Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 18
mi fv'í'it rns f.rcrsivi-,u'. r.w i fwv»a,nf.'».>
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984
Hann er ólíkur starfsbræðrum sínum
Hann verpti gulleggi
fyrir Stuttgart
# Helmut Benthaus lók é aínum tíma átta landsleiki fyrir V-Þýskaland
í knattspyrnu. Hér leiöir hinn frægi þjélfari Helmut Schön hann inn á
leikvanginn áriö 1958 í landsleik gegn Búlgaríu.
Knattspyrnuskóli
Knattspyrnuskóli Víkings verö-
ur starfræktur í sumar meö svip-
uðu sniöi og undanfarin ár. Hvert
námskeiö stendur í 2 vikur og
skipist í tvennt. Annars vegar er
kennt fyrir hádegi og hins vegar
eftir hádegi. í hverjum hópi veröa
20 drengir og stúlkur.
Þetta er sjötta sumariö, sem
Víkingur starfrækir knattspyrnu-
skóla og hefur reynslan sýnt aö
hann á fyllilega rétt á sér. Fyrsta
námskeiöiö er þegar hafiö og er
fullbókaö. Næsta námskeiö verður
frá 11. júní til 22. júní. Þriöja nám-
skeiðið veröur frá 25. júní til 6. júlí.
Fjóröa námskeiöiö hefst 9. júlí og
lýkur 20. júlí. Fimmta námskeiöið
stendur frá 23. júlí til 3. ágúst.
Sjötta og síðasta námskeiöiö verö-
ur frá 6. ágúst til 17. ágúst.
Leiðbeinandi verður Sigurjón
Elíasson, íþróttakennari. Hann
kenndi viö skólann sumrin 1979 og
1981. Johann Boskamp, hinn
þekkti hollenski leikmaöur og
þjálfari, sem kenndi viö skólann
um tíma i fyrra, kemur til íslands
þriöjudaginn 5. júni og mun leiö-
beina viö námskeiöin. Á nám-
skeiöunum er fariö yfir grunnatriöi
knattspyrnu, tækni og skilning og
Ljósm./ Friðþjótur Helgason.
• Síðasta leiknum í deildarkeppninni 1984 er lokið, þrátt fyrir 0—1 tap gegn Hamburger SV er lið Benthaus,
Stuttgart, orðiö Þýskalandsmeistari og honum er innilega fagnað.
EFTIR 32 ár er VfB Stuttgart aftur
orðið Þýskalandsmeistari. Fyrst
og fremst þakka Stuttgartar þaö
þjálfara sínum, manni, sem er
mjög ólíkur starfsbræörum sín-
um.
Helmut Benthaus (48) situr
léttur í skapi og afslappaöur á
sunnudagsmorgni með íþótta-
fréttariturum eins og hann er
vanur aö gera ef lið hans hefur
leikið daginn áður. Og þótt liö
hans hafi daginn áður unnið
þýska meistarartitilinn situr
Benthaus í hliðarherbergi félags-
heimilis VfB Stuttgart við kaffi-
drykkju og segir brandara. Menn
eru máttlausir úr hlátri og fótbolti
er ekki á dagskrá.
En slík tilfinningasemi er frem-
ur sjaldgæf hjá meistaraþjálfar-
anum. Að öðru leyti virkar hann
lokaður og þungbúinn. Hann er
hæglátur meölimur í annars
áberandi félagi þjálfara í Bund-
esligunni.
En skiptum nú yfir á Weserleik-
völlinn. Benthaus situr kæruleysis-
legur á bekknum meö krosslagöa
fætur og hallar sér á handriöiö. Til
vinstri viö hann hendist Otto
Rehhagel til og frá meöfram vellin-
um baöandi út öllum öngum og
öskrar á leikmenn sína.
Á Benthaus sést engin svip-
breyting, ekki einu sinni þegar
msmi
• Benthaus og sonur hans Ach-
im, sem er alveg eins útlits og
föður hans.
Bremen tekst aö jafna metin, 1:1,
og bestu sóknarmenn hans hafa
klúöraö gullnum marktækifærum.
