Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
201. tbl. 71. árg._________________________________FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Japan:
Chun í tíma-
mótaheimsókn
Tókýó, 6. september. AP.
HIROHITO, Japanskeisari, sagði í dag í veislu, sem hann hélt til
heiðurs Chun Doo-Hwan, forseta Suður-Kóreu, að hann „harmaði
atburði liðinnar tíðar“ og átti þá við hernám Japana á heimsstyrjald-
arárunum. Chun Doo-Hwan er fyrsti leiðtogi Kóreumanna, sem
kemur í opinbera heimsókn til Japans.
Þegar Chun Doo-Hwan kom
til Tókýó í dag var öryggis-
gæslan meiri en áður eru
dæmi um við opinbera heim-
sókn. Hafa enda ýmsir orðið
til að mótmæla heimsókninni,
bæði Japanir og Kóreumenn,
sem andvígir eru stjórnar-
farinu í Suður-Kóreu. í veisl-
unni, sem Hirohito, keisari,
hélt, kvaðst hann harma at-
burði fortíðarinnar og trúa
því, að þeir endurtækju sig
ekki. Veik hann ekki berum
orðum að hernámi Japana og
meðferð þeirra á Kóreu-
mönnum og hefur það vakið
óánægju meðal Suður-Kóre-
umanna, sem segja þetta enn
eitt dæmið um, að Japanir
komi sér ávallt hjá að biðjast
einlæglega afsökunar.
Samskipti Japana og Suð-
ur-Kóreumanna komust í eðli-
legt horf árið 1965 og í janúar
i fyrra kom Nakasone, forsæt-
isráðherra Japans, í óvænta
heimsókn til Seoul. Chun
Doo-Hwan, forseti, er nú að
endurgjalda hana.
Chun Doo-Hwan, foraeti Suður-Kóreu, kannar hér heiðursvörð hermanna við Akasaka-höllina f Tókýó. Þetta er í
fyreta sinn sem kóreskur leiðtogi kemur f opinbera heimsókn til Japans og á hún að marka „nýtt upphaf' í
samskiptum þjóðanna, sem lengst af hafa einkennst af yfirgangi Japan. AP
Brian Mulroney, næsti forsætisráðherra Kanada:
• •
„Oxlum ábyrgð okkar
í varnarsamstarfími“
Nikolai V. Ogarkov.
Nýr yfir-
maður her-
afla Rússa
Mowkvu, 6. september. AP.
NIKOLAI V. Ogarkov, yfirmaður sov-
éska heraflans, var í dag leystur frá
störfum. Sagði Tass-fréttastofan, að
honum hefði verið fengið nýtt starf en
nefndi ekki hvert það væri. Erlendis
er Ogarkov kunnastur fyrir frétta-
mannafund þar sem hann réttlætti
þær aðgerðir Sovétmanna að skjóta
niður suður-kóreska farþegaflugvél
með 269 manns innanborðs.
Eftirmaður Ogarkovs sem yfir-
maður sovéska heraflans og fyrsti
aðstoðarvarnármálaráðherra er
Sergei F. Akhromeyev, sem lengi
hefur verið næstæðstur í sovéska
herráðinu. Miklar vangaveltur eru
um ástæðurnar fyrir þessum breyt-
ingum. Benda sumir á, að í vor hafi
birst viðtal við Ogarkov i Rauðu
stjörnunni, blaði hersins, þar sem
hann sagði, að hvorugt stórveld-
anna yrði nokkurn tima fært um að
toríma hinu með þvi að verða fyrra
til í kjarnorkustyrjöld. Sagði hann,
að kjarnorkuvopnakapphlaupið
væri „tilgangslaust*4 og virtist gefa
í skyn, að Sovétmenn legðu of mikla
áherslu á kjarnorkuvopn en
gleymdu að fylgjast með tækni-
þróun annars vopnabúnaðar.
