Morgunblaðið - 12.04.1984, Síða 2
c
2----
í^ei JmíA .SI HUOAŒJTMMM ,UIGA jaVÍUOHOM
-----MOKGUNBEAÐIÐ.TrMMTUDAGlTR 12. APRÍL1284
Fjárlagagatið:
Engin niðurstaða
í þingflokkunum
NNGPLOKKAK stjórnarliða fengu á
borð sín í gær hugmyndir fjármála-
ráðherra og forsætisráðherra varð-
andi fyrirhugaðar ráðstafanir í ríkis-
fjármálum. Engin niðurstaða fékkst á
fundunum og verður málið á ný til
umfjöllunar í ríkisstjórn árdegis.
Hugmyndirnar sem kynntar
voru á þingflokkafundunum eru að
grunni til þaer sömu og fjallað hef-
ur verið um opinberlega, en með
breyttum reikniforsendum. Sjálf-
stæðismenn sem blm. Mbl. ræddi
við í lok þingflokksfundar í gær
voru ekki bjartsýnir á að niður-
staða fengist í máli þessu fyrir
páska, en forsætisráðherra telur að
einhvers konar niðurstaða eigi að
nást fyrir þann tíma.
Fulltrúar ALCAN til
íslands í lok júní
Bendir til raunverulegs áhuga, segir Birgir
ísl. Gunnarsson formaður stóriðjunefndar
FULLTRÚAR kanadíska stóriðjufyr-
irtækisins ALCAN koma til íslands
síðustu daga júnímánaðar nk. til
áframhaldandi viðræðna um þátttöku
í byggingu og rekstri álverksmiðju
við Eyjafjörð. Birgir fsl. Gunnarsson,
formaður stóriðjunefndar, sagði í við-
tali við blm. Mbl. í gær, að þetta
benti til raunverulegs áhuga fyrirtæk-
isins á þessu samstarfi.
Birgir sagði, að í viðræðum við
fulltrúa ALCAN í janúarmánuði sl.
hefðu þeir lýst yfir, að ef þeir hefðu
frekari áhuga á fyrirtækinu myndu
þeir koma hingað í sumar. Tilkynn-
ing hefði síðan borist í síðustu viku
þess efnis, að forstjóri og stjórn-
armenn fyrirtækisins kæmu
hingað, ásamt fylgarliði, síðustu
daga júnfmánaðar til áframhald-
andi viðræðna og könnunar að-
stæðna.
Guðmundur Jónsson, útgerð-
armaður frá Garði, látinn
GUÐMUNDUR Jónsson, útgerðar-
maður frá Garði, lést á þriðjudag, 93
ára að aldri, eftir langa sjúkdóms-
legu.
Guðmundur fæddist þann 18.
júlí 1892 á Hellnum, en flutti átta
ára gamall að Rafnkellsstöðum og
var síðan oft kenndur við þá.
Hann varð formaður á árabát 12
ára, á vertíðarskipi 18 ára og var
mikill aflamaður. Hann stofnaði
útgerðarfyrirtæki Guðmundar
Jónssonar í Sandgerði 1923 og
stýrði því allt fram til ársins 1968.
Frá þeim tíma ráku börn hans
fyrirtækið í samvinnu við hann og
var nafni þess þá breytt í Rafn hf.
Guðmundur gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum um ævina, var
m.a. í hreppsstjórn Gerðahrepps í
30 ár. Hann var sæmdur riddara-
krossi fyrir störf sín í þágu sjáv-
arútvegs. Guðmundur var kvænt-
ur Guðrúnu Jónasdóttur og eign-
uðust þau átta börn. Guðmundur Jónsson
y. ,
-
Morgunblaöiö/G.Berg.
Einn vélsleðamannanna frá Akureyri dreginn til byggða eftir að sleði hans hafði bilað á leiðinni úr Nýjadal.
Hrakningar 14 vélsleðamanna af Sauðárkróki:
Tveggja tíma ferð
tók þá sólarhring
FJÓRTÁN vélsleðamenn frá Sauð-
árkróki komu loks um kl. 18 í gær
að Kolkuhóli á Blönduvirkjunar-
vegi eftir að hafa verið rúman sól-
arhring á leiðinni frá Hveravöllum.
Skv. heimildum Mbl. voru þeir all-
ir við ágæta heilsu er þeir komu að
Kolkuhóli, þar sem björgunarsveit-
armenn biðu þeirra á bílum.
Vélsleðamennirnir 14 lögðu
upp frá Hveravöllum um kl.
17.30 á mánudag eftir að hafa
komið þar við á leið sinni af
landsmóti vélsleðamanna í Nýja-
dal um helgina. Þá var veður hið
besta og áætluðu þeir að verða
komnir að Kolkuhóli eftir um
tvær klukkustundir.
Að sögn Magnúsar Sigfússon-
ar, formanns björgunarsveitar-
innar á Sauðárkróki, virðast
vélsleðamennirnir hafa hreppt
hið versta veður á leiðinni og
neyðst til að slá upp tjöldum yfir
nóttina. „Ég frétti af Hveravöll-
um að þar hefði verið versta veð-
ur í nótt,“ sagði Magnús, en
bætti því við að allir í hópnum
hefðu verið vanir slíkum ferðum
og vel búnir. Ekki tókst að ná
tali af neinum úr hópnum.
