Morgunblaðið - 06.04.1984, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1984
Teitur óskar
TEITUR Þóröarson, miöherji
franska félagsins Cannes, hefur
lent í deilum viö þjálfara þess og
hefur Teitur nú óskaö eftir aö
vera seldur frá félaginu.
Teitur sagöi í samtali vö Morg-
unblaðið í gær aö hann ætti eftir
eitt ár af samningi sínum viö Cann-
es og því væri óvíst hvort hann yröi
þar áfram eöa færi annað. Hann
heföi átt í deilum viö þjálfara liös-
ins, og væri því óánægöur. Teitur
hefur aöeins leikiö í nokkrum leikj-
um meö Cannes upp á síökastiö,
lék t.d. ekki meö liöinu gegn Nant-
es í bikarkeppninni sl. miövikudag,
en þeim leik tapaöi Cannes 2:4 eft-
ir að hafa haft yfir 2:0 i hálfleik.
Nokkur frönsk félög hafa spurst
Haukar unnu
fyrir um Teit, þar á meöal félög í 1.
deild. Ennfremur hafa nokkur
sænsk félög áhuga á Teiti, m.a.
Öster, en með þvi félagi var Teitur
þrisvar Sviþjóðarmeistari.
Morgunblaöiö/Kristján Einarsson
• Jón Sigurósson átti frábæran leik meö KR og var bikarsigurinn ekki hvaó síst honum að þakka. Hér er
hann á fleygiferó inn í Valsvörnina.
KR bikarmeistarar í körfuknattleik:
í úrslitaleik bikarkeppni kvenna
í Laugardalshöll 69:57 (35:28).
Kolbrún sagöist hafa ákveöiö í
haust aö spila ekki á móti Mauk-
um. „Þegar Haukar eru aö spila
gegn ÍS eru ÍS-stelpurnar eins og
ókunnugar í mínum augum. Ég
horfi bara á númerin!“
Haukaliðiö hefur tekiö miklum
framförum undir stjórn Dollu —
„meöalaldurinn í liöinu er um 10
árum yngri en í ÍS-liöinu. Flestar
gengu Hauka-stelpurnar upp úr
2. flokki í fyrra og hittifyrra. Þær
þrjár elstu veröa 20 ára á þessu
ári.“
Úrslitaleikurinn í gær var án
efa besti leikur kvennaliða hér á
landi í vetur og ekki hefur veriö
skoraö meira hjá kvenfólkinu í
vetur. Sigur Hauka var sann-
gjarn. Þeir höföu forystu mest
allan tímann. ÍS vann íslands-
meistaratitilinn á dögunum —
þannig aö bróöurlega er skipt.
Stigin skiptust þannig:
Haukar: Sóley Indriöadóttir 32,
Svanhildur Guölaugsdóttir 16,
Sólveig Pálsdóttir 12, Anna Guö-
mundsdóttir 7 og Ásta Óskars-
dóttir 2.
ÍS: Kolbrún Leifsdóttir 20, Hanna
Birgisdóttir 10, Ragnhildur Stein-
back 10, Kristín Magnúsdóttir 9,
Þórdís Anna Kristjánsdóttir 4 og
Þórunn Rafnar 4. — SH.
„ÞAÐ ER aö sjálfsögöu meira
gaman að vinna bikarinn sem
þjálfari en leikmaður," sagði
Kolbrún Jónsdóttir, þjálfari
Hauka, leikmaður ÍS og fram-
kvæmdastjóri KKÍ, í gærkvöldi,
eftir aö Haukar höföu sigraöi ÍS
• Fyrirliði Hauka hampar bik-
arnum að leikslokum í gær-
kvöldi.
eftir sölu
„Kærkominn sigur — góóur
endir á góðum vetri“
kvennabikarinn
• Garðar Jóhannsson fyrirliði
KR með bikarinn.
„ÞETTA VAR kærkominn sigur
og góöur endir á góðum vetri,"
sagði Jón Sigurðsson, þjálfari og
leikmaöur KR í körfubolta, eftir
aö líðið hafði tryggt sér sígur í
bikarkeppni KKÍ með sigri á Val,
94:79, í Laugardalshöll í gær-
kvöldi. Leikurinn var mjög jafn
mestallan tímann — liðin skipt-
ust á að hafa forystu og munurinn
varö aldrei mjög mikill fyrr en
undir lokin. Mestur varö munur-
inn 15 stig er flautaö var til leiks-
loka. Staðan í hálfleik var 46:42
fyrir KR.
„Viö höfum veriö aö búa okkur
undir þennan leik í allan vetur. Þaö
voru lokaorð mín viö strákana áö-
ur en við fórum inn á völlinn aö
undirbúningur fyrir leikinn okkar
heföi staöiö yfir síöan í ágúst — nú
væri komið aö stóru stundinni. Viö
vorum nokkuö taugaveiklaöir í fyrri
hálfleiknum og þaö er kannski
ekkert undarlegt. Margir leikmenn
KR-liðsins eru ungir og hafa ekki
mikla reynslu af úrslitaleikjum.