Telja sumir sérfræðingar, að
ágreiningur sé um stefnuna i
varnarmálum og að síðustu atburð-
ir sýni, að skoðanir Ogarkovs hafi
orðið undir. Aðrir telja, að breyt-
ingarnar boði það, að Ogarkov taki
við af Ustinov sem varnarmálaráð-
herra.
Toronto, 6. aeplember. AP.
„Það er kominn tími til að bisda
enda á ráðleysislegan ruglandann í
samskiptum okkar við Bandaríkja-
menn og aðra bandamenn okkar,“
sagði Brian Mulroney, verðandi for-
sætisráðherra Kanada, í ræðu, sem
hann flutti í dag í Toronto. Kjöri
hans hefur víða verið fagnað mjög
og ekki síst af fulltrúum atvinnulífs-
ins í Kanada, sem gera sér vonir um,
að íhaldsflokknum takist að rífa
þjóðina upp úr efnahagserfíðleikun-
um.
Engar breytingar urðu á verð-
bréfamarkaðnum í kjölfar stórsig-
urs thaldsflokksins enda hafði
verið við honum búist þótt hann
yrði meiri en nokkurn óraði fyrir.
Helsta viðfangsefni stjórnar
Mulroneys verður efnahagsmálin
en í Kanada hefur atvinnulifið
tekið seint og illa við sér eftir
samdrátt síðustu ára og atvinnu-
leysið festst í 11%. Mulroney
hyggst endurskoða lög um erlenda
fjárfestingu i landinu með það
fyrir augum að laða að fyrirtæki
og auka þannig atvinnuna í stað
þess að hrekja þau burt eins og
reyndin hefur verið.
í ræðu, sem Mulroney flutti i
dag í Toronto, kvaðst hann vilja
gera það lýðum Ijóst, að stjórn
hans yrði ekki tvistígandi í sam-
skiptum sinum við Bandaríkja-
menn og vestræna bandamenn
eins og verið hefði með Trudeau-
stjórnina. „Nú er kominn tími til,
að Kanadamenn axli þá ábyrgð og
þann heiður, sem því fylgir að
taka þátt i vörnum vestrænna
þjóða,“ sagði Mulroney en það er
stefna íhaldsflokksins að auka
framlög til varnarmála og fjölga i
hernum.
Farið að snjóa
í Alpalöndum
Næstum einsdæmi á þessum árstíma segja
svissneskir veöurfræðingar
Char, Stísb, 6. Heptember. AP.
FYRSTU snjóar haustsins féllu í dag í fjallahéruðum í Sviss, Austurríki
og Suður-Þýskalandi og þykir fíestum einsýnt, að sumrinu sé þar með
lokið á þessum slóðum. Er það næstum einsdæmi, að veturinn skuli
leggjast svona snemma að.
AP
Þegar fólk reis úr rekkju í bænum Lenzerheide í Sviss í gærmorgun
ætlaði það ekki að trúa sínum eigin augum. Hálfsmetra þykkt snjólag
huldi sumargrænan gróðurinn og göturnar ófærar allri umferð. Snjóaði í
fyrrinótt í Sviss, Austurríki og Suður-Þýskalandi og höfðu snjóplógar nóg
að gera við að ryðja af vegum og fjallaskörðum.
í nótt féll hitastigið úr 20
gráðum á celcíus niður í frost-
mark og fylgdu í kjölfarið mikl-
ar rigningar víða en annars
staðar snjóaði. Snjóplógar voru í
dag á ferðinni i kantónunni
Grisons í Suðaustur-Sviss og
einnig í Arlberg og Silveretta í
vesturhluta Austurrikis. í
Vestur-Þýskalandi snjóaði í
Svörtuskógum, en á sumum
stöðum þar leysti snjóa síðasta
vetrar ekki fyrr en fyrir þremur
vikum. Mörg fjallaskörð eru lok-
uð í þessum löndum en önnur
fær bílum með keðjur.
Veðurfræðingar í Sviss segja,
að snjókoma snemma í septem-
ber sé næstum einsdæmi, en það
mun þó hafa gerst árið 1931.