Morgunblaðið - 19.08.1984, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.08.1984, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 62 augu íbúar Sovétríkjanna hafa gengið í gegnum margskonar breytingar í daglegu lífi sínu frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. En ein þýðingarmikil stofnun í landi þeirra hefur haldizt óbreytt: leyniþjónustan ógnvekjandi, KGB, sem hefur vakandi auga með 270 milljónum landsmanna, segir vestur-þýska vikuritið Der Spiegel. í greinargerð um hlutverk og starfsað- ferðir þessa blóði drifna lögregluhers, sem ber ábyrgð á útrýmingu milljóna manna, segir Der Spiegel að stjórnendur KGB virðist vera að öðlast aukin pólitísk áhrif á innanríkismál. En, segir Der Spiegel, KGB hefur orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru í starfseminni erlendis. Kommúnisminn hefur glatað miklu af fyrra aðdráttarafli sínu, svo dregið hefur verið úr þeim fjölda sjálfboðaliða, sem voru reiðubúnir til að hætta lífi sínu sem njósnarar KGB. Brátt getur komið til styrjaldar með vetnissprengjum. Hvernig verður umhorfs í heiminum á eftir? Er ekki tilgangslaust að hafa áhuggjur af framtíðinni? Þessi svartsýni kom fram hjá ungum sovéskum borgara, syni háttsetts starfsmanna KGB. Þegar hann fann engin svör við þessum svartsýnisspurningum sínum, tók þessi ungi maður upp „óbeizlað líferni“. Hann fór að neyta eiturlyfja, og aðstoðaði meira að segja gamalkunnan andkommúnista í Moskvu við andspyrnustörf hans. Metsölubók Líf þessa unga sovézka svart- sýnismanns er efnið, sem metsölu- bókin „Petrovka 28“ fjallar um. Bókin hefur sinn tilskylda góða endi. Komið er upp um unga lögbrjótinn og hann handtekinn. Höfundurinn, Julian Semionov, sem er 53 ára, er höfundur vinsæl- ustu sovézku lögreglusagnanna, sem allar fylgja sömu línu. Með skáldsagnagerð sinni er Semionov að reyna að afla þeirri stofnun landsins vinsælda, sem ekki bein- línis er talin ímynd vinsældanna: Öryggisnefnd ríkisins (Komitet Gosudarstvennoi Bezopastnosti), eða KGB. í einni bóka sinna lýsir höfund- urinn, sem á áttunda áratugnum starfaði sem fréttaritari Bók- menntatímaritsins sovézka í Bonn, dapurlegum örlögum sov- ézks borgara, Schlauberger að nafni, sem kemst á mála hjá CIA í Moskvu, en mætir undir lokin dauða sínum í óvirðingu í Afríku. Sagan lætur lesendur kynnast hæfni leynilögreglumanna KGB við að fylgjast með skokki þeirra grunuðu í almenningsgörðum Moskvu, eða skrá ferðir þeirra úr þremur hraðskreiðum bifreiðum búnum talstöðvum. í öllum bókum Semionovs eru starfsmenn KGB heiðarlegir og virðingarverðir menn, sem ættu að vera öllum sovézkum borgurum fyrirmynd. En KGB-hetjur skáldsögunnar eiga við mikinn vanda að stríða í tilraunum sínum til að bæta álit leyniþjónustunnar. Arkadi Shevtshenko, fyrrum að- stoðarframkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, og sem slíkur hæstsetti sovézki pólitíski flótta- maðurinn erlendis, segir að KGB hafi mjög lamandi áhrif á sovézka borgara. „Allir óttast KGB,“ sagði hann. Það er að sönnu eitt helzta markmið leyniþjónustunnar að vekja ótta í hugum þjóðarinnar til að tryggja hlýðni. En um leið er stofnunin, sem hefur yfir að ráða starfsliði, sem telur 90 þúsund manna lið óeinkennisklæddra lögreglumanna, 300 þúsund manna varðlið einkennisbúinna starfsmanna, og um 1,75 milljónir manna í hlutastörfum til að njósna heimafyrir og erlendis, að reyna að afla sér viðurkenningar, ef ekki er hægt að tala um vin- sældir. Blóðug fortíð Þessi tilraun þeirra er skiljan- leg. Yfir KGB hangir blóðug fortíð fyrirrennarans frá byltingarárun- um, Cheka, og þeirra sem á eftir fylgdu á ofsóknarárunum, GPU og NKVD. KGB hefur að mestu hætt allri hryðjuverkastarfsemi, en undir- stöðutilgangur stofnunarinnar er óbreyttur: að halda 270 milljónum sovézkra borgara innilokuðum innan járntjalds, útiloka alla hugsanlega pólitíska starfsemi einstaklinga, og kæfa allar kröfur