Morgunblaðið - 19.08.1984, Síða 26

Morgunblaðið - 19.08.1984, Síða 26
82 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 í tilefni 700. ártíöar Sturlu Þóröarsonar, lögmanns og sagnaritara Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, setur Sturlustefnu. í TILEFNI 700. artíða Sturlu Þórðarsonar sagnaritara og lögmann: gekkst Stofnun Árnt Magnússonar fyrir Sturlu stefnu dagana 28. og 29 júlí á Hátíðarsal Háskóla íslands. Flutt voru ellefu erindi um Sturlu og verk hans. Sturla Þórðarson, er á efa einn merkasti sagna- ritari íslendinga. Auk þess að rita íslendingasögu, skráði Sturla sögu Hákon- ar konungs og Magnúsar lagabætis og átti þátt í samningu Járnsíðu. Þá hefur þess einnig verið getið til að Sturla hafí rit- að Eyrbyggju og drög að Grettlu. Einnig eru uppi hug- myndir að Sturla sé höf- undur Laxdælu og Matthías Johannessen hefur leitt að því líkur að Sturla hafi rit- að Njálu. Jónas Krist- jánsson telur hins vegar sennilegra að Sturla hafí ritað Eyrbyggju og að hans mati hefur sami mað- ur ekki skrifað bæði Eyr- byggju og Njálu. Sagðist Jónas helst vilja eigna Sturlu Eyrbyggju, af öðr- um íslendingasögum. Að sögn Jónasar Krist- jánssonar er elsta gerð Landnámu, sem er til, kölluð Sturlubók og er næsta víst að Sturla hafí ritað hana. „Hann hefur tekið eldri gerð Land- námu, skrifað hana upp og aukið um í efni.“ Að öll- um líkindum skrifaði Sturla svokallaða Kristni- sögu, um kristniboð Þor- valdar víðförla og Þang- brands. Sturla hefur notað eldri heimildir sem fíestar eru glataðar auk munn- mælasagna. Jónas benti á að Sturia hafi ritað íslend- ingasögu til að fylla í það sem ekki hafði áður verið skráð. Þannig hefur Sturia ætlað sér að skrá samfellda sögu, frá upp- hafi byggðar og fram á hans dag - Íáíarids* ögu. Sturla Þórðarson (1214—1284), var sonur Þórðar Sturlusonar og var um hríð settur yfir hið forna ríki Sturlunga vestanlands af Gissuri jarli, en var sviptur því af Hallvarði gullskó, sendimanni konungs 1261. í stað Sturlu var settur tengdasonur Sturlu Sig- hvatssonar, Hrafn Oddsson af ætt Seldæla. Sturla Þórðarson átti síðar þátt í aðför að Hrafni ásamt syni sínum Snorra, sem rann út í sandinn. Vegna þessa þurfti Sturla að fara utan á fund kon- ungs til að leita griða, en Hrafn Oddsson var umboðsmaður kon- ungs í Borgarfirði og því aðförin talin drottinssvik. Um utanför Sturlu verður fjallað síðar. íslendingasaga er meginstofn Sturlungasögu, sem er bálkur sagna eftir ýmsa höfunda. Guð- brandur Vigfússon leiddi að því rök að Þórður Narfason, lögmaður á Skarði á Skarðsströnd, hafi tek- ið Sturlungu saman um 1300. Sög- ur Sturlungu er sumar teknar í heilu lagi, en aðrar fleygaðar öðr- um sögum. Sturlungasaga er ekki til í frumgerð Þórðar Narfasonar, en hefur varðveist á skinni í Króks- fjarðarbók, frá miðri 14. öld og í Reykjafjarðarbók frá þvi um 1400. Einnig er Sturlunga til í pappírs- handritum, sem unnin eru upp úr Króksfjarðarbók og Reykjafjarð- arbók og er þeim stundum biandað saman. Hannes Pétursson, skáld segir um Sturlungu í uppflettiritinu Bókmenntir er Bókaútgáfa Menn- ingarsjóðs og Þjóðvinafélagsins gaf út 1972: „Sturlunga er megin- heimild um síðasta aldarskeið ís- lenzka þjóðveldisins, hnignun þess» og upplausn, um baráttu helztu höfðingjaætta, kirkju og Noregs- Itl ..LiU'.' 