldhús og svefn- herbergi, leikherbergi og geymslur. Með þeim má leggja stéttir, reisa skiiveggi, skjólveggi o.fl. Skriflegar umsóknir, ásamt nauðsynlegum upplýsingum á dönsku sendist til: LEFR A-BY GGESTEN Lavsenvænget 11, DK-5200, Odense V. Sími: 45 9 11 80 51. Telex: 5 98 45 Ebmo. Veitum einnig nánari upplýsingar. J Segja Reagan ætla að safna eiturefnavopnum Moskvu, 5. aprfl. AP. SOVÉSKA fréttastofan Pravda gat þess í dag, að Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, hefði fullan hug á því að koma í veg fyrir að gerðar yrðu reglugerðir um bann við framleiðslu efnavopna, þrátt fyrir yfirlýsingar hans um annað. Þessi viðbrögð Prövdu koma í kjölfarið á yfirlýsingum Reagans um að hann muni nú boða nýtt samkomulag um bann við eitur- efnavopnum í viðræðunum í Genf, en Pravda segir yfirlýsingarnar rykþyrlun til að hylja hinn eina sannleika í málinu, þ.e.a.s. að Reagan ætli að gera öllum aðilum ókleift að samþykkja tillögur hans með því að heimta að óframkvæm- anlegar kröfur um eftirlit og þess háttar, verði samþykktar. „Þetta er yfirborðslegt áróðursbragð hjá Reagan og glögglega mátti lesa út úr yfirlýsingum hans, að hann ætlaði sér í raun allt annað en hann sagði. Sannleikurinn er sá, að Reagan vill fá grænt ljós til þess að Bandaríkin geti komið sér upp eigin eiturvopnabirgðum og vísað allri andstöðu við það til þessa, bent á að enginn hafi viljað samþykkja kröfur þeirra um bannið og því megi þeir ekki sjálf- ir vera eftirbátar í efnavopnamál- um,“ sagði Pravda og skaut því að í lokin að það væri alkunn stað- reynd að Bandaríkin ættu mesta efnavopnasafn veraldar. Nýtt krabbameins- lyf vekur góðar vonir Dayton. Beath, Fferida, S. ipríl. AP. Randarískir vísindamenn greindu í gær frá nýju lyfi gegn krabbameini en það hefur svipuð áhrif og veiru- sýking og örvar þannig framleiðslu interferons, sem er helsta vopn lík- amans gegn krabbameini og öðrum hættulegum sjúkdómum. Rannsóknir benda til að þetta nýja lyf sé miklu áhrifaríkara en tilbúið interferon, sem ekki hefur komið að miklu gagni hingað til. Það tilheyrir nýjum lyfjaflokki, sem kenndur er við líffræðilega svörun, og beinist að því að efla náttúrulegar varnir líkamans við krabbameini, í þessu tilfelli fram- leiðslu interferons. Þau lyf, sem til þessa hafa verið notuð, eru í raun ekkert annað en eiturefni, sem ætlað er að drepa krabbameins- frumurnar. Við tilraunir á æxlum úr 50 krabbameinssjúklingum reyndist lyfið, sem kallast „ampligen", hafa umtalsverð áhrif á helming þeirra. Minnkuðu þau um allt að helming en ekki kom fram hvort með lyfinu er unnt að eyða æxlun- um alveg. f Bandaríkjunum eru nú að hefjast tilraunir með lyfið á lif- andi mönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.