Morgunblaðið - 12.04.1984, Side 44

Morgunblaðið - 12.04.1984, Side 44
Þ8ei JÍH'-U .Sí HTJOAQUTMMn .QICÍAJSMUOHOM i”. 44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1984 Með morgnnkaffinu Heyrdu kunningi. Svona sögur eru ekki boðlegar við varðeld skaltu vita! Þetta er nýjasta gerð armbands- úra. Það á að trekkja það upp! „Sól ég sá“ bráðskemmti- leg og stórmerkileg bók H.S. skrifar: „Sjálfsævisaga Steindórs Stein- dórssonar frá Hlöðum, „Sól ég sá“, er stórmerkileg, bráðskemmtileg og ágæt bók. Steindór var kennari við Menntaskólann á Akureyri í meira en 40 ár, þar af skólameist- ari 6 síðustu árin. Segja má að kennsla hafi verið atvinna hans og ævistarf, en þegar litið er á allar rannsóknarferðir Steindórs um byggðir og óbyggðir landsins, vís- indastörf og öll þau ógrynni, sem hann hefur skrifað og þýtt, virðist manni það vera heilt ævistarf. Hversdagsmönnum er oft næsta óskiljanlegt hvað sumir menn koma miklu í verk. Steindór Steindórsson er einn í hópi þess- ara fjölmenntuðu gáfumenna, sem skilað hafa ótrúlega miklu dags- verki. Sól ég sá er tvö stór bindi. Á örfáum stöðum er Steindór kannski óþarflega stórorður og það lapið upp í blöðum, en þess ekki getið, að langsamlega oftast talar hann af réttsýni, skilningi og góðvild um það fólk sem hann minnist á. Það er gagnslaust að skrifa langt mál um bók, það nennir enginn að lesa það, þó skal á þetta minnst. í fyrra bindinu segir Steindór m.a. frá bernsku sinni og uppvaxt- arárum. Fermingarárið sitt varð han vinnumaður á 60 kr. árskaupi. Frásögn Steindórs um líf og störf á venjulegu sveitaheimili, á fyrri hluta þessarar aldar, er svo sönn, góð og nærfærirt að ég efast um að önnur slík sé til á bók. í seinni bindinu eru tvær frásagnir, sem þeir gleyma trauðlega, sem lesið hafa, önnur er þegar Steindór fer um kvöld og gengur um allar vist- arverur menntaskólans og lítur yfir hvort allt sé ekki í röð og reglu, lokar útihurð og snýr lykl- inum í síðasta sinn, hefur lokið sínu starfi þar. Hin frásögnin er um vissan jólasið þeirra hjóna, sem hann hefur nú rækt einn í 15 ár. Ég endurtek, „Sól ég sá“ er bráðskemmtileg, merkileg og ágæt bók, að henni er mikill fengur, og svo verður áreiðanlega talið eftir nokkur hundruð ár.“ Kartöflurækt á íslandi: Hófst fyrir 1836 Fullyrðingar þingmannsins afsannaðar Sigríður skrifar frá Akureyri: „Kæri Velvakandi. Ég hef undrast allt það umtal, um hvenær ræktun kartaflna varð almenn hér á landi, sem að unda::- förnu hefur birst í dálkum þínur.i. Tekur af öll tvímæli um það efni, ef flett er upp í bókinni „Þeir segja margt í sendibréfum" sem Finnur Sigmundsson tók saman og Þjóðasaga gaf út 1970. Þar má lesa á bls. 82, í bréfi frá sr. G^nn- ari Gunnarssyni í Laufási til Finns Magnússonar prófessors, en bréfið er skrifað á haustdögum 1838. „Nýlega er ég búinn að láta taka upp úr jarðeplagörðum mín- um og fékk ég frekar ellefu tunn- ur.“ í bréfi fyrr í bókinni, frá sama manni til Finns prófessors, skrif- að 1836, kemur fram að uppskera hefur brugðist, en segir áður hafi hann fengið 16 tunnur upp úr sama garði. Tel ég að fullyrðing þingmanns um að ræktun kartaflna hafi ekki byrjað almennt hér á landi fyrr en 1930, sé hér með afsönnuð." Á Ibisa: íbúðir í Rialto á Figueretas og Arlanza á Playa d'en Bossa Sérstakar Stjörnuferðir verða í öllum Ibiza brottförum í sumar Kynnið ykkur Úrvalslausnir á greiðsluvandanum; staðgreiðsluafslátt og Úrvalsferðalán og munið eftir barnafslættinum okkar: 0 - 1 árs greiða 10% 2 - /1 ára greiða 50%, 12 - 16 ára greiða 70% Vertu samferða í sumar, síminn er 26900. masKRKaonNURm BROTTFARIR í sumar verða: Mallorca 18. aprfl 2. maí 23. maí 13.júní 4. júlf 2S.JÚIÍ 8. ágúst 29. ágúst 19. sept. 3. okt. PÁSKAR, Uppselt 3 vikur Uppselt 3vikur Uppselt 3 vikur örfásætilaus 3 vikur nokkur sæti laus 2 vikur 3 vikur Örfásætilaus 3 vikur 2 vikur 3 vikur Ibiza 28. maí 20.júní 11. júlí 1. ágúst 22. ágúst 12. sept. 3. okt. 23 dagar Uppselt 3 vikur 3 vikur 3 vikur Uppselt 3 vikur 3 vikur nokkur sæti 3 vikur Við bjóðum aðeins Ún/alsgistiaðstöðu: Á Mallorca: Ibúðir á Royal Magaluf og Ciudad Blanca í Alcudia, sem sló í gegn á síðasta sumri. NuáÉMáéomA Það er greinilegt að strandskórnir ætla að verða vinsælir í sumar, því við hjá Úrvali erum þegar byrjuð að bóka í allar ferðir til Mallorca og Ibiza og pantanir aukast með hverjum deginum sem líður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.