Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 25
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984
73
Vona að ég verði jafn
frægur og mamma
+ Hans Feredrikson, sonur Annifrid Lyngstad,
sem á sínum tíma geröi garöinn frœgan meö
ABBA, er tilbúinn til aö feta í fórspor móöur sinn-
ar og hefur raunar nú þegar gefiö út sína fyrstu
plötu, stóra plötu þar sem hann bœöi syngur og
leikur sitt eigið efni.
„Ég er mjög ánægöur meö útkomuna og mamma
líka,“ segir Hans, sem vonast til, aö frægöarferillinn
sé hafinn, ekki bara í Svíþjóö heldur einnig úti í
hinum stóra heimi. Hans segist gera sér grein fyrir
því, aö þaö fylgi því mikil auglýsing aö vera „Abba-
barn“ en um það sé ekki nema gott eitt aö segja því
enginn komist langt án góörar auglýsingar. Hins
vegar komist enginn heldur neitt á auglýsingunni
einni saman og Hans segist hafa þurft aö ganga í
gegnum bæöi gleöi og sorg sem tónlistarmaöur.
Besti vinur Hans er Peter Andersson, sonur
Benny Andersson, en eins og kunnugt er þá bjuggu
foreldrar þeirra saman um nokkra hríö. Peter er
tónlistarmaöur eins og Hans og átti þátt í aö gera
plötuna en þeir félagarnir hyggja ekki á samstarf í
framtíöinni. Segjast vilja leita gæfunnar hvor í sínu
lagi.
„Ég ætla aö helga líf mitt tónlistinni,“ segir Hans,
„og ég vona að ég veröi jafn frægur og manrcma."
Hans Fredriksson, 21 árs gamall sonur Annifrid
Lyngstad, sem varö fr»g meö ABBA, hefur sent
frá sór sína fyrstu plötu. Hér er Hans meö mynd af
móður sinni.
+ Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, er maður
mjög önnum kafinn eins og líklegt er og má sjaldan
vera aö því aö bregöa sér af bæ. Hann er þó í
Evrópureisu nú eins og þeir vita, sem fylgjast meö
fréttunum, og ekki alls fyrir löngu náöu þau hjónin
að skreppa til Hawaii-eyja þegar stund gafst á milli
stríöa. Þar var þessi mynd tekin af þeim og eru þau
klædd á landsvísu, Reagan í hvítri skyrtu en Nancy
í hvítum serk eöa kjól og bæöi meö blómsveig um
háls.
COSPER.
+ Muhammed Ali var einu sinni
bæöi ríkur og frægur en nú virö-
ist sem hann sé bara frægur.
Banki í borginni Pittsburg hefur
nú hótaö aö ganga aö húsi Alis
nú í mánuöinum ef hann veröi
ekki búinn aö borga skuld sína
eftir nokkra daga. Skuldin er upp
á 900.000 ísl. kr. og heföi í eina
tíö bara veriö skiptimynt í augum
meistarans. Á myndinni eru Ali
og kona hans og húsiö í baksýn.
ESAB ESAB ESAB
Eitt mikilvægasta atriöið varðandi rafsuðu er að velja rétta
gerð rafsuðuvírs. Til þess að hámarksgæði verði á suðu er
nauðsynlegt að vírinn sé valinn með tilliti til allra aðstæðna.
Með þessa staðreynd í huga eigum við til á lager mikið úrval
rafsuðuvírs. Tæknimenn okkar veita frekari upplýsingar og
eru þér innan handar um valið. Hafið samband við söludeild.
ESAB í fararbroddi í 75 ár.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
Viö hjónin bjóöum alla íslendinga velkomna
til okkar í Tívolí þar sem viö höfum á boö-
stólum Ijúffenga rétti á sérlega góöu verði.
íslenskur matseöill.
Tívolíið opnar kl. 5 og nú greiðir fólk að-
gangseyrir aðeins 700 peseta og fær frítt í
u.þ.b. 40 tæki. Við í Kobenhavne Kroen
leggjum okkur fram um aö gleðja alla íslend-
inga sem til okkar koma.
Þeir sem framvísa þessari auglýsingu hjá
okkur fá eitthvaö fyrir sinn snúö.
Glæsilegur
garður meö
fjölda
leiktækja og
skemmtiatriöa
Med vinarkvedju,
Birthe og Calle
Kassow.