'Ut vJUi4u >1iXúir. lands. Miklu minna segir frá þjóð- inni sjálfri, störfum hennar og högum. Efnismagnið er geysimik- ið, en svo til einskorðað við ytri þætti, og verður því hið röklega, innra samhengi atburðafléttunnar alloft utanveltu. Frásögnin er hröð og knöpp, með skýrum veru- leikablæ, en ekki hlutlaus, þótt hún beri ýmis merki hlutlægni; reyndar er misjafnlega komið um einstakar sögur í því efni. Mjög víða er brugðið upp snilldarlega gerðum svipmyndum af mönnum, atvikum og viðburðum." íslendingasaga Sturlu Þórðar- sonar, er ekki til í frumgerð frekar en aðrar sögur Sturlungu, en er tekin þar upp lítið breytt. Sagan hefst 1183, og á tímabilinu 1200 til 1242 er íslendingasaga nákvæm- ust og þá eins konar þjóðarsaga. Eins og áður segir gekkst Stofn- un Árna Magnússonar fyrir Sturlustefnu í tilefni 700. ártíðar Sturlu Þórðarsonar. Það var Her- mann Pálsson prófessor sem átti hugmyndina að stefnunni, en und- irbúningur og framkvæmd var í höndum Jónasar Kristjánssonar. Kveðskapur Sturlu Fyrsta erindi ráðstefnunnar flutti Hermann Pálsson prófessor í Edinborg og fjallaði um kveð- skap Sturlu. I upphafi erindisins sagði Hermann Pálsson: „Þegar svo langt er um liðið frá fardægri skálds, að moldir þess hafa legið í jörðu um sjö alda bil, eru menn yfirieitt löngu hættir að undra sig á því hvers vegna kveðskapur hins dauðiega manns fór ekki i gröfina með honum. Um þau kvæði Sturlu Þórðarsonar sem enn eru ofan is af þeirri ástæðu að hann gerði þau svo vel úr garði, heldur er það annað sem veldur miklu um: Sturla tryggði kveðskap sínum maklegan og öruggan stað í þeim fróðleik sem hann setti saman í óbundnu máli.“ Þá vék Hermann Pálsson að utanför Sturlu 1263, gegn eigin vilja, eftir aðförina að Hrafni Oddssyni. Þar komst hann brátt í vinfengi við Magnús konung og Ingilborgu konu hans, en Hákon var þá í Orkneyjum. I fyrstu var Sturlu tekið kuldalega, en eftir að Magnús hafði hlýtt á tröllkonu- sögu er Sturla flutti skipti kon- ungur um skap. Síðar flutti Sturla kvæði er hann orti um Hákon kon- ung og um það kvæði sagði Magn- ús: „Það ætla ég, að þú kveðir bet- ur en páfinn." Þeim kvæðum Sturlu Þórðar- sonar, sem enn eru varðveitt má skipta í tvennt, eftir því hvort þau fjalla um Norðmenn eða íslend- inga. íslensku kvæðin eru tvö. Annað heitir Þverárvísur, en það er nú glatað með öllu, að undan- skildum einum vísuhelmingi í Þorgils sögu skarða. Kvæðið fjall- aði um bardaga Þorgils skarða og Þorvarðar Þórarinssonar við Eyj- ólf ofsa, sem háður var á Þverár- eyrum í Eyjafirði hinn 19. júlí 1255. Hitt er Þorgilsdrápa, erfi- kvæði um Þorgils skarða, er féll frá 22. jánúar 1258. Af Þorgils- drápu eru varðveittar þrjár vísur. Þótt ýmislegt hafi glatast er töluvert til af kvæðum og kvæða- brotum um norsk efni. í fyrsta lagi er Hrynhenda um Hákon kon- ung og eru 21 erindi og vísufjórð- ungi betur varðveitt. Þá er Hákon- arkviða, sem Sturla orti áður en hann ritaði sögu Hákonar og eru 42 vísur varðveittar. Þriðja kvæð- ið, einnig um Hákon konung heitir Hrafnsmál og eru 20 erindi til. Hrafnsmál fjallar um herför kon- ungs til Skotlands og Suðureyja árið 1263. Fjórða kvæði Sturlu um Hákon er Hákonarflokkur, en af honum eru 11 vísur varðveittar. Að lokum hefur Sturla ort 12 vísna flokk og síðan drápu um Birgi jarl af Svíþjóð, en af þeim kveðskap er nú hvorki til tangur né tetur. Heimildagildi í erindi sínu sagði Hermann Pálsson, það aidrei nógsamlega brýnt fyrir sagnfræðingum að kveðskapur Sturlu hefur mikið heimildagildi. Allur lýtur hann að atburðum, en hafi Sturla ort ein- hverja lýrikk þá hefur hún glat-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.