um lögbundin mannréttindi. Jafnframt þessu vinnur KGB að því að ná sem mestum áhrifum í kommúnistaflokknum. Til að auð- velda það gerir KGB sitt ítrasta til að afmá fyrri ímynd sína úr hugum þjóðarinnar. Með róman- tískum skáldsögum og almennri aðdáun á KGB-hetjunum á að stuðla að þessari andlitslyftingu. Liður í þessum tilraunum var það þegar stjórnendur KGB létu árið 1981 reisa myndastyttu í Baku af Richard Sorge, þýzka njósnaranum í Tókýó, sem hafði árangurslaust varað Stalín við yf- irvofandi árás Hitlers á Sovétrík- in. Og í Austur-Þýskalandi var gefið út sérstakt frímerki með mynd Sorges. Vestræn kvikmynd um ævintýri Sorges hefur verið sýnd í öllum sovézkum kvik- myndahúsum. Semionov samdi flokk ævin- týrasagna um Sorge, sem þar gengur undir nafninu „Stirlitz". Sá gengur um klæddur foringja- búningi SS, hlerar meðal sovézkra flóttamanna, kemur upp um úkra- ínska skæruliðaforingjann Stafan Bandera, og kemst inn í aðalstöð- var Hitlers sjálfs, þar sem honum tekst loks að koma í veg fyrir að samningar takist milli nazistanna og Bandaríkjanna, sem beinzt hefðu gegn Sovétríkjunum. Sögupersónan Stirlitz, sem er dáður í Sovétríkjunum svipað og James Bond á Vesturlöndum, var einnig aðalpersónan í framhalds- þætti í sovézka sjónvarpinu. Ólíkt James Bond, sem er táknrænn fyrir vestrænt auðvaldskerfi, er Stirlitz sanntrúaður kommúnísk- ur hugsjónamaður. Boðskapur Boðskapur Semionovs til lesend- anna er skýr og skorinortur: Það er siðleysi að taka þátt I glæp, þótt svo hann sé unninn í góðum til- gangi. Til að koma þessari kenn- ingu á framfæri hjá almenningi, hafa sovézk yfirvöld á undanförn- um 20 árum gefið út að minnsta kosti 2.400 bækur til að afla starf- semi KGB vinsælda. En öll þessi útgáfustarfsemi er samt ekki nóg. í maí í vor efndi KGB þessvegna til samkeppni, sem ætlað er að bæta listrænt gildi skáldsagna og kvikmynda um KGB, og þannig „Betrumbæta af- köst skapandi afla“. Sigurvegarar hljóta peningaverðlaun, heið- ursskjöl, heiðurspeninga og „dýrmætar gjafir", og auk þess skírteini sem staðfesta að þeir séu heiðursfélagar í KGB. öll framlög í keppnina ber að senda á eftirfar- andi heimilisfang: Moskva, Mið- borg, Dzershinsky-stræti nr. 2. Á þessu heimilisfangi stendur gulleit húsaþyrping á hæðardragi með yfirsýn yfir Moskvu, og raun- ar yfir öll Sovétríkin. Eitt húsanna er sex hæða ný- gotnesk bygging, þar sem áður var til húsa tryggingarfélagið „Rossia". I dag er ekkert utan dyra, sem gefur til kynna hver þar býr nú — en allir vita það. Átta hæða hús við hliðina, þar sem áð- ur var Hotel Billo, byggðu þýzkir stríðsfangar í lok síðari heims- styrjaldarinnar. Hús þessi voru endurbyggð og endurnýjuð fyrir þremur árum. Þarna nálægt stendur verzlun, sem heitir „Heimur barnanna". Moskvubúar hafa því í hæðnis- skyni nefnt aðalstöðvar KGB „Heim fullorðinna". Rússar al- mennt nefna stöðvarnar oft bara Lubianka, eftir smá læk, sem þar rann, en er löngu þornaður upp. Lubianka Allir helztu fjandmenn sovézkra stjórnvalda hafa setið sem fangar í Lubianka. Þetta þekkta fangelsi er gríðarmikil samsteypa fanga- klefa og ganga í mörgum hæðum neðanjarðar, og teygir sig undir torgið fyrir framan þar sem borg- arumferðin iðar. Ekki er vitað um núverandi ástand undirheima fangaklef- anna, sem voru þéttsetnir á dög- um Stalíns. Aðeins einn vængur Lubianka með um 50 eins manns klefum og 50 fjögurra manna klef- um er nú í notkun sem fangelsi KGB. Fangar fá að eyða klukku- stund á dag uppi á þaki, bakvið háan múr. Skorsteinninn á Lubi- anka þjónar ekki lengur lík- brennsluofni hússins. Stór og háreist herbergi hússins hafa verið hólfuð niður í smærri skrifstofur fyrir rannsóknarmenn KGB. Innan þessara veggja, sem Ben'a, yfírmaður NKWD (mynd þessi var tekin 1953). Andropov 1957. Yfírmaður KGB. Chebrikov, núverandi yfírmaður KGB. Sovézki njósnarinn Sorge.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.