Morgunblaðið - 07.09.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984
Álviðræðum
haldið áfram
í Amsterdam
EKKI tókst að Ijúka álviðræöun-
um sem hófust í Amsterdam á
miðvikudag í gær eins og talið
var líklegt að yrði. Samninga-
nefndir Islendinga og Alusuisse
hittast aftur á fundi fyrir hádegi
í dag.
Þegar Morgunblaðið hafði
samband við dr. Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóra,
formann íslensku samninga-
nefndarinnar, síðdegis í gær
sagði hann að allnokkuð hefði
miðað á fundunum, en þeim
væri ekki lokið að sinni. Ræðst
yrði við fram á kvöld og að
minnsta kosti fyrri hluta dags í
dag.
Verði framhaldið í samræmi
við það sem áður hefur verið
ákveðið munu sérfræðingar að-
ila vínna áfram að úrlausn
hinna ýmsu þátta málsins og
þeir hittast að nýju í október
næstkomandi.
MorgunblaAið/ Friðþjófur Helgason.
Vísindamenn Orkustofnunar á Leirhnjúk um sexleytið á fyrsta degi
Kröflugossins. Fremstur er Ásgrímur Guðmundsson, jarðfræðingur,
fyrir aftan hann er Guðjón Guðmundsson, jarðfrsðingur, þá Benedikt
Steingrímsson, eðlisfræðingur, Axel Björnsson, jarðeðlisfræðingur og
loks Ingólfur Tjörvi Einarsson, starfsmaður Kröfluvirkjunar.
Skjálftavirkni og landris
NOKKUÐ öflugt gos var í gærkvöldi
nyrst á sprungusvsðinu við Kröflu,
þar sem eru svokallaðir Éthólar. í
gsr byrjaði aftur að gjósa skammt
fyrir norðan Rauðhól um miðbik
svsðisins, en það gos hafði fjarað að
mestu út um kvöldmatarleytið og var
nánast ekkert hraunrennsli úr gígn-
Skjáltavirkni hélt áfram og var
órói á mælum. Land hafði risið
með jöfnum hraða síðasta sólar-
hringinn. Landrisið kom vísinda-
mönnum nokkuð á óvart, því í
fyrri Kröflugosum byrjaði land
ekki að rísa fyrr en eftir að gosum
lauk.
VSI ræðir verkbann
RARIK lokar
fyrir tilmæli ráðherra
þrátt
Rafmagnsveitur ríkisins lokuðu
fyrir rafmagn til nokkurra fisk-
vinnslufyrirtskja í gsr þrátt fyrir til-
msli iðnaðarráðherra til RARIK að
ekki yrði um frekari lokanir að ræða
um sinn. Ríkisstjórnin samþykkti á
fundi sínum í gsrmorgun að skipa
nefnd fulltrúa iðnaðar-, fjármála- og
sjávarútvegsráðuneytisins til þess að
rsða vanskil flskvinnslunnar við
RARIK.
Jóhann og
Helgi efstir
HELGI Olafsson þokaði sér að
hlið Jóhanns Hjartarsonar í
efsta sæti á Skákþingi íslands
þegar hann sigraði Dan Hans-
son í 4. umferð í gærkvöldi. Jó-
hann Hjartarson gerði jafntefli
við Björgvin Jónsson.
Önnur úrslit urðu þau að
Margeir Pétursson vann Hilmar
Karlsson, Haukur Angantýsson
og Karl Þorsteins gerðu jafn-
tefli svo og Jón L. Arnason og
Guðmundur Sigurjónsson.
Skákir Sævars Bjarnasonar og
Ágústar Karlssonar og Lárusar
Jóhannessonar og Halldórs G.
Einarssonar fóru í bið.
Helgi ólafsson og Jóhann
Hjartarson eru efstir og jafnir
með 3 vinninga. Guðmundur
Sigurjónsson er í þriðja sæti
með 2lÆ vinning. Biðskákir
verða telfdar klukkan 18 á
morgun á Hótel Hofi.
„Það var óskað eftir því við
okkur að við frestuðum frekari að-
gerðum þar til niðurstaða kæmi úr
viðræðunum. Stjórn RARIK hefur
ekki haldið fund um málið ennþá
og það var lokað á nokkrum stöð-
um í dag, en ég get ekki nefnt þá
staði ennþá,“ sagði Kristján
Jónsson rafmagnsveitustjóri I
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Iðnaðarráðherra hefur beint
þeim tilmælum til RARIK að ekki
verði um frekari lokanir að ræða
og ég veit ekki betur en að ekki
Bók um ísland í Sovétrfkjunum:
Vilja samning um
„samvirkt öryggi“
NÝLEGA kom út í Sovétríkjunum
bók, sem nefnist „Island, vanda-
mál utanríkisstefnu“ eftir O.V.
Tsérstvova. Frá þessu skýrir Arnór
Hannibalsson í grein í Morgun-
blaðinu í dag og segir, að í bók
þessari séu engin dul dregin á þau
markmið, sem Sovétstjórnin stlar
að ná á íslandi.
