Morgunblaðið - 06.04.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984
27
Þrjár list-
sýningar
á Kjarvals-
stöðum
Á Kjarvalsíitöðuin vorrta á morg-
un opnaðar þrjár listsýningar. f
vestursal hússin.s sýnir Baltasar og
í vesturforsal sýnir Ragnhildur
Stefánsdóttir skúlptúr. Borealis,
norræna listsýningin, verður síðan
sýnd í austursal og í austurforsöl-
um hússins.
Sýningin Borealis, norrænar
myndir 1983, er sett upp á vegum
Norrænu menningarmiðstöðvar-
innar í Sveaborg, í samvinnu við
stjórn Kjarvalsstaða. Sextán
norrænir listamenn eiga þar
verk, þrír frá hverju landi. Frá
íslandi eru verk þeirra Ásgerðar
Búadóttur, Gunnars Arnar og
Magnúsar Tómassonar á sýning-
unni, en hún samanstendur af
málverkum, teikningum, vefnaði,
skúlptúr og myndverkum af
ýmsu tagi.
Við opnun sýningarinnar kl.
14.00 á morgun flytur Sigrún
Guðjónsdóttir, fulltrúi Félags ís-
ienskra myndlistarmanna í
stjórn Sveaborg, ávarp. Sýningin
verður opin daglega frá kl.
14.00-22.00 til 23. apríl.
Kirkjur á
landsbyggðinni
Messur
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Söngæfing þriggja kirkjukóra
prestakallsins verður í Ási á morg-
un, laugardag, kl. 14. Á sunnudag
verður sunnudagaskóli í Hábæjar-
kirkju kl. 10.30 og guðsþjónusta kl.
14. Biblíulestur á prestssetrinu nk.
þriðjudagskvöld kl. 21. Samtals-
fundur um mannleg samskipti verð-
ur á prestssetrinu nk. miðviku-
dagskvöld kl. 20.30. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir sóknarprestur.
„Shogun“
í Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ byrjar í dag sýningar
á kvikmyndinni „Shogun“ sem
byggð er á samnefndri metsölubók
eftir James (’lavell.
Með aðalhlutverk fara leikar-
arnir Richard Chamberlain og
Toshiro Mifune, einn þekktasti
leikari Japans. Leikstjóri Jerry
London.
Vaknar áhugi þinn
á Rarísarfcrð
við að lesa þetta?
Þú virðir fyrir þér útsýnið úr Eiffelturninum,
gengur undir Sigurbogann niður eftir Champs
Elysées-breiðstrætinu, siglir á Signu í kvöldsólinni.
Þú neytir kvöldverðar á frábærum veitingastað þar
sem frönsk matargerðarlist rís hæst, horfir á
glæstar kabarettsýningar í Lido eða Rauðu
myllunni, slappar af yfir glasi af góðum veigum og
hlýðir á jasstónlist á rökkvaðri knæpu.
Þú umvefur þig tískunni úr glæstum sölum
tískukónganna, úr stórverslunum Óperuhverfisins,
úr forvitnilegum smáverslunum hægri bakkans.
Þú drekkur í þig listina, meistaraverk liðinna alda
í Louvre safninu, hringiðu nútímans í
Pompidou-menningarmiðstöðinni, stórkostlegar
óperusýningar í stærstu leikhúsbyggingu heims,
lifandi listsköpun á hverju strái.
Þú röltir um þröngar göturnar í Latínuhverfinu,
innan um fornbóka- og antíkverslanirnar, sest um
stund á gangstéttarkaffihús og virðir fyrir þér
fjölskrúðugt mannlífið.
Þetta er Parísarlífið.
Og draumurinn er ekki fjarlægur. Með þægilegum
og ódýrum Parísarferðum Arnarflugs er
Parísarlífið nú innan seilingar. Láttu drauminn
rætast. Hafðu samband við næstu ferðaskrifstofu
eða söluskrifstofur Arnarflugs.
Ferðatilhögun: Flogið með Arnarflugi til Amsterdam og
þaðan áfram með Air France til Parísar. og sömu leið heim.
Möguleiki á viðdvöl í Amsterdam. Flug og hótel með
morgunverði innifalið í verðinu.
Verð kr. 15.168
miðað við gistingu í tveggja manna herbergi í viku.
Lágmúla 7, sími 84477
HAGKAUP Reykjavík