Valsmenn hinsvegar hafa leikiö til
úrslita í öllum hugsanlegum mót-
um undanfarin ár og hafa því mun
meiri reynslu. En viö hristum af
okkur sleniö og áttum þennan sig-
ur fyllilega skiliö aö mínum dómi,“
sagöi Jón Sigurösson.
KR-ingar áttu skiliö — rétt er
það hjá Jóni. Þeir léku skynsam-
legar en Valsmenn og hittu betur.
Valsmenn hittu óvenju illa, ekki
síst undir lokin er KR-ingar voru
komnir nokkuö fram úr þeim.
Valsmenn virtust ekki þola spenn-
inginn — undarlegt með jafn leik-
reynda leikmenn. Bæði liöin sýndu
á köflum ágætan körfuknattleik en
geta þó bæöi mun betur. Inn á milli
voru gæöi leiksins ekki mikil —
talsvert um mistök á báöa bóga,
eins og oft vill veröa í úrslitaleikj-
um þegar mikiö er í húfi.
Valur skoraöi fyrstu tvö stigin en
KR jafnaði fljótlega 2:2. Jafnt var á
öllum tölum upp í 6:6 en þá skor-
uöu KR-ingar sex stig í röð: staöan
allt í einu 12:6. En Valsmenn gáf-
ust ekki upp og er átta mín. rúmar
voru liönar af leiknum voru þeir
komnir fimm stig yfir, 19:14. Sveifl-
urnar voru nokkrar í leiknum eins
og á þessum tölum sést en eins og
áöur sagöi var munurinn aldrei
mikill fyrr en í lokin.
Valsmenn héldu forystunni þar
til þrjár mín. voru til leikhlés og KR
var svo yfir í hálfleik. Eftir þaö
komust Valsmenn aðeins einu
sinni yfir, 59:58, er tíu og hálf mín.
var óleikin. „KR-ingar eru snillingar |
í aö halda fengnum hlut,“ sagöi
einhver í Höllinni — og þaö sýndu
þeir aö rétt var. Léku af skynsemi
undir öruggri stjórn Jóns Sigurðs-
sonar og Páls Kolbeinssonar ef
Jón var utan vallar. Þeir áttu báöir
frábæran leik í gærkvöldi, Jón og
Páll. Frábært var aö sjá hvernig
þeir léku meöspilara sína uppi
hvaö eftir annaö og splundruöu
vörn Vals meö snilldarsendingum
— sérstaklega Jón. Valsmenn
skarta heldur ekki dónalegu bak-
varöapari þar sem eru Jón Stein-
grímsson og Tómas Holton. Þeir
léku báöir vel í gær. Jón hitti mjög
vel en þeir félagar náöu þó ekki aö
opna jafn vel fyrir „stóru mennina“
og bakverðir KR.
Páll Kolbeinsson fékk sína 5.
villu er rúmar fjórar min. voru eftir
af leiknum og staöan 72:61 — 11
stiga munur. Valsmenn hófu þá aö
pressa á KR-ingana strax eftir aö
hafa skoraö körfu í þeirri von aö
„stela" boltanum og minnka mun-
inn. Þaö tókst ekki, KR-ingar létu
þetta bragö Valsmanna ekki á sig
fá og stóöu uppi sem öruggir sig-
urvegarar.
Margir spáöu KR-liöinu falli í
deildinni í haust eftir slakt gengi á
síöasta keppnistímabili en þeir
spádómar þutu sem vindur um
eyru Vesturbæinganna röndóttu
og liðiö hefur veriö í mikilli framför
undir stjórn Jóns Sigurössonar í
vetur. Nú vann liöiö svo bikarinn
sanngjarnt. „Góöur endir á góöum
vetri.“ Auk þeirra Jóns og Páls
sem áöur eru nefndir lék Garöar
Jóhannsson frábærlega vel í vörn
og sókn — hitti vel í langskotum
og hirti mörg fráköst. Guöni
Guönason var einnig góöur — sér-
staklega í sókninni. Aörir voru
minna áberandi en geröu góöa
hluti. Valsmenn geta leikiö mikið
betur en í gær. Liösheildin var
nokkuð sterk — Jón, Kristján,
Torfi, Leifur og Tómas. Allt eru
þetta sterkir leikmenn, en þeir
mættu ofjörlum sínum í gær. Valur
vann tvöfalt í fyrra — en missti nú
af bæöi íslands- og bikarmeistara-
titlinum á síöustu stundu.
Stigin: KR: Garöar Jóhannsson 24, Jón Sig-
urðsson 17, Páll Kolbeinsson 18, Gcðnl
Guðnason 15, Ágúst Líndal 12, Krlstján
Rafnsson 4 og Birgir Guöbjörnsson 4. Valur:
Jón Steingrímsson 19, Torli Magnusson 15,
Tómas Holton 12, Leifur Gústavsson 11,
Kristján Ágústsson 10, Jóhannes Magnússon
10, Valdimar Guölaugsson 2. Dómarar voru
Gunnar Valgeirsson og Daviö Sveinsson og
stóöu þeir sig nokkuö vel.
—SH.