Morgunblaðið - 12.04.1984, Page 32
JlHIA 21 HUOAOUTMMr-f JIiaAJHKUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRlL 1984
Op
32
féni^S3Sust^
Hái’snyitítæki
Sigríður Oddleifs-
dóttir — Minning
í verslunum Heimilistækja er
geysigott úrval hársnyrtitækja frá
ýmsum heimsþekktum framleið-
endum, svo sem Philips og Braun.
Gæðin eru óumdeilanleg og verðið
engu síðra. T.d. kosta hárblásarar
aöeins frá 1.181.- krónu, krullu-
járn frá 1.40S.- krónum og hár-
snyrtisett með blásara, bursta-
setti, greiðu og krullujárni frá kr.
2.261.-
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
z^ffffHmWfffffr
JlfotQtitiMfifcife
Áskriftarsíminn er 83033
Fædd 29. september 1908
Dáin 4. apríl 1984
Amma mín, Sigríður Oddleifs-
dóttir, lést í Landspítalanum þann
4. apríl eftir aðeins viku legu en
erfiða baráttu við sjúkdóm þann
sem erfitt reynist að vinna á.
Amma var fædd í Langholtskoti
í Hrunamannahreppi þann 29.
september árið 1908. Foreldrar
hennar voru þau Oddleifur Jóns-
son og Helga Skúladóttir. Systk-
inahópurinn var stór, þau voru 7
talsins og amma var næst yngst.
Amma fluttist ung til Reykja-
víkur og þar kynntist hún afa,
Jóni Jónssyni, og gengu þau í
hjónaband þann 30. maí 1942. Þau
eignuðust þrjú börn, Guðna, Rút
og Bjarnheiði og eftir að barna-
börnin fóru að koma í heiminn
varð fjölskyldan hin myndarleg-
asta. Það hefði þó ekki haft neitt
að segja þótt við hefðum verið
fleiri, amma hafði alltaf nóg af
hlýju og ást handa öllum.
Það er ótrúlegt að hún amma sé
farin frá okkur. Hún sem var sí-
starfandi allt fram á síðasta dag.
Þegar ég rifja upp allar þær góðu
stundir sem ég átti í Fellsmúlan-
um hjá ömmu og afa koma fyrst í
huga minn öll þau fallegu barna-
vers sem hún kenndi mér. Þau
voru ófá skiptin er ég fékk að sofa
hjá þeim og eyddi amma þá öllum
sínum tíma í að spila, lesa og
spjalla við mig. Fyrir svefninn
lásum við svo saman bænirnar og
hún hélt í hönd mína á meðan ég
var að sofna því það var svo gott
að leiða ömmu inn í draumaland-
ið.
Amma var alltaf boðin og búin
að gera allt fyrir alla og ætíð gat
ég leitað til hennar með það sem
var öðruvísi en það átti að vera.
Vandamálin voru nú ekki alltaf
svo ýkja merkileg hjá unglingi
sem var alveg uppgefinn á að vera
bæði barn og fullorðinn, en amma
var alltaf til í að setjast niður,
ræða málin og komast að niður-
stöðu sem við vorum báðar ánægð-
ar með. Amma var aldrei gamal-
dags í skoðunum. Hún vissi að
tímarnir höfðu breyst, nú væru
önnur viðhorf til ýmissa mála. Að
ræða við hana um skólann,
skemmtanir unga fólksins og
fleira var eins og að spjalla við
vinkonu á sama aldri.
33 FISHER Finlux
SÝNING
Viö höldum glæsilega sýningu í verzlun okkar um næstu helgi og sýnum allt þaö nýjasta frá
FISHER, FINLUX, 0R 0G ATARI
Viö sýnum líka Thriller
Michael Jacksons, á risaskjá og meö stórfenglegu hljóöi
Opiö laugardag kl. 10—21 og sunnudag kl. 13—21
Komdu og skemmtu þér meö okkur
FISHER, FINLUX, OR OG ATARI
A
ATARI
LAGMULA 7
REYKJAVÍK. SÍMI 85333
SJONVARPSBUÐIN
Amma hafði mikinn áhuga á
öllu því sem hennar fjölskylda var
að gera, hvort sem var í starfi eða
leik. Áhugamál barnabarnanna
lét hún heldur ekki fram hjá sér
fara og fylgdist vel með hvað var
efst á baugi hverju sinni.