Arnór Hannibalsson segir þau
þessi samkvæmt bókinni: „1.
Losa um tengsl íslands við Atl-
antshafsbandalagið og fá það að
lokum til að segja sig úr banda-
laginu. 2. Stofna „kjarnorku-
vopnalaust svæði“ á Norðurlönd-
um með aðild Islands og ábyrgð
Sovétríkjanna á „kjarnorku-
vopnaleysinu". 3. Þrýsta íslandi
síðan til að semja við Sovétríkin
(Varsjárbandalagið) um svokall-
að „samvirkt öryggi“ („kollektív-
naja bésópasnost“).
Arnór Hannibalsson segir, að
höfundur bókarinnar leggi mikla
áherslu á, að hlutverk verslun-
arviðskipta Sovétríkjanna við
hin smærri ríki Evrópu sé að
gera þau „pólitískt óháðari
áhrifameiri vestrænum banda-
mönnum“. Grein Arnórs Hanni-
balssonar er á miðopnu Morgun-
blaðsins í dag.
FRAMKV ÆMDANTJÓRN Vinnu-
veitendasambands íslands samþykkti
á fundi í gsr að boða til fundar sam-
bandsstjórnar VSÍ á mánudag til þess
að rsða stöðuna í samningamálum og
taka afstöðu til verkbannsheimildar
til framkvsmdastjórnarinnar vegna
boðaðra verkfalla. Fyrsta boðaða
verkfallið kemur til framkvsmda á
mánudag ef ekki nsst samkomulag
milli útgefenda og Félags bókagerð-
armanna fyrir þann tfma.
„Vinnuveitendur eru í vörn en
ekki sókn. VSÍ mun afla sér verk-
bannsheimilda vegna boðaðra verk-
falla, en ég ítreka að engin ákvörð-
un hefur verið tekin um að beita
verkbanni. Ákvarðanir þar að lút-
andi verða teknar þegar og ef til
boðaðra verkfalla kemur. Við erum
aðeins að fara fram á verkbanns-
heimild," sagði Magnús Gunnars-
son, framkvæmdastjóri VSf í
gærkvöldi.
Verkalýðsfélög á Selfossi, Hellu,
Vík í Mýrdal og Kirkjubæjar-
klaustri hafa boðað verkfall frá 15.
og 17. september í sláturhúsum
Sláturfélags Suðurlands. í gær var
fundur hjá ríkissáttasemjara með
fulltrúum í Félagi bókagerðar-
manna og útgefanda. Fundurinn
stóð í tæpar tvær klukkustundir.
Ekkert nýtt kom fram og hefur
næsti fundur verið boðaður klukkan
14 á morgun.
Forsætisráöherra á fundi í gærkvöldi:
Skilyrði að bann
við verðtryggingu
launa verði áfram
verði gripið til lokana meðan verið
er að ganga frá þessum málum,“
sagði Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra við Mbl. uppúr há-
degi í gær, að afstöðnum ríkis-
stjórnarfundi.
„Það var samþykkt strax í vor
að opinber fyrirtæki tækju þátt í
skuldbreytingunni, sem nú loksins
er verið að ganga í af fullum
krafti. Það var ákveðið að lokun-
um RARIK til fiskvinnslunnar
yrði að fresta þar til skuldbreyt-
ing fiskvinnslunnar yrði lokið,"
sagði sjávarútvegsráðherra.
„ÉG TEL skilyröi að framlengt verði
bann á næsta ári við verðtryggingu
launa,“ sagði forsætisráðherra,
Steingrímur Hermannsson, m.a. á al-
mennum borgarafundi í Átthagasal
Hótel Sögu í gærkvöldi. Þar gerði
hann grein fyrir nýjum verkefnalista
ríkisstjórnarinnar. Hvert sæti var
skipað í salnum og meðal gesta var
Albert Guðmundsson, fjármálaráð-
herra.
Formaður Framsóknarflokksins
gerði í upphafi ræðu sinnar grein
fyrir stöðu þjóðmála og þeim for-
sendum, sem stjórnarflokkarnir
settu fyrir nýjum verkefnalista.
Sagöi hann að svigrúm til launa-
hækkana væri mjög lítið á næsta
ári, en kvaðst ekki gefa þá tölu upp
opinberlega fyrr en á morgun,
föstudag. Hann kvað stjórn pen-
inga- og fjármála hafa brugðist og
að nú yrði að taka þau mál mjög
föstum tökum. Varðandi niðurfell-
ingu tekjuskatts upplýsti Stein-
grímur að mörkin yrðu sett við 300
þúsund króna árstekjur einstakl-
ings.
