Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984
77
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
U*W/J II
Bílageymslan í Seðlabankahúsinu.
Hóllinn
Fr. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Mig langar að koma á fram-
færi nafni á bílageymsluna í
Seðlabankahúsinu. Nafnið sem
mér kom til hugar er Hóllinn.
Leggðu menn þá bíla sína í
Hólnum eða geymdu þá í Hóln-
um.
Mysingur og
mysuostur fljót-
lega aftur á
markaðinn
Oskar Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Osta- og smjörsöl-
unnar hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja vegna fyrirspurnar
er birtist í Velvakanda á laug-
ardaginn, um hvernig á því stæði
að ekki væri til mysingur og
mysuostur í verslunum.
Mysuostur er að vísu til í ein-
staka verslunum en skýringin á
því hvers vegna þessar vörur eru
ekki til í öllum verslunum er sú
að það er verið að setja upp nýj-
ar vélar hjá mjólkurbúinu á Ak-
ureyri og er nú unnið að því að
stilla þær. Við væntum þess að
verkinu ljúki eftir fáa daga og
mysuostur og mysingur verði því
á boðstólnum í verslunum bráð-
lega.
Með þessum nýju vélum
aukast afköstin og einnig verður
hægt að framleiða fleiri tegund-
ir en við höfum haft fram að
þessu á markaðnum.
Það má hins vegar geta þess
að það er mysingur og mysuost-
ur frá Húsavík á markaðnum.
Útflutningur of mik-
ill á óunnu hráefni
Valgarður L. Jónsson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Heilshugar tek ég undir álit
Jónasar Péturssonar, þar sem
hann minnist á erindi Málmfríðar
Sigurðardóttur, Um daginn og
veginn, það var frábært. Þessi
heiðurskona talaði af miklu viti,
þekkingu og hlýjum hug. Þannig
þarf að ræða málin, svo að að
gagni megi verða og umræðan
verða sannleikanum samkvæm og
fyrir henni virðing borin.
I öllu því moldroki sem yfir
okkur gengur, um þessar mundir
útaf landbúnaðarmálum, er sann-
arlega hressandi að fá eitt erindi
af viti talað. Áróðurinn gegn land-
búnaðinum að undanförnu hefur
verið múgæsingu líkastur. Þar
hefur svo sannarlega sannast að
illar tungur geta miklu illu komið
til leiðar. Mest er þekkingarleysið
áberandi í umræðunni. Vissulega
má margt bæta og færa til betri
vegar í landbúnaði, sem öðrum at-
vinnugreinum. En fyrst er að
kynna sér allar hliðar málsins vel,
síðan að notast við vit og góðan
vilja. Allir sannir íslendingar vita
það mæta vel, að landbúnaður og
sjávarútvegur hafa verið og eru
stærstu undirstöðuatvinnugrein-
arnar í þessu landi. Verði þær
lagðar niður og landið gert að
stóriðjuskeri, hér norður á hjara
veraldar, verður mörgum landan-
um óhætt að pakka niður og hafa
sig á brott. Jarðargróðurinn er
kóróna okkar fagra lands. Af hon-
um lifir okkar arðsama búfé, sem
fæðir og klæðir mannfólkið og
hefur gert um ár og aldri. Ég er
mikið sammála Málmfríði Sigurð-
ardóttur, að í landbúnaði leynist
ómældir möguleikar til að lifa
góðu lífi í þessu landi. Ómenguðu
landi, sem stendur utan við heims-
skarkalann. Ég trúi því að spá
hennar rætist, matvæli frá þessu
hreina landi verði eftirsótt gæða-
vara, sem fleiri og fleiri sækjast
eftir. Þeir dagar geta verið stutt
undan, að þetta verði að veruleika.