Amma var góðum hæfileikum
gædd, því hún sá jafnan björtu
hliðarnar á öllu og þannig var það
fram á hennar síðasta dag. Minn-
ing hennar mun lifa í hjörtum
okkar allra er hana þekktum.
Góður Guð styrki elsku afa á
þessari erfiðu stundu.
Ég þakka ömmu fyrir allt sem
hún gaf mér og kenndi þau ár sem
ég fékk að njóta samveru hennar
og kveð hana með litlum sálmi
sem hún kenndi mér.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson)
Hanna
Alltaf stöndum við jafn óviðbú-
in dauðanum, þó vitum við með
vissu að hann er óumflýjanlegur.
En á einni viku vinnst manni ekki
tími til að sætta sig við hann. Þeg-
ar heilsan bilar og mannleg mátt-
arvöld verða ráðþrota, þá er ekk-
ert sælla en fá að hverfa yfir móð-
una miklu, á fund vinanna sem á
undan eru farnir, og við vitum
með vissu að vel hefur verið tekið
á móti henni Siggu frænku. Okkur
hjónin langar að minnast hennar
nokkrum orðum, og þakka henni
fyrir allt það sem hún var okkur,
og sérstaklega fyrir veturinn
1958—59, er við vorum meira og
minna heimagangar á heimili
þeirra hjóna. Alltaf stóðu dyrnar
opnar fyrir fólkinu frá Haukholt-
um, og gott var að eiga hana vísa
þegar erfiðleikar og veikindi steðj-
uðu að.
Sigga var mjög skemmtileg og
jákvæð og gat ávallt séð bjartari
hliðarnar á öllu, manni leið svo vel
í návist hennar, og aldrei fannst
okkur við vera búin að ljúka erind-
unum í Reykjavík fyrr en við vor-
um búin að koma til Siggu. Fórn-
fýsi hennar fyrir aðra var svo
mikil að við höldum vera eins-
dæmi. Svo við vitnum í orð Heiðu
dóttur hennar er hún ritaði um
frænku sína síðastliðinn vetur:
„Hún var ekki nein venjuleg
frænka, heldur mikið meira.“
Sigga var glæsileg kona og alltaf
bjart í kringum hana, og eins var
er við komum að sjúkrabeði henn-
ar, hún var falleg þó hún þjáðist
talsvert, og örfáum stundum fyrir
viðskilnaðinn sagði hún við okkur:
„Þetta lagast allt með vorinu."
Þessi orð voru einmitt dæmi um
hvernig hún var, hún þráði vorið
og þó sérstaklega sólina og reyndi
að njóta hennar þegar hún gat.
Elsku Jón, við biðjum góðan guð
að styrkja þig í sorg þinni. Guðni,
Rútur, Heiða og fjölskyldur ykkar,
við sendum ykkur öllum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V. Briem)
Ella og Oddleifur
Þar sem nú er komið að kveðju-
stund, langar mig til að minnast
vinkonu minnar, Sigríðar Odd-
leifsdóttur, fyrir ótal góðar stund-
ir sem ég hef átt á heimili þeirra
hjóna. Kynni okkar hófust er við
Heiða dóttir hennar vorum sam-
tíða í skóla, mátti segja að ég væri
þar daglegur gestur.
Þótt ferðir þangað hafi strjálast
hin síðari ár, var viðmótið og hlýj-
an ætíð sú saman, þegar komið
var á heimili þeirra hjóna.
Sigríður var sá klettur sem ekki
bifaðist, ekki var heldur amast að
unga fólkinu, aldrei varð þess vart
að skap Sigríðar væri öðruvísi en
gott, hún flíkaði ekki tilfinningum
sínum, og var ekki kvartsár.