Morgunblaðið - 19.08.1984, Blaðsíða 14
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
ORÐSENDING
til VISA-þjónustuaðila
Athugið að frestur til að skila sölunótum síð-
asta úttektartímabils rennur út mánudaginn 20.
ágúst.
Vinsamlegast skilið þeim í tæka tíð til næsta
VISA-banka eða sparisjóðs.
Aðeins mótteknar sölunótur koma til útborg-
unar.
Rannsóknir á köngur-
ling til að firra
tjóni af hans völdum
Á HALLORMSSTAÐ hafa orðið
verulegar skemmdir í ár af völdum
mauratcgundar, sem stundum er
kölluð köngurlingur, og verður því
minna hoggið af grenitrjám þar, en
ella hefi orðið. Þaðan hafa komið
um 15% af íslenzkum jólatrjám síð-
ustu árin, en þar sem árferði hefur
verið gott og hagstætt trjám í öðrum
landshlutum, verður sá munur vænt-
anlcga að mestu bættur upp með
trjám annars staðar frá.
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi frétt frá Skógrækt ríkis-
ins:
Undanfarna daga hafa komið
fréttir í blöðum og sjónvarpi um
skaða á trjám í Hailormsstað af
völdum trjámaurs.
Af þessu tilefni óskar Skógrækt
ríkisins að koma á framfæri eftir-
farandi upplýsingum um þetta
mál:
1. Um er að ræða maurategund
(stundum nefnd köngurlingur),
sem sækir á allar grenitegund-
ir, sem hér eru í ræktun og auk
þess þin, en erlendis á fleiri
barrtrjátegundir eins og lerki,
furu, sýprusvið o.fl. Þetta dýr
er tií vandræða um allt norður-
hvel jarðar.
Af þessum tegundum virðist
blágreni (Picea engelmanni)
verjast best — eða sú er reynsl-
an á Hallormsstað.
Kvikindið getur drepið tré,
þegar verst lætur og eru dæmi
um það, t.d. frá Bandaríkjum
Norður-Ameríku og héðan frá
íslandi. Það nærist á innihaldi
grænna fruma í barrnálum, svo
að þær missa lit. Tré, sem verða
fyrir þessu áfalli, eru ekki nýt-
anleg sem jólatré næstu 3—5
árin, en ef þau haldast heil-
brigð næstu árin, koma nýir
sprotar með grænum nálum og
þau geta orðið jafngóð öðrum
trjám sem jólatré.
Finlux tilboð!
Nú er að hrökkva eða stökkva.
Hágæða tækí á otrulegu verði.
Ein mest seldu sjónvarpstæki á íslandi.
Tilboð gildir meðan birgðir endast.
Örfá tæki eftir...
Svo nú er að hrökkva eða stökkva.
LAGMÚLA 7.
reykjavík - sími 685333.
UÓMVARPSBOMN
Erlendis veldur maurinn
einkum tjóni á jólatrjám og
plöntum í gróðrarstöðvum.
2. Pyrst varð vart við þennan
maur á Hallormsstað um 1960 í
greniteig, sem vaxinn var upp
af plöntum innfluttum frá Nor-
egi 1948. Hér var um að ræða
stóra grenisendingu, sem var
dreift víða um land, enda hefir
maurinn fundist á ýmsum stöð-
um, en hann hefir ekki valdið
verulegu tjóni fyrr en árið 1976,
og svo sérstaklega í ár. Hann er
mest áberandi á Hallormsstað
og í Eyjafirði, þar sem vorað
hefir snemma, sumarhiti hefir
verið hæstur og úrkoma
minnst, en þessir þættir virka
saman fyrir viðgang hans.
Eins og tíðarfari hefir verið
háttað undanfarna tvo áratugi
á Suður-, Suðvestur- og Vestur-
landi er ekki hætta á að maur-
inn valdi skemmdum á greni í
þessum landshlutum, eftir því
sem nú er best vitað.
3. Allur lifandi gróður er með
meira og minna af lifandi
sníkjudýrum, m.a. innflutt jóla-
tré.
4. Tjón það, sem maurinn veldur
nú á Haliormsstað er að um-
fangi sem hér segir:
Hann sækir — eins og fyrr
var frá greint — á allar greni-
tegundir og fjallaþin, en mjög
misjafniega milli tegunda og
svæða í skóginum.
Yfirleitt eru 1—20% af trjám
orðin brún, en af grænum
trjám eru 0—50% sýkt og
skemmdir á minna en 1% af
blaðagrænu.
5. Á Hallormsstað, þar sem
skemmdir eru einna mestar af
völdum maursins í ár, verður
minna höggvið en ella hefði
orðið af jólatrjám (þaðan hafa
komið um 15% af íslenskum
jólatrjám síðustu árin). Sá
munur verður þó væntanlega
meira en bættur upp annars
staðar vegna þess, hve árferði
hefir að þessu leyti verið trján-
um hagstætt í öðrum lands-
hlutum.
6. Unnið er nú að rannsókn á lifn-
aðarháttum og skaðsemi
maursins hérlendis og vörnum
gegn honum. Markmiðið er að
hindra frekari skemmdir, og að
geta í tíma gengið úr skugga
um, hvenær plága er í aðsigi,
svo að vörnum verði við komið.
Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri.
Dr. Jón Gunnar
Ottósson
líffræðingur.
Hásetinn á Germa Lionel:
Var barinn til
dauðs við yfir-
heyrslurnar
Óslo, 17. ágúst. Krá Jan Krik Laure,
rréttaritara Mbl.
BJÖRN Pedersen, 52 ára gamall há-
seti á norska skipinu Germa Lionel,
var barinn til dauðs af líbýskum
ofbeldismönnum, meðan á yfir-
heyrslum yfir honum stóð í Trípolí.
Þetta sagði einn af líbýsku vörðun-
um um borð í skipinu í Trípolí-höfn.
Er það meðal þess sem komið
hefur fram við yfirheyrslur yfir
áhöfn Germa Lionel, eftir að skip-
ið kom heim til Noregs. Þar fara
nú fram sjópróf vegna málsins.
Upplýsingarnar um drápsað-
ferðina komu fram í lokuðu rétt-
arhaldi, af þvi að skipverjinn, sem
yfirheyra þurfti, hafði orðið fyrir
svo alvarlegum áverkum, að hann
gat ekki mætt fyrir rétti.
Germa Lionel var kyrrsett í
Trípolí, höfuðborg Líbýu, í 10 vik-
ur, áður en skipið fékk leyfi til að
halda áfram ferð sinni. Nokkrir
aðrir skipverja sættu misþyrm-
ingum en sluppu þó lífs úr prís-
undinni.
Norska utanríkisráðuneytið
ætlar að mótmæla þessum atburði
einarðlega við líbýsk yfirvöld. Bú-
ist er við, að þess verði m.a. kraf-
ist, að þeim sem bera ábyrgð á
drápi skipverjans, verði refsað
fyrir verknaðinn.