Morgunblaðið - 19.08.1984, Side 23
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
79
Ferðamanna-
straumur á
Barðaströnd
Barðaströnd, 14. ágúst.
TÍÐARFAR hér á ströndinni hefur
verið óvenju vont hér í sumar og er
heyskapur kominn heldur skammt á
veg þess vegna. En þótt veður hafi
verið slæmt og mjög vætusamt hefur
fólk ekki alveg gefið upp öndina
hvað félagsmál varðar. Því til sönn-
unar má nefna að héraðsmót Hér-
aðssambandsins Hrafnaflóka, HHF,
var haldið á Bfldudal helgina 28. og
29. júlí sl. með miklum glæsibrag.
Þar setti t.d. Einar Geirsson frá
Tálknafirði, Vestfjarðamet í há-
stökki í flokki 12 ára og yngri og
reyndi hann einnig við íslands-
met, en tókst það ekki í þetta sinn.
Enn fremur var haldið hesta-
mannamót á Þingeyri með pomp
og parkt sl. helgi sem lauk með
balli með hljómsveitinni Kan í fé-
lagsheimilinu á Þingeyri. Á mót-
inu voru samankomin flest hesta-
félög á Vestfjörðum og var keppt í
hinum ýmsu greinum.
Komu Barðstrendingar með
mörg verðlaun af því móti, eins og
af héraðsmótinu á Bíldudal, þvi
þrátt fyrir fámenni hér á Barða-
strönd ríkir meðal fólksins mikill
íþróttaáhugi hvað allar íþróttir
varðar og eru hér margir efnilegir
unglingar í íþróttum.
Verslunarmannahelgin var svo
haldin hér, eins og í fyrrasumar,
og var það mjög fjörugt, enda um
skemmtun í Birkimel að ræða.
Þrír dansleikir voru t.d. haldnir í
félagsheimilinu yfir helgina þar
sem rokkhljómsveit Steingríms,
frá Akureyri, lék. í heild fór helg-
in mjög vel fram og voru allir
ánægðir.
í sumar hefur verið mikill
ferðamannastraumur um strönd-
ina þótt veður hafi ekki verið upp
á það besta fyrir ferðafólk. Mjög
hefur borið á því hversu erlendir
ferðamenn eru margir hér í
sumar, enda hér margt forvitni-
legt að sjá. Jarðfræðinemar frá
Háskóla íslands hafa verið að
leita hér í fjöllunum á Barða-
strönd að mismunandi bergteg-
undum. Hafa þeir fundið margar
merkilegar tegundir hér. Fundu
þeir t.d. tíu milljón ára gamlan
surtabrand í Múlahyrnu.
Barðstrendingar eru bjartsýnir,
þótt á móti blási nú um stund, og
horfa björtum augum fram á veg.
SJ.Þ.
Norskir og
sovéskir fiski-
fræðingar funda
6sló, 17. ágúst. Frá Jan Erik Laure, frétUriUr
Mbl.
TÍU norskir og tíu sovéskir fiski-
fræóingar funda í þessari viku f
Bergen og ræða ýmis líffræðileg efni
sem varða Barentshaf.
Það er þó loðnan sem er aðalefni
fundarins. Ekki er líklegt að um
neina samninga eða tillögugerðir
verði að ræða eftir þessar viðræð-
ur.
ESSO BENSIN
-kemur þér lengra
8
vri
¥
D
<
Bensín bætiefnið es frá hinu virta
vesturþýska efnafyrirtæki BASF er nú
komið á tankana hjá ESSO um nær
allt land.
Es er besta bætiefnið sem rannsókna-
stofur ESSO mæla með í dag, eftir
margra ára rannsóknir.
Es heldur blöndungnum, ventlunum
og sogkerfmu hreinu, tryggir hámarks
aksturseiginleika og endingu vélarinnar
og lágmarks gangtruílanir.
Es vemdar bensínkerfi bílsins gegn
ryði og tæringu.
Es bætiefnið sparar bensín og kemur þér lengra
OLÍUFÉLAGIÐ HF
STORLÆKKAÐ
VERÐ