Formenn stjómarflokkanna á Alþingi í gær:
Staðið verður við gengisfor-
sendur f efnahagsprógramminu
Dregið verður úr ríkissjóðshalla og þenslu peningamála
KÍKISSTJÓRNIN mun standa viö
efnahagsmarkmið sín, sagði Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra efnislega í umræðu utan dag-
skrár á Alþingi í gær. Staðið verður
við það að verðbólgustig verði um
10% í lok ársins. Staðið verður við
Grein um þingsályktunartil-
lögu - höfundarnafn falsað
Morgunblaðinu hefur borizt
grein til birtingar frá manni, sem
óskar eftir að hann sé kynntur svo-
hljóðandi: „Jón A. Jónsson er
kunnur áhugamaður um íslenskt
mál. Hann er einnig þekktur frí-
merkjasafnari.“ Höfundur gerir
sjálfur tillögu um fyrirsögn og
óskar eftir að hún verði „Um mál-
rækt“.
Af þessu tilefni hafði blaðið
samband við Jón Aðalstein
Jónsson, forstöðumann Orðabók-
ar Háskólans, en hann er eins og
kunnugt er mikill áhugamaður
um frímerkjasöfnun og skrifar
um frímerki hér í blaðið. Er hon-
um var sýnd greinin, kom í ljós
að nafnið var falsað. í greininni
er rætt um þingsályktunartil-
lögu nokkurra þingmanna um ís-
lenzkan framburð og málvönd-
un, sem lögð var fyrir Alþingi
fyrir skömmu. Gerir höfundur
greinarinnar atlögu að flutn-
ingsmönnum og úthúðar tillög-
Inngangur greinarinnar, þar sem höfundur óskar birtingar á greininni.
unni, og í lok greinarinnar segir
orðrétt:
„Það væri nær að flytja tillögu
þess efnis að starfsemi Málvís-
indastofnunar yrði stórefld og
jafnframt að Málnefndinni yrði
markaður tekjustofn og henni
yrðu sett þau verkefni sem henni
hæfir, heldur en þessi skrípatil-
laga, sem segir ekkert um það
sem máli skiptir en heldur sig
við það sem ekki kemur málinu
við.“
Það er nær einsdæmi, að
Morgunblaðinu hafi borizt fals-
aðar greinar, skrifaðar undir
nafni þekktra manna. Blaðið
hefur þá látið kanna málið og
mun nú senda fyrrnefnda grein
til Rannsóknarlögreglu ríkisins,
svo að unnt sé að kalla höfund-
inn til ábyrgðar.
gengisforsendur í efnahagspró-
gramminu, að óbreyttum ytri aö-
stæðum, þ.e. gengisbreytingar innan
5% marka á árinu í plús eða mínus.
Þetta þýðir að ríkisstjórnin
mun draga úr fyrirsjáanlegum
halla ríkissjóðs og — í samráði við
bankana — úr þenslu í peningmál-
um. Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, tók í sama
streng; nauðsyn bæri til að halda
gengi tiltölulega stöðugu, ef halda
ætti verðbólgu niðri og varðveita
það kaupmáttarstig sem fólk
byggi nú við. Hann sagði og, að
útilokað væri að mæta fjárlaga-
vandanum með niðurskurði einum
saman, þó hann væri óhjákvæmi-
legur að hluta til. Ekki yrði kom-
izt hjá því að afla nýrra tekna, t.d.
með því að notendur opinberrar
þjónustu tækju aukinn þátt í
greiðslu kostnaðar; erlendar lán-
tökur væru heldur ekki útilokaðar.
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalags, kvaddi sér hljóðs
utan dagskrár, í tilefni viðtals við
forsætisráðherra á forsíðu Tímans
í gær undir fyrirsögninni „Gengis-
felling ef ekki tekst að fylla gat-
ið?“. Beindi hann þeirri fyrirspurn
til formanna stjórnarflokkanna,
hvort gripið yrði til gengislækkun-
ar, umfram gengisforsendur í
efnahagsprógrammi stjórnvalda,
ef „fjárlagagatið" yrði ekki fyllt
með eðlilegum hætti. Flokksfor-
menn svöruðu efnislega, sem hér
að ofan getur.
Einar Viðar, hrl., látinn
EINAR Viðar, hæstaréttarlögmaður,
sem lýst var eftir síðastliðinn mánu-
dag, fannst látinn skammt frá heim-
ili sínu í gær. Hann var 56 ára að
aldri. Einar Viðar fæddist 6. júlí
1927 í Reykjavík, sonur hjónanna
Gunnars Viðar og Guðrúnar Helga-
dóttur. Einar varð stúdent frá
Menntaskóla Reykjavíkur 1947 og
cand. juris. frá Háskóla fslands
1954.
Hann réðst sem fulltrúi hjá
sýslumanninum í Gullbringu- og
Kjósarsýslu og bæjarfógetanum í
Hafnarfirði 1956 og starfaði þar í
tvö ár. Þá setti hann á stofn eigin
málflutningsskrifstofu í Reykja-
vík og rak til dauðadags.
Einar Viðar
Einar Viðar var tvíkvæntur.
Hann lætur eftir sig fimm börn.