Forsætisráðherra sagði að til
umræðu væri að auka gjaldeyris-
frelsi og samfara takmörkun ríkis-
ábyrgða væri rætt um að heimila
einkaaðilum að taka erlend lán á
eigin ábyrgð án ríkisábyrgða. Nokk-
urrar vantrúar gætti í máli ráð-
herrans um áorðnar vaxtabreyt-
ingar sem orðið hafa að undan-
förnu.
um Ashkenazy
á ensku og íslensku
VÆNTANLEG ER á markaðinn
bók frá bókaútgáfunni Vöku um
Vladimir Ashkenazy. Bókin ber
nafnið Ashkenazy — austantjalds
Vladimir Ashkenazy.
Samkomulagið markar tímamót“
99
— segir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um nýjan verkefnalista ríkisstjórnarinnar
„Ég tel að þetta samkomulag
marki tímamót. Með því er lagður
grundvöllur að eflingu atvinnulífs
og mjög róttækum breytingum á
fjármagnskerflnu. Það verður
dregið úr miðstjórnarvaldi, arð-
semiskröfur verða auknar og upp-
bygging atvinnulífs mun hafa for-
gang, fram yflr aðra þætti í hag-
kerflnu," sagði Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins, er
blaðamaður Mbl. ræddi við hann í
gærkvöldi í tilefni þess að hann og
formaður Framsóknarflokksins,
Steingrímur Hermannsson, gengu
frá nýjum verkefnalista ríkis-
stjórnarinnar síðdegis.
Þorsteinn var spurður, hvort
athugasemdir þingflokka þeirra,
sem Mbl. hefur skýrt frá, hefðu
haft áhrif til breytinga á verk-
efnalistann. Hann svaraði:
„Þessar viðræður okkar Stein-
gríms í gærkvöldi og í dag leiddu
til þess að hnikað var til orða-
lagi, en hvergi er um neinar efn-
islegar grundvallarbreytingar að
ræða.“
Þá var formaður Sjálfstæðis-
flokksins spurður í ljósi nýrra
frétta um stöðu fiskvinnslufyr-
irtækja, hvort hinn nýi verk-
efnalisti gerði ráð fyrir lagfær-
ingum á stöðu sjávarútvegs.
Hann svaraði: „Á meðan sam-
komulagið hefur ekki verið birt
er óhægt um vik að tilgreina ein-
staka efnisþætti, en þó er óhætt
að geta þess, að ætlunin er að
endurgreiða uppsafnaðan sölu-
skatt til sjávarútvegsins, sem
mun bæta rekstrarstöðuna
nokkuð.“
Formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Þorsteinn Pálsson, sagði
ennfremur um verkefnalistann í
heild: „I honum eru mjög mikil-
vægar breytingar á ýmsum svið-
um, eins og í bankamálum,
stjórnsýslu og landbúnaðarmál-
um. Ég er sannfærður um það,
að auðnist okkur að viðhalda því
verðbólgujafnvægi sem náðst
hefur og þjóðin eyðileggur ekki
þann árangur er hægt á grund-
velli þessa samkomulags að
hefja þá sókn til bættra lífs-
kjara, sem við höfum lengi
stefnt að. Ef við höldum rétt á
málum á að vera hægt að leggja
grundvöll að þeirri atvinnuupp-
byggingu, sem tryggt gæti
mönnum raunveruleg verðmæti
á bak við launahækkanir þegar
fram í sækir og árangurinn er
kominn í Ijós.“
og vestan, og kemur hún út á sama
tíma í London hjá (öllins-útgáf-
unni. Bókina skráði Jasper Parrott
sem hefur starfað lengi með Ashk-
enazy, og hafa þeir unnið að bók-
inni í þrjú ár. Bókin er byggð upp á
viðtölum og fjallað er um feril
hans.
Morgunblaðið hafði samband
við Ólaf Ragnarsson hjá Vöku af
þessu tilefni. ólafur sagði að
Ashkenazy fjallaði um líf sitt og
reynslu sína af stjórnvöldum í
Sovétríkjunum og leyninlögregl-
unni þar, KGB. Ekki síst þegar
hann flutti þaðan ásamt konu
sinni, Þórunni Jóhannsdóttur, og
syni þeirra Stefáni. Ashkenazy
lýsir í bókinni afstöðu sinni til
tónlistar, stjórnmála og
samferðamanna, og ræðir um
dvöl sína á íslandi og afskipti sín
af íslensku menningarlífi. Ashk-
enazy gerir samanburð á lífi
fólks á Vesturlöndum og land-
anna austan járntjalds, og leggur
mikla áherslu á að Vesturlanda-
búar geri sér ekki grein fyrir því
hvers virði frelsið er.
Bókina þýddi Guðni Kolbeins-
son, en hún er um 240 síður og
með talsvert mörgum myndum
bæði frá íslandi og erlendis frá.
Þorvaldur Skúla-
son, listmálari,
jarðsunginn í dag
ÚTFÖR Þorvalds Skúlasonar,
listmálara, verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag kl.
13.30. Séra Þórir Stephensen jarð-
syngur. Dómkórinn, undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar, organ-
leikara, syngur og Hlíf Si’gurðar-
dóttir leikur á fiðlu.