Þess vegna ber okkur að standa
dyggan vörð um landbúnað okkar,
halda landinu öllu í byggð og varð-
veita þau miklu verðmæti, sem í
sveitunum eru. Ætli ekki væri
hyggilegra að byggja upp byggð-
arkjarna í sveitunum þar sem
vinnslustöðvar væru einnig reist-
ar, til að vinna úr framleiðslunni.
Við gerum of mikið af því að flytja
óunnið hráefni úr landi, og látum
öðrum eftir að hagnast á úrvinnsl-
unni. Við heyrðum hvað maður á
Akureyri sagði í viðtalsþætti um
daginn. Ef við fulivinnum skinnin
okkar þá skapar það 800 manns
atvinnu. Það eru margar hendur
sem hafa tekjur af landbúnaði I
dag, en gætu og ættu að verða
helmingi fleiri og vel það. Mér
blöskrar svartsýnin og úrræða-
leysið hjá ráðandi mönnum varð-
andi öll þessi mál. Mér datt í hug
um daginn, að við þyrftum að eiga
Málmfríði á Jaðri á Alþingi og
aðra henni líka. Sem betur fer eig-
um við ennþá viturt fólk og vel-
viljað í þessu landi, það á að ráða.
Málmfríður á bestu þakkir okkar
allra, sem erum fslendingar í eðli
okkar.“
Fær Bixið vínveitingaleyfí?
Pakksatt átvagl skrifar:
„Undanfarin ár hafa veitinga-
staðir sprottið upp og hefur það
vakið ánægju margra átvagla og
matarunnenda.
En nú er svo komið að ég tel mig
hafa notið góðs af öllum þessum
stöðum og það er nú sá sfðasti sem
ég heimsótti sem mig langar að
víkja að. Það er nefnilega alltof
oft sem við gleymum þvf sem gott
er og munum það sem miður fer.
Nú í síðastliðinni viku átti ég
leið upp Laugaveginn og leit inn í
Bixið sem ég áleit skyndibitastað í
MacDonald-stíl. Það vakti því
furðu mína er inn kom og ljúfa
tónlist lagði að eyrum mínum.
Umhverfið hafði tekið algjörum
stakkaskiptum og staðurinn feng-
ið hinn notalegasta blæ.
Svo ég komi mér nú að efninu
langar mig að þakka forráða-
mönnum staðarins fyrir frábæra
þjónustu og mat á heimsmæli-
kvarða, fyrir þennan pening, sem
að þessu sinni var gratíneraður
fiskur.
Þá vil ég að lokum varpa þeirri
spurningu fram fyrir eigendurna
hvort þeir ætli ekki að kóróna
þessar breytingar með vín- eða
bjórveitingum og einnig hvort þeir
hyggi á fleiri breytingar með mat
þ.e. fleiri smárétti, þetta var sko
breyting til batnaðar!"
Skrifið eða hringið
til Veivakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milii kl. 11 og 12, mánudaga til
fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisróng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Við eigum
geysimikið úrval
af rúmum
og nú bjóðum
við þér alveg
sérstök
tilboðskjör
1 ilboo
Meðan birgðir
endast
RÚM MEÐ DÝNU
Undir 10.000, 2.000 út gr. 1.000 á mán.
10.000—15.000, 3.000 út. gr. 1.500 á mán.
15.000—20.000, 4.000 út gr. 2.000 á mán.
Yfir 20.000, 5.000 út gr. 2.500 á mán.
Úrvalið af fururúmum er geysilega gott. Á mynd-
inni séröu tegund Hilda.
Verð með dýnum kr. 19.910.
Náttborö verö kr. 2.860.
Daisy
með dýnum
kr. 23.590.
I
Dolly
Dolly er fallegt hentugt hjónarúm þar sem her-
bergiö er frekar lítið.
Verð með dýnum kr. 17.210.
Taktu eftir verðinu á þessu setti.
Allt settið kr. 14.780 m/dýnum.
é
é
IS6A6N&H0LLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 -110 REYKJAVlK « 91-81199 og 81410