Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984
51
Sammála
Rommel komst á þá skoðun eins
og Hitler að Normandí yrði aðal-
skotmark Bandamanna og í febrú-
ar 1944 gerði hann flókna áætlun
um að torvelda landgöngu með því
að koma fyrir neðansjávarhindr-
unum. Vonað var að þessar og aðr-
ir fjörutálmar, m.a. gaddagaurar,
drekatennur, bognir járnbrauta-
teinar og staurar með sprengjur á
oddinum, mundu brjóta land-
gönguferjurnar áður en þær
kæmu upp í fjöru og að skrið-
drekatálmar á „banvænu belti" í
fjörusandinum mundu laska alla
skriðdreka, sem kæmust í land.
Til að torvelda fallhlífaárásir
var komið fyrir sprengjugildrum á
öllum opnum svæðum í innan við
10 km fjarlægð frá ströndinni.
Auk þess átti að veita vatni yfir
láglendi og koma fyrir jarð-
sprengjum á svæðum, sem færu
ekki undir vatn og mynduðu rauf-
ar.
Ætlun Rommels var að þungum
strandfallbyssum, sem voru taldar
óhultar fyrir loftárásum, yrði
beitt gegn flota Bandamanna þeg-
ar hann sigldi að landi. Þegar
skipin kæmu á fleygiferð upp að
ströndinni yrði árásarsveitunum
mætt með skothríð beint frá víg-
girtum vélbyssuhreiðrum og i
skriðdrekavarnarstöðvum og stór-
skotaliði lengra inni í landi.
Rommel taldi að þau skip, sem
stæðust þessa geysikröftugu
skothríð og kæmust fram hjá öll-
um neðansjávarhindrunum,
mundu brotna í fjörunum, þar
sem jarðsprengjur voru á hverju
strái.
Allir hermenn og skriðdrekar,
sem kæmust á land, yrðu að brjót-
ast fram hjá jarðsprengjubeltum,
gaddavírstálmunum og skrið-
drekaskurðum og vera viðbúnir
eldvörpuárásum. Rétt fyrir aftan
þetta belti ætlaði Rommel að
koma fyrir öllum brynfylkjum,
svo að þau gætu skotið af öllu afli
og án afláts á ströndina. Hann
taldi nauðsynlegt að sem öflug- ,
ustu liði yrði beitt til að hrinda
innrásinni strax sama dag og
landganga færi fram. „Fyrsti sól-
arhringurinn ræður úrslitum,"
sagði hann.
Það olli Rommel einnig áhyggj-
um að 60 herfylki Þjóðverja á
vesturvígstöðvunum voru mjög
misjöfn að gæðum. SS- og bryn-
fylkin voru mjög vel búin her-
gögnum, þjálfun þeirra ágæt og
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Eisenhower rabbar við fallhlífahermenn.
FLUGLEIDIR
AUGLÝSA
FLUG OG BÍLL
Ef þú kýst að ferðast á eigin vegum, skaltu, láta
Flugleiðir sjá um að bílaleigubíll bíði á áfangastað
þínum erlendis. Fluglelðlr gefa þér kost á að
ferðast í bílaleigubíl frá 8 borgum í Evrópu!
Flug og bíll er ódýr ferðakostur i sumarleyfinu. Hér
að neðan eru dæmi um einstaklingsverð, miðað við að
4 séu saman um bíl í viku. Innlfalið er: Flug, bíll,
km-gjald, söluskattur og kaskótrygglng:
Clasgow - frá kr. 9.S72,-
Luxemborg - fra kr. 10.154.-
kaupmannahöfn - frá kr. 11.625,-
Afsláttur fyrlr böm er á blllnu 4.100 tll 6.000 krónur.
Þér verða allir vegir færir þegar þú hefur tryggt þér
Flug og bíl hjá Flugleiðum!
Flugog bíll
frákr. 9.372r
Englnn aukakostnadur. nema bensinlð og flugvallarskatturtnn.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur.