Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1984
53
getað gengið eins hægt fyrir sig og
kostað eins mikið mannfall og á
Omaha-strönd, ef þeir hefðu ekki
af hyggindum sínum notað sér-
hannaða brynvagna Hobarts og
fylgt þeirri stefnu að senda sér-
þjálfaðar áhlaupssveitir úr 79.
brynfylki Hobarts á undan megin-
liðsaflanum. Bn lið G, J og S,
brezkir og kanadískir hermenn úr
2. brezka hernum undir forystu
Sir Miles Dempsey hershöfðingja,
komust fljótt á land á svæðunum
milli Le Hamel og St Aubin og
Lion-sur-Mer og Riva-Bella.
í skýrslu sinni um landgönguna
þakkaði Eisenhower fyrst og
fremst nýstárlegum tækjabúnaði
þann árangur, sem náðist: „Vafa-
samt er að árásarliðið hefði getað
náð svo fljótt öruggri fótfestu án
þessara vopna,“ sagði hann.
Sigur
Að kvöldi 6. júní 1944 höfðu
156.000 hermenn Bandamanna
gengið á land í Normandí og þótt
Caen félli ekki í fyrstu atrennu,
eins og gert hafði verið ráð fyrir,
hafði skarð verið rofið í Atlants-
hafsmúrinn, sem Þjóðverjar höfðu
gumað mjög af, á 45 km svæði
milli ánna Vire og Orne. Aðeins
2.500 féllu, en 8.500 særðust.
Rommel hafði ekkert varalið á
bak við þunnskipaðar varnirnar á
ströndinni og ekkert þungt stór-
skotalið til að svara fallbyssum
herskipanna. Honum tókst þvi
ekki að brjóta innrásina á bak aft-
ur á ströndinni og 9. júní höfðu
Bandamenn komið hreiðrað
rammlega um sig á innrásarsvæð-
inu, þrátt fyrir árás XXI brynfylk-
is Þjóðverja.
Innrásardaginn var Eisenhower
með tvær yfirlýsingar í vasanum.
Önnur var svohljóðandi: „Land-
ganga okkar á Cherbourg-svæðinu
hefur ekki borið þann árangur að
við höfum náð nógu öruggri fót-
festu og ég hef hörfað með her-
sveitirnar. Ef einhvern er hægt að
gagnrýna fyrir tiiraunina, þá ber
ég alla ábyrgð."
Eisenhower gat fleygt þessari
yfirlýsingu. Innrásin hafði heppn-
azt. í staðinn heyrði heimurinn
hann lesa hina yfirlýsinguna, sem
var svohljóðandi: „Undir stjórn
Eisenhowers hershöfðingja hefur
flotastyrkur Bandamanna hafizt
handa, síðan í morgun og með
stuðningi voldugs flugvélaflota,
um landsetningu herliðs Banda-
manna á norðurströnd Frakk-
lands."
Ári áður hafði Churchill lýst
þeirri von sinni að Frakkland yrði
frelsað „áður en laufblöðin falla af
trjánum í haust“. Sú von hafði
ekki rætzt og Þjóðverjar dreifðu á
götum í Frakklandi grænum lauf-
blöðum úr pappír með áletruninni:
„Við erum fallin af trjánum. ó
Churchill! Hvar eru hermenn þín-
ir?“
Nú voru þeir komnir. Rommel
hafði haldið því fram að fyrsti sól-
arhringur innrásarinnar mundi
ráða úrslitum. Hann reyndist
sannspár.
(Aðallega byggt á ritgerð eftir
Stephen Webbe) — gh.
aö borga heimsendan giroseöil
i œtliröu aö eiga
L þessa möguleika A
vmmngum
þanncrttimda
EIGIRÐU EFTIR AÐ GREIÐA
HAPPAREGNSMIÐANN ÞINN
ÞÁ BORGAR SIG AÐ GERA ÞAÐ
í ÞESSARIVIKU
Happaregn er happdrœtti
Slysavarnaíélags íslands
í það er raðist til viðhalds og etlingar
slysavarna a íslandi og a ollum
haísvœðum umhveríis það.
8. júní
diögum við út aukaviniiinga:
200 REALTONE útvarpsviðtœki með klukku
og vekjara
200 PIRATRON tölvuur með vekjara
og raíeindareikni
100 POLAROID VTVA ljósmyndavélar
17. júní er komið að
aðalvinningunum:
10 FÍAT UNO.Bíl ársins 1984
22 NORDMENDE myndbandstœkjum
Þetta er sannkallað happaregn
Ath. Miðinn þinn gildir báða dagana,
sé hann greiddur iyrir 9. júní.
VTÐ ÞÖRFNUMST ÞÍN
HADEGISMATSEÐILL
Humarsúpa mcð þeyttum rjóma
Kistaður karfi i hnetujnqourtsosu 1 75,-
Roast-beef með steiktum lauk og kartoflum
"Au gratin"
1/1 255.- - 1/2 195--
í tilefni briggja ára afmælis bjóðum við öllum marsipantertu í eftirrétt.
m
Hvíldarstaður í hádegi höU að kveldi