Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 23
”71
MORGUNBLAÐÍÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNl 1984
Garður:
Gamalt trésmíöaverk-
stæði brann til kaldra kola
Gardi, 31. maí.
TVEIR braggar samtengdir með við-
byggingu brunnu til kaldra kola á Vi
klukkustund í dag. Tildrög brunans
voru þau að nokkrir menn voru að
hreinsa út spæni og kveikja í þeim í
tunnu skammt frí húsinu. Skipti
engum togum að þegar verið var að
losa í tunnuna kom vindhviða og
feykti logandi spóninum í útihurðina
og varð húsið alelda á nokkrum sek-
úndum.
Húsbygging hf. hefir verið til
húsa í bröggunum í áraraðir en
var að flytja í nýtt húsnæði í þess-
ari viku og var gengið frá ieigu-
samningi í gær við Gerðaröst hf.
en það voru einmitt starfsmenn
Gerðarastar sem voru að taka til í
húsinu þegar slysið varð.
Allt brann sem brunnið gat á
nokkrum mínútum og þegar
slökkviliðið kom úr Keflavík var
húsið að heita rústir einar. Norð-
an strekkingur var en tunnan stóð
sunnan við húsið í um 10 metra
fjarlægð frá bröggunum. Var helzt
að heyra á mönnunum sem stóðu
að hreinsun hússins að misvindur
eða hvirfilvindur hefði feykt spón-
unum að húsinu og því farið sem
fór.
Arnór.
Landspítalanum af-
hent hjartasónartæki
LYFJADEILD Landspítalans var afhent hjartasónartæki að gjöf frá
Landssamtökum hjartasjúklinga við athöfn í Landspítalanum laugar-
daginn 2. júní. Tæki þetta er, að sögn Guðmundar Þorgeirssonar, læknis
á Landspítalanum, mjög fullkomið. Með því er hægt að fá mynd af öllum
fjórum hjartahólfum og hjartalokum og því hægt að sjá hvernig hjarta-
vöðvinn vinnur. Ekki mun vera unnt að fá mynd af kransæðunum með
tæki þessu og eru hjartaþræðingar því ekki úr sögunni.
Guðmundur sagði, að tækið
gæti þó komið í stað hjartaþræð-
ingar í sumum tilfellum, t.d. hjá
ungbörnum og væri mjög nytsam-
legt við rannsóknir á meðfæddum
hjartagöllum.
Ingólfur Viktorsson, formaður
Landssamtaka hjartasjúklinga,
afhenti tækið og veitti Þórður
Harðarson, læknir, því viðtöku
fyrir hönd lyflækningadeildar
Landspítalans. Aðrir viðstaddir
voru Davíð Á. Gunnarsson, for-
stjóri ríkisspítalanna, Friðrik
Sophusson, formaður stjórnar-
nefndar ríkisspítalanna, læknar
og hjúkrunarfólk hjartadeildar,
auk fleiri gesta.
Viðurkenning
fyrir vöruvöndun
FYRIRTÆKIÐ Sfld og flskur hf. var
á dögunum heiðraó sérstaklega af
Félagi matvörukaupmanna fyrir
„vörnvöndun og afburða góða þjón-
ustu við félagsmenn um fjörutíu ára
skeið“, eins og Ólafur Björnsson,
formaður Félags matvörukaup-
manna, komst að orði við afhend-
ingu heiðursskjals félagsins.
ólafur sagði einnig að það væri
bæði kaupmönnum og neytendum
til góða að geta alltaf treyst á
vandaða vöru og þjónustu eins og
þá sem Síld og fiskur hf. byði upp
Matvörðkaupmenn hafa aðeins
einu sinni áður veitt slíka viður-
kenningu, en hana hlaut Osta &
smjörsalan sf.
Síðasta —
— nam-
skeið fyrir sumartrí
19. júní — 7. júlí. All-
aldursflokkar.
Hörkupúl og svita-
tímar. Kennari Guö-
bergur Garöarsson.
Innritun og upplýs-
ingar í síma 40947.
Sídasta námskeid
fyrir sumarfrí
12. júní — 29. júní
3ja vikna námskeiö 3
sinnum í viku. Allir
aldursflokkar byrj- _
endur, framhald.
Sömu tímar og áöur.
Uppl. og innritun í
síma 40947.
Námskeiösgjald
kr. 900.-
Nord Refo
óskar eftir að ráða
framkvæmdastjóra
Norræna rannsóknastofnunin um byggöamál er sjálfstæö rannsóknastofnun sem heyrir undir
Norrænu Ráöherranefndina. Stofnunin gengst fyrir samræmdum rannsóknum á sviði byggða-
mála út frá samnorrænum viömiðunum. Tímarit er gefið út á vegum stofnunarinnar auk þess
sem hún birtir skýrslur, sem greina frá rannsóknum og umræðum á Norðurlöndum á sviði
byggðamála.
í júlí 1985 stendur til að flytja skrifstofur stofnunarinnar til Helsingfors. Samtímis hefst ný
rannsóknaáætlun sem taka mun 4—5 ár. Sökum þessa óskar Nord Refo eftir aö ráða
framkvæmdastjóra. Helstu verkefni hans munu verða:
— aö hafa yfirumsjón með rannsóknaáætluninni.
— aö samræma starf stofnunarinnar við rannsóknir á Norðurlöndum.
— að vera í forsvari fyrir útgáfu tímarita og skýrslna.
— aö sjá um framkvæmda- og fjármálahlið stofnunarinnar.
— aö hafa daglega yfirumsjón.
Umsækjendur veröa að geta sinnt rannsóknum á sviði samfélagsmála. Þeir sem hafa reynslu
af stjórnsýslu og skipulagningu sem tengist byggöamálum, munu ganga fyrir.
Laun samkvæmt taxta finnskra ríkisstarfsmanna í launaflokkunum A22—A27. (Lektor með
doktorsgráðu fær ca. 9.000 finnsk mörk á mánuði, prófessor með starfsreynslu allt aö 13.000
finnst mörk). Mánaðrlega er veittur ferðastyrkur sem svarar 1.000—2.000 finnskum mörkum
auk annarra styrkja, sem starfsmenn norrænna stofnanna eiga tilkall til.
Ráðningartíminn er áætlaöur frá júlí 1985, en til greina kemur að flýta honum.
Eftirfarandi menn veita upplýsinar um stöðuna:
Ásmund Sæther, formaöur, Osló, 11 75 61.
Anders Svarre, Kaupmannahöfn, 13 67 60.
Siguröur Guómundsson, Reykjavík, 15133.
Sture Öberg, Stokkhólmi, 763 1000.
Antti Uusi Hakala, Helsingfors, 160 20 75.
Leif Grahm, framkvæmdastjóri, Osló, 15 59 06.
Umsóknir ásamt nauösynlegum gögnun og meðmælum veröa aö hafa borist skrif-
stofu Nord Refo fyrir 15. júní. Umsóknir skal senda:
Nord Refo
Postbox 15 Grefsen 0409 Oslo 4.