Morgunblaðið - 12.04.1984, Page 26

Morgunblaðið - 12.04.1984, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRlL 1984 PÁSKAT1LBOÐ KRON Viö bjóöum viöskiptavinum 10% afslátt af öllum viöskiptum í verslunum okkar fram aö páskum. STÓRMARKAÐURINN Skemmuvegi 4A. DOMUS Laugavegi 91. Kron, Fellagöröum, Kron, Dunhaga, Kron, Snorrabraut, Kron, Langholtsvegi, Kron, Tunguvegi, Kron Hlíðarvegi. Kron, Stakkahlíð, «UU) KAUPFELAG REYKJAVIKUR 0G NAGRENNIS Einkarádtriafi ritarans Með Silver Reed EX 55 hefur sjálfvirknin verið kórónuð á skrif- stofunni. Hraðari prentun, villulaus og áferðarfalleg verður leikur einn með • sjálfvirku línuminni • sjálfvirkri leiðrétlingu á tveimur línum í fullri lengd • sjálfvirkri endurprentun á leiðréttum línum • sjálfvirkri línufcerslu_ • sjálfvirkri undirstrikun og síritun • sjálfvirkum miðjuleitara og ■ sjálfvirkum dálkastilli Yfirburðimir em síðan undirstrikaðir með hljóðlátri prentun, mörgum tegundum leturhjóla og hönnun sem hæfir nútímalegustu skrifstofum. ___ SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 — Simi 20S60 — Pósthólt 377 Siaur siálfvirkninnar SILVER-R Mannkyn, sem kann að smíða kjarnorkuvopn þarfnast friðarfræðslu eftir Guðrúnu Agnarsdóttur Fyrir Alþingi hefur legið svohljóð- andi þingsályktunartillaga um frið- arfræðslu: Alþingi ályktar að fela mennta- málaráðherra að hefja undirbúning að frekari fræðslu um friðarmál á dagvistarstofnunum, í grunnskólum og framhaldsskólum landsins. Markmið fræðslunnar verði að glæða skilning á þýðingu og hlut- verki friðar og rækta hæfileika til þess að leysa vandamál án ofbeldis og leita friðar í samskiptum ein- staklinga, hópa og þjóða. Tillögu þessa flytja eftirfarandi alþingismenn: Guðrún Agnars- dóttir, Eiður Guðnason, Guð- mundur Bjarnason, Guðrún Helgadóttir, Gunnar G. Schram, Helgi Seljan, Jóhanna Sigurðar- dóttir, Kristín Halldórsdóttir, Kristín S. Kvaran, Páll Pétursson, Salome Þorkelsdóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Stefán Benediktsson. Fyrstu umræðu um þessa þál- till. er nú lokið og kom þar í ljós andstaða og tortryggni gegn henni "frá fjórum þingmönnum, Árna Johnsen, Halldóri Blöndal, Jóni Baldvin Hannibalssyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni og einnig mennta- málaráðherra. Auk þess hefur svipaðrar afstöðu gætt í umfjöllun Morgunblaðsins um þessi mál síð- an þessi þáltill. var lögð fram. Því er þessi grein skrifuð og aðrar sem í kjölfar hennar fylgja. Hvað ungur ncmur, gamall temur í stofnskrá UNESCO, menning- ar- og vísindastofnunar Samein- uðu þjóðanna, stendur: „Þar sem stríð eiga upptök sín í hugum mannanna, þá er það í mannshug- anum sem við þurfum að treysta varnir friðarins." Sá friður sem getur og þarf að '4( ríkja milli manna og þjóða á sér vitanlega rætur í einstaklingnum. sjálfum. Minnugar máltækisins „hvað ungur nemur, gamall tem- ur“ hafa æ fleiri þjóðir tekið upp friðarfræðslu í skólum sínum í anda þeirrar samþykktar UNESCO sem þær eiga aðild að. Þessi samþykkt var gerð 1974 og eiga íslendingar aðild að henni eins og hinar Norðurlandaþjóðirn- ar. Samþykkt þessi mælir með því að aðildarlöndin beiti sér fyrir fræðslu til eflingar skilnings þjóða á milli, samvinnu og friðar, svo og fræðslu um grundvallar- mannréttindi. Þessi fræðsla skal ná til allra stiga og gerða uppeld- is- og fræðslustofnana. Hvað er friðarfræðsla En eins og ævinlega þegar eitthvað nýtt er til umfjöllunar, veldur það óvissu, jafnvel tor- tryggni. Hvað er friðarfræðsla og hvernig á að framkvæma hana? Þessar spurningar vakna