Morgunblaðið - 07.09.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1984
7
Lélegt f Dölunum
Mbl. fékk þau tíðindi hjá
Gunnari Björnssyni kokki í
Þrándargili við Laxá í Dölum í
gær, að slök veiði hefði verið í
ánni síðustu daga og vikur.
„Áin er afar vatnslítil og menn
greinir á um hvort eitthvað er
af fiski í ánni eða ekki. Sumir
segja engann lax þar sem aðrir
sjá laxa fyrir. Sjálfur veit ég
um nokkuð af laxi með vissu á
nokkrum stöðum í efri ánni, en
hún er daufari neðar," sagði
Gunnar.
Þrír laxar komu á land 1
fyrradag, 6, 16 og 17 punda og
munu komnir á land milli 780
og 790 laxar. Hópurinn sem
lauk veiðum í gærmorgun fékk
5 laxa á tveimur dögum, en al-
gengt hefur verið þetta 6 til 8
stykki per holl upp á síðkastið.
Nokkrir lúsugir fiskar veiddust
eftir Höfuðdagsstrauminn, en
síðustu laxar hafa verið legnir.
Stærst í sumar var 22 punda
lax, en nokkrir 18 til 20 punda
fiskar hafa einnig veiðst og
framan af var meðalþunginn
geysihár, en hefur minnkað
síðan.
Veiði lokið í Laxá í Þing.
Bændur og hjálparkokkar
þeirra keppat nú við að veiða
klaklax í Laxá í Þing, en hann
veiða þeir á flugu, en það gefur
þeim trúlega meiri ánægju
Iðan í Stóru Lui, einn besti veiði
staöur árinnar í mörg ár.
heldur en ef dregið væri á.
Eitthvað hefur þeim orðið
ágengt. Hins vegar lauk veiði
formlega um mánaðamótin og
Mbl. fékk þær upplýsingar í
Veiðihúsinu að Laxamýri í
gær, að veiðin á svæðum Lax-
árfélagsins hefði numið um 900
löxum. Reytingsafli var síðustu
dagana og nokkrir vænir náð-
ust þá, þ.á m. stærsti laxinn af
þeim svæðum, 22 punda fiskur
sem Kristján Jónsson dró á
land.
Eftir því sem blm. Mbl.
kemst næst, mun heildarveiði
vera nálægt 1100 löxum, en það
er ögn skárra en í fyrra. Nú
byrjaði veiðin mun betur en þá,
í fyrra sótti hún sig hins vegar
ef nokkur var, nú dalaði .hún
hins vegar ef nokkuð var.
Veiðibækur eru einnig fyrir
löndum Nes og Árnes annars
vegar og fyrir löndum Núpa og
Kjalar hins vegar. Á þessum
svæðum veiddist betur í sumar
en í fyrra.
Tvær litlar...
Stundum álpast áll á hjá
veiðimönnum og er erfiðari
glíma að handsama þann hála
vatnabúa á þurru en að kippa
honum upp úr heimkynnum
hans. Oft eru álarnir vænir, en
lítili var hann sem veiddist í
Andakílsá fyrir skömmu. Hann
var svo lítill, að sjónarvottar
tóku í fyrstu ekki eftir því að
hann væri á, undruðust fremur
hve stor maðkabeitan virtist
vera. Er állinn var losaður kom
í ljós að hann var ekki fastur á
önglinum, svo lítill var hann að
það var ekki fræðilegur mögu-
leiki fyrir hann að gleypa
hann. En sá litli hafði ekki dáið
ráðalaus, hann saug í sig feit-
ann laxamaðkinn af skoska að-
alskyninu, en af meira kappi en
forsjá, því hann gat með engu
móti ælt bitanum er honum
varð ljós hættan sem á ferðum
var.
Svo er það sagan um veiði-
manninn sem var að kasta 18
gramma Toby fyrir norðan
fyrir nokkru. Eitthvað kom við
spóninn og brá kappinn snar-
lega við. Því næst landaði hann
afætu sem var minni en spónn-
inn, en hafði þó gripið hann og
var föst á önglinum! Var
stubbnum gefið líf.
Almennur borgarfundur Freeport-klúbbsins:
Skýrsla áfengismála-
nefndar verður rædd
Freeport-klúbburinn boöar til al-
menns borgarafundar að Hótel Loft-
leiöum Kristalsal, laugardaginn 8.
september nk. kl. 14.45.
Fundarefni er umfjöllun um
áfangaskýrslu áfengismálanefnd-
ar rikisstjórnarinnar, sem nýlega
kom fram á sjónarsviðið og fengið
hefur töluverða umfjöllun á les-
endasíðum dagblaðanna.
Boðið hefur verið til fundarins
öllum nefndarmönnum, fulltrúum
sambands veitinga- og gistihúsa,
fulltrúum SÁÁ, auk alþingis-
mannanna Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, Jóns Magnússonar og
fulltrúa annarra stjórnmála-
flokka.
Tilgangur þessa fundar er að
koma á stað umræðu um áfanga-
skýrsluna, forsendur þeirra til-
lagna sem þar koma fram, og gefa
þeim öðrum, sem áhuga hafa á
áfengismálum kost á að kynna sér
viðhorf, með það að leiðarljósi að
skoðanaskipti leiði til raunhæfrar
áfengismálastefnu.
(FrétUtilkynning.)
Rotary á íslandi 50 ára
UM ÞESSAR mundir eru 50 ár liðin
frá því að fjrsti Rotary-klúbburinn
var stofnaður á fslandi og verður
þess minnst með kvöldfagnaði hinn
13. septemger næstkomandi.
Rotary-umdæmið á íslandi
gengst fyrir hófi i Átthagasal
Hótel Sögu í tilefni hálfrar aldar
afmælisins. Hefst það klukkan 19
fimmtudaginn 13. september,
Ólafur G. Einarsson, alþingismað-
ur, flytur hátíðarræðu.
Afmælishófið er opið öllum Rot-
ary félögum og mökum þeirra. Á
Reykjavíkursvæðinu eru miðar
seldir í klúbbunum en þeir sem
koma annars staðar að geta keypt
miða við innganginn.
Fastagestir
Gufubaðstolu
Jónasar
Halldórssonar
Áríöandi fundur, sem allir hafa beöiö eftir um and-
lega og líkamlega framtíöarheill okkar, veröur
haldinn milli kl. 17 og 19 í dag aö Gufubaðstofunni
Nessól, Austurströnd 1, Seltjarnarnesi (Nesskips-
húsinu). Foringjarnir
var
nú er nauðsyn
Nú ættu íslendingar að fjölmenna á stórleik í íslensku
knattspyrnunni, þar sem íslendingar leika gegn Wal-
es á Laugardalsvellinum 12. septembernk. kl. 18.15.
Þessi leikur er fyrsti leikur þjóðanna í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar 1986.
Þaö voru einmitt viö íslendingar sem uröum pess
valdandi aö atvinnumannaliö Wales komst ekki
áfram í síðustu keppni — hvaö gerist nú?
Með þátttöku íslenskra áhorfenda hafa undur
gerst. Þess vegna hvetjum viö alla sem vettlingi
geta valdiö til aö fjölmenna á völlinn og tryggja sér
miöa í forsölunni á Lækjartorgi strax í dag.
/d u w iN ÍSLENSK
($ Í)KNATTSPYRNA
EIMSKIP
MOTEL
þjónusta
SKULAGÖTU 30
s»*ar 1 23 88 a 2 3388
GROHE
adidas