Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984
67
Bandalag íslenskra leikfélaga:
Leiklistarstarf meðal aldraðra og öryrkja
FYRIR nokkni var haldinn aöal-
fundur Bandalags íslenskra leikfé-
laga og ráðstefna í tengslum við
hann að Flúðum í Ilrunamanna-
hreppi.
Efni ráðstefnunnar var: Leiklist-
arstarf meðal aldraðra og meðal ör-
yrkja. í inngangserindum var fjall-
að um þá starfsemi, sem nú þegar á
sér stað á þessu sviði bæði hérlend-
is og á hinum Norðurlöndunum, en
ljóst er að mikil þörf er á að auka
hana verulega. Möguleikar til þess
eru í gegnum margháttaða félags-
starfsemi meðal aldraðra, í gegnum
stofnanir aldraðra og stofnanir ör-
yrkja, með ýmis konar námskeiða-
haldi og með því að örva fólk til
virkrar þátttöku í starfsemi hinna
fjölmörgu leikfélaga hér á landi.
Þingið sendi frá sér eftirfarandi
ályktun:
„Leiklist er snar þáttur í lífi fólks
á íslandi. Áhugi á þátttöku blundar
víða hjá fólki, sem ekki hefur talið
það sjálfgefið að taka þátt í leiklist-
arstarfsemi. Þörfin til að tjá sig er
sú sama hjá öllum. Við álítum að
hópar fólks hafi einangrast sakir
elli eða örorku. Til að rjúfa þessa
einangrun og gefa lífinu nýtt inni-
hald viljum við vekja af dvala þenn-
an áhuga og þannig gefa þeim tæki-
færi til að vera skapandi þátttak-
endur í lífinu í stað þiggjandi. Við
hvetjum leikfélög um allt land til
að eiga frumkvæði að námskeiðum
og öðru leiklistarstarfi með þessum
þjóðfélagshópum".
Aðalfundinn sátu 50 fulltrúar frá
25 leikfélögum. Þrjú ný leikfélög
Akureyri:
Akureyri, 4. júní.
TÖMAS Ingi Olrich, menntaskóla-
kennari á Akureyri, var í gær ráðinn
ritstjóri vikublaðsins fslendings á Ak-
ureyri, og mun Tómas taka við starfinu
I. september nk.
Halldór Halldórsson, sem verið
hafði ritstjóri blaðsins um eins árs
skeið, lét af störfum 1. maí sl. Þá tók
við ritstjórn til bráðabirgða Guð-
fengu aðild að bandalaginu. Þau eru
Leikdeild Ungmennafélags Möðru-
vallasóknar, Leikfélag Hellissands
og Leikfélag Sólheima. Nú eru að-
ildarféiögin 82 og hafa aldrei verið
fleiri. Sú breyting var gerð á lögum
bandalagsins að nú geta leikfélög
aldraðra og leikfélög öryrkja fengið
inngöngu í bandalagið, en áður hef-
ur það ekki verið mögulegt fyrir
leikfélög tengd stofnunum.
mundur Heiðar Frímannsson, sem
mun gegna því starfi til mánaða-
móta júnf/júlf, en í júlímánuði mun
Halldór Blöndal, alþingismaður, síð-
an ritstýra blaðinu, uns Tómas Ingi
tekur við.
Að sögn Stefáns Sigtryggssonar,
formanns blaðstjórnar Islendings,
hefur rekstur blaðsins gengið vel að
Leikfélag Sólheima. sem er að
leggja upp í leikferð um Norður-
lönd, sýndi leikritið Lífmyndir að
Flúðum fyrir fundarmenn og aðra
gesti. Var leikhópnum ákaft fagnað
að lokinni áhrifarikri sýningu og
leikfélagið boðið velkomið, sem
yngsta félag í Bandalag íslenskra
leikfélaga.
(Krétutilkynning.)
undanförnu og vildi hann fyrst og
fremst þakka það því, að blaðið hef-
ur nú komið sér upp tækjakosti til
þess að setja blaðið og hefur það
sparað stórfé að sögn Stefáns. ís-
lendingur er málgagn sjálfstæðis-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra.
GBerg.
Nýr ritstjóri íslendings
Ný kynslóð
SQtDITflaDWlgJILDIÍ-
Vesturgötu 16,
sími 13280.
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
SöwrCsMSpyff <J&ini®©t5)ira
VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480