í hugum margra. Segja má að enn sé ekki til nein alþjóðlega viðurkennd skilgrein- ing á hugtakinu friðarfræðsla. Þær þjóðir, sem hafa tekið upp friðarfræðslu hafa sjálfar skil- greint hugtakið í samræmi við þær samþykktir SÞ sem þær styðja. Anatole Pikas, dósent í uppeldisfræði við Uppsalaháskóla, sem hefur stjórnað kennslu í frið- aruppeldi við þá stofnun, gefur þessa skilgreiningu: „Friðaruppeldi er að móta gerð- ir og viðhorf manna í þá veru, að þau minnki hættu á stríði. Þessi áhrif mega ekki skerða þjóðernis- lega eða pólitíska vitund manna eða mannréttindi þeirra. Mark- miðum friðaruppeldis er unnt að ná með auknum skilningi milli þjóða sem vigbúast af ótta hver við aðra. Mikilvægasta tæki frið- aruppeldis er aukning á þekkingu og hæfni til að leysa deilur með viðræðum deiluaðila á jöfnum grundvelli." Pikas skýrir skil- greiningu sína nánar: „Viðleitni til aukinna gagnkvæmra friðarvið- Guðrún Agnarsdóttir „Friðarfrædsla hvetur til þess að leita annarra leiða, sem fela í sér lausnir á deilum án ofbeldis, og hvetur jafn- framt til þroskunar þeirra hæfileika sem nauðsynlegir eru til að beita slíkum lausnum.** ræðna milli ríkja og þjóða má ekki stefna pólitfskri og þjóðernislegri vitund manna í hættu. Þetta þýðir að friðaruppeldi í einu landi má ekki hafa það að markmiði að breyta þjóðfélagsskipun annars lands.“ Samt má segja að rætur friðar- fræðslu nái dýpra en svo að þær ætli sér eingöngu að sporna gegn kjarnorkuvopnum og hernaðar- lausnum á deilum. Þær leitast ekki síður við að breyta þeim hugsunarhætti sem ráðið hefur umgengni okkar við jörðina og samskiptum manna. Réttindi, frelsi, skyldur Samkeppni og valdbeiting til að tryggja eigin afkomu hefur ein- kennt hegðun mannanna frá alda öðli. Við höfum lært að einstakl- ingurinn verður að berjast fyrir sjálfan sig, að það er nauðsynlegt að vera persónulega metnaðar- gjarn og að árásargirni á eigin vegum eða hópsins er nauðsyn til að lifa af. En í lok. 20. aldar eru þessar aldagömlu lífsaðferðir orðnar stærsta ógn okkar. Skilgreining á einstaklings- hyggju er m.a. þróun á persónu- legum réttindum og frelsi. Slík eru auðvitað afar mikilvæg markmið fyrir þroska hverrar manneskju. En leggi uppeldið of mikla áherslu á einstaklingshyggju er ólíklegt að deilur milli mannanna minnki og ólíklegt að hæfileikar til sam- starfs aukist. Það er nauðsynlegt að meta mannréttindi og frelsi í samhengi við skyldur. Sérhver einstaklingur, sem hefur réttindi og frelsi, hefur á sama hátt skyld- ur til að nota frelsi sitt til að vinna fyrir aðra menn og réttindi þeirra á eins víðtækan hátt og frelsi hans leyfir. Réttlátur friður hjá frjálsu fólki gerir kröfur um agað framferði. Frelsi gerir kröfu um sjálfsaga og umburðarlyndi. Okkur er nauðsyn að efla skilning og virðingu fyrir framandi þjóðum og menningu þeirra í stað þess að ala á fordóm- um og taka að arfi viðhorf mótuð af löngu liðnum stríðum eða deil- um. Þó að eðlilegt sé að glæða með börnum ást og virðingu fyrir átt- högum sínum og ættjörð, þá ber að forðast að efla þrönga einangr- unarsinnaða þjóðerniskennd eða þjóðarrembu. Okkur er lífsnauð- syn að víkka út og stækka hugtak- ið „við“. Heimili okkar er jörðin og sú staðreynd verður æ raunveru- legri með auknum ferðalögum og samskiptum. Við verðum því að vera samábyrg fyrir henni sem einingu. Hún er far okkar á sigl- ingu okkar um tfmann og við erum öll í sama báti. Hollusta okkar verður því að beinast að mannkyn- X'toJO UlU^ 1.11,11 inu mm****-&á m

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.