Morgunblaðið - 06.04.1984, Side 24

Morgunblaðið - 06.04.1984, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984 * r Innganga hestamanna í ISI: „Br^ytir ímynd hestamennsk- unnar í augum almennings“ — sagði Ragnar Tómasson, fulltrúi hestamanna á formannafundi ÍSÍ KINS OG áöur hefur komið fram náðu hestamenn merkum áfanga um síðustu helgi þegar samþykkt var á fundi formanna aðildarsambanda ÍSÍ umsókn þeirra um inngöngu í raðir íþróttamanna. Var umsóknin samþykkt með öllum greiddum at- kvæðum en nokkrir sátu hjá. í um- ræðum um umsóknina kom fram að sumir töldu íþróttadeildirnar ekki nógu sjálfstæðar gagnvart hesta- mannafélögunum en það eru ein- göngu íþróttadeildirnar sem fá inn- göngu en ekki hestamannafélögin sem slík. Ekki urðu umræður miklar þar sem fram kom rökstudd dag- skrártillaga þar sem lagt var til að umræðu yrði hætt og gengið til atkvæðagreiðslu. llmsókn sú sem nú var samþykkt er komin frá íþrótta- deild Fáks og eru liðin um tíu ár frá því að hestamannafélagið Fákur hankaði fyrst upp á hjá „íþrótta- mönnum“. íþróttadeildir hafa verið stofn- aðar víða um land á undanförnum árum og hefur það verið gert í þeim tilgangi að undirbúa hugs- anlega inngöngu hestamanna í samtök íþróttamanna. Væntan- legt framhald á þessum málum verður að hver íþróttadeild sækir um inngöngu í viðkomandi íþróttabandalag eða ungmennafé- lag sem starfrækt er á hverjum stað. Fyrir liggur umsókn um inn- göngu íþróttadeildar Fáks í íþróttabandalag Reykjavíkur og er talið að afgreiðsla á henni sé aðeins formsatriði þar sem íþróttabandalagið hefur ávallt stutt þá Fáksmenn í þessari bar- áttu. Fyrir hönd hestamanna sat þennan fund Ragnar Tómasson og QT12 Straumlinulagaö, létt og meðfaerantégf Sterió feröatæki. Fæst i 4 litum: Rauöu, brmiu, hvitu og bláu. 2x3,4W AC/DC. FM sterió, LW/MW/SW. Þyngd aöeins 2 kg. m GF5454 2x4,8W. AC/DC. FM sterió, SW/MW/LW. Sjálfvirkur lagaleitari. L ■ mMt Mm GF7500 2x6W. (12 sm. „WOOFER") AC/DC. FM sterió, SW/MW/LW. Sjálfvirkur lagaleitari „METALL' GF4747 2x3, 4W. AC/DC FM sterió, SW/MW/LW Sjálfvirkur lagaleitari „METALL" GF7300, 2x5W. (12 sm ,VOOFER“) AC/DC FM stereó, SW/MW/LW. SJálfvirkur lagaleitari. Verft kr. 7MO,- HLJÐMBÆR HVERFISGÖTU 103 SÍMAR 25999 & 17244 HELSTU UMBOOSMENN: Portiö. Akranesi Kaupf Borgfiröinga Sería. Isafiröi Alfhóll. Siglufiröi Skrifatofuvai, Akureyri Kaupf Skagf Sauöárkróki Radíóver Húaavík Ennco. Neakaupataö Eyjabaar. Vestm eyjum M.M.. Selfossi Fataval. Keflavík Kaupf Héraöab Egilsatööum QT-12HR SHARR góðir ferðafélagar sem taka Ras 2 Eftir tíu ára stapp hafa hestamenn hlotið inngöngu í ISI. Meðfylgjandi mynd er tekin af landsliði íslands sem keppti á EM í Noregi. var hann spurður hverju þetta breytti fyrir hestanienn. „Þetta breytir ímynd hesta- mennskunnar í augum almenn- ings og verður þá frekar litið á þá sem íþróttamenn, í öðru lagi skip- ar þetta hestaíþróttinni á bekk með öðrum íþróttagreinum hvað varðar fréttaflutning og umfjöllun fjöimiðla. í þriðja lagi skapar það unglinga- og almennu félagsstarfi sama rétt og aðrar íþróttagreinar njóta til fjárstuðnings, þannig að nú verður hestamönnum gert kleift að byggja yfir sína starf- semi á svipaðan hátt og önnur íþróttafélög. Þó er rétt að taka það skýrt fram að aðalhvatinn að um- sókn hestamanna í raðir íþrótta- manna hefur ávallt verið eðlilegur metnaður þeirra fyrir hönd sinnar íþróttagreinar en ekki spursmálið um það hversu mikla peninga það færði hestamennskunni í aðra hönd. Einnig held ég að þessi breyting á högum hestamanna breyti þeirri rótgrónu ímynd sem alltof margir hafa um hesta og hestamennsku en það er að hesturinn sé eingöngu nothæfur fyrir skrýtið fólk og í smalamennsku. Það má segja að það sé ósköp eðlilegt að íþrótta- menn séu lengi að átta sig á þeirri ímynd sem Ómar Ragnarsson hef- ur gefið þjóðinni í laginu Hott, hott á hesti og þeirri háþróuðu tækni sem nútíma hestaíþróttir krefjast. Fyrir nokkru síðan átti ég tal við hina frægu kempu Geira í Gufunesi og spurði ég hann að því hvort hann teldi hesta- mennsku minni íþrótt en aðrar íþróttir, en eins og flestum er kunnugt var Geiri kunnur glímu- og frjálsíþróttakappi hér á árum áður, og svarið var stutt og lag- gott: „Hestamennskan er mesta íþróttin, það gerir þetta sam- band.““ Þjónusta byggó á þekkingu Skipadeild Sambandsins Jlutti í Jyrra um 450 þúsund lestir af alls kyns vörum milli 106 hajna innan lands og utan — allt Jrá Grænlandi til Nígeríu. Sambandsskipin sigla reglulega tilJjölda hájna í Evrópu og Ameriku — en þjónusta okkar nær um heim allan með samvinnu við sérhæjða Jlutningsaðila á sjó og landi. Þarjtu að koma vörumJráAkureyri tilAbuDhabi eða Jrá Barbados til Borgarness? Við sjáum um það. Þjónusta okkar er byggð á þekkingu. SK/PADE/LD SAMBANDS/NS SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.