Morgunblaðið - 06.06.1984, Side 17

Morgunblaðið - 06.06.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984 65 latlspyrnumaöur heimsins í dag. Dýrkaöur af >öi í S-Ameríku og Evrópu. Hann hefur leikiö af jað. Zico ólst upp við sára fétœkt en tókst aó Evrópukeppni landsliða hefst á þriðjudag: Hvernig kemur danska landsliðinu til með að ganga í keppninni? \ Mjölby J Olsen Ajax, AMSTERDAM Nielsen Feyenoord, ROTTERDAM Elkjaer LOKEREN \A . /• T Rasmussenjy] V. ÁRHUS TjQANMARK f Kjaer W > vj \*<,pe"hamn ESBJERGlV-S ö" Simonsen VEJLE ÖST- VAST-I Busk GENT HOLLAND ’.BELGIEN 0 Rasmussen Hertha, BERtlN TYSKLAND M Olsen Arnesson Anderlecht, BRYSSEL Bertelsen Seraing. LIÉGE Lerby Bayern Miinchen, MUNCHEN • Á þessari mynd má sjé hvar þeir sextán leikmenn leika sem skipa danska landsliöió í knattspyrnu. Þeir veröa allir í eldlínunni í Evrópu- keppni landsliða sem hefst í Frakklandi á þriðjudaginn. í næstu viku hefst Evrópu- keppni landsliöa í knattspyrnu í Frakklandi. Meöal þátttakenda þar eru frændur vorir Danir sem komu flestum á óvart meö því aö vinna sér rétt til að keppa ( úrslitakeppninni. Fyrsti leikur þeirra veröur gegn Frökkum en eins og Danir hafa leikiö í undan- keppninni þurfa þeir ekki lengur aö hræöast neitt landsliö því lifi þeirra hefur leikiö skemmtilega knattspyrnu og á eflaust eftir aö ná langt ef svo heldur fram sem horfir. Þjálfari liðsins, Þjóöverjinn Sepp Piontek, hóf að byggja liöiö upp aö nýju þegar hann tók viö því og árangurinn hefur veriö aö koma í Ijós núna. Sigur, 1—0, yfir Eng- lendingum á Wembley í fyrra svo eitthvaö sé nefnt og núna leika þeir í úrslitum Evrópukeppninnar í næstu viku. Danir hafa löngum haft snjöllum leikmönnum á aö skipa en gallinn hefur veriö sá aö þeir hafa leikið sem einstaklingar en ekki sem eitt heilstætt lið. Nú eru aörir tímar því liðið hefur náö skemmtilega sam- an undir stjórn Piontek og danska þjóöin væntir mikils af landsliöi sínu núna næstu dagana. Allan Simonsen ætlaöi aö hætta aö leika meö landsliöinu ef þaö kæmist ekki í úrslitakeppnina og þaö mátti varla tæpara standa þvi þegar þeir mættu Grikkjum í Aþenu var hann tognaöur en lék samt meö og stóö sig eins og hetja. Danir unnu þann leik og komust þar meö í úrslit og Sim- onsen ætlar því aö leika meö liöinu í Frakklandi. í landsliöi Dana eru fjölmargir atvinnumenn sem leika knatt- spyrnu í fimm löndum, V-Þýska- landi, Hollandi, Belgíu, Italiu og Spáni. Þaö eru aðeins þrír leik- menn úr 16 manna hópnum sem eru áhugamenn og leika í Dan- mörku. Þetta eru markveröirnir báðir, Ole Kjærr frá Esbjerg og Troels Rasmussen frá Árhus og svo sjálfur Allan Simonsen sem leikur núna meö Vejle. Landsliö Dana er þannig skipaö: Ole Kjærr, 29 ára, markvöröur frá Esbjerg. 25 A-landsleikir. Ole Rasmussen, 31 árs, bakvörð- ur frá Hertha Berlin. 33 A-landsleikir. Soren Busk, 30 ára, miövöröur frá Gent. 25 A-landsleikir. Morten Olsen, 34 ára, mióvöróur frá Anderlecht. 59 A-lands- leikir. Ivan Nielsen, 27 ára, bakvöröur frá Feyenoord, 12 A-landsleik- ir. Seren Lerby, 25 ára, tengiliöur frá Bayern MUnchen. 33 A-lands- leikir. Allan Simonsen, 30 ára, tengiliöur frá Vejle. 42 A-landsleikir. Jens Jern Bertelsen, 31 árs, tengiliður frá Liege. 39 A-landsleikir. Jesper Olsen, 22 ára, tengiliður frá Ajax. 15 A-landsleikir. Preben Elkjær, 26 ára, sóknar- maöur frá Lokeren. 33 A-landsleikir. Klaus Berggren, 25 ára, sóknar- maður frá Pisa. 11 A-lands- leikir. Varamenn eru: Michael Laudrup, 19 ára, sóknar- maöur frá Lazio-Rom. 8 A-landsleikir. Frank Arnesson, 27 ára, sóknar- maður frá Anderlecht. 28 A-landsleikir. Jan Melby, 20 ára, tengiliöur frá Barcelona. 10 A-landsleikir. Troels Rasmussen, 22 ára, mark- vörður frá Árhus. Enginn A-landsleikur. Eins og sjá má af þessari upp- talningu eru margir snjallir leik- menn í liöi Dana, einu Noröur- landaþjóöinni sem hefur frambæri- legu liöi á aö skipa til aö taka þátt í þeirri hörkukeppni sem framund- an er. Vel má vera aö danska liöiö hafi veriö á toppnum í fyrra og tak- ist ekki vel upp núna. En leikmenn liösins vita aö þaö er allt aö vinna og engu aö tapa, þeir leika gegn stórum stjörnum í bestu landsliö- um Evrópu og því er mikiö í húfi aö standa sig vel. Danska liöiö hefur oft komiö á óvart meö getu sinni, og enginn skildi afskrifa þaö í Evr- ópukeppninni þó svo aö vitað sé að róöurinn verði þungur. Danir leika fyrsta leik keppninnar gegn sterku liöi Frakka sem er á heima- velli. n vel nig" I Þórðarson „Ég kann alveg Ijómandi vel viö mig hérna á Skaganum. Þetta er mjög góður hópur sem æfir og mér líkar mjög vel,“ sagói Karl Þóröarson þegar Mbl. haföi samband viö hann í gær. Karl hefur nú sagt skilió viö at- vinnumennskuna í knattspyrnu og hefur aó undanförnu æft meö sínu gamla félagi, ÍA, og veröur hann lög- legur í leiknum í dag gegn Val. Karl vildi sem minnst um þaö segja hvort hann yröi í byrjunarliðinu, sagöi þaó vera þjálfarans aó ákveóa þaö. „Ég fór út í janúar 1979 og þaö eru því rúm 5 ár síðan ég lék hér síðast í deildarkeppninni. Þetta leggst vel í mig allt saman en ég vil þó engu spá um urslit leiksins í dag, ég er ekki vanur því og ætla ekki aö byrja á því núna,“ sagði Karl aö lokum. Evrópumeistarar Liverpool • Besta knattspyrnuliö Evrópu, Liverpool, fagnar Evrópumeistaratitli sínum eftir sigurinn gegn Roma á dögunum. Liöið náði ótrúlegum árangri á síöasta keppnistímabili, þaö varö enskur meistari, vann deildarbikarinn og kórónaöi timabilið meö sigri í Evrópukeppni meistara- liöa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.