Nákvæmur, aðgætinn
og skynsamur
Þetta er hans aöferð. Benthaus
er ekki hávær skjallari, sem hleyp-
ur rogginn um velli og ber sér á
brjóst. Hann sker sig þægilega út
úr hópnum, hann er nákvæmur,
aögætinn og skynsamur. Hann
hvorki reykir né drekkur og sjón-
deildarhringur hans nær lengra en
bara yfir á hinn enda vallarins.
Góökunningi hans er leikhús-
stjórinn í Basel (Sviss). Hann getur
rökrætt klukkutímum saman við
aöstoðarþjálfarann sinn um nýt-
ingu alheimsins. Og þegar hann vill
útiloka sig algjörlega frá umhverf-
inu, sekkur fyrrverandi nemandinn
í málvísindum sér niöur í bók eftir
Hermann Hesse, sem er eftirlæt-
isrithöfundur hans.
Hann hæfir lið-
inu fullkomlega
Svo viröist, sem dómgreind
hans hafi flust yfir á liöiö. Þaö leik-
ur yfirvegaö og rólega, fullt af inn-
lifun og baráttugleði.
„Við höfum aldrei haft þjálfara,
sem hefur tekist jafn vel og Bent-
haus aö sameina liöiö," segir fyrir-
liöi liösins, Karlheinz Förster. Og
formaöur félagsins bætir viö: „Meö
sinni fáguöu framkomu, skynsömu
og ígrunduðu aöferöum, hæfir
hann liöinu fullkomlega."
Benthaus er róttur maður á rétt-
um staö. Þegar Júrgen Sunder-
mann kom til liösins 1976, voru
leikmennirnir ungir og ákafir.
„Sund“ kraföist algjörs heraga
utan vallarins en lét strákana ham-
ast og ólmast af hjartans list innan
vallarins. Meö þessari aöferö tókst
VfB Stuttgart aftur aö rétta úr
kútnum 1977.
Eftirmaöur hans krefst nú al-
gjörs lelkræns heraga á velllnum í
90 mínútur meöan á leik stendur,
en eftirlætur leikmönnum sínum
meira frelsi utan vallarins, enda er
hópurinn oröinn fullmótaöur.
Benthaus: „Ég treysti á dóm-
greind og sjálfsábyrgöartilfinningu
leikmannanna, en læt þá þó aldrei
efast um þaö aö ég er þeirra yfir-
maöur."
Basel er hans önnur heimkynni.
Þar hóf hann feril sinn. Var i 17 ár
sem þjálfari og stóö af sér fjóra
formenn félagsins og duttlunga-
fulla leikmenn eins og Þjóöverjana
Lauscher og Nickel og Cubillas frá
Perú. Liö hans í Basel varö sjö
sinnum svissneskir meistarar og
tvisvar bikarmeistarar.
Áöur bjó hann í Ruhr-hóraöi og
lék átta landsleiki meö Westfalia
Herne og 1. FC Köln, hann varð
Þýskalandsmeistari meö Köln
1964. Nú býr þjálfarinn, sem hefur
svissneskt vegabréf, í raöhúsi í
Oberesslingen viö Stuttgart. Þar
hefur hann stóran garö meö
ávaxtatrjám og litlum grænmetis-
reit og þaö er í hans verkahring að
slá grasiö og klippa rósir.
„Þetta geri ég meö ánægju, það
er góö tómstundaiöja og dreifir
huganum."
Maöur númer tvö á heimilinu er
Achim, 16 ára sonur hans og fyrri
konu, sem er látin. Hann stundar
nám í náttúrufræöideild mennta-
skólans. Bettina, 21 árs gömul
dóttir hans, er viö nám í Basel, á
þar sinn kærasta og hefur mikinn
áhuga á hestamennsku.
Fyrir tveimur árum sagöi Bent-
haus: „Ég haföi alltaf veriö aö
gjóta hornauga til Bundesligunnar.
Þetta verkefni er mikil hólmgöngu-
áskorun fyrir mig.“
• Benthaus ásamt sambýliskonu sinni Hedi Bout. Benthaus er ekkju-
maður.
Víkings
fariö í knattþrautir. Til aöstoöar viö
kennsluna er notaö myndband, en
Víkingar hafa nýlega fest kaup á
góöu sænsku kennsluefni.
Innritunargjald á hvert nám-
skeiö er 500 krónur. Innritun fer
fram alla virka daga í félagsheimlli
Víkings viö Hæöargarö í síma
81325 milli klukkan 11 og 13.
ii^inra